Morgunblaðið - 12.07.1966, Síða 20

Morgunblaðið - 12.07.1966, Síða 20
20 MORGU N BLAÐID Þriðjuctagur 12. júlí 1966 FÁLKAFLUG ••••••••••••• EFTIR DAPHNE DU MAURIER 403i C0PINHB6EN — Bú, bannað að ganga á grasinu. Hann lötraði áfram og við hinn endann á þröngri götunni sneri hann aftur til vinstri. Þeg- ar ég náði í hann og hefði getað snert hann, var hann kominn upp á tröppurnar á litla bæna- húsinu, sem kennt er við Alla Heilaga. Tröppurnar voru snar- brattar niður að götunni og hann veik til hliðar, svo að ég gæti komizt leiðar minnar. — Afsakið, herra, sagði hann. — Afsakið þér, svaraði ég. — Ég er hér bara á flækingi og er aðkomumaður í borginni. Ég hafði alltaf kunnað illa við tillit þessara skökku augna. Ég vissi aldrei, hvort hann horfði á mig eða ekki — Þetta er Allraheilagra bæna húsið, sagði hann og benti. — Já, ég sé það, sagði ég. — Þér viljið kannski sjá bæna húsið, sagði hann. — Nágranna- kona mín hefur lyklana. — Seinna, sagði ég. — Genð yður ekkert ómak mín vegna. — Það er ekkert ómak. Konan er sjálfsagt heima. Seinna, þegar ferðamennirnir fara að koma, opnar hún bænahúsið á vissum tímum. En eins og er, er það ekki ómaksins vert fyrir hana. Áður en ég gat hindrað það, hafði hann kallað upp í glugg- ann á litla húsinu, sem var fast við kapelluna. Glugginn opnað- ist og roskin kona stakk út höfð- inu. — Hvað var það, herra Gighi? sagði hún. Gighi! Þarna kom það. Það var nafnið, sem stóð á skóara- verkstæðinu. Eldabuskan okkar hafði heitið María Gighi. — Það er gestur til að skoða kapelluna, kallaði hann og beið svo þess, að hún kæmi út. Glugg □----------------□ 13 □----------------□ inn skall aftur. Ég fann mig vera lítt velkominn þarna. — Mér þykir fyrir því að vera að gera yður ómak, sagði ég. — Þér eruð velkominn, herra, sagði hún. Skökku augun voru áreiðan- lega að horfa á mig. Ég leit við. Eftir andartak opnuðust dyrnar og konan kom út og þreifaði eft- ir lyklunum sínum. Svo opnaði hún dyrnar á bænahúsinu og benti mér að ganga inn. Ég leit kring um mig og gerði mér upp áhuga. Það merkasta í þessari kapellu er hópmynd af píslarvott um, mótuðum í vax. Ég minntist þess, að farið var með mig þarna inn, þegar ég var krakki og vörð- urinn skammaði mig fyrir að reyna að snerta á myndunum. — Fallegt! sagði ég, en hjónin horfðu á mig. — Já, það er einstakt í sinni röð, sagði skóarinn, og svo var eins og hann hugsaði sig betur um. — Sagði herrann, að hann væri ókunnugur hér í Ruffano? — Já, sagði ég, — ég er frá Torino. Ósjálfrátt nefndi ég borg stjúpa míns, þar sem mamma hafði dáið. — Nú .... Torino? sagði hann, eins og vonsvikinn, og bætti svo við: — Þið hafði ekkert þessu líkt þar. — Við höfum líkklæðið, sagði ég, — líkklæðið, sem sveipað var um lausnarann. Merkin eftir helgan líkama hans sjást enn á því. — Það vissi ég ekki, sagði hann, rétt eins og hann blygðaðist sín. Við þögðum öll. ^Konan hringl- aði lyklunum. Ég fann, að skökku augun skóarans hvíldu á mér, og mér varð órótt. — Þakka ykkur fyrir, sagði ég við þau bæði í senn. — Ég hef séð það, sem ég ætlaði. Ég gaf konunni tvö hundruð lírur, sem hún stakk í víða pils- ið sitt, kvaddi skóarann með handabandi og þakkaði honum þægilegheitin. Síðan gekk ég niður tröppurnar að Allraheil- agra-kapellunni, og gat mér þess til, að þau væru að stara á eftir mér. Það var hugsanlegt, að ég hefði minnt hann á eitthvað eða einhvern, en samt ætti nú ekki neitt að geta sett mann frá Tor- ino í samiband við tíu ára hnokka. Ég gekk sömu leið til baka til Lífstorgsins og fann lítið veit- ingahús í Cyprianusargötu, nokk ur skref frá kirkjunni. Ég fékk mér hádegisverð og reykti mér einn vindling, enn hafði ég ekki ráðið neitt við mig. Veitinga- húsið hlaut að hafa verið vin- sælt — það hafði ekki verið þarna, þegar ég mundi eftir —. því að það fylltist brátt af gest- um, svo að sitja varð í öllum IMægir í 30 drykki alls 6 lítra. — m. • Unnt að kaupa sérstaklega hina nytsömu 'F&* Sunsip-pumpu. Snnsip Elmaro sími 23444. B/acksi Decken fyrir alla iðnaðarmenn Mikið virval af heimsins beztu og þekktustu borvélum. E. MRSHINSSDN S JOHNSON H.F. Ármúla 1 - Grjótagötu 7 Simi 2-42-50 * *** * ÞJÚRSARDALUR ?JAVÍK . . upplýsingar i síma 22300 IMATIONAL RAFHLÖÐLR Biðjið um National rafhlöður og sannfærist um gæðin. Sparið peninga — Notið National rafhlöður. Heildsölubirgðir: G. Helgason & Melsteð hf. Rauðarárstíg 1. — Sími 11644.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.