Morgunblaðið - 19.04.1966, Blaðsíða 17
Þriðjudagur t®. apríl 1966
MORCUNBLAÐIÐ
17
1 i
Jónas Pétursson, alþm.:
Lagarfoss-
virkjun
RAFORKAN er mikilvægur þátt
ur í nútímalífi. Framfarir síðustu
30 ára byggjast meðal annars á
notkun hennar. Gildi raforkunn-
ar mun þó enn vaxa stórlega á
næstu árum, verða vaxandi þátt-
ur í því velferðarríki, sem við ís-
lendingar erum að skapa. Ekki
verður um það deilt að orka fall-
vatnanna íslenzku sé mikill auð-
ur. En sá auður byggist á því, að
við breytum orkunni í raforku.
Á síðasta Alþingi voru sam-
Iþykkt lög um Landsvirkjun og
Laxárvirkjun. Þessa dagana er
verið að ganga frá undirbúningi
Búrfellsvirkjunar og fram-
kvæmdir að hefjast. Sú orkuöfl-
un er fyrir svæðið frá Vík í Mýr-
dal til Borgarfjarðar, a.m.k. í
fyrstu, þótt væntanlega komi
síðar samtenging við aðra lands-
hluta. Virkjun við Laxá er einn-
ig í undirbúningi.
En það landsvæði, þar sem
ftukning raforkunotkunarinnar
ihefir verið hlutfallslega mest nú
um skeið, er Austurland.
Fylgir hér tafla, er sýnir
mesta álag og heildarorkunotkun
á ári hverju frá 1960—1965 og
aukningu í hundraðsihlutföllum
Ihvert ár. Sýna þessar tölur
gleggst hina gífurlegu aukningu.
í orkunotkun.
Núverandi Austurl. frá
Grímsár- Bakkaf.—
svæði Djúpav.
ÁR MW GWH MW GWH
1960 2,4 8,8 3,1 9,7
1961 2,7 9,7 3,4 10,8
1962 3,0 10,7 3,9 12,3
1963 3,6 13,1 4,5 14,7
1964 4,4 15,6 5,4 17,8
1965 5,5 19,5 6,5 22,3
Aukning orkuvinnslu
Grímsársvæðið ................
Austurland ...................
Hinni stórauknu orkunotkun
Jiefir verið mætt með díselafli.
En díselaflið er ekki sá orku-
gjafi, sem nota ber til raforku-
framleiðslu í landi fallvatnanna,
ef annars er kostur, þótt það sé
hagkvæmt til öryggis, sem vara-
afl og toppafl.
Á Austurlandi er hagkvæmur
virkjunarstaður, þar sem er
Lagarfoss. Liggur fyrir áætlun
tim 6.250 kw. virkjun þar, gerð
af Ásgeiri Sæmundssyni. Sigurð-
ur Thoroddsen hefir endurskoð-
að hana og einnig gert áætlun
tun nokkru stærri virkjun. Þess-
ar áætlanir sýna að Lagarfoss-
virkjun er ein hin hagstæðasta,
sem völ er á með kostnað á virkj
að kw. En höfuðkostur hennar
er þó öryggið, vegna hinnar
miklu vatnsmiðlunar í Lagar-
fljóti. Er Þarna, hvað það snertir,
txm að ræða einn af þremur hag-
kvæmustu virkjunarstöðum lands
ins. Hinir eru Sogið og Laxá.
Tvær leiðir virðast koma til
greina til að fullnægja orkuþörf-
inni á Austurlandi: Lagarfoss-
virkjun og lína frá Laxá. Raf-
orkumálaráðherra, Ingólfur Jóns
son, skrifaði raforkumálastjóra í
vetur og lagði fyrir hann að láta
fram fara fullkomna rannsókn,
tæknilega og hagkvæmnislega
um, með hverjum hætti raforku-
mál Austurlands verði bezt leyst,
og lagði áherzlu á í bréfi þessu,
að rannsókninni yrði lokið fyrir
næstkomandi haust.
í erindi, sem Knútur Otter-
stedt, framkvæmdastjóri á Akur-
eyri, flutti á aðalfundi Sambands
ísl. rafveitna sl. sumar, sýndi
hann fram á, að Lagarfossvirkj-
un ætti að ganga á undan línu.
Raforkumálastjóri virtist þar
vera á annarri skoðun. Er því
líklegt, að svo fari, að sérfróða
menn greini á um rök og leiðir
til að leysa raforkuþörf Austur-
lands. En þetta er ekki aðeins
reikningsdæmi. í málið blandast
líka óbein atriði, sem Austfirð-
ingar kunna að meta nokkurs.
Orkuver við Lagarfoss skaþar
styrktarpunkt fyrir Út-Hérað.
Með virkjuninni skapast verð-
mæt eign í fjórðungnum.
Síðar mundi svo koma að sam-
tengingunni við Laxá.
Ég hefi áður, í blaðinu Þór á
Austurlandi, birt greinar um raf-
orkumálin þar og Lagarfossvirkj
un. í 1. tbl. Þórs ’66, er út kom
13. jan., birti ég grein um þessi
efni. í niðurlagi þeirrar greinar
segir svo: „En í sambandi við
orkumál Austurlands vakna
einnig fleiri spurningar. T.d.
hvort sjálfsagt sé eða æskilegt,
að Rafmagnsveitur ríkislns einar
annist alla orkuframleiðslu. Eða
hvort setja eigi á fót Austur-
landsvirkjun eða Lagarfossvirkj-
un — fyrirtæki, sem væri t.d.
hliðsætt Laxárvirkjun, þar sem
heimaðilar ættu verulegan hlut
í, eða segjum að hálfu leyti.
Kæmi þá til greina að kaupstað-
irnir tveir og Múlasýslur yrðu
þarna eigendur. Stofnuðu fyrir-
tæki með ríkinu, sem annaðist
orkuöflun fyrir Austurlands-
svæðið, í fyrstu a.m.k. frá Vopna
firði til Djúpavogs. Að því hníga
sterk rök, að það sé á margan
hátt styrkur héraðanna sjálfra,
að eiga aðild og ábyrgð að slíku
fyrirtæki, auk þess, sem öðrum
en okkur sjálfum er sjaldan bet-
ur trúað fyrir okkar hagsmuna-
’60/61 '61/62 ’62/63 ’63/64 ’64/65
10% 10% 22% 19% 25%
11% 14% 20% 21% 25%
málum. Þessu máli þarf að gefa
sterkan gaum næstu vikur. Þetta
er eitt af sjálfstæðismálum Aust-
urlands; eitt hið þýðingarmesta
fyrir framtíð fjórðungsins".
Eftir þvi, sem ég virði þetta
mál meira fyrir rnér, verður mér
ofar í huga stofnun Austurlands-
virkjunar eða Lagarfossvirkjun-
ar, stofnun fyrirtækis um virkj-
un Lagarfoss, sem Austfirðingar
ættu frmukvæði að. Til þess þarf
samstillt átak. En það öryggi,
sem við sköpum fyrir framtíð-
ina, já og'eign, er e.t.v. ómetan-
legt. Eins og nú er ásatt í raf-
orkumálum hér eystra, er hamlað
á móti aukinni noktun af því að
díselaflið er svo dýrt. Nauðsyn-
legt er að jafnan sé til sú orka,
sem ýtir á aukna orkunotkun,
vegna hagsmuna orkuversins,
svo að hún verði sem mest notuð
og sem víðast. Á þann hátt verð-
ur raforkan til mestra hagsbóta.
Á þann hátt þarf auður Lagar-
foss að breiðast um byggðarlög
á Austurlandi.
Virkjun Lagarfoss þarf að
komast á dagskrá á Austurlandi
og á þann hátt, sem ég hefi vak-
ið máls á. Á sýslufundum Múla-
sýslna á þessu vori og í bæjar-
stjórnum á Seyðisfirði og Norð-
firði þarf að ræða þetta mál.
Þörf er á að gera sér grein fyrir
aðild að Austfjarðavirkjun, á
hvern hátt hún gæti orðið, kost-
um hennar og göllum. Ekki er
ólíklegt, að Grímsárvirkj un beri
á góma. En Austfirðingar eiga
ekki nú að gjalda mistaka, sem
þá voru gerð. Ber að læra af mis
Ánægjuleg skólahátíð1
Jónas Pétursson
Borg í Miklaiholtshreppi, 3. apr.
Síðastliðinn laugardag var
haldin árshátíð nemanda í Lauga
gerðisskóla. í tilefni af þessari
fyrstu árshátíð skólans, var öll-
um foreldrum barna, sem eru í
skólanum boðið þangað. En
vegna óhagstæðs veðurs gátu
ekki allir mætt.
Dagskrá árshátíðarinnar önn-
uðust börnin að öllu leyti. Var
þar margt til skemmtunar; upp-
lestur, leikrit, sjónleikur og
söngur. Fórst börnum þessi
skemmtiatriði prýðilega vel,
enda öll dagskráratriði auðsjá-
anlega vel undirbúin, undir
stjórn kennara skólans.
tökur og ánægjulega kvöldstund.
En eitt er víst að þessi skoli,
Laugagerðisskóli, sem er einn
fullkomnasti skóli sinnar tegund
ar, er mikið menningarafrek.
Þar hefur börnum liðið frarnúr-
skarandi vel, enda er ’tjórnsemi
og kennsla til fyrirmyndar, því
allt það fólk sem þangað hefur
ráðist, bæði kennarar og annað
starfsfólk, er sérlega vel þjálf-
að til slí-kra hluta. Með tilkomu
Laugagerðisskóla er hér mennta-
setur, sem um langa framtíð
mun verða aðall í mennta- og
menningarstarfi snæfellskra
byggða.
— Páll.
Eftir að dagskrá var lokið var
öllum foreldrum, sem þar voru
mættir boðið • til kaffidrykkju.
Þar flutti skólastjórinn, Sigurður
Helgason ræðu, þakkaði
gestum komuna og skýrði
í stórum dráttum frá
skólastarfinu í vetur. En gat
þess jafnframt að ýmislegt vant-
aði ennþá til þess að skólinn
gæti fyllilega sinnt öllu náms-
efni, sem krafizt væri. En þetta
stæði þó allt til bóta. Heislufar
hefur verið gott í skólanum í
vetur, og nemendur stundað sitt
námsefni af samvizkusemi og
dugnaði. Þar sem skólinn byrj-
aði starfsemi sína seinna en aðr-
ir skólar, vegna þess að hann
var ekki fullbúinn fyrr en um
miðjan nóv., þá væri lagt hart
að nemendum að ljika sínu
námsefni á skemmri tíma en
ætlað væri til við flesta skóla
aðra, er sKörfuðu lengri tíma.
Óskaði síðan skólastjóri börn-
um og gestum góðrar heimferð-
ar, og gleðilegrar páskahátíðar.
Fyrir hönd gesta þakkaði Stef-
án Ásgrímsson skólastjóra mót-
„Bærinn okkar“
á Akureyri
Akureyri, 18. apríl.
LEIKFÉLAG Akureyrar hefir
nú sýnt sjónleikinn „Bærinn
okkar“ eftir Thornton Wilder 5
sinnum við mjög góða aðsókn og
prýðilegar undirtektir leikhús-
gesta. — Sýningum verður hrað-
að, og ættu þeir, sem ætla sér
að sjá leikinn, bæði Akureyring-
ar og utanbæjarfólk, ekki að
draga lengi að fjölmenna í leik-
húsið.
Næstu sýningar verða á mið-
vikudag (síðasta vetrardag) og
ifimmtudag (sumardaginn
fyrsta).
Myndin er frá hjónavígslunni.
Fremst á sviðinu eru frá vinstri:
Sigurgeir Hilmar, Guðlaug Her-
mannsdóttir, Björg Baldvins-
dóttir, Marinó Þorsteinsson og
Sunna Borg. Aftast fyrir miðju
er „leikhús£tjórinn“, Haraldur
tökunum, en láta þau ekki draga
úr sér kjark.
Ýmsir munu ætla að ekki sé
auðvelt um fjárútvegun, þegar
stórlán þarf í Búrfellsvirkjun.
En rök fyrir ál’bræðslunni eru
m.a. þau, að þær framkvæmdir
allar muni fremur auðvelda láns-
möguleika okkar en torvelda og
valda því að við eigum kost betri
kjara á lánamarkaði en ella.
Vert er svo að minna á strjál-
býlissjóðinn, sem stofnaður verð
ur. Það er kjörið viðfangsefni
hans, ef þörf er á, að tryggja
framkvæmd slíka, sem Lagarfoss
virkjun er, sem er eitt hið stór-
felldasta jafnvægismál, öruggt
fjáíhagslega og flestum fjárfest-
ingum betra, þegar horft er nokk
uð fram fyrir tærnar.
Nú reynir á samheldni, fram-
sýni og félagshyggju Austfirð-
inga. Ef þetta mál er undirbyggt
vel heima og sótt af festu og ör-
yggi, þá mun með þessu ein bezta
framkvæmd lögð í lófa framtíðar
á Austurlandi.
Jónas Pétursson.
Helfrosinn í háloftunum?
Laumufarþegi bíður bana í hjólalægi
C aravelle-þotu
f MORGUN fundu vélamenn
Air France á Orly-flugvelli
við venjubundna skoðu á lend
ingarútbúnaði einnar Cara-
velle-þotu félagsins lík ungs
manns í hjólalægi vélarinar.
Eftir öllum ummerkjum að
dærna virtist maðurinn hafa
frosið í hel.
Vél þessi sem hér um ræð-
ir, kom til Parísar frá Moskvu
á sunnudagskvbld og var það
fyrst hald manna að laumu-
farþeginn myndi hafa komið
þaðan eða frá Varsjá í Pól-
landi þar sem vélin hafði
millilendingu á leið til París-
ar. Síðari rannsóknir hafa
aftur á möti leitt i ijós að
Caravelle-vélin fór frá París
til Barcelona og aftur til Par-
ísar þegar á laugardag og var
lendingarútbúnaðurinn ekki
skoðaður þá áður en hún færi
til Moskvu og Varsjár, þannig
að laumufarþeginn hefði allt
eins vel getað komið um borð
í París eða jafnvel í Barce-
lona.
Stoðum undir þá kenningu,
að maðurinn hafi komið að
sunnan rennir m.a. það, að
hann var mjög léttklæddur,
aðeins í skyrtu og buxum og
skólaus, en í Moskvu er mjög
kalt um þessar mundir. Hann
hafði allt útlit Spánverja að
sögn og skyrtan sem hann
var í var spænsk, gerð í Barce
lona. Hann bar ekki á sér
nein skilríki eða neitt það er
gefið gæti- vísbendingu um
hver hann væri.
Hugsanlegt er einnig að
maður þessi hafi verið á Orly
á sunnudag þeirra erinda að
reyna að komast þaðan sem
laumufarþegi til Spánar, með
áætlunarvélinni til .Barcelona,
en hafi af vangál aumazt um
borð í vélina sem fór til
Moskvu í staðinn, en á brott-
farartíma vélanna tveggja
var klukkutíma munur.
Enn er ekki fullvíst með
hverjum hætti maðurinn lézt,
en lögreglan segir hann muni
annaðhvort hafa frosið í hel
í ógnarkulda háloftanna elleg-
ar kafnað í loftleysinu innan
í lokuðu hjólalæginu. Til þess
að lifa af ferð þessa um há-
loftin í hjólalægi þotunnar
hefði maðurinn orðið að þola
ailt að 55 stigá frost.