Morgunblaðið - 12.07.1966, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.07.1966, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 12. júlí 1966 Árangurslaus sátta- fundur í þjónadeilunni FUNDTJR um deilu framreiðslu- rtnanna annars vegar og gisti- og -veitingahúseigenda hins vegar Jiófst kl. 3 í gærdag fyrir til- lilutan sáttasemjara ríkisins. Xauk honum á sjounda tímanum í gærkvöldi án þess að samkomu- lag næðist. Jón Maríusson, formaður Fé- Skattstofan var lokuð ALLMARGIR sneru sér til Mbl. í gær með umkvartanir yf- ir lokun skattstofunnar, nú með an kærufrestur yfir skattfram- tölum stendur yfir, en hann xennur út um miðja vikuna. Þeir sem umkvartanirnar báru fram, sögðust ýmist hafa komið að luktum dyrum á föstudag, laugardag og sumir báða daga. En þverskurðurinn af þessum kvörtunum var sá að skattstof- unni hafði verið lokað kl. 4 á föstudag og alveg lokuð á laugar dag. Þessir menn höfðu flestir unnið af sér laugardaginn sem algengt er og ætluðu að nota laugardagsmorguninn til að fara í skattstofuna. Aðrir höfðu losn- að fyrir kl. 5 á föstudag, en kom ið að luktum dyrum, sem fyrr segir. Mbl. var beðið að koma þeirri málaleitan á framfæri, hvort ekki væri hægt að hafa opið fram eftir þá daga sem eftir eru af kærufrestinum. lags íslenzkra framreiðslumanna, tjáði Mbl. í gær að þjónar hefðu lagt fram á þessum fundi hin sömu þrjú atriði til sátta í stimip- ilkassadeilunni, og greint var frá í blaðinu á sunnudag, og þau verið tekin til umræðu. Jón Magnússon, formaður Sam bands gisti- og veitingahússeig- enda, sagði í viðtali í Mtol. að þau þrjú atriði, sem þjónar hefðu lagt fram í samlbandi við stimp- ilkassana, fælu öll í sér verð- hækkanir, m. a. gerði eitt atrijði ráð fyrir hækkun þjónustugjalds upp fyrir 15%, og því hafi veit- ingamenn ekki getað fallizt á neitt þessara atriða. Mibl. sneri sér að loikum. til Lúðvíks Hjálmtýssonar fram- kvæmdastjóra Ferðamálaráðs og spurðist- fyrir um, hvaða afleið- ingar þjónaverkfallið gæti haft fyrir ferðamannastrauminn til landsins. Hann kvað verkfallið koma mjög illa viS al'la veitinga- starfsemi í samb. við ferðamenn til landsins, og vera svo alvar- legt, að það gæti eyðilagt margra ára undiibúningsvinnu, sem far- ið hefur í það að auglýsa landið, til þess að gera það í ríkara mœli að ferðamannalandi, þar sem fregnir um þetta væru fljótar að berast til annarra landa, Lúðvík sagði, að enda þótt talað væri um að þjónar hefðu veitt undanþágu í sambandi við erlenda ferðamenn, þá væri það staðreynd að hótelin væru að- eins rekin af hálfum krafti, og veittu aðeins nauðsynlegustu þjónustu. Auk þessa væru hótelin ekki það fjárhagslega sterk fyr- irtæki hérlendis, að þu mættu við áfalli sem þessu. Olíumöl á 2 km. kafla * . . á Alftanesvegi BYRJAÐ var í gær að bera olíu- möl á hluta af Álftanesvegi, eða frá Engidal við Hafnarfjarðar- veg og tvo kílómetra út á nesið. Mbl. sneri sér í gær til Snæ- björns Jónassonar, verkfræðings hjá Vegamálaskrifstofunni og spurðizt nánar fyrir um þetta. Snæbjörn sagði, að Vegamála- skrifstofan hefði tekið fé, sem ætlað væri til tilrauna, og þvi varið til framkvæmda með olíu- mjöl í tilraunaskyni, bæði núna í ár og eins í fyrrasumar. í fyrra var borin olíumöl á veginn að Vífilsstöðum, og þá átti enn- fremur að bera olíumöl á Álfta- nesveginn, en því tókst ekki að ljúka. Sagði Snæbjörn að þetta væri því síðari hluti áætlunar- innar. Varðandi það hvernig olíu- mölin hefði reynzt á Vífilsstaða- vegi, sagði Snæbjörn, að engir gallar hefðu komið fram á olíu- inni sjálfri, en hins vegar hefði undirbyggingin bilað á kafla á vegnum á fjórum stöðum. Yrði væntanlega gert við það í sum- ar, og borin olíumöl á það. Hann sagði ennfremur að ef þessar tilraunir gengju að óskum væri ekkert sem mælti á móti því, að farið yrði út í það í vaxandi mæli að bera olíumöl á vegi á fleiri stöðum. Það væri að vísu til eldri til- raunir með olíumöl, sem mis- tekizt hefðu að meira eða minna leyti, svo sem á Ártúnsbrekkan, og eins þar sem Hafnfirðingar báru olíumöl á Strandgötuna, en margar ástæður gætu legið til þess, svo sem að mölin var borin á að hausti, þegar veður var óhagstætt, og því myndu þessar tilraunir sennilega ráða úrslit- um. LÆGÐIN sem er á kortinu suðvestur af landinu, var ekki til í fyrradag, heldur mynd- aðist hún í fyrrinótt í nám- unda við veðurskipið Alfa. Hélt hún síðan austur á bóg- inn í gær, dýpkaði og olli all- hvassri A-átt með rigningu við miðvesturströndina. Á Stórhöfða og í Vestmanaeyj- um var veðurhæðin 9 vind- stig síðdegis. Norðanlands og austan var vindur hægur og úrkomulaus. Samþykkt ríkisábyrgð á lánhm til F.f. Fulltrúar Boeing-verksmiðjunnar væntanlegir i gærkvöldi Teitur Eyjólfsson Teitur Eyjólfs- son létinn ÞANN 11. júlí sl lézt á sjúkra- húsinu á Selfossi Teitur Eyjólfs- son frá Eyvindartungu. Teitur var um fjölda ára bóndi að Eyvindartungu í Laugardal og um nokkur ár oddviti Laug- dælinga. Hann mun þá hafa verið yngsti oddviti landsins. — Teitur Eyjólfsson var landskunn ur maður fyrir ýmis störf í þágu landbúnaðar, m.a hafði hann á hendi forystu um sauðfjárvarnir vegna mæðiveikinnar. — Hann hafði og foryslu um ýmsar fram kvæmdir víða á Suðurlandi. Vann hann m.a. að fyrstu fram kvæmdum að hafnargerð á Þor lékshöfn. f Hveragerði rak hann steypustöðina „Steinagerði" um mörg ár. Nú íyrir nokkru, eftir að hann varð ráðsmaður við sjúkrahúsið á Selfossi gekkst hann fyrir stofnun Sambands ís- lenzkra sjúkrahúsa, þar sem öll sjúkrahús landsins sameinuðust um ýmis framfaramál sjúkra- húsa. Chamoni, 11. jnlí NTB. EINN maður, þýzkur, beið LÁNANEFND ríkisstjórnarinnar hefur samþykkt ríkisábyrgð fyr ir láni frá Export-Import bank- anum í Washington fyrir kaup- um Flugfélags tslands á farþega- þotu af gerðinni Boeing 727 C. Nemur ábyrgðin um 80% af kaupverði flugvélarinnar ásamt varahlutum og þjálfun. Boeing 727 er núna mest selda farþegaþotan í heiminum, og nú þegar eru nokkur hundruð þeirra í áætlunarflugi. Fulltrúar frá Boeingverksmiðjunuin voru væntanlegir til Reykjavíkur í gærkveldi til væntanlegrar samn ingagerðar við Flugfélag íslands. Það héfur vakið athygli, að tírezka flugfélagið BEA, sem er ríkiseign, og hefur hingað til notað brezkbyggðar flugvélar á fleStum sínum flugleiðum, hefur sótt um leyfi til brezku ríkis- stjórnarinnar að fá að kaupa milli 30 og 40 Boeing-þotur af gerðunum 727, sem yrði notuð til ^-'"ilandaflíigs, og Boeing 737 5i notuð til innanlands- í Bretlandi. í blöðum sem um þetta mál hafa skrifað hefur komið fram sú skoðun, að brezka ríkisstjórn- in muni treg til að leyfa slíkt, þar sem hún geti bent á að brezk byggðar flugvélar ,svo sem Trí- dent, BAC.lll og Comet séu á markaðnum, og sú skoðun hefur komið fram, að verði ríkisstjórn- ih við umsókn félagsins um leyfi til kaupa á bandarískum Boeing þotum muni BEA-flugfélaginu gert að greiða 14% innflutnings- tolL Þess má að lokum geta að vegna kaupa flugfélagsins á hinni afkastamiklu farþegaþotu mun flugfélagið hafa í hyggja að selja tvær af millilandaflugvél- um sínum. Benares. Indlandi, 11. júlí, NTB-AP: — • Lögreglan í Benares hand- tók sl. sunnudag 43 menn, sem haft hafa forgöngu fyrir því að boða til allsherjarverkfalls nk, þriðjudag í Uttar Bradesh, fjöl- mennasta riki % Jlands. Það er hin „rússneska" deild indverska kommúnistaflokksins þ.e.a.s. armur, er fylgir Sovét- stjórninni að málum í deilu hennar við Pekingstjóxlnina — sem stendur að baki þessari verk fallshugmynd, sem að sögn að- alritara flokksins á að ná til alls Indlands, þótt ekki verði alls staðar verkfall á sama tima Mennirnir 43 tilheyrðu a-llir þess um armi flokksins. 19 bílar í árekstrum við Akureyr i um helgina bana og nítján manns meidduzt alvarlega, er fjallalyfta bilaði og hrapaði sl. laugardag er hún átti eftir fimmtán metra ófarna að toppinum á Mont Blanc. Ekki er vitað til fulls hvað slysi þessu olli — en haft fyrir satt, að stálbolti hafi brotnað. Akureyri, 11. júlí: — GÍFURLEG umferð var á vegum í nágrenni Akureyrar um helg- ina, ekki sízt á Vaðlaheiðarvegi. Þar urðu Jíka nokkur umferðar- óhöpp, tvær bílveltur, fimm á- rekstrar og einum bíl var ekið á miklum hraða út af veginum, og upp í melbarð. Skemmdist hann við það mjög mikið. Auk þessa varð einn árekstur á Þela- mörk og tveir 1 bænum sjálfum, þannig að alls hafa 19 bílar orðið fyrir skemmdnm, sumir mjög miklum, á laugardag og sunnu- dag. Svo giftusnmlega tókst þó til að meiðsl urðu engin á fólki í óhöppum þessum. — Sv. P. Er Jan Mayen-síldin á leið fyrir Noreg? Rabbað við skipstjórann á Eldborgu FYRSTI báturinn sem kom tii Raufarhafnar í gær, eftir þennan mesta síldarafladag til þessa, var Eldborg frá Hafnar firði, sem lagðist að bryggju kl. rúmlega 3. Var báturinn með 230 tonn. Mbl. hafði í gær samband við skipstjórann, Gunnar Hermannsson, og rabbaði við hann stutta stund. — Það er ómögulegt að segja, sagði Gunnar, — að það hafi verið mikil veiði hjá bát- unum alveg þangað til í gær og í gærkvöldi, að það fór að lagast. Veiðin byrjaði eigin- lega á 69’ 11” n.b. og 7’ 25” v.l. en þegar á leið færðust torf- urnar aust-nobðaustur, og núna í morgun voru þær komnar um 60 mílum AiíA. Fjöldi báta hafði þá fengið ágætan afla, en þó ber að gæta þess, að sumt af þeim afla, sem bátarnir hafa til- kynnt um, hafa þeir verið að skrapa saman undanfarna þrjá daga. — Síldartorfur þessar munu sennilega halda stefnunni ANA, og verða því eftir nokkra daga komnar fyrir Noreg, eins og Jakob Jakobs- son spáði því, að hún hefði gert í fyrra. Hann spáði því þá jafnframt að hún kæmi aftur með haustinu, sem hún og gerði. Þetta er þó aðeins getgátur einar hjá mér, en ég tel það þó styðja mál mitt, að ég veit til þess að mikil síld hefur veri’ð á undanförnum árum á 72 gr. n.b. og 10—11 gr. a.l., en það eru mjög á- þekkar slóðir og þessi síld virðist stefna á. — En eins og ég sagði áðan, þá hefur verið fremur lítil veiði hjá flotanum almennt fram að þessu, þó það hafi komið góðir dagar hjá ein- staka bát. Torfurnar hafa ver ið nokkuð dreifðar á veiði- svæðinu, og fremur litlar um sig, svo það hefur ekki verið nema lítil veiði í einu. — Þess má geta áð tvö síld- arflutningaskip voru komin á miðin í gær, Dagstjarnan kom í gærmorgun, og var þegar orðin full á hádegi í dag, og Síldin kom í morgun, og mun hafa verið stanzlaus löndun í hana fram að þessu. Síldin sem við erum með er um 32 sm. löng og sleppur í milli- flokkinn við söltun, ef hún er ekki orðin of gömul, eins og er í þessu tilfelli, því við vor- um 26 tíma af miðunum hing- að til Raufarhafnar. Þá er síld in orðin þannig að það er ekk ert hægt að gera við hana nema að bræða hana. Vi'ð á Eldborginni erum núna búnir að fá um 1900 tonn samtals að þessum 240 tonnum, sem við komum nú með, meðtöld- um, og held ég að það sé nokkru meira en á sama tíma í fyrra, en þá byrjuðum við hins vegar nokkru seinna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.