Morgunblaðið - 12.07.1966, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.07.1966, Blaðsíða 15
T>riðjur!agur 12 júlí 196fi MORGU NBLAÐIÐ 15 — Unglingakeppni Framhald af bls. 22 í hinum riðlinum léku Norð- menn og Finnar og urðu úrslit 2:2. 4200 manns sáu leikinn í Drammen. Norðmenn léku mun betur en framherjar fóru illa með mörg mjög góð tækifaeri. Finnar skoruðu á 4. mín. en Norðmenn jöfnuðu úr víta- spyrnu þrem mín. síðar. Á 20. mín. náðu Finnar aftur forystu og þannig stóð í hléi. 18 mín. fyrir leikslok tókst Norðmönn- um loks að jaína. — Keflvikingar Framhald af bls. 22 föstu en öilum *’l undrunar gerði Samúel ekki tilraun til varnar. Á 42. mín. kemur þriðja mark ið upp úr aukaspyrnu frá miðju. Jón tók vel á móti og skoraði án þess að Sarnúel gerði tilraun til varnar. Á 11. min. síðori hálfleiks var dæmd vítaspyrna á Akureyringa eftir að Ævar bakvörður hafði brugðið sóknartnanni. Sigurður Albertsson skoraði örugglega. Á 25. min. var aukaspyrna 4 Akureyringa út undir miðju til hægri. Sigurður spyrnti að marki og Jón Jóh. breytti stefnu bolt ans með skalla og Samúel tókst ekki að verja. Á sömu mínútu er dæmd víta spyrna á Keflavík 'eftir að Stein grími hafði verið brugðið inni í teignum. Magnús Jónatansson spyrnti, en næstum beint að markvörð, sem varði snagg- aralega. Á 43. mín. skoraði Steingrím- ur en það mark var réttilega dæmt af sakir rangstöðu. Annað gott tækifæri áttu Ak ureyringar er Steingrímur sendi hörkuskot að marki, en það lenti í þverslá. LIÐIN Keflvíkingar höfðu allt vald á leilcnum frá upphafi til loka og stóðu sig vel. Þeir léku hratt og af dugnaði og skorti ekki bar áttuviljann. Þeir voru og miklu leiknari með knöttinn og ná- kvæmari í sendingum. Bezti mað ur vallarins var Magnús Torfa- son, en Jón Jóhannsson átti og ir>jög góðan leik. Akureyringar voru óvenju slappir og ekki von á góðu er saman fer lítill vilji og klaufa- skapur og léleg knattmeðferð. Guðni Jónsson hafði bezta knatt meðferð Akureyringa og var á- samt Valsteini og Pétri Sigurðs syni beztui í liðinu, en Pétur gerði margt vel í vörn. Samleik ur Akurayringa úti á vellinum, sem verið hefur þeirra sterka hlið, var nú í molum og þegar við bættist himinhrópandi að- gerðarleysi markvarðarins var ekki von að vel tækist. Jafn ánægjulegt og það var að horfa á góðan leik Keflvíkinga, yar það hörmulegt ;>ð sjá Akureyrar liðið í þessum leik, segir frétta- maður Mbl. — Danir unnu Framhald af bls. 22. opin og við bættist að skyttur þeirra voru afar ónákvæmar. Og Einar markvörður stóð sig með prýði við það sem til hans barst, — en í eitt skipti bjargaði Sig. Albertsson á línu. Á 8 mín. síðari hálfleiks var vítaspyrna dæmd á Dani og Sig- urður Albertsson skoraði af miklu öryggi. Síðan tólc leikurinn að harðna og þó einna mest eftir að Jörgen sen var borinn út af á 20. mín. siðari hálfleiks. Varamenn komu í stað þeirra er út fóru — en harkan jokst og jókst og einstak ir leikmenn Dana báru þar af, einkum Steffensen v. xramvörð- ur. Á 32. mín. tckst Einari að tjarga mjóg naumlega en knött uunn hrokk út að vítateig, var gefinn til Bartam miðherja, sem skoraði af stuttu færi. Og á 38. mín. skoraði v. innh. Dyrholmf sem kom ínn fyrir Jörgensen) sigurmarkið með fal legum skalla eft:r góða sendingu frá vmstri. Jafntefli hcfði án efa verið réttlátustu úrslitir. og pað virtist ekki lar.gt unaan er Baldur Scheving framkvæmdi auka- spyrnu á síðustu minútu og þvaga varð við mark Dana — en knötturinn stiaukst utan við stöng. LIÐIN. Danska liðið var mjög jafnt j sem fyrr, en fékk nú ekki þann | frið, sem það hefur áður fengið '■ til undirbúnings og nú höfðu | íslenzku piltarnir smitast af leik hraða þeirra og baráttuvilja — I og jafnvel yfirgengu Danina á , löngum leikköflum. Beztu menn Dana voru Bent Jensen framan af, Bartam miðherji og Steffen sen framvörður, sem þó yfirgekk allt með grófum leik er á leið. Ekki má þó gleyma markverð- inum, sem var bezti maður í liði Dana og forðáði Dönum frá tapi í þessum leik. Aðeins 6 leikmenn sem upphaf lega voru valdir í úrvalið mættu til leiks og endanlega varð liðið þannig skipað: Einar Guðleifs, Árni, Þorsteinn Friðþjófsson, Baldur Scheving, Sig. Alberts- son, Jóhannes Atlason, Hermann Gunnarsson, Björn Lárusson, Jókn Jóhannsson, Eyleifur og Axel. Það var því ekki búizt við samstilltum leik i upphafi — en nú sannaðist sem oft áður, að þegar búizt er við minnstu koma ísl. liðið mest á óvart. Það gerði þetta lið með leikhraða, ákveðni og baráttuvilja. Með öruggari leik upp við mark Dana hefði öruggur sigur átt að vinnast. Beztu menn voru Axel Axelsson, Einar í markinu sem varði oft frábærlega vel, Jóhannes Atla- son sem kom á óvart í framvarða stöðunni og margt fallegt sást til Hermanns og Eyleifs en það kom ekki á óvart. í heild var baráttu viljinn einkennandi fyrir liðið og það gladdi áhorfendur — þó sigur ynnist ekki. Dómari var Magnús Pétursson og var allt of óákveðinn. — A. St. —HM i knattspyrnu Framhald af bls. 22. Uruguaymenn drógu enga dul á að þeir skipulögðu leik sinn í þeirri von að ná jafntefli. Allan tímann léku þeir með 8 menn í vörn og sárasjaldan reyndu S- Ameríkumennirnir að brjótast í gegn með nokkrum þunga. Liðin Miðvörðurinn Gonzales, sem leikið hefur í 10 ár í liði lands síns, og er nú aldursforseti liðs- ins, var máttarstólpi varnarinn- ar en Pedro Rocha v. innherji vakti mikla athygli fyrir snagg- aralegan leik og mjög góða knatt meðferð. Englendingar fengu enn einu sinni kennslustund í nútima knattspyrnu sem S-Ameríkulið og meginlandslið hafa oft beitt gegn Englendingum og þeim orð ið svarafátt. Enska liðið virtist tauga- óstyrkt og að sjálfsögðu er það erfitt fyrir leikmennina að mill- jónir Englendinga ,,ætlast“ bein línis til að enska liðið vinni keppnina. Englendingar réðu lög um og lofum úti á vellinum en varnarmúr Uruguay var svo þétt ur að allar tilraunir voru stöðv- aðar. Hvorugur markvarðanna þurfti að taka á í varnartilraun um sínum. Og þó Englendingar sæktu fastar, voru það Uruguay menn sem sýndu fallegustu við- brögðin. Síðustu 10 minúturnar var stanzlaus pressa að marki Uruguay og sú sókn hefði ekki verið oflaunuð með marki — en vörn Uruguay sýndi að hún lætur aldrei bugast. Enginn sóknarmanna Englend inga hafði þann kraft, sem nægði og J. Greaves. sem hefur 43 landsleikjamörk á samvizkunni var auðveldur í meðförum Uru- guaymanna. Bobby Charlton vann bezt af sóknarmönnum Englands en lítt sem ekkert sást til hans hættulegu markskota. — Evrópukeppni Framhald af bls. 22 Inter Milan — Torpedo (Moskvu). Malmö FF — Atletico Madrid Gornik (Pólland) — Sigurveg- ari í 1. undanleik. — Aris (Luxemborg). Linfield (N-írland), sigurveg- ari í 2. undanleik — Olym pikos (Grikklandi). Admira Wien — Vojvodina (Júgóslavíú). Liverpool — Petrolul Ploesti (Rúmeníu). Esbjerg — Dukla Prag. RR — FC Nantes. Celtic Glasgow — Zurich (Sviss) Ajax, Amsterdam — Besikstas Istambul. Omonia, Nicosia — TSV 1860 Munchen. Meistarar fyrra árs, Real Madrid, koma í keppnina í 4 liða úrslitum. Keppni bikarmeistara: Undanleikur: Standard Liege — Valur. 1. umferð: Swansea (Wales) — Bikar- meistarar Búlgaríu. Sigurvegari í undanleik — Limassol (Kýpur). AEK Athen — Braga (Portugal) Glentoran (N-Irland) — Glasgow Rangers. Servette (Sviss) — Helsingfors Kamaraterne Shamrock Rovers (Irland) — Spora (Luxemborg). OFK Belgrad — Spartak Moskva Fiorentina (ítaliu) — Vasas Györ (Ungverjalandi). Rapid Wien — Galatasaray (Tyrklandi). Racing (Strassborg) — Bikar- meistarar Rúmeníu. Chemie Leipzig — Legia, Varsjá Álaborg — Everton. Floriana (Möltu) — Sparta, (Rotterdam). Tatran Presov (Tékkóslóvakíu). — Bayern, Munchen). Skeid (Osló) — Real, Zaragossa. 'b. hugvísindadeild Styrki hlutu að þessu sinni eftirtaldir einstaklingar og stofn anir: 100 þúsund króna styrk hlutu: Helgi Guðn.und^on, cand mag,. til að ljúua rannsókn á for nöfnum í íslenzku, einkum per- sónu- og eignarfornöfnum. Hörður Ágústsson, listmálari, til að rannsaka sögu íslenzkrar húsagerðar á liðnum öldum. Sigurjón Björnsson, sálfræð- ingur til að halda áfram yfirlit.s- rannsókn á salrænum þroska, geðheilsu og uppeldisháttum barna í Béykjavik. 75 þúsund kr. styrk hlutu: Guðmundur Magnússon, fU. — 4 millj. kr. Framhald a 1 bls. 8. Gunnar Guðmundsson, læknir, til þess að ljúka rannsóknum sinum á flogaveiki á Islandi. — (Verkefni til doktorsprófs). 80.000 kr. Haraldur Sigurðsson, jarðfræð ingur, til bergfræðtrannsókna á Snæfellsnesi. (Verkefni til dokt orsprófs). ' 50.000 kr. Helgi Hallgrímsson, safnvörð- ur til svepparar.nsókna 40.000 kr. Doktor Ivka Munda, til þess að Ijúka rannsókn sinni á þörung um við strendur íslands. 75.000 kr. Leó Kristjánsson, eðlisfræðing ur. bergsegulmælingar á Vestur landi til könnunar á afstöðu og aldri surtarbrandslaga 30.000 kr. (Háskólinn í Neweastle kostar þessa rannsókn að nokkru leyti). Ólafur Jónsson, ráðunautur, til þess að ljúka rannsókn sinni á íslenzkum bergskriðum. 40.000 kr. Sigurður Steinþórsson, jarð- fræðingur, til bergfræðirann- sókna á Snæfellsnesi. (Verkefni til doktorsprófs). 50.000 kr. Sveinn Jakobsson, jarðfræðing ur, til bergfræðirannsókna í Vest mannaeyjum. 50.000 kr. Tómas Helgason prófessor, til rannsóknar á árangri geðlyfja og aukinnar félagsstarfsemi við lækningu geðsjúkdóma. 40.000 kr Þorkell Jóhannesson læknir og Vilhjálmur Skúlason, lyfja- fræðingur, til þess að búa til ný verkja- og þrotastillandi lyf og rannsaka áhrif þerira. 80.000 kr. lic., til að vinra að doktorsru- gerð um efnið: Hefðbundnar hagfræðikenningar við skilyrði óvissu. Haraldur Sigurðsson, bóka- vörður, til að tjúka riti um korta sögu íslands. G5 þúsund kr. styrk hlaut: Orðabók Háskólans til að afla ljósmynda af hinni íslenzk-lat- nesku orðabók Guðmundar Ól- afssonar (d. 1695), sem til er í handriti í Konunglega bókasafn- inu í Stokkhólnii. 50 þúsund kr. styrk hlutu: Björn Þ. Guðmundsson, cand. jur., til framhaldsnáms óg rann sókna á sviði flug- og geimréttar við McGill Univcrsity í Montreal Kanada. Davíð Erlingsson. cand. mag., til rannsókna í germansk-kelt- neskri trúabragðasögu og þjóð- sagnafræði. Guðmundur Ágústsson, hag- fræðingur, til að vinna að dokt orsritgerð um efnið „Die pers- pektivische Energiebilanz Is lands“. Gylfi Ásmundsson, sálfræðing ur, til að vinr.a að: 1) stöðlun Rorschachsprófs á 1100 reykvísk um börnum 4 aldrinum 5—-15 ára og 21 rannsókn á persónu- leikaþroska reykvískra barna miðað við sama úrtak. Jón Hnafill Aðalsteinsson, fil lic., til að rannsaka kristnitök una á Islandi. Jón Sigurðsson, fil. kand., til framhaldsnáms í hagfræði við „The Graduate School of the London School of Economics" til undirbúnings meistaraprófs í hagfræði með l.agþróun sem sér grein og með sérstöku tilliti til menntunar og mannafla. Jónas Kristiánsson, sérfræð- ingur Handritastofnunar. til að ljúka riti um Fóstbræðra sögu Listasafn íslands til að halda áfram Ijósmýndun Ivsinga (ill uminationa) í íslenzkum hand ritum. Luðvík Kristiánsson, sagnfræð ingur, til greiðslu kostnaðar við teikningar vegna fyrirhugaðs rits um íslenzka sjávarhætti fyrr og síðar. Ritverkð Stjcrnkerfi smærri lýðræðisr'kja ti! greiðslu kostn aðar við framlag íslendinga til verksins. Sögufélsgið tii að gefa út Grænlandsannál Björns Jónsson ar á Skarðsá Þjóðminjasafn íslands til að kosta ferð HallÞ'cðar Arnar Ei- ríkssonar um landið til þess að taka upp á segulbönd gömul þjóðlög, rímna.sternmur, sálma- lög o. fl., einnig þulur, kvæði og sögur, eftir því sem við verður komið. 30 þúsund kr. stvrk hlutu: Björn Björnsson, cand. theol., til að ljúka doktorsritgerð um lúterska hiúskaparkenningu í ís “ lenzku nútímaþjóðfélagi. Jónas Pálsson. sálfræðingur, a) til að semja rit eða bækling um skólaþroska og byrjunarnám í lestri, b) til að ganga frá rann sóknaráætlun vegna rannsóknar stöðugleika greindarmælinga. 20 þúsund kr. styrk hlaut: Odd Didriksen, sendikennarl, til að kanna heimildir í Kaup- mannahöfn varðandi stjórnar- skrárbaráttu íslendinga á 10. tug 19. aldar og fram að „heima stjórn" (1904), sérstaklega starf semi Valtýs G uðmundssonar, prófessors. — Veitt í viðurkenn ingarskyni fyrir rannsóknir um sækjanda á íslenzkri stjórnmála sögu. 15 þúsund kr. styrk lilaut: Jón Aðalsteinn Jónsson til að láta gera teikningar vegna fyrir hugaðs málfræðirits um amboð (orf, hrífu og ljá). C. FLOKKUN STYRKJA Ra un vísindadeild: I. Þrír aðalflokkar. (Talan í sviga sýnir fjölda styrkja, hin heiMarfjárhæð). Dvalarstyrkir til vísindalegs sérnáms og rar.nsókna (20) 1.570.000 Styrkir til stofnana og félaga (10) 570.000 Verkefnastyrkir til einstaklinga (11) 565.000 Samtals (41) 2.725.000 II. Flokkun eftir vísindagreinum. Stærðfræði og eðlisfræði (6) 460.000 Efnaftæði (2) 215.000 Náttúrufræði (önnur en jarð- fræði) (7) 525.000 Jarðfræði (5) 250.000 Jarðeðlisfræði (5) 310.000 Búvísindi og ræktunarrann- sóknir (3) 170.000 Læknisfræði, lyfjafræði og heilbrigðisfræði (12) 735.000 Annað (1) 60.000 Hugvisindagrcin Sagnfræði, þjóðfræði, listfræði kortasaga (7) 395.000 Bókmenntafræði (2) 100.000 Málfræði (3) 180.000 íslenzk fræði alls (12) 675.000 Lögfræði (1) 50.000 Hagfræði (3) 175.000 Félagsfra'ði (1) 50.000 Sálarfræði, uppeldisíræði (3) 180.000 Guðfræði, kristnisaga (2) 80000 Samtals (22) 1.210.000 Lokað Vélavorkstæðið verður lokað vptfna sumarleyfa frá 18. júlí til 8. ágúst. Þ. Jónsson & Co. Brautarholti 6. Afgreiðslustú'ka Afgreiðslustúlka óskast nú þegar. — Upplýsingar í verzluninni (ekki i síma) kl. 1—3. BIESINB I.AUGAVEGI 6.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.