Morgunblaðið - 20.07.1966, Side 5
Miðviftucfagltr 20. júlí 1966
MORGUNBLAÐIÐ
5
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
AÐ Hafnarstræti 1 á fsa-
firði er Smjörlíkisgerð ísa-
fjarðar h.f. til húsa í litlu húsi
Fyrirtæki þetta lætur lítið
yfir sér, en framleiðir þó
smjörlíki fyrir allan Vest-
fjarðamarkaðinn, svo og
nokkurt magn til Reykjavík-
ur einnig. Framkvæmdastjóri
Smjörlíkisgerðarinnar er Sam
úel Jónsson og er hann jafn-
framt einn af aðaleigendum
verksmiðjunnar. Við hittum
Samúel að máli nú á dögun-
um og spurðum hann um
þetta fyrirtæki hans.
— Hvenær var Smjörlíkis-
gerð Xsafjarðar stofnuð?
Fá smjörlíkið tveimur
krónum ódýrara en ella
Rabbað v/ð Samúel Jónsson, framkvæmdastjóra
Smjörlíkisgerbar ísafjarðar h.f. tók ég við framkvæmda-
stjórn.
__ Hún var stofnuð árið fræðingi. Elías var fram- — Hvenær hófst þú störf
1925 af Elíasi Pálssyni og kvæmdastjóri allt þar til ég hjá félaginu?
Gísla Guðmundssyni, gerla- keypti hans hlut árið 1958, þá — Ég byrjaði að vinna hér
Samúel Jónsson, framkvæmdastjóri við hina fullkomnu pökkunarvél fyrirtækisins.
margar tegundir smjörlikis?
— f upphafi var einungis
framleidd ein tegund smjör-
líkis, sem kölluð var „Sólar-
smjörlíki",' en frá 1931 byrj-
uðum við að framleiða svokall
að „Stjörnusmjörlíki“ og höf-
um við síðan aðallega haldið
okkur við þiá tegund síðan.
„Stjörnusmjörlíkið“ er ein-
göngu búið til úr jurtaolíu,
sem er strokkuð eins og smjör.
Olían er ekki hert eins og í
öðrum smjörlíkisgerðum hér-
lendis við hita.
— Hve mikið magn fram-
leiðið þið á dag?
— Við getum framleitt am
1 tonn á dag en að meðaltali
er framleiðslan rnn 300 kg.
Það fer að sjálfsögðu eftir eft
irspum hverju sinni. Við höf-
um nú nýlega tekið í notkun
mjög fullkomna pökkunarvél,
sem pakkar smjörlíkinu inn í
góðar umtoúðir í hálfs- og
fjórðungskílóapakka.
— VUtu taka eitthvað fram
að lokum?
— Ekkert annað en það að
þetta er að sjálfsögðu aUt und
ir fólkinu komið hvemig verð
ur í framtíðinni. Okkur er
það keppikefli að sem flestir
noti smjörlíki, og Samúel
brosir. um leið og við kveðj-
um hann.
í smjörlíkinu árið 1926, svo að
segja má, að ég hafi verið
með nærri frá byrjun.
— Og hver er svo aðalmark
aður verksmiðjunnar?
— Fyrst og fremst Vestfirð
imir að sjálfsögðu, en svolítið
magn höfum við þó selt tU
Reykjavíkur að undanförnu.
Það má segja að það sé þessu
litla fyrirtæki að þakka að
ísfirðingar fá nú smjörlíki
tveimur krónum ódýrara en
ella, þar að ekki er unnt að
leggja á aðflutt smjörlíki flutn
ingsgjald vegna samkeppninn
ar við okkar smjörliki.
— Hvað framleiðið þið
„íslendingar gern meiri kröiur til eldhús-
innréttingu en nokkur önnur þjóð“
— segir Hans Bildat, sölustjóri Format
UM þessar mundir dvelst hér
á landi hr. Hans Bildat, sölu-
stjóri vestur-þýzka fyrirtækis
ins FORMAT, sem framleiðir
eldhúsinnréttingar. Blaða-
maður Mbl. hitti hr. Bildat að
máli ásamt framkvæmdastjór
um „Hús og skip hf.“, Sig-
urði Péturssyni og Jónasi
Guðmundssyni, en fyrirtæki
þeirra flytur inn um 70%
allra eldhúsinnréttinga, sem
seldar eru tilbúnar hér á
landi.
Þeir kváðu innflutning eldhús-
innréttinga hafa lækkað bygg-
ingakostnað verulega, þrátt fyrir
60% tolla og há farmgjöld, og
einnig hefði það orðfð til þess, að
íslenzkir trésmiðir hefðu lækkað
verðið á heimasmíðuðum inn-
réttingum. Format-innréttingarn
ar eru úr viði og klæddar harð-
plasti, og hægt er að velja um
hátt á annað hundrað tegundir
skápa. Format-verksmiðjurnar
hafa 60 ára reynslu í smíði eld-
húsinnréttinga fyrir kröfuharð-
an markað í fjölmörgum lönd-
um. Hægt er áð kaupa innrétt-
ingarnar í fleiru en einu lagi, og
orðið er við öllum séróskum
kaupænda. Mikilvægt er, að rétt
mál séu gefin upp í byrjun, en
síðan smíða Format-verksmiðj-
urnar innréttingarnar eftir þeim.
Hús og skip hf. sjá um að taka
mál, ef þess er óskað. Innrétt-
ingarnar eru auðveldar í upp-
setningu, og sér Hús og skip
einn'g um hana. Margar nýjung-
Hr. Hans Bildat
ar eru í innréttingunum, enda
rekur Format sérstaka rann-
sóknastofnun, þar sem tekið er
tillit til vinnuhagræðingar í eld-
húsi, smekks, gæða og kostnað-
ar. Neðri skápar eru gjaman út-
dregnir, þannig að skápurinn er
dreginn fram á gólf. Hægt er að
fá borðgrill, dósahnífa, brauð-
hnífa, innbyggð ljós, tengla og
allt, sem nöfnum tjáir að nefna,
með innréttingunum. Um ýmiss
konar liti og litaafbrigði er að
velja. Sem dæmi um fjölbreytn-
ina má nefna, að hægt er að
velja um átta gerðir af inn-
byggðum bakarofnum.
Afgreiðslutími á Format-inn-
réttingum hér á landi er nú um
tveir mánuðir. Kostnaður er
mjög mismunandi, eftir því hverj
ar kröfur kaupandi gerir, en 40—
60 þús. kr. er algengast.
Hr. Bildat sagði, að Format-
fyrirtækið seldi innréttingar að-
allega til EBE-landanná og Sviss.
Norræni markaðurinn hefði
hingað til verið fyrirtækinu fram
andi, en upp á sfðkastið hefði
það vakið athygli forráðamanna
fyrirætkisins, hve salan til ís-
lands hefði aukizt ört, og því
væri hann hingað kominn. Það
vekti einnig athygli, hve íslenzk-
Eldhúsinnrétting frá Format.
ir kaupendur gerðu miklar kröf-
ur til hagræðingar, smekklegs
útlits og gæða. Væru engir
kröfuharðari í þessum efnum en
íslendingar, og væru Frakkar
alger andstæða þeirra að þessu
æyti. Ýmsar sérkröfur íslend-
inga hafa leitt til þess, að þær
hafa verið rannsakaðar ýtar-
lega í rannsóknastofnun fyrir-
tækisins og síðar teknar upp sem
staðlaðar nýjungar.
Þá sagði hr. Hans Bildat, að
Framhald á bls. 18
Hreinlætistæki
frá IDEAL- STANDARD,
Vestur-Þýzkalandi.
A EINARSSON & FUNK HF.
Höfðatúni 2. — Sími 13982.
i'ú/'i,