Morgunblaðið - 10.05.1966, Blaðsíða 32
Langstærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
104. tbl. — Þriðjudagur 10. maí 1966
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
//
Olíuskipið
Inga" farið
Ákwörííiiin fekin um jþað á leHinni, hvad
eyert verðiuir viö farminn — Gat fumfust
á skitrúmum miHi tanka
SJÓPRÓFUM í máli finneka
clíuflutningaskipsins „Jnga“ lauk
um kl. 9 sl. sunnudagskvöld.
Eins og skýrt hefur verið frá
átSar í blaðinu, mengaðist nokk-
ur hluti farms skipsins, eða 1000
tonn af benzíni og um 2200 tonn
af gasolíu, er skipið var á leið
hingað til landsins. Neituðu ís-
lenzku olíufélögin að taka við
hinni menguðu olíu, og sömuleið
is neituðu Rússar, en þaðan kom
olían, í fyrstu að taka aftur við
henni. Inga fór héðan frá
Reykjavík með hinn mengaða
farm strax að sjóprófum lokn-
um sl. sunnudagskvöld.
Samkvæmt uppiýsingum er
Mbl. afiaði sér hjá Birni Frið-
finnssyni, borgardómara, en
hann hafði með sjóprófin að
gera, mun verða tekin ákvörðun
um það, hvað gera skuli við
farminn á ieiðinni út, en sovézk
yfirvöld eru nú með það í at-
hugun, hvort þau munu taka við
hinni menguðu oMu aftur til
hreinsunar. Ennfremur verður
tekin um það ákvörðun á leið-
inni, hvar skipið verður sett í
siipp.
Björn tjáði blaðinu ennfrem-
ur, að sérfræðingar þeir, sem
könnuðu með hvaða hætti meng
unin varð, hefðu fundið aiimik-
ið af götum í skilrúmunum miili
tankanna. Þ-að væri nú umsam-
ið að málaferli þau, varðandi
hver beri á'byrgðina á mengun-
inni, færu fram hér í Reykjavík.
Stendur máiið nú þannig, að
ef það sannast að mengunin er
af völdum sjótjóns, er skipið
varð fyrir á leið hingað, þá bera
tryggjendur framsins, sem í
þessu tilfelli eru Sjóvá og Sam-
vinnutryggingar, á'byrgðiná, en
ef það sannast að skipið var í
upphafi ferðarinnar óhæft til
þessara oiíufiutninga, og eigend
ur þess vissu af því, þá ber út-
gerðin ábyrgðina.
Ný og vegleg viðbygging við B arnaheimilið Sóiheima i Grímsnesi var vígð sl. laugardag, en
forstöðukona heimilisins frú Sesselja Sigmundsdóttir hefur við mikla byrjunarerfiðleika rekið
heimilið um 30 ára skeið og komið upp ágætum húsakosti í sambandi við það. Við fram-
kvæmdir síðari ára hefur frú Sesselja notið ötullar aðstoðar Lionsklúbbsins Ægis. Sjá nánar á
bls. 5. (Ljósm. Sv. Þorm.)
Veritryggi spariskírteini
ríkissjóis gefin út
Sala þeirra hefst m.k. mnðvlkudag
Doktorsritgerð
um flogveki á
íslandi tekin gild
LÆKNADEILD Háskóla íslands
hefur tekið ritgerð Gunnars
Guðmundssonar, læknis og sér-
fræðings í taugasjúkdómum,
gilda til doktorsvarnar. Fjallar
ritgerðin um fiogaveiki á fs-
landi. Ennþá hefur ekki verið
ákveðið hvenær doktorsvörnin
fer fram.
UM HEILGINA var brotizt inn
í Barónsborg, og var þaðan stol
ið seg'UÍbandstæki, hvítgrátt að
lit, og af gerðinni Philips, sem
notað hefur verið til þess að
skemmta börnumim með. Þeir,
sem gætu gefið einhverjar upp-
Jýsingar um stuidinn eru beðnir
að snúa sér til rannsóknarlög-
regiunnar.
MBL. HEFUR borizt fréttatilkynning frá Seðlabanka fslands, og er
í henni greint frá því að hinn 6. maí sl. hafi verið staðfest lög, er
heimiluðu ríkisstjórninni að taka innlent lán allt að 100 millj. króna.
Hefur fjármálaráðherra nú ákveðið að nota nefnda heimild með
útgáfu verðbréfaláns að fjárhæð 50 millj. kr. Lánið nefnist „Inn-
lent lán Rikissjóðs íslands 1966 1. fl.“ Verða skuldabréf lánsins í
formi spariskírteina með sama sniði og spariskirteini ríkissjóðs, sem
gefin voru út á árunum 1964 og 1965. Mun sala skírteina þessa hefj-
ast núna á miðvikudag n.k. Seðlabankinn hefur umsjón með sölu
og dreifingu skírteinanna, sem verða fáanleg hjá bönkum, banka-
útibúum, sparisjóðum, svo og hjá nokkrum verð'bréfasölum í
Reykjavík.
Skilmálar hinna nýju skír-
teina eru hinir sömu og spari-
skírteina þeirra, sem út voru
gefin á sl. ári, og eru þeir í aðal-
atriðum þessir, að því er segir í
fréttatilkynningunni:
1) Verðtrygging: Þegar skír-
teinin eru innleyst endurgreiðist
höfuðstóll þeirra og vextir með
fuilri vísitöiuuppbót, sem miðast
við hækkun byggingarvísitölu frá
útgáfudegi til inniausnargjald-
daga. Þetta gefur skírteinunum
sama öryggi gegn hugsanlegum
verðhækkunum og um fasteign
væri að ræða.
2) Skírteini eru innleysanleg
eftir þrjú ár. Hvenær sem er
eftir þrjú ár, getur eigandi skír-
teinanna fengið þau innleyst með
áföiinum vöxtum og verðuppbót.
Það sparifé, sem í skírteinin er
lagt, verður því aðeins bundið til
skamms tima, ef eigandinn skyldi
þurfa á því að halda. Auk þess
er hægt að skipta stærri bréfa-
stærðum í minni bréf við Seðia-
bankann. Getur það verið hen-
tugt, þegar eigandi vill selja eða
fá innleystan hluta af skirteina-
eign sinni. Hins vegar getur eig-
andinn haldið bréfunum allan
lánstímann, sem er 12 ár, og nýt-
ur hann þá fullra vaxta og verð-
tryggingar allt það tímabil.
3) Verðmæti skírteinanna tvö-
faldast á tólf árum. Vextir og
vaxtavextir af skírteinunum
leggjast við höfuðstól, þar til inn
lausn fer fram. Sé skírteinunum
haldið í 12 ár tvöfaldast höfuð-
stóll þeirra, en það þýðir 6% með
alvexti allt lánstímabilið. Ofan á
innlausnarupphæðina bætast síð-
an, eins og áður segir, fullar
verðbætur samkvæmt vísitölu
byggingarkostnaðar.
4) Skattfrelsi. Skírteinin njóta
alveg sömu fríðinda og sparifé
við banka og sparisjóði, og eru
þannig undanþegin ölium tekju-
og eignarsköttum, svo og fram-
talsskyidu.
5) Hagstæffar hréfastærðir.
Framhald á bls. 31
Síðasta
bókaupp*
boðið
að
sinm
1 DAG kl. 5 heldur Sigurður
Benediktsson síðasta bókauppbið
sitt að sinni í Þjóðleikhúskjallar-
anum. Bækurnar eru til sýnis frá
ki. 10—4 í dag.
AJJs eru 83 núrner á sölu-
skránni, og nokkrar mjög fágæt.
ar tiækur er þar að finna, t.d.
Specimen Arngríms lærða, Amst
erdam 1643; TilforladeJige Efter.
retninger, eftir N. HorreJx>w, Om
Nordens Digtekonst. eftir Jón
Óiafsson, K.höfn 1786 og ýmsar
fleiri bækur, t.d. Waysen-Húss
BibJía.
Sigurður lét þess getið við Mbl.
í gær, að þetta yrði síðasta bóka-
uppboðið fyric haustið, en þá
byggist hann við að haJda sér-
fitak-t uppboð á ferðabókum ua
ísiand.
V.s. Hafþór finnur síldar-
torfur út af Austfjörðum
Um oðro göngu oð ræðo, en finnst
vcmalega nyrzt á AuslfjörBum '
EINS og sagt hefur verið frá í
fréttum hóf v.s. Hafþór síldar-
leit út af Austurlandi sl. fimmtu-
dag. Þær fréttir bárust frá skip-
inu í morgun, að góðar síldar-
torfur hefðu fundizt um 240 sjó-
milur réttvísandi austur af
Kambanesi eða nánar tiltekið
Tekið eftir börnunum
á flugbrautinni í tíma
EINS og skýrt var frá í Morg
unblaðinu fyrir helgina
hlupu börn út á eina braut
Reykjavíkurflugvallar um
það bil, sem farþegavél frá
Flugfélagi íslands var að
koma til lendingar. Tekið var
eftir börnunum í tima og
lyfti flugstjórinn flugvélinni
aftur og flaug einn hring á
meðan börninn voru rekin af
brautinni.
Flugvélin, sem var að koma
inn til lendingar, var BJik-
faxi og flugstjórinn var Henn
ing Bjarnason. Morgunblað-
ið hefur beðið hann að segja
nánar frá atburðinum. Henn-
ing sagði:
— Þetta gerðist fyrir um
það bil mánuði og vorum við
að koma frá Akureyri. Kom-
um við til Jendingar yfir
Tjörnina.
— Þá gerðist það, að ég sá
hóp loarna fyrir framan mig
úti á miðri flugbrautinni og
í sömu andrá kaliaði flug-
turninn mig upp og skýrði
r ramhald á bls. 31.
á svæðinu frá 64*42' N. BR. að
64*52' N. BR. milli 5* V.L. og
4*15’ V.L.
Torfurnar voru á 10—20 faðma
dýpi í nótt, en dýpkuðu á sér
með morgninum, og voru um kl.
7 í morgun á 80—100 faðma dýpi.
V.s. Hafþór mun fylgjast nánar
með síldargöngu þessari næstu
dægur. — Skipstjóri á v.s. Haf-
þóri er Benedikt Guðmundsson.
(Frá Hafrannsóknar-
stofnuninni).
Vegna þessarar fréttar hafði
MM. samband við Jakob Jakóbs-
son, fiskifræðing. Hann tjáði
sem nú fundust. væru aJJmiklu
sunnar en fyrstu sildartorfurnar,
sem fundust fyrir AusturJandi í
fyrravor, en þá voru þær aust-
norðaustur af Langanesi. Hann
taJdi því liklegt, að hér væri um
aðra göngu að ræða.
Hann kvað Hafrannsóknar-
stofnunina hafa haft af því
spurnir, að færeysk skip hefðu
fundið síldartorfur fyrir nokkru,
er þau voru að veiðum um 80
sjómílur norður af Færeyjum. —
Var sú síld um 5—7 ára að aldri.
Færeyingar týndu síðan af þess-
ari síld, og kvað Jakob miklar
Jíkur vera á því, að hér væri um
þá göngu að ræða. Á hinn bóg-
inn væri síld sú, sem gengi vana-
lega nyrzt við ísland gömul sild,
eða um eða yfir 10 ára, og kæmi
blaðinu, að þessar síJdartorfur, hún beint frá NoregL
Bílar á kjördegi
ÞEIR stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem lána vilja
flokknum bifreiðar sinar á kjördegi 22. maí eru beðnir að
hafa samband við skrifstofu bílanefndar í Valhöll.
Skrifstofan er opin daglega frá kl. 13—19 alla virka
daga. Simar 15411 og 17103.
Stjórn bílanefndar Sjálfstæðisflokksins.