Morgunblaðið - 19.04.1966, Side 3
f>rI5jui5ngur 19. aprll 1960
MORCUNBLAÐIÐ
3
FÉLAGSHEIMILI
HEIMDALLAR
SMSTHNAR
Þörf á aðhaldi?
Alþýðublaðið segir í forustu-
grein s.l. sunnudag:
„Alþýðublaðið telur brýna
nauðsyn, að Sjálfstæðisflokkur-
inn fái aukið aðhald í borgar-
stjórn. Það er engum flokki
hollt að fara lengi einn með
stjóm allra mála í jafnstórri
borg og Reykjavík er nú orðin.
Þá skapast ávallt hætta á að
þeir sem með völdin fara verði
makráðir og málefni sem miklu
skipta verði látin mæta afgangi
eða víkja fyrir öðru sem minna
máli skiptir“. í tilefni af þessum
ummælum Alþýðublaðsins er á-
stæða tii þess að beina nokkrum
fyrirspurnum til þess. Telur
blaðið núverandi borgarstjórnar-
meirihluta hafa verið „makráð-
an“ á því kjörtímabili rsem nú
er að líða? Bendir gatnagerð,
hitaveituframkvæmdir og aðal-
skipulag Reykjavíkur til þess
að borgarstjórnarmeirihluti
Sjálfstæðisflokksins hafi verið
„makráður“ á yfirstandandi
kjörtímabili? Nei, sannleikur- '
inn er sá, að Reykvíkingar hafa
jafnan veitt Sjálfstæðisflokknum
meirihlutafylgi í borgarstjórn
vegna þess, að flokkurinn hefur
alltaf endurnýjað sig með eðli-
legum hætti í borgarstjórn. Með
nýjum mönnum hafa komið nýj-
ar og ferskar hugmyndir, aukn-
ar og betur skipulagðar fram-
kvæmdir, og aldrei hafa þessar
framkvæmdir verið glæsilegri og
meiri heldur en á yfirstandandi
kjörtímabili. En menn skyldu
gæta þess að þegar Alþýðuflokk-
urinn talar um nauðsyn á
„auknu aðhaldi“ í borgarstjórn,
þá á hann fyrst og fremst við
eitt, og það er það, að tveir
borgarstjórar skuli vera i
Reykjavík og annar þeirra skuli
heita Óskar Hallgrímsson. Þetta
eru hugmyndir Alþýðuflokksins
um „aukið aðliald". Hann má
ekki til þess hugsa, að einum
flokki sé veitt meirihlutafylgi til
þróttmikillar stjómar á Reykja-
víkurborg. Hann telur nauðsyn-
legt að þar, eins og annars stað-
ar, sé gamla samkrullið. En AI-
þýðuflokkurinn mun komast að
raun um það í þeim borgarstjóm
arkosningum sem fram fara í
maí, að Reykvíkingar eru ann-
arrar skoðunar. Þeir vilja ekki
tvo borgarstjóra, þeir vilja ekki
Óskar Hallgrímsson sem borgar-
stjóra. Þeir munu nú sem áður
styðja samhentan meirihluta
gegn sundruðum minnihluta,
þeir munu nú sýna Geir Hall-
grímssyni, borgarstjóra verðugt
traust fyrir frábær s/>rf á liðnu
kjörtímabili.
Að eiga bdgt
Frú Drífa Viðar skrifar grein í
Þjóðviljann síðastliðinn sunnudag 1
að því er virðist aigjörlega af iil-
efnislausu. Orðbragðið á grein
urinn talar um nauðsyn á
þessari er slíkt að rétt þykir að
gefa lesendum nokkra innsýn í
hugarástand kommúnista um
þessar mundir. Þar segir svo m.
a.:
„Því get ég ekki orða bundist,
að ég hitti Heimdallaræskuna að
kvöldi hins 9. maí síöastliðinn
við Miðbæjarskólann. Ég var að
koma úr Iangri gönguferð, en
Heimdallaræskan var ilmandi af
brennivínslykt og æpti og öskr-
aði.....
Almenningur kallar óspektar-
fólkið Heimdallarskríl. Sumir
halda að þarna séu ný-nazistar ^
að verki. Meira a ðsegja ný-naz-
istar hafa borið af sér að hafa
átt nokkurn þátt í þessum áeirð-
um. Þeir telja það fyrir neðan
virðingu nýnazistaflokksins.....
Ekki er hvítt að velkja. Heim-
dallur er kominn stigi neðar en
nazistar, sem taldir hafa verið
afsiðaðasti flokkur manna í ver-
öldinni á þessari öld.“
Þetta voru nokkrar tilvitnanir
í grein frú Drífu Viðar. Aum-
ingja konan.
Opið hús
í kvöld
Frú Kristín ©g Denys Petchell virða fyrir sé r útsýnið úr nýju slökkvistöðinni við Öskjuhl
Með þeim eru Valgarð Thoroddsen, slökkviliðs stjóri, og Páll Líndal, borgarlögmaður. — Sv.
— Gestirnir
Framhald af bls. 1
vogsdal og nýja slökkviliðs-
stöðin við Öskjuhlíð.
Geir Hallgrímsson og kona
hans, frú Erna Finnsdóttir,
höfðu kaffiboð fyrir gestina
að heimili sínu að Dyngju-
vegi 6 kl. 4 síðdegis.
Borgarstjórn Reykjavíkur
hélt svo veizlu að Hótel Borg
í gœrkvöldi gestuan sínum til
heiðurs. Veizlunni stjórnaði
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, en frú Auður Auðuns
flutti ræðu.
í ræðu, sem Denys Petc-
hell, borgarstjóri, flutti sagði
hann m. a., að hann minntist
sem allir íbúar Grimsby
heimsóknar borgarstjórahjón-
anna íslenzku og kvað hana
hafa styrkt vináttu borganna
tveggja.
í veizlunni að Hótel Borg
afhenti Denys Petchell Reykja
víurborg að gjöf líkan af tog-
ara, en Geir Hallgrímssyni
myndabók til minningar um
heimsóknina til Grimsby og
þeim Geir og frú Auði skjöld
með merki Grimsbyborgar.
Hinir erlendu gestir heim-
sækja í dag m.a. Hafnarbúðir,
frystihús Bæjarútgerðar
Reykjavíkur, Slysavarnarfé-
lag íslands og hádegisverður
verður snæddur í Nausti í
boði BÚR. Síðdegis verður
skoðuð síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjan að Kletti og kl. 3
síðdegis verður fundur með
blaðamönnum. Einnig verður
móttaka hjá Fiskifélagi ís-
lands og um kvöldið verður
gestunum boðið á einkaheim-
ili.
Á miðvikudag verður farið
í flugferð með landhelgis-
gæzluvélinni Sif, móttaka
verður hjá brezka sendiherr-
anum og um kvöldið veizla í
Sigtúni í boði FÍB og SH.
Á fimmtudag fara gestirnir
að Reykjum, til Þingvalla og
Hveragerðis og um kvöldið
verður veizsla fyrir þá í Ráð-
herrabústaðnum í boði Egg-
erts G. Þorsteinssonar, sjávar-
útvegsmálaráðherra.
Kl. 9 á föstudagsmorgun
halda gestirnir heimleiðis.
Vill stuðla að auknum
samskiptum borganna
Morgunblaðið átti stutt við-
tal við þau Denys Petchell og
frú Kristínu að Hótel Sögu í
gærkvöldi, skömmu áður en
þau héldu í veizlu borgar-
stjórnarinnar að Hótel Borg.
Petchell borgarstjóri sagði,
að þau hjónin og aðrir í sendi-
nefnd Grimsbyborgar fögn-
uðu mjög heimsókninni til
Reykjavíkur. Þau hefðu mætt
mikilli hlýju og gestrisni þann
stutta tíma, ’sem þau hefðu
dvalizt hér. Fyrsti dagur
heimsóknarinnar hefði verið
mjög ánægjulegur og ekki
hefði sólskinið spillt fyrir,
því hann kvað ekki hafa séð
til sólar í Grimsby í langan
tíma. Þar hefði verið leiðinda
veður að undanförnu.
Hann kvað Grimsbybúa
minnast með mikilli ánægju
Þau Kristín og Denys Petchell skömmu áöur en þau héldu í
veizlu borgarstjórnar Reykjavíkur að Hótel Borg. Ljósm. Ól. K.
heimsóknar sendinefndar
Reykjavíkur í fyrra. Sambúð
borganna væri mjög góð og
hann kvaðst þess fullviss
að svo yrði í framtíðinni,
enda ættu Grimsby og Reykja
vík margt sameiginlegt og því
vildi hann stuðla að auknum
samskiptum á milli þeirra.
Petchell kvaðst hafa komið
til íslands áður, síðast í 175
ára afmæli Reykjavíkur árið
1962.
Borgarstjórinn kvaðst hafa
komið til landsins nú með
sömu flugvél og forseti ís-
lands, herra Ásgeir Ásgeirs-
son, og hefði hann sýnt þeim
hjónum þann mikla heiður að
bjóða þeim að sitja hjá sér
á leiðinni. Hefðu þau haft
mikla ánægju af því að ræða
við hann.
Hlakkar til Reykjavíkur?
dvalarinnar.
Frú Kristín, sem enn talar
ágætlega íslenzku, kvaðst
vera fædd á Akranesi. For-
eldrar hennar hefðu verið
Guðmundur Erlingsson og
Guðný Valdimarsdóttir, en
faðir hennar hefði drukknað
er hún var eins árs að aldri
og þá hefði hún flutzt til
ömmu sinnar, Kristínar Magn
úsdóttur í Bíldudal.
15 ára gömul kvaðst hún
hafa flutzt til Grimsby og 18
ára gifzt Denys Petchell. Ættu
þau eina dóttur, Diana, sem
gift væri í Grimsby.
Frú Kristín sagði, að um 25
íslenzkar fjölskyldur væru í
Grímsby og hitti hún fslend-
inga þar öðru hverju. Kvaðst
hjn sérstaklega ánægð að fá
tækifæri til að heimsækja sitt
gamla föðurland einu ,sinni
enn og hún kvaðst hlakka til
þeirra daga ,sem þau hjónin
ættu eftir að dvelja hér.
Petchell kvaðst myndi færa
Reykjavíkurborg táknræna
gjöf frá Grímsby, en það væri
líkan af togaranum Saxon
Hawk, sem byggður hafi verið
árið 1915 hjá Cochranes í
Selby.
Kvað hann eiganda líkans-
ins hafa verið frú Hunt, dóttir
Beeleys, eiganda í hinu fræga
útgerðarfyrirtæki Beeley og
Sleight, sem margir íslend-
ingar þekktu. Hefði hún feng-
ið líkanið af Saxon Hawk að
gjöf, því hún hefði gefið tog-
aranum nafn er honum var
hleypt af stokkunum. Kvað
hann frú Hunt alderi hafa
sleppt hendi af líkaninu, en
hún hefði orðið við ósk borg-
arstjórnarinnar um það, þeg-
ar hún vissi að það átti að
fara til íslands. Hefði frúin
beðið fyrir beztu kveðjur til
íslands, en hún væri mikill
vinur fslendinga og hefði allt-
af verið.
Að lokum kvaðst Petchell
borgarstjóri vona, að heim-
sókn hans og félaga yrði til að
efla enn betur vináttutengsl
Reykjavíkur og Grimsby.
Gcir Hallgrímsson, borgarstjóri, tekur á móti Denys Petchell og fru Kristmu, konu hans,
er þau komu til Reykjavíkur % sunnudagskvöld. Ljósm.: Sv. Þ.