Morgunblaðið - 19.04.1966, Blaðsíða 30
se
MORGUNBLAÐIÐ
í>riðjudagur 19. april 1966
FH tekur forystuna
í 1. deild
— sigraði Val 25:19
Reykjavikurliðið sem vann úrvalslið Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli á föstudaginn. —
Fremstur er Kolbeinn Pálsson, fyrirliði, með sty ttuna sem liðið vann nú til eignar, en síðan koma
Gunnar Gunnarsson, Ólafur Thorlacius, Hólmsteinn Sigurðsson, Einar Matthíasson, Agnar Frið-
riksson, Birgir Ö. Birgis og Kristinn Gunnarsson. Á myndina vantar Einar Bollason.
Reykjavíkurlióid vann stytt-
una til eignar
FH og Valur mættust sl. sunnu-
dagskvöld í siðari umferð Is-
Landsmótsins í handknattleik.
Leikur þessi hafði enga þýðingu
fyrir Val, þar sem félagið hefur
þegar tryggt sér áframhaldandi
setu í 1. deildinni, en hefur á
hinn bóginn enega möguleika til
sigurs í deildinni. Eeikurinn
hafði ]>á þýðingu fyrir FH, að
félagið gat niú náð tveggja stiga
forskoti, og þar með aukið enn
á sigurlíkurnar í deildinni.
Það var þegar ljóst í upphafi
leiksins hvor var sterkari aðilinn
á vellinum. FH-ingarnir náðu
fljótlega stöðunni 7—3 og hélzt
sá markamunur að mestu óbreytt
ur úr fyrri hálfleikinn, en í hálf-
leik var staðan 14—11 fyrir FH.
í síðari hálfleik höfðu FH-
ingar töglin og halgdirnar,
þeim tókst á tímabili að ná sjö
rnarka forskoti, en Valsmönnum
tókst undir lokin að minnka mun
inn um eitt mark og lauk leikn-
um með sigri FH 26—19. Voru
það mjög sanngjörn úrslit.
FH var allan tímann í þessum
leik sterkari aðilinn, enda þótt
þeir hafi oft leikið betur. Þó
ber þess að gæta að í liðið vant-
aði tvo af höfuðpaurunum, þá
Geir og Ragnar Jónsson. Beztu
menn liðsins í þessurn leik voru
Birgir, sem ekki hefur leikið
jafn vel um langan tíma, og
skoraði sjö af mörkum liðsins, og
Jón Gestur og Páll, en Páll skor-
aði fimm mörk en Jón fjögur.
f>að var liðinu mikill styrkur að
Guðlaugur var nú aftur með
eftir meiðslin, sem hann hlaut
fyrir nokkru, enda þótt hann
virtist ekki enn vera að fullu
búinn að ná sér.
Valsliðið var heldur slappt í
þessum leik, það var eins og
neistann vantaði, og liðið var
vart nema svipur hjá sjón, miðað
við það sem liðið hefur oft sýnt
í vetur. Bezti maður liðsins var
Finnbogi sem varði mjög vel í
markinu í fyrri hálfleik, Sigurð-
ur Dagsson og Bergur Guðnason
áttu einnig góðan leik. Hins veg-
ar fór fremur lítið fyrir Her-
manni í þessum leik, enda þótt
hann væri markahæsti máður
liðsins með fimm mönk. Sigurð-
ur Dagsson skoraði fjögur mörk,
en Gunnsteinn og Ágúst þrjú.
Dómari var Björn Kristjáns-
son, og dæmdi allvel.
Á FÖSTUDAGSKVÖLD lék
Reykjavíkurúrval og úrval úr
varnarliðinu á Keflavikurflug-
velli til úrslita í hinni árlegu
körfuknattleikskeppni þessara
tveggja aðila. Leiknir eru alls
fimm leikir hvert ár og hafði
hvort lið um sig unnið tvo leiki
að þessu sinni. Var leikurinn á
föstudaginn því hreinn úrslita-
leikur og einnig skar hann úr
um það hvort Reykjavík fengi
til eignar hina fögru styttu, sem
um er keppt, en Reykjavík hef-
ur unnið keppnina tvö undan-
farin ár. Lauk leiknum með
sigri Reykjavíkurúrvalsins 75-64
eftir harðan og spennandi leik.
Leikur Reykjavíkurliðsins var
fyrstu mínúturnar stórglæsileg-
ur, það skorar hvað eftir annað
úr fallegum leikfléttum og
kemst í 8-2, en þá komast
varnarliðsmenn í gang og spilið
dettur niður hjá íslendingunum.
Ná Bandaríkjamennirnir tökum
á leiknum og komast yfir í hálf-
leik 26-23. En byrjun seinni hálf
leiks var alger einstefna að
körfu Bandaríkjamannanna, og
sneri Reykjavíkurúrvalið tafl-
inu við og komst í yfirburða-
stöðu 39-27, hélzt sá munur út
leikinn og tókst varnarliðsmönn-
um ekki að minnka bilið þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir. Lauk
leiknum eins og áður getur með
76-64 og styttan varð eign
Reykjavikur. Var leikur íslenzka
liðsins mjög góður og beitti það
leikfléttum oft stórglæsilega.
Stigahæstir hjá Reykjavík voru
Kollbeinn með 19, Birgir 12,
Agnar 11, Gunnar 10 og Einar
M. 9. Hjá varnarliðinu var
Sterling með 17 stig. Dómarax
voru Finnur Finnsson og Spenc-
er frá varnarliðinu og áttu frem
ur slæman dag.
náðu einhverjum bezta leikkafla
sem til liðsins hefur lengi sést.
Þeir skoruðu þrjú næstu mörk,
án þess að Haukum takist að
jafna, og voru þá aðeins rúmar
tvær mínútur til leiksloka. En á
síðustu mínútum náðu bæði liðin
að skora eitt mark, svo að loka-
tölur leiksins urðu 28—25, Ár-
manni í vil.
Framhald á bls. 31.
Skíðnmó! á
sumardaginn
fyrsta
ÁRMiENNINGAR efna til vor-
móts á skíðum við skála sinn í
Jósetfsdal á sumardaginn fyrsta.
Keppnin hefst kl. 3 síðdegis og
verður keppt í stórsvigi í öllum
flokkum karla og kvenna. Nafna
kall verður við skálann kl. 11 f.h.
öllum er heimil þátttaka í
mótinu gegn 10 kr. greiðslu á
mótsstað. \
Ármenningar hafa gert miklar
breytingar á skíðaskála sínum og
í dag (þriðjudag) verður skíða-
•lyiftan í gangi fram eftir kvöldi.
Vonast þeir til að sjá sem flesta
skíðamenn í dag — og einnig á
mótinu á fimmtudaginn.
Armoao ó sæti í 1. deild
ÞAÐ liggur nú nokkuð ljóst
fyrir, að það verða KR-ingar
sem munu leika í annarri deild
mæsta ár, því að Ármenningar
tryggðu sér áframhaldandi dvöl
í 1. deildinni með sætum sigri
yfir Haukum á Hálogalandi sl.
sunnudagskvöld.
ÍR
Keppendur á skíðamótinu. Frá vinstri: Þorbergur, Arnór, Sigurður K., Haraldur, Leifur, Hinrik,
Bogi, Gunnlaugur, Ásgeir, Sigurður E. og Einar.
Sveit ÍR sigraði á
Steinþórsmótinu
STEINÞÓRSM ÓTIÐ (6 manna
sveitakeppni í svigi) var haldið
í Hamragili við IR-skálann sl.
sunnudag og hófst keppni kl. 2
e.h. Mótsstjóri var Sigurjón
Þórðarson, formaður skíðadeild-
ar ÍR. Snjókoma var og hvasst
og 3ja sti"a frost. Brautina lagði
Eysteinn Pórðarson, og var hún
53 hlið og 500-550 metra löng.
Keppendur voru frá ÍR, KR og
Ármanni og fóru leikar þannig
að sveit IR bar sigur úr býtum.
Sveit ÍR var skipuð þessum
mönnum:
Eyþór Haraldsson,
Guðni Sigfússon,
Haraldur Pálsson,
Sigurður Einarsson,
Þórir Lárusson, /
Þorbergur Eysteinsson, og fór
sveitin á samanlögðum tima
721.5.
Nr. 2 varð' sveit KR og fór
sveitin á samanlögðum tíma
743.3.
Nr. 3 varð sveit Ármanns, og
fór sveitin á samanlögðum tíma
731.1.
B-sveit Ármanns varð úr leik.
í sveit ÍR kepptu feðgarnir Har-
aldur Pálsson og sonur hans Ey-
'þór 15 ára gamall, og vildi svo
skemmtilega, til að í fyrri um-
ferð komu þeir í mark á sama
tíma 60.1, en í seinni umferð fór
Eyþór fram úr föður sínum. Mót
þetta fór hið bezta fram þó
veðrið væri ekki sem ákjósan-
legast.
Leikur Ármanns og Hauka var
mjög spennandi og skemmtilegur
frá fyrstu mínútu til leiiksloka.
Ármenningum tókst fljótlega að
komast í 4—1, en Haukar náðu
að jafna 7—7, og síðar yfir-
höndinni en í hálfleik var stað-
an 15—12 Haukum í vil. Bjugg-
ust þá flestir við, að þar með
væri sigurinn úr höndum Ár-
menninga.
Svo var þó ekki, því að Ár-
menningar mættu mjög ákveðnir
til leiks í síðari hálfleik, og á
fjórðu mín. síðari hálfleiks höfðu
þeir jafnað 17—17, þeir komust
litlu síðar einu marki yfir. Ein
Haukar voru ekki á því að láta
sigurinn renna sér úr greipum,
því að þeir léku mjög vei næstu
tíu mínúturnar og komust í
22—20. En nú sóttu Ármenningar
mjög fast, og þegar aðeins 6.
mínútur vöru til leiksloka höfðu
þeir náð 24—23. Spennan var í
algleymingi.
Haukum tókst að jafna, en Ár-
mexmingar léku nú mjög vel,