Morgunblaðið - 22.06.1966, Síða 12
MORGUUBLAÐID
Miðvikudagur 22. jöni 1966
12
í Louvre-safninu hefur nú verið tekin upp sú nýbreytni að láta gestum í té einskonar „Ieiðsögu-
síma“, eða heyrnartæki, sem veita allar umbeðnar upplýsingar um listaverk þau sem skoðuð eru.
Þarna sést hvar tvær stúlkur eru að skoða hið fræga málverk Davids af krýningu Napóleons og
hlusta á fræðara sinn í símtækinu á meðan.
mm
Chou-En-lai, forsætisráðherra Kína, er nú í opinberri heim-
sókn í Rúmeníu og flokkur manna með honum. Þarna er hann
(fyrir miðju) að láta leggja blómsveig mikinn að minnismerki
um Rúmena þá er létu Iífið í heimsstyrjöldinui síðari.
Einmana fjárhirðir gengur þarna eftir þjóðveginum frá Zakopane í Póllandi með hjörð sína utan
vegar. Myndin er vetrarleg þótt tekin sé síðasta dag maímánaðar, en þá snjóaði svo í Tatrafjöll-
um að þjóðvegur þessi, sem er fjölfarinn alla jafna, lokaðist með öllu, enda viða allt að meters-
háir snjóskaflar.
Óeirðir urðu í Amsterdam að kvöldi 13. júní er verkamenn úr
byggingariðnaðinum fóru þar mótmælagöngu og beið einn
verkamannanna bana í átökunym. Urðu af meiri óeirðir dag-
inn eftir og m.a. kveiktu verkamenn í nokkrum bifreiðum fyrir
framan skrifstofur dagblaðsins Telegraaf í miðborginni til að
mótmæla dauða félaga síns og aðförum lögreglunnar, sem sagð-
ar voru þjösnalegri en ástæða hefði verið til og hafa sætt mjög
harðri gagnrýni i blöðum.
FRETTA-
MYINIDIR
Frá járnbrautarslysinu í Noregi á sunnudag. Þar rákust á
skammt fyrir utan Ósló tvær farþegalestir fullhlaðnar. Far-
þegum vildi það til happs, að flutningavagn var á milli eim-
rciðar annarrar lestarinnar og farþega vagnanna og dró mjög
úr högginu við áreksturinn. Á myndinni sést hvar flutninga-
vagninn trónar ofan á eimreiðum lestanna beggja, mölbrotn-
um. í slysi þessu beið bana annar lestarstjórinn og hinn særð-
ist illa, en alls varð að flytja í sjúkrahús 32 menn, þar af tíu
til lengri dvalar.
Tvö oliuskip rákust á i höfninni í New York 16. júní sl., brezka skipið „Alva Cape“ og „Texaco
Massachusetts“ frá Bandarikjunum. Kom eldur upp í þeim og varð af mikið reykhaf, eins og
myndin ber með sér, en ekki hlutust þó af nein stórsiys á mönnum.