Morgunblaðið - 31.03.1966, Síða 26

Morgunblaðið - 31.03.1966, Síða 26
ZB MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 31. marz 1966 Sundmöt ÍR Ari, Hörður, Guðm. Ing. o.fl. keppa í kvöld I. deild kvenna VaSur og FH efst og i'ófn að stigum EITT fjölmennasta sundmót um langan tíma fer fram í kvöld. Það er sundmót 1R og fer fram í Sundhöllinni og hefst kl. 8.30. Vnglingar eru fjölmennastir en til nýlundu ber að nokkrir úr hópi „gamalla stjarna“ meðal sundmanna koma nú aftur og synda með félögum sínum í sið- ustu grein kvöldsins 8x50 m boð sundi. Auk hinna ungu og „hinna gömlu“ eru svo allir sem sett hafa svip á sundmótin að undan- förnu. ■úr Keppni kvenna Konur keppa í 100 m. bak- sundi, 100 m flugsundi, 100 m Guðmundur Ingólfs. og Helgi Sig. keppa nú aftur. bringusundi og 4x50 m fjórsundi. í einstaklingsgreinunum þremur verður aðalkeppnin nú sem fyrr milli Hrafnlhildar Guðmundsdótt ur og stallsystranna úr Á Hrafn- 'hildar Kristjánsdóttur og Matt- hifldar Guðmundsdóttur. Hrafn- hilur G. er sigurstranglegust en hinar hafa veitt henni harða keppni upp á síðkastið. ■úr Davíð og Guðmundur Búast má við að keppnin í 200 m skriðsundi karla verði ein tvísýnasta grein kvöldsins. Á þeirri vegalengd má ætla að Guð mundur og Davíð séu líkastir. Davíð er betri í því lengra en Guðmundur harðari á sprettin- urn. Þarna er millivegalengdin sem enginn getur spáð um. Sömu sögu er reyndar að segja um 100 m flugsund karia, þar sem sömu menn berjast ásamt Guðm. Harðarsyni. -k Boðsundið 8x50 m sundið verður án efa skemmtilegt. Fyrr á árum var synt allt upp í 20x50 m boðsund og allir sótraftar á flot dregnir. Og vissulega er gaman að svo fjölmennum boðsundum og hér reyna ÍR-ingar að hefja slík „al- menningssund" aftur til vegs. Margir hinna gömlu koma fram á ný m.a. Ari Guðmundsson, Hörður Jóhannesson og Helgi Sigurðsson í sveit Ægis, KR-ing- ar tefla fram kjarna síns ágæta sundknattleiksliðis. í sveit Ár- manns verða auk hinna yngri þeir Pétur Kristjánsson og Sig- geir Siggeirsson og í svet ÍR m.a. Ólafur Guðmundsson, Egill Hall- dórsson, Guðmundur Ingólfsson o.fl. Án efa verður þetta boðsund skemmtilegt. Sfeinþórsiiáótið í Hnmragili ó sunnudag STEINÞÓRSMÓTIÐ, 6 manna sveitarkeppni í svigi, verður faald ið í Hamragili við ÍR-skálann á sunnudaginn kemur kl. 2.30. Tilkynningar um þátttöku og nafnafcall er kl. 12 í fR-skálan- um. Búizt er við sveitum frá Reykjavíkuriélögunum ÍR, Ár- manni, KR og Yífcing. Mótstjórn annast skíðadeild £R og mótstjóri er förmaður skíðadeildar ÍR Sig- urjón Þórðarson. Að mótinu loknu er verðlaunaafhending í ÍR-skálanum. Bílferð á mótsstað er frá Umferðamiðstöðinni kl. 10 f.h. og til baka að móti lofcnu. Mót þetta er minningarmót um Steinþór heitinn Sigurðsson, menntaskólakennara. Steinþór var fyrsti formaður Skíðaráðs Reykjavíkur og seinna formaður Skíðasambands íslands. Reykvík ingar fjölmennið í Hamragilið um helgina. Árshátíð Vals Árshátíð Vals verður haldin í Tjarnarbúð n.k. laugardagskvöld og hefst með borðhaldi kl. 7.30. Agnar Friðriksson skorar Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLD léku Reykjavíkurúrval og úrval varn arliðsmanna á Keflavíkurflug- velli 4. leik hinnar árlegu keppni þessara aðila. Áður höfðu varn- arliðsmenn unnið tvo leiki en Reykjavíkurúrvalið einn, svo að þessi leikur hafði allt að segja fyrir Reykjavík, því fyrirkomu- lag keppninnar er þannig að það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki sigrar í keppninni. Þanng hefðu Bandaríkjamennirnir með sigri í leiknum unnið keppnina í fyrsta sinn. Góður leikur Reykjavíkur- úrvalsins batt enda á vonir þeirra og urðu þeir að þola stórt tap 75:50. Síðasti leikur keppn- innar fer að likindum fram í Reykjavík um miðjan apríl, þeg- ar landsliðið er komið heim frá Polar Cup í Kaupmannahöfn. Leikurinn hófst með miklum hraða og góðri vörn hjá báðum liðum. Beittu varnariiðsmenn svæðisvörn en Reykjavífcurúrval ið maður á mann vörn. Um miðj- an hálfleik síga Reykvíkingarnir fram úr og tókst leikaðferð þeirra gegn svæðisvörninni mjög Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ fóru fram þrír leikir í I. deild kvenna. Fram og Víkingur 8:8. Þetta var spennandi leikur, en ekki að sama skapi vel leikinn. Fram hafði yfir mest allan tím- ann, en undir lokin tókst Vík- ingsstúlkunum að jafna. Af Vík- ingsstúlkunum að jafna. Af Víkingsstúlkunum var Rannveig Laxdal bezt. Víkings- liðið lék nú án aðalskyttunnar Lillyar. Hjá Fram voru þær Geirrún og beztar. ★ F.H.-stúlkurnar unnu Ár- mannsstúlkurnar með 9:8. Leik- urinn var nokkuð jafn og spenn- vel. Var staðan í hálfleifc 36:23, og höfðu Agnar, Birgir og Kol- beinn átt mjög góðan leik fyrir Reykjavík. í upphafi síðari háifleiks ná varnarliðsmenn góðum kafla. Þeir höfðu breytt um varnarað- ferð, yfir í maður á mann, og kom það Reykjavíkurliðinu úr jafnvægium tíma. Var mjög lít- ill munur á liðnunum þennan lei'kkafla. Reykvíkingarnir ná þó aftur tökum á leiknum og átt- uðu sig á hinni breyttu vörn. Náðu þeir mjög góðum fcafla og sigruðu með yfirburðum eins og áður getur 75:50. Var leikur ís- lenzka liðsins í heild allgóður og virðist liðið vera í góðri sam- æfingu og er það gott til að vita því aðeins er ein vika þar til ís- land gengur tifl. Norðurlanda- keppni, Polar Cup, í Kaupmanna höfn. Beztir hjá Reykjavíkurúrval- inu voru Agnar og Birgir. Hjá Bandaríkjamönnum bar mest á Sterling og skoraði hann 22 stig og hitti mjög vel. Stig Reykja- Framhald á bls. 27 andi. F.H. hafði yfir í hálfleik 5:4. Ármannsstúlkurnar léku vel í síðari hálfleik en það dugði samt ekki til sigurs. F.H.-liðið átti heldur slappan dag, engin af þeim átti góðan leik nema þá helst Jónína mark- vörður. Ármannsliðið lék allsæmilega og eru yngri stúlkurnar í liðinu að koma til. Bezt var Ása. ★ Þá að lokum léku Valsstúlk- urnar við Breiðabliksstúlkurnar og sigruðu Valsstúlkurnar með 16:9. Breiðabliksstúlkurnar komu mjög á óvart með getu sinni i fyrri hálfleik. Þær skoruðu ekki einungis fyrsta mark leiksins heldur fyrstu mörk leiksins. Eftir mjög góða byrjun af þeirra hálfu var staðan orðin 5:1 fyrir Breiðablik, er Valsstúlkurnar loks komust í gang og náðu. að laga markahlutfallið fyrir hlé 5:6. Eftir hvíldina tókst Vals- stúlkunum heldur betur upp og skoruðu 11:3. Leiknum lauk því með sigri Vals 16:9. Eins og áður er sagt komu Breiðabliksstúlkurnar mjög á óvart, þá ekki sízt þær Heiða og Dísa, en þær tvær skoruðu flest mörk Breiðabliks. Liðið er mikið að lagast og á eftir að sækja sig enn meir. Valsliðið átti mjög slappa byrjun, en eftir að þær komust í gang var ekki vafi á hvort liðið sigra mundi. Af Valsstúlkununa var Sigrún Ingólfsdóttir lang- bezt. ★ Valur og F.H. eru nú efst og jöfn að stigatölu og eiga eftir að leika úrslitaleikinn sem verð- ur 23. apríl. Engu skal um úrslit leiks þess spá, en eflaust verður hann jafn og spennandi. Knattspyrna í Englandi í gærkvöldi fór fram knatt- spyrnuleikur milli Wales og ír- lands og unnu írar 4-1. Þá léku Manch. Utd. og Prest- on í 8 liða úrslitum i ensku bik- arkeppninni og vann Manch. Utd. með 3-1. í 1. deildinni ensku vann Sheff. Wed Stoke City með 4-1. Víkingar halda órshótíð Knattspyrnufélagið Víkingur heldur árshátíð sína næstkom- andi laugardag 2. apríl í Sigtúni. Fjölbreytt skemmtiatriði verða. Vonast er eftir að eldri sem yngri félagsmenn mæti þar með gesti sína. Aðgöngumiða er að fá hjá Óla Birni Kærnested, í Söeb- echsverzlun Háaleitisbraut 58-60 sími 38844 og hjá Sigurði Gísla- syni hjá A. Jóhannsson & Smith Brautarholti 4, sími 24244. Fram) Aðalfundur Knatspyrnufélags Fram verður haldinn miðviku- daginn 16. apríl í Félagsheimil- inu og hefst stundvíslega kL 20.30. Clay vann, en tókst ekki að rota CASSIUS Clay vann 23. sigur sinn í róð í hnefaleikahring er hann í fyrrinótt mætti Kanadamanriinum Georg e Chuvalo í Toronto. En ekki tókst Clay að sla mótherja sinn í gólfið og heldur Chuv- alo, sem er 28 ára, enn því fátiða afreki að hafa aldrei verið sigraður á rothöggi. Cassius Clay vann yfirburða- sigur á stigum, hlaut 74 stig gegn 62 hjá einum dómaran- um, 74 gegn 63 hjá öðrum og 73 gegn 65 hjá hringdóm- aranum. Stig eru gefini þannig að sigurvegari hverrar lotu hlýtur 5 stig, en hinn 4 stig eða minna. Clay vann 13 lotur af 15. Það var 2.1otan og sú 4. sem Chuvalo var dæmdur sigur í, en í þeim báðum kom hann þungum skrokkhöggum á Clay, svo hann fór örlitla stund út úr jafnvægi. 12—14 þús. man.ns sem í salnum voru, öskraði þegar bylmings högg Chuvalos hittu Clay. Chuvalo reyndi allan tám- ann að koma skrokkhöggum á Clay. Voru tiiraunir hans í þá átt næsta djarfar, en Clay var fimur að vippa sér undan höggunum, en varð þó að þola mörg. Chuvalo fékk mörg högg frá vinstri hendi Clays, flest létt en önniur þyngri. Opnuð- ust skurðir á augabrúnum beggja augna hans í leiknum og varð að blóðstraumur nokk ur, sem stöðvaður var í hléi. 1 14. lotu þrengdi Clay mjög að Chuvalo, en hann stóð alla lotuna án þess að faila, en var farinn að berja út í loft- ið viðutan er bjallan hringdi. í öðrum lotum var baráttan jafnari, þó léttleiki Clays færði honum alltaf sigurinn. Kom Clay alltaf mjög léttur fram eftir hvíld milli lota en oft var mjög af honum dregið undir lok lotunnar. Chuvalo sagði eftir leikinn: Ég hélt ég hefði unnið 8 lot- ur. Hefði ég haft meiri tíma til undirbúninigs leiksins (leik urinn var ákveðinn með 17 daga fyrirvara er Terrell hætti við að keppa við Clay) hefði ég sigrað. Clay er snögg ur, en ekki mikill hnefaleika kappi. Clay hljóp að köðlunum eftir sigurinn ©g hrópaði: Ég plataði alla einu sinni enn. Þeir sögðu að ég þyldi ekki skrokkhögg. Nú sjáið þið hvort ég þoli þau ekki. Fréttamenn segja að leikur- inn hafi verið all ójafn, en jafnframt sá bezti í þunga- vigt um margra ára skeið. Það er ekki vafi á að Clay reyndi að slá Chuvalo niður og var nálægt því í 11. og 14. lotu. En Chuvalo þoldi öll hans högg. Clay sló og sló, unz hann var máttlaus í hand leggjunum. Þanniig komst Clay að því að hann hefur ekki krafta til að slá niður harðsvíraða mótherja sem Chuvalo. En á öllum öðrum sviðum hafði hann yfirburði. Reykjavík vann yfirburðasigur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.