Morgunblaðið - 22.06.1966, Síða 27
MiSvíkuðagur 22. júní 1966
MORGUNBLAÐÍÐ
27
— Ávisanafals
1 Framhald af bls. 28.
greiddar, án þess að rannsóknar-
lögreglan þurfi um að fjalla.
Hins vegar eru flestar þær inni-
stæðulausu ávísanir, sem til
kasta lögreglunnar koma, frá
Seðlabankanum komnar.
Ávísanafalsanir eru nú óvenju
miklar og mun, það sem af er
þessu ári, álíka og verið hefur
undanfarin tvö ár. Þegar hefir
tekizt að upplýsa sem svarar
3/4 hlutum þeirra fölsku ávís-
ana sem lögreglan hefir fengið
í hendur.
í>eir, sem ávísanir falsa, ná I
þær með ýmsu móti. Margar
hafa fengizt við innbrot og hef-
ir þjófurinn stolið ávísanaheft-
um. í>á er einnig til, að hefti
liafa komizt í hendur óhlut-
vandra manna, við það að ekki
hefir verið um heftin hirt, þar
sem hlutaðeigandi hefir hætt við
ávísanareikning, en þá ekki ver-
ið búinn að fullnota hefti sitt.
Þá kemur fyrir að menn glata
ávísanaheftum og hirða ekki um.
Hinsvegar vill lögreglan ein-
dregið hvetja menn til að ann-
ast vel um ávísanahefti sín þar
sem svo mikil brögð eru orðin
að því að þau eru notuð til föls-
unar.
í>á vill lögreglan hvetja menn
til að athuga vel þær ávísanir,
sem þeir taka við sem greiðsu.
í mjög mörgum tilvikum eru
hinar fölsuðu ávísanir illa gerð-
ar, vitlaust skrifaðar og ósam-
ræmi i þeim. Þá ætti það að
vera föst regla allra þeirra, sem
við ávísunum taka, að krefjast
framsals seljanda ávísunarinnar
á staðnum og jafnframt að hann
sýni nafnskýrteini sitt, ef kaup-
andi þekkir manninn ekki.
í þessu sambandi er vert að
geta þess að mjög óheppilegt
er að nafnskýrteini manna
skuli ekki vera með mynd alla
jafna, því nokkur brögð eru að
því að menn hafi notað skýr-
teini annarra til að villa á
sjálfum sér heimildir. Hitt skal
bent á, að allir geta látið setja
mynd af sér á nafnskýrteini
sitt, tii þess að ekki fari milli
mála, hver skýrteinið á. Mun
það vera rétt, ef menn vilja
fryggja sér framgang mála þar
sem skýrteina er krafist, að
þeir hafi mynd af sér á skýr-
teininu.
Ávísanafals þetta er nú með
umfangsmeiri málum sem lög-
reglan hefir til rannsóknar.
— Eldur i skipi
Framhald af bls. 28.
borg með allskonar vörur frá
Japan s.s. hjólbarða, síldarnæt-
ur, leikföng o.fl. Mun hafa orðið
mikið tjón á varningi skipsins,
að því er Sigurður Njálsson,
frámikvæmdastjóri Hafskip h. f.
tjáði blaðinu í gær. Skipið er
eign Hans Wilhelm Schröder í
Tuborghavn. 480 lestir að stærð.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem rannsóknarlögreglan gaf
Mbl. í gær var leitað í skipinu
í gærmorgun og fundust þá í
klefa tveggja skipverja 40 nær-
skyrtur, leikfangaflugvél og leik
fangabíll. Höfðu þeir tveir farið
í lestina skömmu eftir að henni
var lokað um kl. 7 í fyrrakvöld
og hnuplað þessum varningi.
Höfðu þeir haft með sér raf-
magnsljós. í gær var öll skips-
höfnin í yfirheyrslu hjá rann-
sóknarlögreglunni og er málið
enn í rannsókn.
Sýning Sverris
framlengd
MIKIL aðsókn hefur verið að
sýningu Sverris Haraldssonar í
nýbyggingu Menntaskólans og
hafa margar myndir selzt. Hefur
því verið ákveðið að framlengja
sýningunni um tvo daga, en hún
verður opin frá kl. 3—11,
— Viðurkenna
Framhald af bls. 28.
kommúnistinn á íslandi,
Magnús Kjartansson, er sá
hinn sami, sem lét blað sitt
lýsa því yfir í miðjum samn-
ingaumleitunum, að upp úr
samningum væri slitnað,
vegna þess að vinnuveitendur
fengjust ekki til að sam-
þykkja umyrðalaust 5% kaup
hækkun til hausts, nýjar
hækkanir þá og fulla visítölu
uppbót, sem gert hefði verð-
bólguna óviðráðanlega.
En vissulega er það mikil-
vægt að málgagn kommúnista
skyldi gloprast til að lýsa því
yfir, að kauphækkanir nú séu
algjörlega óraunhæfar, þar
sem meira verði ekki af at-
vinnuvegunum tekið og hækk
anirnar mundu þess vegna
leiða til þess eins að hleypa
af stað verðbóigu og annað
hvort stöðva atvinnurekstur
eða tþá þýða stórfelldar nýjar
skattaálögur til að taka upp
að nýju uppbótakerfið, sem
verst reyndist. Það er raunar
það sem stjórnarandstæðingar
vilja, þótt almenningur sé
áreiðanlega andvígur því að
aftur verði horfið inn á þá
óheillabraut. Og þegar rit-
stjóri kommúnistamálgagnsins
hlakkar yfir ,skipbroti við-
reisnarinnar“ og hvetur til
stórfelldra hækkana, á hann
við það að hið frjálsa efna-
•' '
Á myndinni sést, þegar verið er að landa úr Siglfirðing á Siglufirði. Þetta var fyrsta síldin, sem
barst til Siglufjarðar í sumar, og auk þess i fyrsta skipti, sem landað var við nýju löndunar-
bryggjuna þar, og í nýju löndunartækin, sem sjást á bryggjunni.
hagskerfi myndi hrynja í rúst
og aftur verða tekin upp
vinstri stefna, sem til mestra
óheilla var.
lítsvarsskrá Akur
Síldaraflinn s.l.
viku 23660 lestir
eyrar lögð iram
(Jlsvör lækka um 5% frá útsv.sfiga
AKTJREYRI, 21. juní. — Út-
svarsskrá Akureyrar var lögð
fram í gær. Álögð útsvör nema
alls kr. 54.479.000. Skiptast
þannig á gjaldendur. að 2843
einstaklingar greiða kr. 49.807.
400, en 96 félög greiða kr.
4.671.600 eða 8.5% af Jþeildar-
fjárhæð útsvara. Vanhaldaálag
var 9%.
Margskonar frádráttur var
veittur frá tekjum, svo sem
flestar bætur almannatrygginga,
Rsfmagnslaust á
Seltjarnarnesi og
Skjéfum i gær
f GÆRKVÖLDI fór rafmagn af
Skjólunum, Kaplaskjólsvegi, Eini
mel og hluta af Seltjarnarnesi.
Er blaðfð fór í prentun í gær-
kvöldi var enn verið að vinna
að því að laga bilunina, sem or-
sakaði straumrofið, en hún mun
hafa verið vestast á Seltjarnar-
nesi við Unnarbraut, eftir því
sem blaðið komst næst. Mun
stórvirk vinnuvél hafa slitið þar
jarðstreng.
náms- og sjúkrakostnaður o. fl.
Eftir að útsvörum hafði verið
jafnað niður, samkvæmt útvars-
stiga, voru þau öll lækkuð um
5%. Til samanburðar má geta
þess, að útsvör 1965 voru hækk-
uð um 15% frá útsvarsstiga.
Hæstu útsvör bera:
Einstaklingar: Leó F. Sigurðs-
son, 443.700 kr., Alfreð Finn-
bogason kr. 266.800, Baldvin
Þorsteinsson kr. 253.700, Trausti
Gestsson kr. 197.700, Jóhann
Hauksson kr. 163.400.
Félög: Slippstöðin h.f. kr.
692.000, Útgerðarfélag KEA h.f.
kr. 477.100, Kaupfélag Eyfirð-
inga kr. 399.400, Brjótur s.f. kr.
205.800 og Súlur h.f. kf. 194.600.
Þá var aðstöðugjaldaskrá
Akureyrar einnig lögð fram í
gær. Aðstöðugjöld nema alls kr.
13.532.900 og greiða 404 einstakl
ingar kr. 1.967.100, en 149 félög
kr. 11.565.800.
Hæstu aðstöðugjöld bera:
Kaupfélag Eyfirðinga kr.
3.633.900, SÍS kr. 1.448.200, Út-
gerðarfélag Akureyringa h.f.
kr. .607.400, Amaró h.f. kf
281.800, Valtýr Þorsteinsson kr.
214.800. — Sv. P.
S.l. laugardag var heildaraflinn
79.952 lestir eða 1924 lestum minni
en á sama tima i fyrra
SÍLDARAFLINN sem barst á
land í vikunni nam 23.660 lest-
um og var heildaraflinn á mið-
nætti s.l. laugardags orðinn
79.952 lestir. Allur fór aflinn í
bræðslu nema 5 lestir, er fóru í
frystingu. Á sama tíma í fyrra
höfðu borizt á land 577.188 mál
í bræðslu og 998 uppmældar tunn
ur í frystingu (78.028 lestir).
Aflinn í ár er því 1942 lestum
minni en á sama tma í fyrra.
FYRRIHLUTA vikunnar 12. til
18. þm. voru síldveiðiskipin 200
til 260 sjómílur ANA af Langa-
nesi, en síðari hluta vikunnar
kom síldin nær landi og í viku-
lokin voru skipin aðallega á
tveimur veiðisvæðum ANA af
Drengur fyrir
bifreið
í GÆRDAG varð drengur á reið-
hjóli fyrir vörubifreið, sem var
að aka úr porti við hús Garð-
ars Gíslasonar & Co. við neðan-
verða Hverfisgötu. Skall hann á
framstuðara bifreiðarinnar, var
fluttur á Slysavarðstofuna, en
þar kom í ljós að hann hafði
ekki hlotið veruleg meiðsli og
var honum leyft að fara heim til
sín að lokinni rannsókn.
Dalatanga. Annað var 160 til
170 sjómílur undan landi og hitt
um 100 sjómílur. Veður var
sæmilegt til veiða en þó var
þokusamt.
Síldarsöiltun hófst á laugardag-
inn, en ekki er kunnugt um
söl-tun. í skýrslu Fiskifélags ís-
lands segir, að í skýrslunum
verði ekki teknar með landanir
erlendra skipa.
Til Seyðisfjarðar hefur bor-
izt mest af síld á þessari ver-
tíð eða 16.711 lestir í Neskaup-
stað hefur verið lagt upp 13.235
lestum og á Raufarhöfn 12.275
115 skip hafa fengið afla, þar af
hafa 100 skip fengið 100 lestir
eða meira.
Hér á eftir fara aflatölur
(taldar í tonnum) 10 efstu skip-
anna samkvæmt skýrslu Fiski-
félags íslands:
Jón Kjartansson 1987
Gísli Árni 1982
Seley 1794
Snæfell 1748
Þórður Jónasson 1730
Barði 1694
Ólafur Magnússon 1689
Ásbjörn RE 1532
Sigurður Bjarnason 1514
Reykjaborg 1487
Hér fara á eftir síldarfréttir
LÍÚ fyrir þriðjudaginn 21. júní:
Framhald á bls. 21.
Fjárhagsáætlun Úlaís
fjarðarkaapstaðar
Systir og móðursystir okkar
GUÐNÝ KRISTÍN JÓNSDÓTTIR
andaðist í Landsspítalanum 21. þ. m. — Jarðarförin
auglýst síðar.
Ólafsfirði 21. júní.
FJÁRHAGSÁÆTLUN Ólafsfjarð
arkaupstaðar var samþykkt fyrir
nokkru, samhljóða. Niðurstöður
áætlunarinnar eru 7.702.000 kr.,
5.197.000 kr. til rekstrargjalda
og 2.505.000 til eignarbreytingar.
Helztu rekstrargjaldaliðir eru:
til líftrygginga 1.320.000 kr.; til
vegamála 740.000 kr., og til
menntamála 600.000 kr. Helztu
liðir til eignabreytinga eru: til
hafnargerðar 1.300.000 kr., til
byggingar sjúkrahúss 300.000 kr.
til gagnfræðaskólabyggingar
200.000 kr.
Tekjuliðir áætlunarinnar eru
sem hér segir: Útsvör 5.071.000
kr., aðstöðugjöld 900.000 kr., fast
eignagjöld 300.000 kr. og jöfnun-
arsjóður sveitarfélaga 1.200.000
kr. Aðrar tekjur 231.000 kr. —
Hækkun áætlunar útsvara er
22,3% miðað við áætlunina 1965.
Til verklegra framkvæmda er
áætlað 2.640.000 kr., auk fyrir-
tækja en hjá þeim eru fyrinhug
aðar umfangsmiklar vatnsveitu-
framkvæmdir.
— Jakob.
Elísabeth Jónsdóttir,
Helga Sveinsdóttir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
ERLENDUR GUÐJÓNSSON
Ásgarði 39,
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 23.
þ.m. kl. 1,30. — Blóm vinsamlega afbeðin.
Sigurfljóð Olgeirsdóttir,
liörn, tengdabörn og barnabörn.