Morgunblaðið - 20.07.1966, Síða 8

Morgunblaðið - 20.07.1966, Síða 8
9 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikadagur 20. júlí 1966 100 óin í dog: Steinunn R. Thordarson frá ísafiröi ÞESSA dagana fara fram há- tíðahöld á ísafirði vegna aldar- afmælis kaupstaðarins. Og í dag er aldargömul frú Steinunn Thordarson, elzti ís- firðingurinn segi ég, því að Is- firðing telur frú Thordarson sig enn, þótt nærfellt 40 ár sinnar löngu ævi hafi hún átt heima í Beykjavík og unað því vel. Steinunn Ragnheiður fæddist 20. júlí 1S66 á Gemlufalli við Dýrafjörð, andspænis Þingeyri hinum megin fjarðar. Hjá for- eldrum sínum, Guðmundi Nat- hanaelssyni og Guðrúnu Egils- dóttur, ólst hún upp. Á þeim ár- um var lítill kostur skólanáms handa börnum. En innán við fermingu var Steinunn send - norður til ísafjarðar í bama- skóla, sem Sigurður Gunnarsson, síðar prestur í Stykkishólmi, stýrði þar. Minnist hún eins og aðrir nemendur sra Sigurðar hins prúða valmennis og kenn- ara, Á fsafirði fermdist Steinunn fyrir 86 árum hjá sra Áma Böðvarssyni. Nú eru liðin nær- fellt 160 ár síðan fermingarfaðir hennar fæddist. En elzta fólk, sem Steinunn þekkti í bernsku sinni við Dýrajörð og á ísafirði, var fætt á 18. öld og alit fyrir löngu gengið fyrir ætternisstapa. Steinunn hélt frá ísafirði aftur til átthaganna og þar kynntist hún glæsilegum, ungum manni, Finni Thordarson, sem kominn var frá verzlunarnámi í Dan- mörku og vann við Gramsverezl- un á Þingeyri. Þau giftust fyrir 78 árum á Þingeyri og reistu fyrsta heimili þar, en fluttust síðan til Bíldudals. Þar réðst Finnur til verzlunarstarfa hjá " Pétri Thorsteinsson, sem þá var einn mesti athafnamaður á Vest- fjörðum og safnaði að sér mörg- ' um úrvalsmönnum. Árið sem Steinunn og Finnur Thordarson giftust drukknaði á útleið einn helzti borgari ísa- fjarðar, föðurbróðir Finns, Þor- steinn Thorsteinsson, bakari og kaupmaður á ísafirði. Hafði hann verið kosinn 1. þingmaður Isfirðinga að Jón Sigurðssyni forseta látnum. Til skips þess, sem Thorsteinsson fór utan með í nóv. 1888, hefir aldrei spurzt. Ekkja hans, dönsk myndarkona, frú Amalie, rak fyrirtækið um nokkurra ára skeið en seldi það árið 1895 Finni Thordarson. Það ár fluttust þau hjón til ísafjarðar og þar hófst athafna- 'ríkasti og skemmtilegasti kafi- inn í ævi þeirra, Finnur Thord- arson var hagsýnn dugnaðar- maður og valmenni. Hann gegndi mörgum trúnaðarstörfum á ísa- firði, sat t.d. lengi í bæjarstjórn. Hann jók fyrirtæki sitt, brauð- gerðarhús og verzlun og byggði N(jT er háannatíminn í ferða- mannastraumnum. Um síðustu helgi var veður fagurt víðast hvar á landinu og streymdu Reykvíkingar í stríðum straum um út á land. Þúsundir lögðu letð sína til ísafjarðar og að Hólum en margt var einnig um manninn á Norður- og Austur- landi. Mbl. talaði í gær við fréttaritara blaðsins á Akureyri og 9purðist fyrir um ferðamanna strauminn þar síðustu helgi. Kvað hann veður hafa veríð með bezta móti, um og yfir 20 stiga hiti sunnangola en sólskina árið 1905 eitt stærsta og glæsi- legasta hús, sem þá var til á Vestfjörðum, til íbúðar og verzl- unarreksturs. Stóru og umsvifamiklu heim- ili stýrði frú Thordarson á þess- um árum af mikilli röggsemi og skörungsskap. Heimilið varð fjölmennt. Börnin urðu fjögur: Ása gift Jóni Grimssyni málfl. manni á ísafirði, Soffía f. sím- ritari, Gyða gift Eiríki Stephen- sen forstjóra og Gunnar banka- fulltrúi. Auk þess var í heimil- inu fósturdóttir, margt starfs- fólk fyrirtækisihs, og auk þess árum saman ýmsir svokallaðir „betri borgarar“, ísafjarðar, sem ókvæntir voru. Þessu stóra heimili stýrði frú Thordarson af miklum skör- ungsskap. í heimili þeirra var oft margt dvalargesta, einkum frændfólks, en bæði voru hjón- in svo félagslynd og mannblend- in, að tíðar voru gestakomur vina í heimili þeirra. Þar var veitt af rausn. Og þar var gleði í húsi. Þeim hætti hélt frú Thordarson eftir að hún var flutt úr stórhýsi í litla íbúð með einni dóttur. Árið 1927 fluttust þau hjónin til Rvíkur og hér andaðist Finn- ur Thordarson fáum vikum síð- ar. En þá hafði kona hans tekið kvalafuJlan sjúkdóm, kölkun í mjöðm, sem hún er fyrst nú fyr- ir fáum árum hætt að hafa þján- ingar af. f þeim vanda kom sér það vel, að Steinunn bar nafn með réttu lítið. Rúmlega 100 tjöld höfðu verið á tjaldstæðinu og að með- altali 4 í tjaldi.. Engar óspektir urðu þar á svæðinu, þar var ákaflega frið- samlegt ailt fram eftir nóttu og ekki nema í tveimur tjöld- um ónæði af hávaðasömum sam tölum. Hótel eru öll full á Akureyri um þessar mundir og hafa ver- ið undanfarið. Ekki bar mikið á útlendingum þar um sl. helgi, fólk var þar alls staðar að af landinu en einna mest Reykjavík. og var að upplagi óvenjulega hörð af sér og þrekmikil. Enda mun fágætt, ef viniaa, sem heim- sóttu þær mæðgur, Soffíu og hana, hefir rennt í það grun, að sárt mein bar frú Thordarson, þar sem hún sat í sæti, glöð og reif, ræðin og einörð í tali um málefni og menn. Ég býst við að vinum hennar verði minnisstæðast fágætt þrek hennar og skapharka — i góðri merkingu. Um hana mundi ég segja hið sama og um ýmsar vestfirzkar konur, sem ég man, hið sama sem Njála segir um Berglþóru: Hún var drengur góð- ur en skaphörð nokkuð. Við vini hefir frú Thordarson verið mild og hlý, nákvæm þeim, sem nákvæmni og alúð þurftu, en ekki brúkað vork- unnsemi í orðum fram yfir það, sem henni þóttu efni standa til. En það tel ég víst, að á vin- áttu hennar hafi enginn verið svikinn. Svo munu þær mæla, sem vináttu hennar nutu lengst en þeirra á meðal var móðir mín. Var ósvikinn ylur milli Stein- unnar Thordarson og hennar, meðan þær urðu samferða í nær- fellt 60 ár. Að sjálfsögðu hefir henni æði mikið hnignað á síðustu ár- um, einkum um heyrn. Og rúm- föst hefir hún verið allra síðustu árin. En fram að þeim bar hún enn þá reisn og þann svip, sem sjá má af myndinni, sem þessum afmælisorðum fylgir. En mynd- in er af henni hálfníræðri. Frú Steinunn Thordarson er ágætlega greind kona, orðheppin og skýr í meiningu og máii. Minni hennar hefir verið svo trútt, að naumast hefir um það þurft í fleiri grafgötur að fara, sem hún sagði frá. Um ísa- fjörð eldri tíma, ekki sízt meðan hún dvaldist þar fyrir 80-90 ár- um, var hún fram að síðustu árum ágætlega minnug, og ljós í frásögn um málefni og menn. Enda hygg ég að kærara um- ræðuefni hafi hún naumast átt en gamla ísafjörð. fsfirðingar bæði heima og í „dreifingunni“ hafa minnzt á þessum tímamótum margra gam- alla ísfirðinga, margra sem lifðu starfsdaginn í bænum við hinn lygna sæ „í faðmi fjalla blárra“, en eru nú sumir fyrir löngu gengnir fyrir ætternisstapa. Frú Thordarson minnist gamalla ís- firðinga, sem enginn annar man en hún. Hún hefir hvorki lagt sig eftir því um dagana að vera öllum að skapi né allra vinur, en á aldarafmæli ísafjarðar mega ísfirðingar ýmsir minnast hénnar, sem mú er aldargömul Jnn AnAimn Reykvíkingar fjölmennir meðal ferðam. á Akureyri frá sjálf. Gériö góðan mat betri meö BÍLDUDALS nlduísoóriu grsenmeti HeíWsítT. .t.?—Tsir- BirgSosIöS 5ÍS, Eggert Krisljánsson og Co. Nælonsloppar Allar núverandi birgðir seldar á kr. 198,00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.