Morgunblaðið - 22.06.1966, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
5
Miðvikudagur 59. Júní 196® ''
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
ÞAÐ þykir vart í frásögu fær-
andi nú til dags, þótt skólaslit
fari fram á skipi, en þó mun
það vera heldur sjaldgæft. Hitt
er á hinn bóginn í frásögu fær-
andi að skólaslit skuli fara fram
á þilfari skips, sem liggur eina
12 metra fyrir neðan sjávarmál.
En þetta var nú samt raunin
Eunnudaginn 12. júní s.l. Þá sleit
Ouðmundur Guðjónsson kafari
manni nýr heimur, þegar maður
yfirborð
dýralíf og
Guðmundur (t.v.) ásamt nemendum sínum. Næstur honum er Guðjón Guðmundsson, Hafsteinn
Sveinsson, Leifur Guðmundsson, Þórhallur Geirsson, Fétur Erlendsson, Tómas Kristjánsson,
Jón Ágústsson, Eyþór Jónsson. Á myndina vantar þá Lárus Broun og Jónas Thorarensen.
Skólaslit 12 m. undir sjávarmáll
Froskköfun voxondi tómstundngnmnn hér
námskeiði því, sem hann hafði
haldið fyrir áhugamenn um frosk
mannaköfun, þar sem Laxfoss
gamli liggur á 12 metra dýpi,
inni í Sundum skammt utan við
Vatnagarða og fengu 10 menn
vegleg skírteini upp á það, að
þeir hefðu staðist prófin með
prýði.
Þessir tíu menn, sem voru
klæddir að sið nútíma frosk-
manna í svarta svampbúninga,
höfðu allir safnazt um borð í
v.b. Rán, sem velti sér á bárun-
um, þarna skammt frá staðn-
um, Reyndar er það aðeins aft-
ari hluti Laxfoss, sem þarna
liggur, því framhlutinn er enn-
þá kyrfilega strandaður upp á
Kjalarnesi.
En það voru fleiri en þessir
10 froskmenn staddir þarna um
borð á v.b. Rán. Fréttamenn
M'bl. voru auðvitað mættir þarna
til þess að fylgjast með þess-
um virðulegu og sjaldgæfu
ekólaslitum. En þar sem þeir
höfðu ekki neina froskmanns-
búninga reyndist það fremur
erfitt viðureignar, því að þarna
sást hvergi til botns, og ekki
......skollinn hafi það ....
ekki gátu þeir farið að synda
þarna niður til þess að sjá at-
höfnina með eigin augum. Nei,
þess vegna urðu þeir að láta sér
pægja að fá lýsingar froskmanna
á því sem gerðist.
Og það var eitthvað á þessa
leið: Guðmundur fór með einn
ög
19—37 ára, verfcamenn, iðnaðar-
menn og einn læknir.
— Þessari skemmtilegu íþrótt
hefur aukizt mikið fylgi núna á
sl. tveimur árum, hélt Guð-
mundur áfram, og þá sérstak-
lega á síðasta ári. Er það eflaust
fyrir tils-tilli kvikmynda og sjón-
varps, hve áhugi manna hefur
vaknað fyrir köfun núna. Ég
gæti trúað því að hér væru nú
um 60 áhuga froskmenn. Köfun-
in er líka skemmtilegt sport,
það má segja að það opnist fyrir
er kominn undir
vatnsins, fjölbreytt
gróður.
— Já, ég tel mjög varasamt
að farið sé út í þetta undirbún-
ingslaust. Þeir sem ætla að hafa
gaman að þessu og virkilegan
áhuga, verða að ná góðu valdi
á tækjunum og vita hvernig þau
hafa áhrif á starfsemi líkamans,
til þess að vera við öliu búnir.
Ég lagði mikla áherklu á það,
þegar ég byrjaði með námskeið-
ið, að þátttakendur hefðu faxið
í mjög stranga læknisskoðun.
Ég skipti námskeiðinu síðan í
tvo hluta, fyrsta lagi var það
bóklegt nám, þar sem þeir lærðu
líffræði kafara, skaðleg áhrif
loftsins á líkamann imdir þrýst-
ingi Þá lærðu þeir að þekkja
mismunandi gerðir af tækjum
og hvernig á að fara með þau. Þá
lærðu þeir líka að þekkja ýms-
ar utanaðkomandi hættur, sem
kunna að steðja að.
— Þá var það æfingin sjálf,
sem er mjög mikið atriði. Hún
byrjaði með þvi að við æfðum
fyrst nokkurn tíma í sundlaug,
áður en við byrjuðum að kafa í
sjó. Við reyndum að æfa við
eins mismunandi skilyrði og
mögulegt er, til þess að auka
þekkingu nemendanna og ýmiss
konar aðstæður kæmu þeim sem
minnst á óvart. Þar á meðal fór-
um við í næturköfun, syntum
í straumi og ósléttum sjó, og
köfuðum í bergvatni, sem er
mjög skemmtilegt. Þá fengum
við Jón Oddgeir Jónsson til þess:
að kenna okkur blástursaðferð-
ina og undirstöðuatriði „hjálp í
viðlögum“.
— Ég tel mjög æskilégt að
þegar piltgr fara út í það að
læra froskmannsköfun, að þeir
verði margir í hóp. Það gefur
aukna möguleika fyrir þá, þeir
Framhald á bLs. 19
Það er heillandi heimur, sem bíður manns þegar komið er
undir yfirborð sjávar. Hér kom Guðmundur upp með rauðmaga
og ígulker, sem höfðu komið sér fyrir í nánd við Laxfoss.
far Laxfoss, og hafði með sér
prófskírteinið vafið inn í plast-
poka. Þegar þeir höfðu komið
i
5i ..mundur leggur af stað með prófskírteini Matthísar Sveins-
»ar niður á þilfar Laxfoss. Matthías er að baki hai’"
Guðmundur nemenda sinum próf
skírteinið með hægri hendi, en
nemandinn tók á móti skírtein-
inu með hægri hendi og færði
það yfir í vinstri hendi, en síð-
an tókust þeir í hendur með
hægri hendi. Þetta er það sama
og venjulega er gert við áþekk
tækifæri á þurru landi. Ekki
varð mikið um ræðuhöld við af-
hendingu skírteinana, enda held-
ur óhægt um vik — kennar-
inn og nemandinn létu sér nægja
að kinka aðeins kolli til hvors
annars. Ekki flutti afmælisár-
gangar heldur ræður, né færðu
gjafir, enda skóli þessi eða nám-
skeið ungt að árum. Svona gekk
þetta fyrir sig tíu sinnum og
þá höfðu allir froskmennirnir
fengið skírteini sín, og námskeið
inu endanlega slitið.
— Þetta er fyrsta námskeiðið,
sem ég held fyrir áhugamenn,
sagði Guðmundur, þegar við
ræddum við hann að ahöfninni
yfirstaðinni. — Þeir byrjuðu 13,
en 10 sem luku prófinu, einn
af þessum þremur, sem ekki luku
prófi, féll stráx á læknisskoðun-
inni, sem er mjög ströng, og
annar þurfti að fara af landi
brott. Námskeiðið hófst 15. apríl
og stóð í rúman mánuð. Piltarn-
ir, sem tóku þátt í þessu, voru
á öllum aldri og úr öllum at-
vinnugreinum — á aldrinum <$>-
BEMI
Notið BEMIX til þess
að rykbinda, einnig í
slitlag á gólf, bryggj-
ur o. fl.
BEMIX ætti ávallt að
nota á steinsteypt þök
og þakrennur.
Er steinsteypan
sprungin, tröppuhorn
brotin eða pússningin
laus?
Forðið þá frekari
skemmdum og gerið
við með BEMIX.
Með þvi að nota
BEMIX fáið þér var-
anlega steypu, sem
veðrast ekki, springur
ekki, og hrindir frá
sér vatni.
BYOOINOAVOKUVERZLUNIN
NYBORG
hHHHl HVIRFDGOTU 70 SIMI12B17
Einkaumboð: STRANDBERG, heildverzlun
Hverfisgötu 76. — Sími 16462.