Morgunblaðið - 22.06.1966, Qupperneq 6
6
MORGU NBLAÐIÐ
i
Miðvikudagur 22. júní 1966
I Keflavík — Suðurnes
Get bætt við mig vimui við
raflagnir og viðgerðir á raf |
lögnum. Hörður Jóhanns-
son, ravm., Mávabraut 12B |
Keflavík, sími 1978.
Keflvíkingar athugið
Síminn er 2566 í fiskbúð- ]
inni Ásabraut 3.
Ungur maður
áskar eftir atvinnu nú þeg- I
ar. Margt kemur til greina.
Tilboð sendist afgr. Mbl.
fyrir 24. þ.m., merkt: „At-
vinna — 9962“.
Hnakkur til sölu
Upplýsingcu: í síma 32169, |
eftir kl. 6.
Til sölu
Þvottavél og þvottapottur. ]
Uppl. í sima 36820.
Trommuleikarar
Óskum eftir trommuleik-
ara. Upplýsingar í síma |
51147, eftir kL 6 á kvöldin.
Til sölu
er raðrúm, Sólheimum 20. |
Simi 35247
Stretch-buxur
í telpna- og dömustærðum.
Fyrata fiokks Helanka ]
streoh-efni, margir litir.
Mjög gott verð. Símd 14616 j
Takið eftir
Saumum skerma og svunt-
ur á barnavagna. Höfum |
áklæði. — Sendum í póst-
kröfu. — ölduigötu 11, |
Hafnarfirði. Sími 50481.
Sveit
Get bætt við nokikrum
börnum (tveim strax). Upp
lýsingar í síma 23551, kl. 7
—9 í kvöld.
Hafnarfjörður
Skoda ’57 til sölu á Álfa-
skeiði 34. Uppl. (. -ir kl. 7 |
á kvöldin.
Bólstrun
Tökum húsgögn til klæðn-
ingar. Mikið úrval af á-
klæði. Húsgagnaverzlunin
Búslúð, við Nóatún. —
Sími 18520.
Húsmæður athugið
Höfum til sölu vestfirzkan
úrvals harðfisk. Verðið
ótrúlega hagkvæmt. Upp-
lýsingar í síma 37240 og
52187.
Kona óskast
til hreingerninga á stiga-
húsi við Birkimel. Upplýs-
ingar i síma 11781.
Volkswagen 1962—’64
óskast. Aðeins góður bíll
kemur til greina. Upplýs-
ingar í síma 33009 eftir
kl. 3 í dag.
ei O
Teiknimynd af Ólafi úr Aktu-
elt
Á þessari mynd sjást allir leikaramir í leiknum, talið frá vinstri: Beate Christensen, Bir-
gitte Reinholdt, Birgit Zinn og Camilla Thygesen, og karlmennirnir: Niels Skovsen, Jens
Oliver Hendriksen, Olaf Nielsen og Hans Chr. Ægidius.
Teiknimynd »* Ólafi úr Extra
bladet.
UM þessar mundir er verið
að leika bráðskemmtilega
revyu um mannlífið í Dan-
mörku, eins og það gengur
og gerist í velferðarríki nú
til dags. Einn leikaranna er
af íslenzkum ættum.
Leikritið er leikið i Forhá-
bningsholms Allé af Tribune
Galleriet og kalast „En fane-
bærers historie".
Hans Chr. Ægidius er leik-
stjóri, aðalhöfundur, selur
jafnvel aðgöngumiðana, er
semsagt potturinn og pannan
í þessu mjög fyndna leikriti,
sem skrifað var um 8. júní
s.I. í nær öll dönsk blöð mjög
lofsamlega.
Leikurinn þykir semsagt
bráðfyndin, kryddaður með
danskri kímni, eins og hún
gerist bezt, og tilfæra mörg
blaðanna ýms tilsvör í leikn-
um, og skulu hér tilfærð nokk
ur, þótt vafalaust komist þau
ekki öll til skila, þegar þau
hafa verið þýdd.
„Að halda því fram, að eitt-
hvað sé í veginum með
danskt menningarlíf, er sama
sem að segja um dauðan
mann, að hann sé veikur“.
„f því landi, þar sem sólin
er lágt á himni mestan hluta
ársins, geta jafnvel litlir
menn gert langan skugga".
„Getiu- þú verið án Nýja
testamentisins? Já, það get
ég sjálfsagt, ég hef þó það
gamla“.
„í upphafi skapaði guð
himinn og jrð, síðan er aUt
farið til helvítis".
„Indælt að vera heima i
Danmörku á ný, þar sem
stærsta vandamál landsins er
gin — og klaufaveikin".
Og þessi klausa verður
ekki þýdd, og kemur því á
dönsku „Det er ligemeget,
hvad Danmark bestár“.
Flestir leikendur eru ungir,
en nærri allir oft áður komið
fram á sviði og í sjónvarpi.
Meðal þeirra er einn, sem á
íslenzka móður. Hann heitir
Olaf Nielsen, og honum er t.d.
í Beringske Tidende hælt
mjög, og sagt, að hann hafi
máski mestu gamanleikara-
hæfileika í hópnum, þegar
sjállfum Ægidius er sleppt.
Olaf Nielsen er rúmlega 30
ára, tannlæknir að menntun,
en hefur gefið sig að leiklist
og málaralist með skólanum.
Ólafur hefur oft komið til
íslands. Hann er sonur Kríst-
inar (Ninnu) Sigurbjörns-
dóttur Þorkelssonar og Hol-
gers Nielsen tannlæknis.
Með linum þessum birast
nokkrar myndir úr leiknum.
MENN 06
= MALEFN!=
>f Gengið >f
Keykjavík 16. Júnl 1966.
Kaup Sala
1 Sterllngspund 119,87 129,17
1 Bandar. dollar 42,95 43,06
1 KanadadoUar 39,92 40,03
100 Danskar krónur 621,50 623,10
100 Norskar krónur 600,00 601,54
100 Sænskar krónur 832,65 834,80
100 Fínsk mörk 1.335,30 1.338,72
100 Fr. frankar 876,18 878,42
100 Belg. írankar 86,26 86,48
100 Svissn. frankar 994,50 997,05
OG er hann var orðin fullkominn,
gjörðist hann öllum þeim, er hon-
um hlýða, höfundur eUifs hjálpræð-
is (Hebr. 5#>.
I dag er miðvikudagur 22. júnl og
er það 173. dagur árins 1966. Eftir
lifa 193 dagar. Tungl næst Jörðn.
Árdegisháflæði kl. 8:52. Síðdegishá-
flæði kl. 21:16.
Upplýsingar um læknaþjón-
ustu í borginnj gefnar í sím-
svara Læknafélags Reykjavíkur,
Síminn er 18888.
Slysavarðstofan í Heilsuvernd-
arstöðinni. Opin allan sólarhring
inn — aðeins móttaka slasaðra —
sími: 2-12-30.
Næturvörður er í Vesturbæjar
apóteki vikuna 18. júní — 25.
júní.
Næturlæknir i Hafnarfirði að-
faranótt 23. júní er Kristján Jó-
hannesson simi 50056.
Næturlæknir í Keflavík 16/6.
— 17/6. Arinbjörn Ólafsson sími
1840, 18/6. — 19/6. Guðjón
100 Gyllinl
100 Tékkn. kr.
100 V.-þýzk mörk
100 Lírur
100 Austurr. sch.
100 Pesetar
1.187,06 1.190,12
596,40 598,00
1.071,14 1.073,90
6,88 6,90
166,18 166,60
71.60 71,80
VISUKORIM
Sumir faðma flöskuna,
finnst það bæta haginn.
Oft fer það í öskuna,
eins og fyrri daginn.
Ingþór Sigurbjörnsson.
Klemenzson sími 1567, 20/6. Jón
K. Jóhannsson sími 1800, 21/6.
Kjartan Ólafsson sími 1700 22/6.
Arnbjörn Ólafsson simi 1840.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga frá kl. 9:15—20. laug-
ardaga frá kl. 9:lo—16, helgidaga
frá kl. 13—16.
Holtsapótek, Garðsapótek, Soga
veg 108, Laugarnesapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka dagakl. 9—7, nema laugar-
daga frá kl. 9—4 og helgidaga frá
kl. 1—4.
Framvegis verður tekið á móti þelm,
•r gefa vilja blóð 1 Blóðhankann, sem
hér segir: Mánudaga, þriðjudaga,
flmmtudaga og föstudaga frá kl 9—11
f.h. og 2—4 e.h. MIÐVIKUDAGA frá
kl. 2—8 e.h. Uaugardaga frá kl. 9—11
f.h. Sérstök athygli skal vakiii á mlð
vikudögum, vegna kvöldtímans.
Bilanasimi Rafmagnsveitu Reykja-
víkur á skrifstofutíma 18222. Nætur-
og hetgidagavarzla 18230.
Upplýsingaþjónusta AA samtakanna
Hverfisgötu 116, siml 16373. Opin alla
virka daga frá kl. 6—7.
Stork-
urinn
sagði
og ekki var maður fyrr búinn
að dásama sólina, hitann og
einstöku veðurblíðuna um helg-
ina, þegar hann var aftur skoll-
inn á með norðaustan garra, svo
að bólstrarnir hrönnuðust upp
á Esju og Skarðsheiði. Það var
kalt, en allt er betra en þessi
endalausa væta, sem jafnvel
veldur því, að fólk getur ekki
einu sinni komið kartöflum sín-
um í jörðina.
Sem ég var að flögra að
gamni mínu upp í Mosfellssveit,
þar hjá Blikastöðum, sem er eitt
dáindisfínt stórbýli, og hefur
jafnvel fengið heimsókn af for-
setafrú Bandaríkjanna, flaug ég
fram á reiðan ökumann.
Storkurinn: Er hlaupinn í þig
norðaustan garri lika, maður
minn?
Maðurinn hjá Blikastöðumt
O, ekki svo meint, en stappar
þó nærri. Mig langar til að ræða
við þig um sauðféð, sem gengur
eftirlitslaust fram með öllum
þjóðvegum, bæði fullorðið og
bráðungt. Ég vii kalla þetta
„kantakindur“.
Kindur þessar eru stórhættu*
legar allri umferð, og varla skil
ég í því, að ullin verði prúð á
haustin með öllu þessu ryki L
Veit ég, að úti i löndum, þar
sem búast má við umferð dýra
við vegi, þá er það vendilega
auglýst til varnaðar bílstjórum.
En hér er ekkert gert, enda eru
ekki svo fá slysin sem af þessu
bljótast. Hvemig er það, er
ekki hægt að reka þetta fé upp
á afrétti? Eða er því máski
beitt á kantana af ásettu ráði?
Ég er engu fróðari um þetta
en þú, manni min-n, en ég er
þér alveg sammála. Burt með
kindur áf þjóðvegum! skulum
við láta vera kjörorð okkar, og
með það flaug storkur á burt
og settist upp á turninn á Lága-
fellskirkju og horfði út yfir
sundin blá og lét sig dreyma
um betri tíð og blóm í haga,
sæta, langa sumardaga.