Morgunblaðið - 10.05.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.05.1966, Blaðsíða 2
MORGUNBLADID >riðjudagur 10. maí 1968 Lágmarksverð fersk- síldar til frystingar ákveðið TFIRNEFND VerSlagsráðs sjáv- arútvegsins ákvað á fundi í dag eftirfarandi lágmarksverð á fersksíld til frystingar, sem veidd er á Norður- og Austur- landssvæði, þ. e. frá Riti norður um að Hornafirði, tímabilið 1. maí til 9. júní 1966. Kostar pr. kg. kr. 1.90 og miðast verðið við það magn, sem fer til vinnslu. Vinnslumagn telst innvegin síld, að frádregnu því magni, er vinnslustöðvarnar skila í síldar- verksmiðjur. Vinnslustöðvarnar skulu skila úrgangssíld í síldar- verksmiðjur seljendum að kostn- aðarlausu, enda fái seljendur hið auglýsta bræðslusíldarverð. Þar sem ekki verður við kom- ið að halda afla bátanna aðskild- um í síldarmóttöku, skal sýnis- horn gilda sem grundvöllur fyrir hlutfalli milli síldar til framan- greindrar vinnslu og síldar til bræðslu milli báta innbyrðis. Verðið er miðað við, að selj- andi skili síldinni á flutnings- tæki við hlið veiðiskips. Verð þetta var samþykkt með atkvæði oddamanns og fulltrúa fiskseljenda gegn atkvæðum fulltrúa fiskkaupenda. í nefndinni áttu sæti: Jónas H. Haralz, forstjóri Efnahagsstofn- unarinnar, sem er oddamaður nefndarinnar. Tilnefndir af fulltrúum fisk- seljenda í Verðlagsráði: Ingimar Einarsson, fulltrúi, Reykjavík og Tryggvi Helgason, formaður sjó- mannafélags Akureyrar. Tilnefndir af fulltrúum fisk- kaupenda í Verðlagsráði: Bjarni V. Magnússon, framkvæmda- stjóri, Reykjavík og Eyjólfur ís- feld Eyjólfsson, framkvæmda- stjóri, Reykjavík. Frá Verðlagsráði s j ávarútvegsins. Umræðufundur um stækkun sveitarfélaga STÚDENTAFÉLAG Suðurlands efnir til almenns umræðufundar næstkomandi miðvikudagskvöld, 11. maí, í félagsheimilinu Borg í Grímsnesi. Frummælendur eru beðnir að lýsa afstöðu sinni til hugmynda, sem fram hafa kom- ið um stækkun sveitarfélaga, varðandi fræðsluhéruð og skóla- héruð, um endurskoðun á skipan prestakalla og um breytingar á sýslumörkum og yfirstjórn hér- aða. Vafalaust ber og á góma stærð annarra félagsheilda í dreifbýli svo sem félagsheimila- umdæmi, sjúkrasamlög og fleira. Frummælendur á fundinum verða fjórir: séra Sigurður S. Haukdal, oddviti Vestur-Land- eyjahrepps; Steinþór Gestsson, oddviti Gnúpverjahrepps; Unnar Stefánsson, viðskiptafræðingur, og Ölver Karlsson, oddviti Ása- hrepps. í hópi framsögumanna eru þrír oddvitar í Árnes- og Rangárvallassýlu. Gestur fundarins er Árni G. Eylands, en eftir hann hafa ný- verið birzt blaðagreinar um stækkun sveitarfélaga í Noregi. Fundurinn er öllum opinn og hefst kl. 9,30 i félagsheimilinu Borg í Grímsnesi, eins og áður segir. Vitað er, að framsögumenn hafa skiptar skoðanir á því efni, sem er til umræðu. Kynningoikvöld- vokn hjó Hvöt SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉ- LAGIÐ HVÖT hefur kynningar- kvöldvöku í kvöld í Sjálfstæðis- húsinu. Þar talar borgarstjórinn, Geir Hallgrímsson. Ennfremur flytja þessar konur ávörp: Sig- urlaug Bjarnadóttir, Geirþrúður Bernhöft, Gróa Pétursdóttir, Sig- urbjörg Sigurjónsdóttir og Auð- ur Auðuns. Á eftir verða ágæt skemmti- atriði. M.a. syngur Magnús Jóns- son, óperusöngvari með undirleik Ólafs Vignis Albertssonar, Þóra Borg, leikkona, les upp. Þá verð- ur kaffidrykkja og síðasta skemmtiatriðið er þjóðdansasýn- ing og sýning á gömlum bún- ingum, sem Þjóðdansafélagið sér um. Nitze, flotamálaráðherra Bandaríkjanna á íslandi PAIJL H. Nitze, flotamálaráð- herra Bandaríkjanna hafði stutta viðdvöl hér á landi sl. sunnudag. Kom hann um morguninn og hélt aftur utan um kvöldið áleiðis til Sví- þjóðar, en hann er á ferða- lagi um Evrópu. Flotamálaráðherrann átti Akraneskirkja aftur tekin í notkun Helgiathöfn fór fram í kirkju- uni hér á Alkranesi sl. laugar- dagskvöld kl. 8:30, um leið og kirkjan var tekin í notkun. Við- staddur athöfnina var biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, og svo auðvitað hér- aðsprófasturinn séra Sigurjón Guðjónsson Saurbæ, og sóknar- presturinn séra Jón M. Guð- jónsson. Athöfnin var öll hin há- tíðlegasta og var kirkjan fuli- setin. Kirkjukórinn söng undir stjórn Magnúsar Jónssonar org- anleikara. LÆGÐIN norðvestur af land- moldrok og sandmistur í lofti. inu olli vaxandi austanátt um Norðanlands var hinsvegar sunnanvert landið í gær. Var suðlæg átt og sólskin, en komið ofsaveður eða 11 vind- mikill loftkuldi, jafnvel á stig á Stórhöfða um nónbilið Akureyri var eins stigs frost og víða var 6—7 vindstig. klukkan 15. Úrkomulaust var, en víða Sunnudaginn eftir 8. maí, fermdi séra Jón 53 börn, og á uppstigningardag 19, fermir hann 44 börn. Með þeim hefur hann fermt 1456 börn alls hér í bæ. Á endurreisnartíma Akranes- kirkju hafa henni borizt góðar og verðmætar gjafir. Frú Ingunn Sveinsdóttir og Haraldur Böðv- arsson, framkvæmdastjóri, gáfu þrjár veglegar kirkjuklukkur með tilheyrandi rafmagnsútbún- aði og áletrun. Klukkurnar eru gefnar í tilefni af gullbrúðkaupi þeirra hjóna 6. nóvember s.l. Þessar kirkjuklukkur eru frá þekktri þýzkri verksmiðju, sem framleiðir mikið af þeim, og eru áður komnar í nokkrar is- lenzkar kirkjur. Dráttarbraut Akranes h.f., en framkvæmdastjórar hennar eru þeir, Þorgeir Jósefsson og Jósef Þorgeirsson, létu smíða og gáfu mjög vandaðar kirkjuhurðir. Frú Ása Finsen og börn henn- ar gáfu fagran ljósakross á kirkjuna, til minningar um eiginmann og föður, Ólaf sál- uga B. Björnsson, ritstjóra. Frú Sigríður Sigurðardóttir gaf fallega blómavasa úr silfri með áletrun til minningar um eigin- mann sinn, Jóhann B. Guðnason, sem var sóknarnefndarformaður hér í áratugi. Einnig gaf einn velunnari kirkjunnar tvo vandaða kerta- stjaka úr silfri, til minningar um móður sína, en hann óskar að nafn síns só ekki getið. viðræður við yfirmenn varn- arliðsins á Keflavíkurflug- velli, og einnig brá hann sér í stutta heimsókn til Reykja- víkur. Hitti hann ýmsa ís- lenzka aðila að móli á heimili Penfields, sendiherra, og skýrði fyrir þeim varnarmál. auk þess sem hann ræddi um Magnús Guðlaugsson gaf útskor- inn stól til minningar um konu sína, Friðmeyju Guðmundsdótt- ur. Eigendur Bókaverzlunar Andrésar Nielssonar, gáfu kr. 3000 andviðri 30 eintaka af sálma bókum, ennfremur hafa kirkj- unni borizt nokkrar peninga- gjafir. Nokkrar konur hafa með höndum stjórn sérstaks sjóðs, sem nefndur er Blómasjóður Akranesskirkju. Veitti sjóður þessi peninga til greiðslu á tepp um bæði á kór- og kirkjugólf. horfurnar í heimsstjórnmálun um. Á myndinni hér að ofan sést hvar Nitze, flotamálaráð- herra, ræðir við Weymouth aðmírál, við komu hins fyrr- nefnda til Keflavíkurstöðvar- innar. Af framgangreindu má sjá að mörgum er annt um kirkjuna sína, og sýna það á margan hátt. Að sjálfsögðu eru margir aðrir, en hér eru nefndir sem bera um hyggju og vinarhug til hennar og telja sig eiga henni margt að þakka. Fyrir allar þessar gjafir biður sóknarnefndarformaður, Karl Helgason, fyrir hönd sókn- arnefndar Akraneskirkju MbU að færa innilegar þakkir og bið- ur gefendum guðs blessunar. -« Oddur. Alli Ólafsvíkiarbóta meiri en í iyrra Ólafsvík, 9. maí. AFLI Ólafsvíkur báta frá 16. apríl eru nú orðin 3293 tonn í 191 róðri. Hæsti bátur á þessu tímabili var Guðbjörg með 210 tonn í 13 róðrum. Afli frá ver- tíðarbyrjun tii 30. apríl er orð- inn 8913 tonn í 870 róðri, en var á sama tima í fyrra 8334 tonn í 848 róðrum, og er því orðinn 580 tonnum meiri nú en í fyrra. Mestan afla í róðri í apríl hafði Valafell þann 26. apríl 31.5 tonn. Afli einstakra báta frá ver- tiðarbyrjuninni er þessi: Halldór Jónsson 916 tonn í 67 róðrum, Valafell 828 tonn í 68 róðrum, Stapafell 782 tonn í 57 róðrum, Sveinbjörn Jakobsson 777 tonn í 58 róðrum, Steinunn 746 tenn í 65 róðrum, Jón Jónsson 732 tonn í 60 róðrum, Jón á Stapa 614 tonn í 55 róðrum, Guðbjórg 533 tonn í 50 róðrum, Hrónn 500 tonn í 57 róðrum, Frosti 473 tonn í 44 róðrum, Bárður Snæ- fellsár 404 tonn í 46 róðrum, Olafur Bekkur 400 tonn í 29 róðrum, Geysir 337 tonn i 51 róðri, Gylfi 163 tonn í 77 róðr- um, Ólafur 203 tonn í 54 róðr- um, og Auðbjörg með 347 tonn í 62 róðrum. — Hinrik. Sjfálfboðaliðar SJÁLFSTÆOISFLOKKINN vantar fjölda sjálfboðaliða við skriftir i dag og næstu daga. Þeir sem vilja leggja til lið sitt hringi í sima 21409 — 17100 eða komi á kosningaskriístofu Sjálfstæðisi'lokksins Hafnarstræti 19 3. hæð. (Hús HEMCO).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.