Morgunblaðið - 10.05.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.05.1966, Blaðsíða 5
I; #•-: L«‘. i * <lr »Jí Þriðjudagur 10. HHtí 1966 MORGUNBLAÐIÐ 5 ÚR ÖLLUM ÁTTUM SL. laugardag var vígB ný og glæsileg viðbygging við Barnaheimilið Sólheima í Grímsnesi, en þar hefur verið rekið heimili fyrir van- þroskuð börn mörg uiidan- farin ár. Viðstaddir vígsluna Gestir frú Sesselju við hádegisverðarborðið. Vígð ný bygging við Barnaheimilið Sólheima \ Heilladrjúgt starí forstöðukonunnar, ■ \ frú Sesselju Sigmundsdóttur voru á þriðja hundruð gest- ir, þ.á.m. fulltrúar ráðherra, borgarstjóra og biskups, svo Frú Sesselja Sigmundsdóttir og félagar Lionsklúbbsins Ægis, sem á drjúgan þátt í hinni nýju byggingu, og auk þess Lionsfélagar af Norður- löndum. Frú Sesselja Sig- mundsdóttir forstöðukona Sólheima á heilladrýgstan þátt í þessum nýja áfanga i sögu Sólheimabarnaheimilis- ins, en hún hóf starf sitt þar fyrir 30 árum við mjög frum- stæðar og erfiðar aðstæður, sem sjá má af því, að fyrsta sumarið bjó hún ásamt 5 börnum í tjaldi á þessum stað, meðan íbúðarhúsið var í smíðum. Nú eru á Sólheim- um um 40 börn, þar hafa ris- ið íbúðarhús fyrir starfsfólk, verkstæði, gripahús, og gróð- urhús, en frú Sesselja valdi staðinn m.a. með tilliti til þess, að þar er heitt vatn í jörðu. Hin nýja viðbyigging er reist fyrir eldhús og matsal fyrir 80-100 manns, auk þess læknisherbergi, snyrtiklefar, geymslur, frystiklefa og margt fleira. Má áætla að það starf, sem Lionsklúbbur- inn Ægir hefur séð um megi verðleggja á 12 millj. kr., en megnið af þessu fé hefur komið frá svonefndum tappa sjóði, þ.e. gjald sem lagt er á gosdrykkjasölu og rennur til Styrktarsjóðs vangefinna. Við vígsluna fluttu ræður Hjalti Þórarinsson yfirlæknir formaður Lionsklúbbsins Ægis, og Gunnar Ásgeirsson framkvæmdastjóri líknar- nefndar sama klúbbs. Einnig flutti biskupsritari Ingólfur Ástmarsson heimilinu bless- unarorð. Hjálti Þórarinsson yfir- læknir sagði m.a. í ræðu sinni: „Tilefni þessa fagnaðar er að vígja ný húsakynni og gleðjast yfir nauðsynlegum og langþráðum áfanga. Saga Barnahejmilisins Sólheima, sem jafnframt er saga frú Sesselju, er fáum kunn, þar sem forstöðukonan hefir alla tíð unnið sín verk i kyrrþey, enda hlédræg að eðlisfari. Strax í barnæsku fann hún hjá sér hvöt til að styðja og styrkja þá, sem veikburða voru og hjálparþurfi. Hún var því ung að árum, þegar hún ákvað að stofna heimili fyrir vanþroskuð börn og unglinga. Þetta var stórhuga og djörf ákvörðun, því hér voru aðstæður pá erfiðar. En eldmóður æskunnar, óbilandi bjartsýni, trúin á gott mál- efni, vinnusemi og dugnaður fá miklu áorkað. Frú Sess- elja hélt utan til náms og afl- aði sér þeirrar beztu mennt- unar sem völ var á á þessu sviði. Hún dvaldist í 6 ár í Danmörku, Þýzkalandi og Sviss. Hún starfaði á sjúkrahús- um, í heimavistarskólum og munaðarleysingjahælum og kynntist þannig öllum nýj- ungum í rekstri slíkra heim- ila. Á námsárunum kynntist hún stefnu og kenmngum heimspekingsins Rudolf Stein ers, sem hafði stofnað barna- heimili eða skóla, svonefnd- an Waldorf Schule í Stutt- gart. Aðalbækistöðvar Stein- er-skólans eru í Dormach í Sviss og þangað fór Sesselja til að kynna sér starf hans nánar. Þessi stefna tók hug Sesselju allan og hefir hún jafnan síðan starfað í anda hennar og er ugglaust einn bezti fulltrúi, sem þessi hreyf ing hefir átt.“ 1 ávarpi sínu sagði Gunnar Ásgeirsson m.a.: „A árinu 1957, það er að segja skömmu eftir að Lions- klúbburinn Ægir var stofnað- ur var strax hafizt handa að finna verkefni fyrir klúbb- inn og voru ýmsir hlutir at- hugaðir, meðal annars var farið til Sólheima og gefnar jólagjafir til barnanna. Þar sem húsnæðisskortur var mikill var talið sjálfsagt að við tækjum að okkur byggingarframkvæmdir og hófst það fyrst með byggingu Framhald á bls. 25. Gunnar Asgeirsson flytur ræðu sína. V KYNNINGAR KVÖLDVAKA Sjálfstæðiskvennafélagsins HVATAR verður ■ Sjálfstæðishúsinu í kvold kl. 8.30 GEIR r ^ Avörp flytja: Sigurlaug Bjarnadóttir Geirþrúður H. Bernhöft Gróa Pétursdóttir Sigurbjörg Sigurjónsdóttir Auður Auðuns HALLGRÍMSSON, borgarstjóri talar SKEMMTIATRIÐI: Frú Þóra Borg Einarsson les upp. ★ Magnús Jónsson óperusöngvari syngur. Undirleik annast Ólafur Vignir Albertsson. ★ Þjóðdansafélagið sýnir dansa og gamla búninga. KAFFIDRYKKJA — Félagskonur fjölmennið og takið með ykkur gesti Aðrar sjálfstæðiskonur velkomnar meðan húsrúm leyfir. STJÓRNIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.