Morgunblaðið - 20.07.1966, Page 26

Morgunblaðið - 20.07.1966, Page 26
zo MUKUUNBLAIJIIJ Miðvikudagur 20 júlí 1966 Ragnar Oiaðmundsson kom í vsg fyrir tvöfaldaci sigur Skota i ölHum h['aupagraútíum SKOTAR sigruðu íslendinga með yfirburðum í landskeppninni í frjálsum íþróttum, en henni iauk í gærkvöldi. TJrðu lokastigatölur keppninnar 114 gegn 84. Staðan eftir fyrri dag var 62 stig gegn 43, en eftir síðari dag 52 stig gegn 42. Skotar höfðu sömu yfirburði í hlaupunum í gærkvöldi og fyrri daginn — þeir unnu öll hlaupin tvöfalt, nema 20 m hlaupið. Þar tókst Ragnari Guðmundssyni (hann var reyndar varamaður) að troða sér upp á milli Skotanna, og ná sér í annað sætið. Hann hafði leikið það sama kvöldið áður í 100 m hlaupi, og kom í veg fyrir að Skotar ynnu öll hlaupin tvöfalt. í stökkunum höfðu íslend-sigur úr býtum. í sleggjukastinu ingar á hinn bóginn yfirburði, var keppni lengi vel tvísýn, hörð — unnu báðar stökkgreinarn- ar tvöfalt, og var það svolítil sárabót. f köstunum urðu lönd in jöfn að stigum, skiptu jafnt með sér kastgreinunum tveim ur. f kvennagreinunum höfðu skozku stúlkurnar yfirburði sem fyrr ,en þó kom það mönnum á óvart að Þuríður Jónsdóttir krækti sér í annað sæti í langstökkinu, og náði ágætum árangri 5:16. •jc Yfirburðir í hlaupum. Fyrsta hlaupagreinin var 800 m. hiaup. Það var lengi vel út- lit fyrir spennandi keppni, því bæði Halldór og Þorsteinn fylgdu Skotunum tveimur fast eftir, en er um 200 m. voru eftir, voru kraftar okkar manna á þrotum, og Skotarnir komu örugglega fyrstir í mark. í 5000 m. var aldrei um neina keppni að ræða, því að Skot- arnir héldu uppi miklum hraða strax í upphafi — of miklum fyrir þá Þórð og Agnar, og var Ewing einum hring á undan þeim íslenzku, er hann kom í mark, en Taylor um 300 metr- um. * í 200 metrunum sigraði Piggott af miklu öryggi, en Ragnari tókst með frábærri keppnishörku að skríða framúr Wood á beinu brautinni. í 400 m. grind var lengi vel útlit fyrir að Helgi Hólm myndi komast upp á milli Skotanna, en þegar aðeins fáeinir metrar voru í mark voru kraftar hans al- gjöiega þrotnir, og hann varð að láta sér nægja 4 sæti eftir annars ágætlega útfært hlaup. f 4x100 virtist keppni ætla að verða mjog jöfn, því að er síðasti sprettur var eftir, voru íslend- ingar aðeins á undan, en Pigott reyndist mun sterkari en Val- björn og kom örugglega á undan í mark. • Ljósir punktar í stökkum og köstum. Það hressti heldur upp á skapið í áhorfendum, sem voru annars mjög fáir, þarna í rign- ingunni á Laugardalsvelli, þega-r tilkynnt var að ísland hefði sigr að tvöfalt í langs-tökki. Ungu mennirnir, Ólafur og Gestur, brugðust ekki þeim vonum, sem við þá voru bundnar, náðu báðir prýðisárangrum, Ólafur 7,13 og Gestur 7,10. Sömu sögu var að segja um stangarstökkið, þar sigr aði Valbjörn, en Páli Eiríkssyni tókst að krækja í annað sætið með 4 m. rétta. Öldungurinn í íslenzka liðinu, Guðmundur Hermannsson, stóð líka svo sannarlega fyrir sínu í kúluvarpinu — hann kastaði 16,07, sem er hans þezti árang- ur í ár, og Sigþór Hjörleifssyni tókst að krækja í þriðja sætið, þannig að þar báru íslendingar barátta á milli Jóns Magnússon- ar og McDonalds, en Skotinn hafði það undir lokin og munur- inn var 66 cm. B. V. SÍÐARI DAGUR Karlagreinar: Stangarstökk: 1. Valbjörn Þorláksson í. 4.10 2. Páll Eiríksson í. 4.00 3. S.D. Seale S. 4.00 Langstökk: 1. Ólafur Guðmundsson í 7.13 2. Gestur Þors'teinsson í. 7.10 3. D. Walker S. 6.63 4. S.D. Seale S. 5.07 Sleggjukast: 1. Niall McDonald S. 51.47 2. Jón Magnússon í. 49.81 3. J.A. Schott S. 47.73 4. Þórður B. Sigurðsson í. 47.01 800 m. hlaup: 1. R.T. Hodelet S. 1:52.8 2. J.P. Mc Latchie S. _ 1:53.0 3. Halldór Guðbjörnsson í. 1:55.1 4. Þorsteihn Þorsteinss. í. 1:56.6 5000 m. hlaup: 1. W. Ewing S. 14:35.8 2. S. Taylor S. 15:16.1 3. Þórður Guðmundss. f. 15:59.6 4. Agnar Levy í. 16:01.6 Framhald á bls. 27 Danska landsliðið ásamt farastjórum: T.v. Lars K. Jensen, Eyvind Petersen, Vibeke Slot, Jörgen J. Andersen, Finn Rönnow, Lone Mortensen, Beate Dunker, Gitte Ravig, Britta Peder- sexu ,Glæsilegasta sundlaug sem éghefséðíEvrópu' - segir fararst|óri dönsku sund- mannaim?, sem komu til landsins í fyrrinótt DANSKA sundfólkið, sem mun heyja landskeppni við Islendinga í sundi n.k. laugar- dag og sunnudag í nýju sund- lauginni í Laugardal, sem verð- ur opnuð sérstaklega fyrir þessa landskeppni, þó hún verði ekki formiega tekin í notkun komu í fyrri nótt til landsins. Þetta er niu manna hópur, Golfmófið: Hermann 4 höggum betri en Magnús i bæjakeppninni Sveinn Arsælsson Vestmannaeyjum meistari „öldunga" eyri í gær. Með keppni í þessum flokkum fá menn tækifæri til að kynnast vellinum fyrir átökin miklu. 72 holu keppni íslands- mótsins, sem hefst í dag og stendur i 4 daga. „Forleikir" Islandsmótsins í golfi — keppni „öldunga" og bæjakeppni var leikin á Akur- Hvað gerir úrvalið? f KVÖLD leika í Laugardal þýzka liðið SC 07 frá Bad Neuenahe og SV-landsúrval, sem kynnt var í blaðinu í gær. Þýzka liðið er framarlega í keppni þýzkra áhugamanna og leikur álíka knattspyrnu og beztu lið islendinga. Verður þvi gaman að sjá viðureign þess og úrvalsins. Islandsmeistari „öldunga" var Sveinn Ársælsson frá Vest- mannaeyjum, gamall Islands- meistari en í bæjakeppni sigr- uðu Akureyringar og lék sex manna sveit þeirra 18 holur í 485 höggum. Hörð keppni. Öldungakeppnin var geysilega hörð og spennandi. Eftir fyrri hring hafði Jóhann Þorkelsson Ak. forystu með 40 högg sem er mjög gott því stormur var og erfitt að leika. Sveinn Ársæls- son og Ingólfur Isebarn komu næstir með 45 högg. En í síð- ari hring tók Sveinn af skarið fór völlinn í 37 höggum, frábær árangur g vann á 83 höggum samtals. Jóhann hafði 83 högg og Ingólfur 85 högg. Jóhann með 67 högg nettó Jó- hann Guðmundsson Ak. hafði 68 högg og Sveinn Ársælsson 70. Góður árangur. 1 bæjakeppninni náði Her- mann Ingimarsosn frábærum áragri lék völlinn tvívegis í 37 höggum og skákaði öllum öðr- um m.a. Magnúsi Guðmundssyni íslandsmeistara. Hermann hefur ekki leikið jafn vel um árabil og nú verður gaman að fylgjast með honum á íslandsmótinu. Fyrirkomulag bæjakeppninn- ar er þannig að allir mega taka þátt en sex beztu kylfingar hvers bæjarfélags teljast í sveit hans. I sveit Akureyrar voru Hermann með 74 högg. Magnús Guðmundsson 78, Sævar Gunn- arsson 79, Jóh. Þorkelsosn 83, Kolbeinn Pétursson 85 og Haf- liði Guðmundsson 86 eða sam- tals 485 högg. Sveit Rvíkur varð önnur með 500 högg. Þar náðu beztum ár- angri Jóhann Eyjólfssn 81 högg og Ottar Yngvason 82. Vestmannaeyingar urðu nr. 3 með 534 högg. Þar var Sveinn í keppni með forgjöf sigraði Arsælsson beztur með 82 högg. ásamt tveimur fararstjórum, þeim Frede Borre forseta danska sundsambandsins, og sömuleiðis þess norrænna, og konu hans. Einn keppandanna kemur á hinn bóginn ekki fyrr en n.k. fimmtudag. í danska liðinu eru þessir: Karlar: Lars Kraus Jensen, sem er Danmerkurmeistari í 200 metra baksundi, Finn Rönn- ow, sem er methafi og Dan- merkurmeistari í 200 og 100 m. bringusundi, Jörgen J. Ander- sem, sem er danskur methafi og fjölhæfur sundmaður, John Bertelsen danskur methafi og Danmerkurmeistari í 100 og ‘200 m. skriðsundi og flugsundi, og Eyvind Petersen (unglingur) mjög efnilegur sundmaður. Konur: Vibeke Slot, danskur methafi og Danmerkurmeistari í 100 m. bringusundi, Beate Dunker, Danmerkurmeistari í 400 m. skriðsundi. Britta Ped- ersen, Danmerkurmeistari í 200 m. bringusundi, Gitta Ravig, mjög snjöll sundkona, og Lone Mortensen (unglingur) mjög efnileg sundk.. Kersten Strange sem er snjöllust sundkona Dana nú, gat ekki komið, þar sem hún er í Bandaríkjunum við nám. Mbl. hitti Frede Borre aðeins að máli í gær. Hann vildi engu spá um úrslitin, sagði að í landskeppninni 1964 í Dan- mörku, sem Danir eru nú að endurgjalda, hefðu Danir aðeins unnið með einu stigi. Nú kepptu íslendingar á heimavelli, og það hlyti alltaf að vera nokkur styrk ur. Ekki vildi Erlingur Pálsson alveg samþykkja það, að íslend ingarnir væru allir vanari 25 m. laug, en 50 m. laug. En hann kvaðst halda að það mætti bú- ast við skemmtilegri keppni, ef ekki yrði nein forföll í íslenzka liðinu. Frede Borre og kona hans lýstu hrifningu sinni yfir nýju lauginni í Laugardal, sagði að hún væri stórkostlegt mann- virki, og bætti því við, að hann 'hefði farið víða um Evrópu með dönskum sundmönnum, en hvergi séð eins glæsilega laug. Og frú Borre átti vart orð til þess að lýsa hrifningu sinni yf- ir stílfegurð laugarinnar. Nánar verður skýrt frá ís- lenzka sundlandsliðinu síðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.