Morgunblaðið - 19.04.1966, Page 23
Þriðjudagur 19. apríl 1966
MORGUNBLADIÐ
Frn Fulltrúnróði Sjúlf-
stæðisfélngnnnn í Reykjnvík
STARFANDI eru á vegum Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík eftirtaldar hverfaskrifstofur í borginni. Skrif-
stofurnar eru opnar milli kl. 2—10 e. h. alla virka daga nema
laugardaga milli kl. 9—4.
VESTUR- OG MIÐBÆJARHVERFI
Hafnarstræti 19
Sími: 22719
NES- OG MELAHVERFI
Tómasarhaga 31
Sími: 24376
AUSTUR- OG NORÐURMÝRARHVERFI
Bergþórugötu 23
Sími: 22673
HLÍDA- OG HOLTAHVERFI
Mjölnisholti 12
Sími: 22674
LAUGARNESHVERFI
Laugarnesvegi 114
Sími: 38517
LANGHOLTS-, VOGA- OG HEIMAHVERFI
Sunnuvegi 27
Simi: 38519
SMÁÍBÚÐA-, BÚSTAÐA- OG HÁALEITISHVERFI
Starmýri 2
Sími: 38518
Fiskimatsstjðri svarar
blaðaskrifum
UNDANFARNA daga hafa
birzt í ýmsum dagblöðum
Reykjavíkur greinar um hrein-
læti og umgengni á veitingastöð
um og við matvælaframleiðslu
almennt.
Bftir lýsingar á framansögðu
málefni í ýmsum þessara greina,
værí eðlileg spurning hvaða ráð-
stafanir hefðu verið í gangi und-
anfarið t.d. við hina ýmsu mat-
vælaframleiðslu, sem tryggja
ætti sjálfsagðar ráðstafanir um
hreinlæti.
í einu dagblaðanna kom frá-
sögn um, að nú væri klór bland-
að í vatn, sem notað er við fisk-
vinnslu í hraðfrystihúsum, og
einnig að þar væru notaðar papp
írsihandþurrkur í stað tauhand-
klæða. f>etta er rétt, en ég vildi
í þessu sambandi upplýsa nánar,
að notkun þessara hreinlætisráð-
Stafana í hraðfrystihúsum er
lögboðin / með fyrirmælum frá
Fiskmati ríkisins, útg. 23. des.
1963.
Frá þessu er aðeins skýrt hér
til þess að upplýsa, að um þessi
atriði hafa verið og eru opinber-
ar ráðstafanir.
Hins vegar er þetta ekki upp-
lýst í þeim tilgangi að telja slíkt
allra meina bót í þessum efnum.
Hreinlæti er aðalsmerki
menningaþjóða.
Frá sjónarmiði þeirra er meira
eða minna hafa ferðast erlendis
og kynnt sér matvælaframleiðslu
eða gistihúsamál svo eitthvað sé
nefnt. mun það ekki orka tví-
mælis, að menningarþjóðir telja
alnvennt hreinlæti eitt af sjáLf-
sögðum skyldum þjóðfélagsins
og þegna þess.
Einkum ber að líta svo á, að
þjóðir, sem t.d. byggja afkomu
sína mikið á framleiðslu matvæla
eða þjónustu við erlenda ferða-
menn, eigi þar mikillar ábyrgð-
ar að gæta.
Það hefir einmitt komið fram,
að eitt af mestu erfiðleikum í
aðstoð við svokölluð þróunarríki
er að ráða bót á aldagömlum
venjum í sambandi við óþrifnað.
Þörf samstilltra endurbóta.
Hér er um mikið mál að ræða,
sem ekki er unnt að gera full-
komin skil í stuttri grein. Hins
vegar mætti benda á ýmsar ráð-
stafanir, sem ættu að vera sjálf-
sagðar án þess að velta málinu
lengi fyrir sér. Ég vil í þessu
sambandi minnast á nokkrar ráð
stafanir er telja má sjálfsagðar.
A. Það orkar ekki tvímælis, að
pappírshandþurkur skamtaðar
úr þar til gerðum áhöldum, hafa
hvað hreinlæti snertir algera
yfirburði yfir tauhandklæði. Ein-
stök tauhandklæði eru óhrein
eftir að hafa verið notuð einu
sinni.
Tauhand'klæði á rúllum eru held
ur ekki örugg að því leyti að alls
ekki er útilokað að tveir eða
fleiri þurrki sér á sama skammti,
t.d. á fjölmennum veitingarstöð-
um eða vinnustöðum.
Pappírshandþurrkur fyrir starfs
fólk og gesti ættu því að fyrir-
skipa a.m.k. á eftirtöldum stöð-
um.
1. Við alla matvælaframleiðslu
hverju nafni er nefnist.
Framboðslisti Sjálfstæðismanna
í Grundarfirði
NÝLEGA héldu Sjálfstæðismenn
í Grundarfirði fund í samkomu-
húsinu á staðnum. Áður hafði
Sjálfstæðisfélagið kosið fimm
manna uppstillingarnefnd vegna
væntanlegra hreppsnefndarkosn-
inga. Þessi nefnd lagði fram tll-
lögur sínar á fundinum og voru
þær allar samþykktar.
Samkvæmt því verður listi
Sjálfstæðismanna í Grundarfirði
þannig skipaður við kosningarn-
ar í vor:
1. Halldór Finnsson, oddviti.
— Alþingi
Framhald af bls. 8
rétt hefðu til að skipa fullttúa
að einhver af þeim aðilum, sem
í hana vildu ekki nota hann. Lík
legt mætti telja, að þeir aðilar,
er þann rétt hefðu, notfærðu sér
hann.
Þá væru í frumvarpinu þau
nýmæli, að þegar rætt væri í
nefndinni um álagningu á bú-
vöru væri fulltrúa frá kaup-
mannasamtökunum gefinn kost-
ur á því að sitja fundinn og hafa
tillögurétt og málfrelsi.
í 9. grein frumvarpsins væri
einnig gerð talsverð breyting.
Þar væri gert ráð fyrir því, að
ef ágreiningur yrði í 6 manna
nefndinni yrði málinu vísað til
sáttasemjara, sem síðan gerði til
raun til þess að sætta aðila. Ef
það tækist ekki innan tiltekins
tíma yrði skipuð yfirnefnd, þann
ig að hvor nefndarhluti kysi 1
mann og síðan skipaði hæsti-
réttur oddamanninn. Skilyrði
væri, að þeir menn er nefndar-
hlutarnir skipuðu hefðu ekki
átt sæti í 6 manna nefndinni.
Þá gat ráðherra þess að með
frumvarpi þessu væri gerð sú
breyting að verðlagsgrundvöllur
inn gilti í 2 ár í stað eins, eins
og áður og að gerðar yrðu nokkr
ar breytingar um veitingu slátur
leyfa.
Að lokum sagði ráðherra að
segja mætti að starf 7 manna
nefndarinnar hefði gefizt betur
en á hefði horfzt, þegar hún sett
ist fyrst á rökstóla, enda hefðu
margir þá spáð því að ekki yrði
um samkomulag að ræða. Það
væri von sín, að með því að
lögfesta þetta frumvarp væri
lögð undirstaða að samkomulagi
og samstarfi, sem hefði þrátt
fyrir allt reynzt farsælt fyrir
bændur og neytendur og sem
hefði oftast nægt til þess að
tryggja frið um það viðkvæma
mál, sem verðlagsmál búvöru
hlyti alltaf að verða.
Ásgeir Bjarnason (F) kvaðst
fagna framkomu frumvarps
þessa og í því fælust tillögur,
sem væru til batnaðar fyrir
bændastéttina. Segja mætti að
vel hefði verið unnið að samn-
ingum þessum. Niðurstaða nefnd
arinnar hefði orðið sú, að taka
upp gamla kerfið er notað hefði
verið frá upphafi, eða 1947, og
síndi það hvað menn hefði verið
framsýnir þá.
Ingólfur Jónsson landbúnaðar-
ráðherra tók afur til máls og
þakkaði Ásgeiri undirtektir hans,
jafnframt sem hann leiðrétti það
að 6 manna nefnd hefði fyrst
verið stofnsett 1947. Sagði ráð-
herrann að það fyrirkomulag
hefði fyrst verið tekið upp árið
1943. Að lokinni ræðu ráðherra
var málinu vísað til 2. umræðu-
og landbúnaðarnefndar deildar-
innar.
T rúloíunarhr ingar
H \ L L D Ó R
Skólavörðustíg 2.
2. Aðalsteinn Friðfinnsson,
verkstjóri.
3. Guðmundur Runólfsson,
útgerðarmaður.
4. Hörður Pálsson, bóndi.
5. Ágúst Sveinsson, verkstjórl.
6. Vilhjálmur Pétursson,
sjómaður.
7. Hinrik Elbergsson, skipstjóri.
8. Guðmundur Guðmundsson,
bóndi.
9. Guðjón Elísson, verkam.
10. Emil Magnússon, framkvstj.
Til sýslunefndar:
Aðalmaður: Bjarni Sigurðsson,
hreppstjóri. Til vara: Þorsteinn
Bárðarson, netamaður.
St. Dröfn og Verðandi.
Fundur í kvöld kl. 8,30. —
Kosning embættismanna og
fulltrúa til umdærpis- og stór
stúkuþings. Hagnefndaratriði.
Æ.t.
Hópferðabilar
allar stærðir
Sími 37400 og 34307.
2. í öllum eldhúsum veitinga-
staða, hótela og hvers konar staða
er framreiða matar eða drykkj-
ar vörur til neyzlu.
3. f öllum matvöruverzlunum,
mjólkur- og brauðbúðum.
4. í öllum skólum og samkomu-
stöðum.
B. Klæðnaður verkafólks.
Hreinn klæðnaður og höfuðbún-
aður verkafólks við matvæla-
framleiðslu er nauðsyn.
Það veldur milclum erfiðleikum
í þessu sambandi hér á landi,
hvað fólk skiptir oft um störf.
Varla er önnur lausn á þessu en
framleiðslufyrirtækin leggi verka
fólki til hæfan klæðnað á vinnu-
stað og væru fyrirtækin ábyrg
á því sviði.
C. Á snyrtiherbergjum allra
vinnustaða er framleiða mat-
væli þarf að vera sérstakur eftir
litsmaður er lítur eftir állri um-
gengní starfsfólks, m.a. því að
fólk þvoi sér um hendur.
Fljótandi sápulögur í föstum á-
I höldum er nauðsyn.
Sama ætti að gilda um alla veit-
ingastaði, skóla og samkomu-
staði.
D. Þá þurfa að vera lögboðnar
vatnsrannsóknir alls staðar, hvort
um er að ræða vatn til notkunar
við matvælaframleiðslu, eða
vegna almennrar neyzlu.
E. Til þess að unnt sé að
krefjast hreinlætis af starfstfólki
í matvælaiðnaði og annars stað-
ar þarf strangar kröfur um að
t.d. snyrtiherbergi og öll aðstaða
á vinnustað sé í fullkomnu lagi.
F. Ef það er ekki nú þegar í
skólum landsins, ætti að gera að
skyldunámsgrein kennslu í hrein
læti við meðferð mabvæla á
vinnustöðum og annars staðar.
Sérstök allsherjar löggjöf í
þessum efnum er tímabær en um
leið þartf að gera sér ljóst, að
slík löggjötf er ekki mikils virði
nema skynsamlega og öruglega
sé séð fyrir framkvæmd hennar.
B. Á. Berg-steinsson.
HÁRÞURRKAN
-Kfo//egr/ -^fljótari
Tilvalin fermingargjöf!
= FÖNIX
Sími 2-44-20 — Suðurgötu 10.