Morgunblaðið - 22.06.1966, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.06.1966, Blaðsíða 24
24 MORGU NBLAÐIO MiSvikudagur 22. júní 1966 — Þetta er í fyrsta skipti sem ég er hér. Hvenær verður vatnið og brauðið borið fram? Mary Raymond: STÚLKA MED GBÍMU tíðina. Ég hafði þráð það að fá fá minnið aftur, að verða eins og ég átti að mér og með fullu viti, og losna við þessa villukennd. En nú óttaðist ég það, sem ég kynni að komast að. En ég varð að fá meira að vita um Tom og sjálfa mig. Ég gekk að vínborðinu og fékk mér ávaxtadrykk. Ég fyllti svo glasið með ís í settist síðan andspænis Yves. — Mér finnst tími til kominn að við tölum almennilega sam- an, sagði ég eins rólega og ég gat. Hann sneri glasinu i höndun- um og horfði lengi á mig, þegj- andi. Bláu augun skinu í sléttu, brúnu andlitinu. Hann var eins og höggormur, hugsaði ég, fa'il- egur og viðbjóðslegur. hvort- tveggja í senn. — Hvað get ég sagt þér? sagði hann loksins. — Ég hef sagt xög- reglunni allt, sem ég veit. — Þú hefur ekki sagt mér alit, sem þú veizt um Tom .... um mig .... um okkur. — Ég hef sagt þér allt, sem þú hefur gott af að heyra. — Núna verðurðu að segja mér eitthvað meira. — Verð ég það? Ég verð ekki að segja þér neitt — en kannski gæti ég skemmt mér við að segja þér allt. Það getur haft af fyrir okkur í kvöld — sem ann- ars getur orðið iangt og leiðin- legt. Hann tæmdi glasið en hellti svo í það aftur. — Jæja, á hverju á ég þá að byrja? Sjálfsagt á byrjuninni. Þegar Tom keypti Afrodite og réð mig til að vera skipstjóri. Það var fyrir allmörgum árum .... fjórum ...... fimm .... Jæja, það skiptir nú ekki svo miklu máli. — Tom átti þessa fallegu konu — hana Júlíu sína — og við urð- um skotin hvort í öðru. Lengi reyndist þetta fyrirkomulag hjá okkur ágætlega. Tom var frekar vitgrannur, skilurðu, og þó fyrst og fremst latur. Smámsaman tók ég að stjórna fleiru en skútunni og konunni. Flest viðskipti hans fóru um mínar hendur. Hann átti talsvert mikið til, og þurfti bersýnilega ekki allra þessara peninga við, en ég var hinsvegar alveg eignalaus, en kunni bara miklu betur en hann að eyða peningum. — En við vorum öll hamingju- söm. Við Júlía undum okkur vel saman, en Tom drap tímann við n---------------------------□ 35 □--------------------------□ að fiska, drekka og fara til Tangier, og þykjast vera ein- hver meiriháttar ríkisbubbi. Á fyrri árum samvinnu okkar, höfðum við fengizt dálítið við smygl. Ég held, að Tom hafi litið á sjálfan sig sem einhvern meiriháttar sjóræningja. En svo — fyrir eitthvað einu ári — sneri hamingjan við blaðinu — ég á þar auðvitað við hamingju okkar Júlíu. — Tom komast að sambandi okkar — hugsaðu þér bara. Eftir öll þessi ár var það áfall fyrir okkur öll þrjú. En þá hugsaði hann sér, að nú skyldi hann ná sér niðri. Hann varð skotinn í stelpu í Kntibes. Það er þessi Avril, sem þú hittir í Bar Racasse. — Það var ekki nema allt I lagi, að hann yrði skotinn. Það gerði hann svo miklu skemmti- legri og viðkunnanlegri í sam- búð .... en svo fór hann að tala um hjónaskilnað. Og það kærð- um við Júlía okkur ekki um. Við vildum lifa lífinu eins og við höfðum gert. Auk þess hefði ég orðið að gera grein fyrir sínu af hverju, þegar við Tom fær- um að gera upp. Þá ákváðum við, köld og róleg, að við yrðum að ryðja honum úr vegi. Við ákváðum að myrða hann og kasta líkinu í sjóinn frá borði á Afrodite. Hún Júlía mín var jafn hugrökk og úrræðagóð eins og hún var falleg. Ég hnipraði mig saman í stólnum, eins og eitthvert dáleitt dýr í greni sínu. — Hversvegna talarðu alltaf um mig í þriðju persónu? hvíslaði ég. — Ég er héma og alls ekki dauð, eins og Tom. — Ég er ekki að tala um þig, svaraði hann hörkulega, — held- ur um Júlíu Gerard. Snöggvast starði hann á mig og ég starði á móti. Ég vissi með óhrekjanlegri vissu, að ég var að horfa á brjálaðan mann. Hann laut fram og stakk laglega svínsandlitinu rétt að segja framan í mig. — Þú ert ekki Júlía Gerard! hvæsti hann framan í mig. Sem snöggvast var mér varn- að máls, en loksins kom ég þó upp nokkrum orðum. — Ef ég er ekki Júlía Gerard, hver er ég þá? Yves yppti öxlum óþolinmóð- ur. — Það hvorki veit ég né kæri mig um að vita, sagði hann. — Einhver stelpa, sem Júlía tók upp af götu sinni í Englandi, þegar hún fór héðan. Það var fyrst nú, sem mér datt í hug, að hann væri að segja mér sannleikann, og að ég væri raunverulega alls ekki Júlía Gerard. En rétt eins og stóð, var ég ekki fær um að tileinka mér þann sannleika eða skilja þessa einstæðu frásögn hans. — En hversvegna? Hvað er ég hér að gera? Hversvegna tókstu við mér sem Júlíu Gerard? Og hversvegna gerðu Janine og skipsmennirnir slíkt hið sama? — Janine er kunnugt um leyndarmálið, sagði Yves með fyrirlitningu. — Og skipshöfnin er ný — og hefur aldrei Júlíu augum litið. Eftir að Tom var myrtur, varð Júlía ofsahrædd. Hún strauk burt. Það var að nokkru leyti mér að kenna — sannast að segja allt mér að kenna. Ég hefði ekki átt að yfir- gefa hana, en við komum okkur saman um, að bezt væri, að ég færi til móður minnar í Prov- ence. Þannig yrði ég ekkert við málið riðinn, og Júlía þóttist viss um að geta framkvæmt verkið hjálparlaust. — Janine er móðir þín! sagði ég allt í einu. — Ég heyrði, að þú kallaðir hana mömmu. — Mikið ertu eftirtektarsöm, sagði Yves og hæðnin leyndi sér ekki. — Já, víst er hún mamma mín. — Hversvegna strauk Júlía að heiman, spurði ég. — Og hvar er hún nú? — Hún skaut Toin um borð í Afrodite, með hans eigin byssu, sagði Yves. — Við höfðum kom- ið okkur saman um, að hún skyldi fela líkið í einum björg- unarbátnum. Eftir að ég var far- inn út í Provence, stefndi hún Afrodite til hafs og fleygði lík- inu fyrir borð. Þá höfðum við þrjá menn á skipinu og einn þeirra var ungur maður að nafni Duibóis. Vitanlega gat hún ekki farið sjálf með skipið, svo að þeir hjálpuðu henni til þess. Dubois sá þegar hún kastaði lík- inu fyrir borð. Hann þagði yfir því í bili, en kom svo til hennar, þegar skipið var komið í höfn og hótaði henni að fara með það í lögregluna, nema hún gæfi hon um peninga. — Júlía varð hrædd og gerði það. Það var of hættulegt að setja sig í samiband við mig. Auk þess var hún mér dálítið reið. Ég held, að henni hafi þá fundizt, að ég hefði átt að standa i við hlið hennar enda þótt við hefðum þá þegar komið okkur saman um brottför mína. Við vildum ekki þá láta neinn grun falla á þetta samsæri okkar. En bún hagaði sér að minnsta kosti ekki skynsamlega. Hún sagði upp skipshöfninni og ákvað að fara til Englands og heimsækja bróðiu: Toms. Hún hafði aldrei vitað, hve miklar eignir hans væru í Englandi og ákvað nú að komast að því. — Ég kom aftur frá Provence og fann, að hún var farin. Ég hélt, að hún gæti hafa orðið fyr- ir einhverju slysi og tilkynnti hvarf hennar til lögreglunnar. Kannski hefur það verið heimskulegt af mér. Svo kom Dúbois til mín aftur og vildi fá meiri peninga, og mér varð ljóst, hvað gerzt hafði, enda þótt ég vissi enn ekki hvert hún hefði farið. — Ég komst að því, að Dub- ois hafði engum sagt frá því, sem hann hafði orðið sjónar- vottur að. Enginn kunningi Toms hafði neitt minnzt á fjarveru hans, enda fór hann svo oft til Tangier. En til allrar ógæfu drakk veslings Dufoois sig full- an eitt kvöldið, missti fótanna, datt í höfnina og drukknaði. Það var leiðinlegt. Ég greip höndunum um eyrun. — Segðu mér ekki meira, sagði ég. — Mig langar ekkert til að heyra það. Mér var innanbrjósts eins og ég ætlaði að kasta upp. — Það einasta, sem mig langar til, er að komast burt frá þessu skipi og til Englands. Yves hló snöggt. — Þú kemst nú ekki burt af þessu skipi, sagði hann áherzlulaust, — og heldur ekki til Englands. — Þú getur ekki haldið mér hér nauðugri. — Þú heldur væntanlega ekki, að ég ætli að fara að sleppa þér héðan af? sagði Yves. — Lög reglan hefur þig sýnilega grun- aða um að hafa myrt Tom. Hún tekur þig fasta og það fást nógu margir til að vitna, að þú sért alls ekki Júlía Gerard, og þeysa öllu í háaloft! — Ég skal játa, að þennan morgun þegar líkið af Tom fannst, varð ég hræddur. Þá vissi ég, að það mátti ekki drag- ast að losna við þig. Ég ætlaði ekki að fara að tilkynna hvarf Toms fyrr en í mánaðarlokin, um það leyti, sem hann hefði átt að koma heim. Ég ætla nú ekki að láta neinn fara að stöðva mig, við endann á öllu þessu torleiði. Þú hefur þegar gert eina tilraun til sjálfs- morðs, eins og Carpenter læknir mun geta vottað — í kvöld ger- irðu sjálfsagt aðra tilraun og þá með betra árangri. hroftt iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniimiiimi móðurinni er kært að barnið sé vært. og því gefur hún því aðeins það bezta! Og það er COW & GATE CEREAL FOOD- tilbúlnn, visindalega samsettur kornmatur fyrir ungbörn, sem er framleiddur úr 3 korntegundum og þurrkaðri undanrennu að viðbœttum fjörefnum og steinefnum. COW & GATE barnamatur er sérstaklega nœringarikur og auðmeltur. Sérstök óherzla er lögð ó bragðgœði og finnur móðirin það bezt á því, hve barninu er Ijúft að borða COW & GATE barnamat. miiiiiiiiimiiimmmmim COW & GATE barnamat hafra, moís, hveiti, Þurrger o þurrkaðo undonrennu Fita 4,1 jr inniheldur: ( 100 grömmum 3 Vítamín Bt 0,7mq Vítamín B2 .....0,7mg 3 Níacin 10,5mq Eggjahvítuefnl 22,2 Kolvetni .04,2 Steinefni 4,5 Votn 5.0 Kglorfur í 10C 3 Vítamfn D 350 a.e. 3 Kalk Ó90mg 3 Fosfor 658mq 3 Jórn Mmq grömmum: 385 iiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimm Mœður! lótið barnið dœma — og þad mun diskinn tœma miiiiiiiiiiuiiiiiimiiiiiiimii EfNAGERÐ REYKJAYiKUR H. F. Corolyn Somody, 20 áro, ftá Bandaríkjunum segír: • Þegar fiifpensar þ]óðu mig. reyndi ég margvísleg efni. Einungis Clearosll hjólpoðl rounverul.ga *_ Nr. 1 i USA því þoð er rounhœf hjólp — Cleorasil „sveltir” fílípensana Þetta vísindalega samsetta efni getur hjólpað yður ó sama hótt og það hefur hjólpað miljónum unglinga t Banda- rikjunum og víðar - Þvi það er raunverulega óhrifamiklð... Hörundslitað: Clearasil hylur bólurnar ó meðan það vinnur á þeim. Þar sem Clearasil er hörundslitað leynast fílípensarnlr — samtímis þvf, sem Clearasil þurrkar þó upp með þvi að fjarlœgja húðfltuna, sem nœrir þó -sem sagt .sveltir' þó. 1. For innl húðina 2. Deyðir gerlano .3. „Sveltir" filípensana v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.w

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.