Morgunblaðið - 22.06.1966, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.06.1966, Blaðsíða 26
26 MORGU N B LAÐIÐ Mlðvikudagur 22. júní 1968 ......••••••■ ■- Frá 17. júni-mótinu. Á verðlaunapallinum eru þrír fyrstu menn í langstökkinu. Taliff frá vinstri: Ólafur Unnsteinsson sem náði þriðja saeti; Ragnar Guðmundsson. sem hlaut fyrsta sæti ,og náði ágætum árangri ,og Ólafur Guðmundsson, nýbakaður stúdent, sem varð annar. Sigurjón Hallbjörnsson vann marmarastyttuna SUNNUDAGINN 12. júní sl. var háð á velli félagsins við Grafar- holt, keppni um vegiega marm- arastyttu, Jason C. Clark. Þessi fallegi gripur var gefinn til minningar um ungan varnarliðs- mann, sem var virkur meðlimur í klúbbnum um skeið. Og er stytta þessi verðugur minnis- varði um góðan dreng. Keppni þessi er 36 holu höggleikur með forgjöf, og fer öll fram á einum degi. Að þessu sinni mættu að- eins 21 til leiks, enda var veður mjög óhagstaett til leiks. Má þvi telja þetta ágæta þátttöku miðað viff allar aðstæður. Keppni var eigi að fullu lokið fyrr en kl. 8 |id. Sigurvegari varð Sigurjón Ballbjörnsson og hlaut því hina veglegu marmarastyttu til varð- veizlu í eitt ár, auk eignabikars. Enattspyrnnmót HalnarijcrSar VORMÓT Knattspyrnumóts Hafnarfjarðar hófst á knatt- spyrnuvellinum í Hafnarfirði sl. miðvikudag og var keppt í 5. og 3. flokki. — Keppendur í mót- inu eru Hafnarfjarðarfélögin FH og Haukar — og keppt í 5 aldursflokkum. Á miðvikudag- inn sigraði FH í 3. flokki 3:2, en jafntefli varð í 5. flokki, 0:0. Mótið heldur áfram í kvöld (föstudag) og keppa þá 4. flokk- ur kl. 8 e.h. og 2. flokkur kl. 9 e.h. — Meistaraflokkar félag- anna keppa svo miðvikudaginn 1. júní og hefst sá leikur kl. 8:30 e.h. — En kl. 7 e.h. sama dag keppa 5. flokkar félaganna um það hvort félagið hreppir vor- mótsbikarinn í ár, þar sem jafn tefli varð hjá flokkunum í leik þeirra á miðvikudaginn og stig- in og markatalan úr þeim leik aðeins tekin til greina í heildar úrslitum mótsins, sem er stigá- keppni fyrir vor og haustmót. Eftir fyrstu tvo leikina hefir FH hlotið 3 stig og Haukar 1 st. (F. í. R. R.) Hér eftir koma nöfn þeirra, sem beztum árangri náðu: Með forgjöf: 1. Sigurjón Hailbjörnsson 183-58 = 125 högg. 2. Hilmar Pietsch 200-72 = 128 högg. 3. Haukur Guðmundsson 185-52 = 133 högg. 4. Pétur Björnsson 166-24 = 142 högg. 5. Viðar Þorsteinsson 181-38 = 143 högg. Án for íjafar: 1. Pétur Björnsson, 166 högg 2. Jóhann Eyjólfsson 168 — 3. Einar Guðnason 171 — 4. Ólafur Ág. Óiafsson 176 — 5. Viðar Þorsteinsson 181 — Tviliðaleikur GR (opin keppni) Þriðjudaginn 7. júní fór fram keppni, sem er háð í því formi að kylfingum er heimilt að velja sig saman tveir og tveir án til- lits til forgjafar. Gefin eru stig fyrir betri árangur annars tvílið- ans á hverri holu fyrir sig, síðan eru stigin yfir heildina (12 hol- ur) iögð saman. Eftirfarandi tafla sýnir hvernig stigin eru veitt: Bogey 1 st. Par 2 -— Birdie 3 — Eagle 4 — Hola í höggi 5 — Slæmt veður var og þátttak- endur aðeins 14. Sigurvegarar urðu tveir bókbandsmeistarar, Gunnar Þorleifsson og Arnkell G. Guðmundsson, með 18 stig, 2,-—3. Ólafur Hafberg og Haf- steinn Þorgeirsson, 16 stig, Pétur Björnsson og Ólafur Bjarki Ragn arsson, 16 stig. SkeansnliSecgt vsðavangs- hlaup li.MÆ. SeSfoss VÍÐAVANGSHLAUP UMF Sel- foss 1966 fór fram miðvikudag- inn 1. júni, en þann varð Umf. Selfoss 30 ára. Hlaupið hófst kl. 8 sd. og var hlaupið í þremur flokkum, eins og venja er. Lagt var af stað frá íþróttavellinum á Selfossi, og þar lauk einnig hlaupinu. Úrslit ur'ðu þessi: í efsta flokki voru 5 keppend- ur og hlupu þeir um 2000 m. Min. Marteinn Sigurgeirsson 5.26.5 Gylfi Gíslason 5.35,1 Tryggvi Gunnarsson 5.44,0 í miðflokki (13—14) ára —* hlaupaleið um 1500 m. Jón Stefánsson 4.45,4 Sigmundur Stefánsson 4.54.9 Þorvarður Hjaltason 5.06,5 Keppendur voru sex að tölu. í yngsta flokki voru 14 kepp- endur og var hlaupaleið um 1009 metrar. Magnús Jakobsson 3.15,0 Einar Gunnarsson 3.23 5 Sigurður Sigfússon 3.25,0 Hlaupið var í heild mjög skemmtilegt og skemmtu áhorf- endur sér hið bezta. 50 keppendur 1 Víða- vangshlaupi IBK VIÐAVANGSIILAUP Kefla- víkur, hið fyrsta í röðinni, fór fram á vegum íþróttabandalags Keflavíkur um s.l. helgi. Keppt var í fjórum flokkum og voru keppendur alls 50 talsins. í 1. aldursflokki, 17 ára og eldri urðu úrslit þessi: Einar Sigurðsson 4:30.9 Sölvi Stefánsson 4:31.4 Reynir Óskarsson 4:50.0 Keppendur voru 6 að tölu. í 2. aldurslokki, 15 og 16 ára, voru keppendur 9 og úrslit urðu þessi: Ólafur Kjartanssor. 4:08.3 Vilhj. Ketilsson 4:13.0 Helgi Jóhannsson 4:13.5 í 3. aldursflokki, 13 og 14 ára voru keppendur 14 og úrslit þessi: Steinar Jóhannsson 3:32.0 Þorvaldur Sigurbjörnss. 3:38.0 Axel Birgisson 3:38.5 í 4. aldursflokki, 12 ára og yngri, voru keppendur 21 og úr- siit þessi: Gísli Torfason 3:15.0 Svanur Þorkelsson 3:20.2 Haukur Hafsteinsson 3:22.8 Mikill áhugi var fyrir hlaup- inu og víst að framhald verður á slíkri keppni næ-sta ár. Meisiaramóf Reykjavíkur 29. og 30. júna MEISTARAMÓT Reykjavíkur í frjálsum íþróttum (aðalhluti) fer fram í Laugardal miðviku- dag og fimmtudag 29. og 30. júní nk. Keppt verður í- þessum greinum. Karlar (fyrri dagur): 200 m, 800 m, 5000 m hlaup, 400 m grindahlaup, hástökk, lang- stökk, kúluvarp, spjótkast, og 4x100 m boðhlaup. Konur: 100 m hlaup, hástöak, kúluvarp og Skotíþróttin ú voxandi Iflgi í Hafnarfirði ÞANN 9. júní s.l. var efnt til keppni innan Skotfélags Hafnar fjarðar, og var keppt í ferþraut. Verðlaunagripurinn. sem var skjöldur með tveim rifflum í kross, gaf Leo Smith, formaður Skotfélags Reykjavíkur, félag- inu. Leo Smith er gamall Hafn- firðingur. sem Hafnfirðingum er að góðu kunnur. Gefandi segir í gjafabréfi því er fyigdi verðlaunaskildinum: „að keppa skal árlega um grip þennan, og til eignar vinnist hann þrisvar í röð eða fimm sinn um alls“. Keppni um þennan verðlauna- grip fór fram í fyrsta sinn fimmtudaginn 9. þ.m. Sigurveg- ari varð Sigfús Jónsson, bifvéla virki, og hlaut hann 350 stig. Annar Guðm. Guðmundsson, kaupmaður, hlaut 348 stig; 3. Karl Gíslason, prentari, hlaut 331 stig, og 4. frú Elísabet Val- geirsdóttir, hiaut 326 stig. — Keppnisstjóri var Aðalsteinn Sig- urðsson. Dómarar í keppninni voru þeir Axel Sölvason og Jó- hannes Christensen. Skotfélagið í Hafnarfirði var stofnað 11. október 1965. Strax að lokinni stofnun var hafizt handa um útvegun húsnæðis fyr- ir innanhússæfingar. Fókkst ekk- ert húsnæði fyrr en í janúarbyrj un 1966. Þann 16. janúar 1966 hófust skotæfingar í húsnæði því sem félagið hefur haft til afnota síðan. Mestu byrjunarerfiðleikar var útvegun á heppilegum skot- vopnum („markrifflum") framan af æfingatíma, en með hjálp góðra manna tókst að fá þá. En þetta tafði þjáifun félagsmanna afar mikið. Félagið telur nú 45 meðlimi og er þar af ein kona, sem félagið er mjög stolt af. — Æfingar hafa verið alls 32 og hefur verið mjög vel ~»tt á þeim. Aðgongumiðar að lieimsmeist- araleikjum VEGNA þátttöku íslands i Norðurlandameistaramóti ungl- inga í knattspyrnu hefur KSÍ ákveðið aff efna til happdrættist, og gefur út 700 miða, en verð þeirra er 100 kr. Verður dregið í happadrættinu 4. júlí, en vinn- ingurinn er farseðill til London og aðgöngumiðar á níu leiki i heimsmeistarakeppninni í knatt- spyrnu. kringlukast. Karlar (síðari dagur): 100 m, 400 m, 1500 m hlaup, 110 m grindahlaup, stangarstökk, þri- stökk, kringlukast, sleggjukast, 4x400 m boðhlaup. Konur: 200 m hlaup, iangstökk, spjótkast og 4x100 m boðhlaup. Mótið er stigakeppni milli Reykjavíkurfélaganna og fá 6 fyrstu menn í hverrí grein stig, þannig 1. maður fær 7 stig, ann- ar maður 5 stig, þriðji 4 stig a. s. frv. Hverjum keppanda er aeins heimil þátttaka í þremur keppnisgreinum hvorn dag auk boðhlaups. Utanbæjarmö.nnum er boðin þátttaka í mótinu í þeim greinum, ;em hægt er að koma við gestaþátttöku án trufl unar fyrir stigakeppnina. Þátt- tökutilkynningar sendist Einari Frímannssyni, c/o Samvinnu- tryggingar, Reykjavík fyrir 25. júní 1966. F.Í.R.R. Jésn varð 4. J Ó N Ólafsson varð f jórði á frjálsíþróttamóti, sem haidið var í Varsjá sl. sunnudag, og stökk 2 m. Mót þetta er hald- ið til minningar um einn fræg asta íþróttamann Pólverja frá siðustu heimsstyrjöld, Janusz Kusocinski. — Fyrstur varð Saint Rose, franski methaf- inn, með 2.10, annar Pólverj- inn Gzernik með 2.06 og þriðji Ungverjinn Noszaly með 2.06. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.