Morgunblaðið - 20.07.1966, Side 7
MiðvTkiidaguT 20 Júlí 1966
MORCU N BLAÐIÐ
7
Brúðkaup a 18. öld
Áður á öldum var það sið-
venja, að halda viðhafnar-
miklar brúðkaupsveizlur og
var ekkert til sparað, þar sem
stórbaendur og héraðshöfðingj
ar áttu í hlut, að hafa þær sem
ríkmannlegastar. — Voru þá
fagurlega skreytt veizluborð,
með alLskonar veizluföngum,
bæði í mat og drykk. — Borð
ið sem brúðhjónin sátu við,
var kallað háborð, við hlið
brúðhjónanna, sátu auðvðitað
foreldrar þeirra og annað
venzlafólk, síðan var raðað
niður eftir mannvirðingu og
einnig eftir efnahag boðsgesta
kotungar sátu venjulega við
hin svokölluðu óæðri borð, en
þeir létu sig það engu skifta,
fögnuður þess fólks, var að-
allega fólgin í þvi, að hafa
ekki verið settur hjá, á slíkum
gleðimótum. — Það var fastur
siður, að góðar brúðkaups-
veizlur byrjuðu á laugardegi,
sömuleiðis stóð veizlan vénju
lega í nokkra daga, ef hún
var höfðingleg. — En sjálf
hjónavígslan fór fram á sunnu
degi, og fór hún venjulega
fram á einhverjum kirkjustað
— þess þarf vart að geta að í
byrjun 16. aldar réði brúður-
in engu um val á mannsefni
sínu, foreldrar hennar sáu um
allar framkvæmdir í þeim við
skiptum svo það kom víst ör-
sjaldan fyrir, að konur þeirra
tíma gerðu uppreisn, á móti
vilja foreldra sinna í þeim
festarmálum, sem henni voru
úthlutuð. — Mynd sú er hér
birtist, er af brúði, sem er
verið að skauta, með Krók-
faldi, án koffurs og er hann
líklega á að giska um tvær
andlitslengdir á hæð, því krók
faldurinn var hár og mjór,
vafinn úr tröfum, um það
bil fjórtán þumlungar af kolli
eða sennilega meira, og gékk
krókurinn eins og stikill fram
og varð brúðurin að bera
þennan þjóðarbúning, á bess
um heiðursdegi sínum. — Hér
á myndinni, sézt einnig brúð-
guminn, og er hann að
skenkja í staup, goðadrykk
og guðaveigum, því lifsnautn-
irnar eru ekki sparaðar á þess
um degi, enda virðist hann
vera mjög kampagleiður og
íbygginn á svip, hefir senni-
lega hreppt gott kvonfang,
sem hann getur stært sig af.
— Á aðra hlið hans stendur
presturinn og er hann með
langa tóbakspípu úr leir í
munni sér, en á hinni hlið-
inni, er auðsjáanlega einhver
annar fyrirmaður, að hrista
tóbaksbauk á handarbakið á
sér, til að fá sér duglega hress
ingu í nefið, áður en hann
bertgir á ódáins-veigum brúð-
gumans.
LÆKNAR
FJARVERANDI
Arnbjörn Ólafsson Keflavlk fjarv.
J6/7. — 24/7. Stg. GuCjón Klemensson
og Kjartan Ólafsson.
Alfreð Gíslason fjv. frá 4/7—6/8.
Stg. Bjarni Bjarnason.
Andrés Ásmundsson frí frá heim-
ilislækningum óákveðinn tíma. Stg.:
Þórhallur Ólafsson, Lækjargötu 2 við-
talstími kl. 14—16, símaviðtalstími kl.
»—10 í síma 31215 Stofusími 20442.
Bjarní Konráðsson fjarverandi til
80. ágúst. Stg. Skúli Thoroddsen.
Björgvin Finnsson fjv. frá 18/7—
15/8. Staðgengill Árni Guðmundsson til
25/7 og Henrik Linnet frá 26/7—16/8.
Bergþór Smári fjv. frá 17/7—28/8.
6tg. Karl S. Jónasson.
Hagnar Sigurðsson fjv. frá 15/7—
15/8. /
Bergsveinn Ólafsson fjv. til 10.
égúst. Stg. Kristján Sveinsson augn-
læknir og t*orgeir Jónsson.
Erlingur Þorsteinsson fjv. til 1/8.
Einar Helgason fjv. júlímánuð.
Frosti Sigurjónsson fjarv. 1 til 2
snánuði. Staðgengill Þórhallur Ólafs-
»on, Lækjargötu 2.
Geir Tómasson tannlæknir fjv. frá
26/6—8/8.
Geir H. Þorsteinsson fjarverandi
frá 4/7—1/8. Stg. Sæmundur Kjart-
ansson.
Gunnar Guðmundsson fjarv. um
ókveðinn tíma.
Guðmundur Benediktsson fjv. frá
11/7—15/8. Stg. Þórhallur Ólafsson.
llannes Þórarinsson fjv. um xóákveð
inn tima.
Halldór Hansen eldri fjv. til miðs
ágústs. Staðg. Karl S. Jónasson.
Hörður Þorieifsson fjarverandi frá
12. apríl til 30. september. Staðgengill:
Þórhallur Ólafsson, Lækjargötu 2.
Jón Hannesson tekur ekki á móti
eamlagssjúklingum óákveðinn tíma,
Stg. Þorgeir Gestsson.
Karl Jónsson verður fjarverandi
frá 22. maí, óákveðið. Staðgengill er
Jón Gunnlaugsson sem heimilislæknir.
Kjartan R. Guðmundsson fjarv til
1. október.
Kristinn Björnsson fjv. frá 18/7—
23/7. Staðgengill Jón G. Hallgrímsson.
Kristján Hannesson fjarerandi 15/7
til 1/8. Staðgengill Hulda Sveinsson.
Kristján Jóhannesson, Hafnarfirði
1 2—3 vikur. Stg. Eiríkur Björnsson.
Lárus Helgason fjarverandi frá 4/7.
til 8/8.
Ólafur Einarsson fjv. til 28/7. Stað-
gengill Jósef Ólafsson.
Ólafur Helgason fjarverandi 8/7—
25/7. Staðgengill Karl S. Jónsson.
Ólafur Jónsson fjarv. til 1. ágúst
Stg.: Ragnar Arinbjarnar.
Ólafur Tryggvason fjv. til 24/7. Stg.
Þórhallur Ólafsson, Lækjargö-tu 2.
Páll Jónsson tannlæknir á Selfossi
fjarverandi í 4—6 vikur.
Páll Sigurðsson fjv. frá 11/7—1/8.
Stg. Stefán Guðnason
Pétur Traustason fjv. frá 5/7—1/8.
Staðgengill Skúli Thoroddsen.
Rafn Jónsson tannlæknir fjv. frá
27/6—26/7.
Richard Thors fjv. júlímánuð.
Snorri Jónsson fjv. frá 11/7. — 1/8.
Stg. Hulda Sveinsson.
Stefán B Björnsson fjv. frá 1/7—
•1/9. Stg. Jón Gunnlaugsson.
Sefán Ólafsson fjv. frá 20/7. — 20/8.
Hinrik Linnet fjv. frá 6/7. — 25/7.
Stg. Þórhallur Ólafsson Lækjargötu.
Tryggvi Þorsteinsson fjv. frá 21/2
í 4—5 mánuði. Stg. Jón R. Árnason,
Aðalstrætl 18.
Valtýr Bjarnason fjarv. frá 27/6—
1/9. Staðgengill Jón Gunnlaugsson.
Viðar Pétursson, fjv. frá 9/7—2/8.
Víkingur Arnórsson, verður fjar-
verður fjarerandi frá 11—7—’66. Stað-
gengill. Björn Júlíusson Holtsapóteki.
Þorgeir Gestsson fjarv frá 13/7—30/7.
Stg. Ófeigur Ófeigsson.
Þorgeir Jónsson fýarverandi fná
15/7—5/8. Stg. Björn Önundarson.
Þórður Þórðarson fjarv. frá 1/7—
31/8. Stg, Björn Guðbrandsson og
Úlfar Þórðarson.
Áheit og gjafir
Aheit og gjafir á Strandarkirkju
afihent Morgunblaðinu: Gunnar 100;
VG 70«; IJ 100; SJ 100; NIN 100; BHH
100; NN 50; NG 50; Gamalt áheit NN
500; NN 500; Þór 300; HJ 200; x-2 100;
NN 10; 2 gömul áheit NN 25; 2 gömul
áheit NN 25; UÁ_Þ 700; BÞJP 100; AJ
300; SG 100; AJ 100; Gamalt áheit FH
200; Gamalt áheit F6 105; SS 55;
Ónefnh kona 100; Frá LM 200.
GAMALT oc gott
2. kap. úr Kerlingalögbók, eft
ir handriti Ólafs Sveinssonar í
Purkey.
ólétt kona á að varast
að ganga undir reist hús óþakið,
að ganga undir stag,
eins undir tré á lofti (þá á lækur-
inn að vefjast um hálsinn á
barninu.)
ekki horfa á stjörnur,
ekki í norðurljós,
ekki vera þar sorfið er (þá tinar
barnið)
ekki eta valslegið (valbrá)
ekki eta hunang (hunangsblettir)
ekki eta selshreifa (barnið á að
fá fuiglsfit),
varast að stíga yfir kött breima
(iþrókansótt)
ekki yfir lóða-tík (mikið upp á
heiminn).
• •
SOFN
Ásgrímssafn, Bergstaðastr. 74,
er opið alla daga nema laug
ardaga frá kl. 1,30—4.
Minjasafn Reykjavíkurborg
ar, Skúlatúni 2, opið daglega
írá kl. 2—4 e.h. nema mánu
daga.
Árbæjarsafn opið frá kl.
2.30 — 6.30 alla daga nema
mánudaga.
Þjóðminjasafn Islands er
opið frá kl. 1.30 — 4 alla daga
vikunnar.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið daglega frá kl. 1:30
til 4.
Listasafn íslands
Opið daglega frá kl.
1:30—4.
Landsbókasafnið, Safna-
húsinu við Hverfisgötu. Lestr
arsalur er opinn alla virka
daga kl. 10—12, 13—19 og
20—22 nema laugardaga 10
—12. Útlánssalur kl. 1—3
nema laugardaga 10—12.
Borgarbókasafn Reykjavík-
ur er lokað vegna sumarleyfa
!frá fimmtud. 7. júlí til mánu-
dagsins 1. ágústs, að báðum
dögum meðtöldum.
Ameríska bókasafnið, Haga-
torgi 1 er opið yfir sumarmán-
uðina alla virka daga nema
Iaugardaga kl. 12—18.
>f- Gengið >t-
Reykjavík 15. júlí 1966
Kaup Sala
1 Sterlingspund 119.70 120.00
1 Bandar. dollar 42,95 43,06
100 Pesetar 71.60 71,80
1 Kanadadollar 39,92 40,03
100 Danskar krónur 620.50 622.10
100 Norskar krónur 600,00 601,54
100 Sænskar krónur 830.15 832.30
100 Finssk mörk 1.335,30 1.338,72
100 Fr. frankar 876,18 878.42
100 Belg. frankar 86,26 86,48
100 Svissn. frankar 994,50 997,05
100 Gyllini 1.186,64 1.180,70
100 Tékkn. kr. 596,40 598,00
100 v-þýzk mörk 1.076,44 1.079,20
100 Lírur 6,88 6,90
100 Austurr. sch. 166,18 166,60
Óska eftir 2—3 herb. íbúð Fyrirframg reiðsla eftir sam komiulagi. UppL í síma 20767 eftir kl. 6. Önnumst viðgerðir á Hondu. Leiknir sf, Melgerði 29, R. Sími 36512.
Óska eftir að koma 7 ára telpu og 10 ára dreng á gott sveitaheimili fram í septemlber. Tiiboð merkt: „hæg börn 4551“ sendist Mbl. fyriir fösbuidagskvöM. Smíðum húsgögn, innréttingar og fleira. Trésmiðja Austurbæjar Skipholti 25. Símá 19016.
Lítil nýleg Hoover þvottavél til sölu með suðu. Uppl. í síma 51504. Rafmagnshitavatnskútur 200 lítra með Danfosshita- stillitækjum til sölu. UppL í síma 37879.
15 ára drengur óskar eftir einhverskonar atvinnu í sumar. UppL í síma 24649. Vantar ráðskonu á fámennt heimilj úti á landi. Má hafa með sér 1—2 börn. UppL í síma 19200.
Til leigu f>rír reglusamir nemendur geta fengið leigð 3 herfb., hlý og björt á góðum stað í bænum. Tiilb. sendist Mibl. f. 2T7/7 nk, merkt: „Góð umgengni — 4&5ö“. Góður bíU De Soto, ár. ’54. V 8 sjétí- skiptur, ’66 skoðun. TH sýnis og sölu að Gullteig 18 eftir kl. 8.
Keflavík og nágrenni Tíl sölu gott ein/býlishús 1 Keflavík, stærð 86 ferm. á einni hœð. UppiL gefur Fasteignasalan, Hafnarg. 27 Sími 1420.
AIHDCIIB er langtum ódýrara að anglýsa í Morgunblaðinu en öðrum Þegar miðað er við útbreiðslu, blöðum.
Múrarar Okkur vantar nokkra múrara til að múr- húða tvö stigahús, úti og inni. Byggíngaver hf. Laugavegi 27 — Símar 14690 og 18429. Kvöldsímar: 40271 og 41049.
Dömur
Sumarútsalan hefst í dag. —
Mikil verðlækkun.
HJÁ BÁRIJ
Austurstræti 14.
Alotað mótatimbur til söln
Vel hreinsað, ein- og tvínotað.
Stærðir: 1x6, 1x7, 1*4x4, 1*6x4 og 2x4.
Samtals um 33000 fet.
Hagkvæmt verð, greiðsluskilmálar ef um semst.
Upplýsingar hjá ívari Daníelssyni, Ránargötu 19,
sími 1-4110.
FÉLAGSFIIIMDUR
félags-framreiðslumanna verður haldinn á Óðins-
götu 7, miðvikudaginn 20. júlí kl. 2,30.
Kaffiveitingar. Stjórnin.
Bifreiðin R 188
sem er Rambler station, árg. 1960, 8 sæta til sölu og
sýnis á vélaverkstæðinu í Dugguvogi 7.
V