Morgunblaðið - 10.06.1966, Blaðsíða 23
FöstudagOP M. jiiní 1966
MORGUNBLADID
23
Kvennadalk
Corolyn Somody. 20 óro,
ffá Bondorikjunum segir:
, Þegar fílípensor þjóðu mig.
reyndl ég morgvísleg efnl.
Einungis Cleorosil hjólpoðl
rounverulego -
KARTÖFLUR eru miklvægur
þáttur í fæði okkar íslendinga.
Mun láta nærri, að þær séu dag-
lega á borðum okkar flestra.
Kartöflurnar eru upprunnar í
Suður-Ameríku, nánar tiltekið í
Chile og Perú, og munu hafa
verið ræktaðar almennt meðal
Indíána í Ameríku um langan
aldur. Evrópskir landkönnuðir
fluttu síðan jurtina með sér frá
Buður-Ameríku til Spánar
snemma á 16. öld, og er Sir
Walter Raleigh sagður hafa
Ikomið með plöntur frá Virginia
árið 1585.
Á aðra öld var kartaflan rækt-
uð í görðum Evrópulanda sem
skrautjurt, og það var ekki fyrr
en á 18. öld, sem farið var að
nota hana til manneldis. >að var
aðallega að þakka hinum franska
matmanni Antoine Parmentier.
a8 hún fór að skipa fastan sess á
borðum manna. Fyrstu kartöflu-
ekrurnar voru á írlandi, sem
enn í dag er eitt af mestu kart-
öfluræktarlöndum heimsins.
Til Danmerkur kom kartaflan
árið 1719 með Húgenottum og
var brátt mjög útbreidd. Þaðan
kom hún til Noregs og íslands
og varð smám saman ein aðal-
fæðutegund í allri Evrópu. Til
fslands barst hún árið 1758, og
var það séra Björn Halldórsson
í Sauðlauksdal, sá mikli garð-
yrkjumaður, sem fyrstur manna
hóf hér kartöflurækt, ásamt kál-
og rófnarækt.
Kartaflan inniheldur 78%
vatn, 18% kolvetni (starch).
Sem fæðutegund nægir hún ekki
eingöngu, þar sem hana skortir
köfnunarefnissambödn og fitu.
Kartöflur hafa frá öndverðu
Nr. 1 I USA þvi það er raunhatf hjálp — Clearatil
„sveltir”fílípensana
Þetta vísindalega samsetta efni getur hjálpað ySur á sama
hátt og það hefur hjálpaá miljónunn unglinga í Banda-
ríkjunum og víðar - >ví það er raunverulega áhrifamikið.^
Hörundslitad: Clearasil hylur bólurnar á medart
það vinnur á þeim.
Þar sem Clearasil er hörundslitað feynast fílipensarnir —
samtímis því, sem Clearasil þurrkar þá upp með því að
fjarlœgja húðfituna, sem nœrir þá — sem sagt .sveltir’ þá.
1. Fer inni
húáina
ö
2. Deyðir
gerlana
3. ..Svettir"
fílípenMina
e.•••*•***»**•
verið framreiddar á ýmsan hátt,
og eru margir möguleikar á að
matreiða þær umfram að sjóða
þær, brúna eða stappa eins og
algengast er hér á landi, og
fylgja hérmeð nokkrar upp-
skriftir af kartöfluréttum.
Það kemur fyrir flestar hús-
mæður að eiga afgang af soðn-
um kartöflum. Hér eru prýðis
réttir, þar sem einmitt er hægt
að notfæra sér soðnar kartöflur.
Kartöflur frá Lorraine-héraði.
1 pund soðnar kartöflur (í
sneiðum)
120 gr. rifinn ostur
% peli mjólk
2 egg
60 gr. smjörlíki
salt, pipar, múskat.
Eldfast mót er smurt, neðst
settur helmingurinn af ostinum,
síðan kartöflusneiðarnar. Eggin
eru þeytt, mjólk og kryddi bætt
í, síðan hellt yfir kartöflunar.
Það sem eftir er af ostinum sett
yfir, shijörlíkisbitar efst. Bakað
við vægan hita í 45 mínútur.
Kartöflu-tómatréttur.
2 bollar sneiddar, soðnar kart-
öflur
1 stór laukur, sneiddur
2 matsk. smjör eða smjörlíki
2 tómatar sneiddir
2 egg
1 bolli mjólk
% tsk salt
Yt tsk. hvítur pipar
2 matsk. rifinn ostur.
Set kartöflusneiðarnar 1
sumrt, eldfast fat, lauksneiðarn-
ar, sem aðeins eiga að brúnast
áður settar ofan á. Tómatsneið-
ar settar efst. Egg mjólk, salt
pipar þeytt saman, sett ofaná,
síðan rifinn ostur yfir allt. Bak-
ist í 30—35 mín. við vægan hita.
Nægir fyrir 4.
Bakaðar kartöflur.
Bakaðar kartöflur eru mjög
góðar og halda bezt í sér öllum
vítamínum og efnum. Bezt
fallnar til þessa eru stórar kart-
öflur mjölmiklar, t.d. þessar
pólsku, sem hingað flytjast, þó
Framhald á bls. 22
Tízkulitir ársins
Guli liturinn virðist ætla
að hafa vinninginn í ár, eftir
því sem Bretar segja. Hefur
hann verið mjög áberandi á
tízkusýningum (í Bretlandi).
Eru það allar útgáfur, frá
fölgulu, sem mest er notað i
undirfatnað, til sterk gulra
lita í sumarkápur og dragtir.
Sérkennilegir gulir litir hafa
hlotið nöfn eins og „banana"
ofí ..maneo“.
Tízkufréttir.
Það kom í ljós í nýafstöðn-
um tízkusýningum í París, að
franska skótízkan virðist ætla
að verða með talsvert öðru
sniði en verið hefur undanfar
in ár. Mikið bar á lághæluð-
um jafnvel flatbotnuðum
skóm, væru hælar, voru þeir
með mjög óvanalegu lagi, t.d.
kúlulaga eða með svokölluð-
um ,klump“ hæl. Mesta at-
hygli vöktu skór, sem reynd-
ar voru næstum ósýnilegir,
þ.e.a.s úr gegnsæju plasti,
skreyttir ýmsu glingri. Skó
þessa hefur Roger Viver,
frægur franskur tízkuteikn-
ari komið með á markaðinn.
Viver þessi telur plastið það
sem koma muni í skógerð og
fullyrðir að pastskór hans
muni hvorki springa-né valda
óþægilegum fóthita, þar eð
skórnir eru útbúnir litlum
loftgötum. Skór þessir eru
taldir mjög klæðilegir á fæti.
Hér sjáið þið þrjú sýnishorn
af hinum nýju skóm.
Gegnsæir plastskór
Kúluskór.
o
löpummj1.
DRUMMER
,VER‘
HENDUR
YÐAR
VIÐ
UPPÞVOTTINN
U) D
&
'O
Að DRUMMER „verji" hendur yðar
við uppþvottinn er ekki ofsagt
— hann er mjúkur eins og hand-
áburður.
Aðeins eitt spraut af DRUMMER
við hvern uppþvott — það nœgir
til að losa alla fitu og óhreinindi
fljótt og vel.
DRUMMER hefur alla þá kosti
sem verulega góður uppþvotta-
lögur á að hafa — og er auk
þess ódýr í notkun. ^
EFNAGERD R E Y K J A V j K U R H. F.