Morgunblaðið - 10.05.1966, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.05.1966, Blaðsíða 4
4 MORGU N BLAÐIÐ Þriðjudagur 10. maí 1966 Bí LALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 SENDUM LITLA bílaleigan Ingólfsstræti 11. Volkswagen 1200 og 1300. Sími 14970 W——BÍLALEIGAN rALUR P i RAUÐARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022 mniFiÐ/fi Volkswagen 1965 og ’66. BIFREIIALEIGAItt VECFERÐ Grettisgötu 10. Sími 14113. Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar púströr o.fl. varahlutir í margar gerðir bifreiða. Bílavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168. — Sími 24180. Hópferðab'ilar allar stærðir Sími 37400 og 34307. BOSCH Þurrkumótorar 6 volt 12 volt 24 volt Bílastraumur Fremur er hann kaldur þessa dagana, en þó er snjólétt hér syðra. Fyrir norðan er enn mikill snjór í fjöllum og vegir ekki orðnir akfærir yfir heið- arnar. í>eir munu enn vera að moka snjó af veginum yfir Vaðlaheiði — og þar er hann geysimikill. En vonandi fer að hlýna svo að hægt verði að bregða sér úr bænum um helg- ar. Um síðustu helgi var veðrið hér mjög fagurt, þótt ekki væri hlýtt. Mikill fjöldi foiks notaði góða veðrið og ók út úr bænum, þótt ýmsir vegir í ná- grenninu séu varla ökufærir. Mjög margir völdu því þann kostinn að aka til Keflavíkur, því að þetta er í rauninni eini vegur landsins, sem hægt er að telja veg. Bílastraumurinn til og frá Keflavík var nær óslitinn á sunnudaginn og var ljóst, að ökumenn kunnu vel að meta þessa fyrirmyndar- akbraut. Vegagjaldið er orðið algert smáræði í samanburði við þá miklu yfirburði, sem þessi vegur hefur yfir aðra vegi landsins — og þess mun lengi minnst, að jafnvel var búizt við átökum og barsmíð, þegar þessi eini almennilegi vegur landsins var opnaður. Og það voru einmitt þeir, sem fyrst og fremst áttu að njóta vegarins, sem ógnuðu friðinum. Loksins I>egar nútíma bítlahljóm- sveitir, sem æpa við hvað mestar vinsældir á mannamót- um hér á landi, hafa m.a. beitt þeirri auglýsingaaðferð í blöð- unum að láta birta af sér mynd ir, sem teknar eru í óvenju- legu umhverfi, þ.e.a.s. um- hverfi, sem stungið hefur i stúf við hárlubbann og at- vinnu spilaranna og söngvar- anna. Um helgina birtist mynd af einni bítlahljómsveitinni í kirkjugarði — og bítlarnir virtust ýmist liggjandi eða sitj- andi á leiðunum. Þetta er ákaflega smekkleg auglýsinga- aðferð og sú spurning vaknar, hvort þarna hafi bítlarnir ekki loksins fundið sitt rétta um- hverfi. ^ Kurteis ökumaður Tvær gamlar konur senda eftirfarandi: „Kæri Velvakandi! Við, tvær gamlar konur, stóðum vestur á Hringbraut og ætluðum yfir götuna. Við vorum á réttum stað, við braut, sem merkt er fótgang- andi. Fleiri bættust í hópinn. Fullorðin hjón, drengur með mjólkurhyrnu í neti og gömul kona með staf. Bílarnir þutu framhjá, en enginn mátti vera að því að nema staðar til þess að hleypa okkur yfir götuna. Við stóðum þarna eins og út- skúfaðar sálir og mændum vonlausum augum til fyrir- heitna landsins. Loksins, loks- ins kom ungur maður á jeppa. Hann stanzaði samstundis og hleypti okkur brosandi yfir götuna. Við urðum svo barns- legar af þakklæti, að við sner- um okkur við og veifuðum til hans og lögðum á okkur núm- erið: R 9674. Við þökkum honum og öll- um ökumönnum borgarinnar, sem sýna kurteisi og hjálpsemi í umferðinni — einkum, þegar gamla fólkið á í hlut. I>að er oft hrætt á götunni. Megi Guð blessa þá alla. Tvær gamlar konur, 72 ára.“ Hættulegar túttur Og húsmóðir skrifar okk- ur eftirfarandi: Túttur eða snuð eru mikil þarfaþing á öllum barnaheim- ilum. Á undanförnum árum hafa fengizt hér margar teg- undir af snuðum — og sjálf- sagt reynzt misjafnlega vel. Kona nokkur, sem á tíu börn, sagði mér hins vegar fyrir nokkru, að á markaðnum væri ein tegund snuða, sem væri stórhættuleg. Mjóu munaði að yngsta barn hennar kafnaði með þetta snuð — og það var aðeins tilviljun, að móðirin kom að, er snuðið hafði rifnað við hringinn. Sagði konan, að þessi eina tegund bilaði oft mjög skyndilega, gúmmítotan rifnaði við hringinn án þess að séð væri, að gúmmíið væri byrjað að gefa sig. Ættu for- eldrar að vara sig á þessu. Húsmóðir." Umferðarreglur Hér koma nokkrar fyrir- spurnir varðandi umferðar- reglur og það er „Ökumaður", sem skrifar: „Sunnudaginn 1. maí var sagt frá árekstri er varð á Hringbraut, gegnt Elliheimil- inu Grund, milli bifreiðanna A og R. Ég óska eftir að vita, hvort báðir ökumenn verði ekki dæmdir sekir samkvæmt um- ferðalögunum. Annar fyrir að beygja fyrirvaralaust af vinstri akrein í hægri hliðargötu, hinn fyrir að ætla að aka fram úr á gatnamótum? Umferðarlög þau, sem í gildi eru, bera ártölin: 1956, 1960 og 1965. Eitt sinn birtist í dálkum þínum fyrirspurn um það hvernig ökumenn ættu að haga sér ef annar kæmi niður Nóa- tún ofan Laugavegar og ætlaði inn Laugaveg, en hinn kæmi upp Nóatún neðan Laugavegar, og ætlaði niður Laugaveg. Svarið heyrði ég í Umferðar- þætti útvarpsins. Ég hef leitað að þessu svari í umferðarlögunum, en ekki fundið. í umferðarlögunum er lítillega minnst á akreinar. T.d. skilst mér að akrein þýði það, sem skipta megi akforaut í. Spurningin er hvort sama heiti gildir eftir að það hefir verið gert. Ekkert finn ég í umferðarlögunum um hring- torg eða reglur þær, sem þar gilda. Ég hefi hinsvegar fundið ákvæði um að dómsmálaráð- herra og lögreglustjórar geti sett fyllri ákvæði en er að finna í umferðarlögunum. Kannski eru framangreind atriði þannig til komin? 1 kaflanum um umferðar- fræðslu o.fl. segir meðal ann- ars: „Bæjar- og sveitarstjórnum ber ennfremur að fræða“, o. s. frv. Ég veit að fluttir eru fastir þættir í útvarpið um umferðarmál, sem fjöldinn hefir lítil sem engin not af. Einnig eru haldnar umferðar- vikur, sem allir hafa mikið gott af. En vilji maður lesa sér til um þau sérákvæði, sem sett hafa verið, ja, þá vandast málið. Eitt sinn var dreift kortum með leiðbeiningum varðandi umferðarmerki. I>egar beðið er um umferðarlögin, fær mað- ur aðeins hin almennu um- ferðarlög, en ekki staf um nein sérákvæði. í Umferðarlögunum er bann að að aka fram úr öðru farar- tæki á vegamótum. Þó er sú undanþága veitt að aka má fram úr ökutæki á vegamótum, og það meira að segja vinstra megin við það, ef ökutækið, sem á undan fer, gefur greini- legt merki um að það ætli að beygja til hægri. Ekki er eitt orð að finna um framúr akstur við vegamót, þar sem vegur liggur til vinstri nema þetta almenna ákvæði um bann við framúrakstri á vega- mótum. Spurningin er því sú, hvort vegur, sem liggur vinstra megin út úr þeim vegi, sem ekinn er hverju sinni, telst hluti af gatnamótum. Fyrir skömmu varð hroða- legt slys er bifreið var ekið undir pall á kyrrstæðri vöru- bifreið er lagt hafði verið á vinstri vegarbrún. Ég reikna ekki með, (enda ekki séð um það getið) að vörubifreiðin hafi haft stöðuljós. Ef stöðu- ljós vörubifreiðarinnar hafa ekki verið tendruð, var hún þá ekki í algjörum órétti? Ég óska eindregið eftir að fá svör við þessum spurningum I dálkum þínum. Ef það er ein- hverra hluta vegna ómögulegt, óska ég eftir að það verði tek- ið til umræðu í laugardagsum- ferðarþáttum útvarpsins, og það sem fyrst. Ökumaður". Ég ætla ekki að reyna að svara þessu en vona, að þeir, sem telja sér málið skylt, taki sér penna 1 hönd og sendi mér svörin. Brœðurnir Ormsson Lágmúla 9. — Simi 38820. Veitingastofa óskast Hjón, von veitingahúsarekstri, óska eftir að taka á leigu, litla veitingastofu á góðum stað á Austfjörð- um í sumar. Upplýsingar og leigutilboð, leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 16. maí, merkt: „Austurland“. Hafnarfjörður Tveggja hæða einbýlishús til sölu. Á efri hæð eru 4 svefnherbergi og bað. Á hæð eru stofur, eldhús og þvottahús. Bílskúrsréttur. — Laust til íbúðar í þessum mánuði. GUÐJÓN STEINGRÍMSSON, HRL. Linnetstíg 3, Hafnarfirði — Sími 50960 kvöldsími sölumanns 51066. Tilraunastöðin Skriðuklaustri óskar eftir að ráða mann. Verksvið hans er að veru legu leyti að annast sauðfjárbú stöðvarinnar, þar með að sjá um sauðfpártilraunir, sem þar eru reknar. Húsnæði fyrir fjölskyldumann er fyrir hendi. Umsóknarfrestur er til 25. maí. Umsóknir sendist Matthíasi Eggertssyni, Skriðu- klaustri, sem veitir nánari upplýsingar. 1-2 herb. íbúð óskast á leigu nú þegar. GUÐJÓN STEINGRIMSSON, HRL. Linnetstíg 3, Hafnarfirði — Sími 50960 kvöldsími sölumanns 51066.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.