Morgunblaðið - 06.08.1966, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 06.08.1966, Qupperneq 11
Laugardagur 6. ágúst 198t MORGUNBLAÐIÐ 11 UTAN AF LANDI - Á HÉRAÐSMÓTUM SJÁLFSTÆÐISMANNA SkJóBbrekka Veðurguðirnir voru litlu blíðari í Mývatnssveit á sunnu- dagskvöldið, er héraðsmótið skyldi haldið í Skjólbrekku, — svarta þoka svo til upp áð dyr- um samkomuhússins. Engu að síður flykktist þangað fólk á öll- um aldri úr nærliggjandi sveit- um, skartbúið og skrafhreifið, og var frá upphafi til e^áa hinn ákjósanlegasti bragur á mótinu. Heyrði fréttamaður Mbl. all- xnarga héraðsbúa hafa við orð, að ræður hefðu þar verið „fjári góðar“, eins og einn þeirra komst að orði, og skemmtiatriðin fengu slíkar undirtektir, að hlátrarniri skullu eins og öldur á veggjum hins vistlega samkomusalar. Spurningakeppnina háðu þau Gigja Sigurbjörnsdóttir frá Álfta gerði, Anna Skarphéðinsdóttir, Vogum, Vernharður Bjarnason frá Húsavik, Pétur Jónsson, Reynihlíð, Arnþór Árnason frá Garði og Erlingur Sigurðsson frá Grænavatni. Var keppnin hin líf legasta undir ágætri stjórn þeirra Gunnars og Bessa. 0) Hvað skyldu þeir segja í roki? Skjólbrekka Meðal samkomugesta vakti éskipta athygli að'komumanna .gráhærð fríðleikskona, nokkuð við aldur, klædd fallegum peysu fötum. Það er jafnan gaman að sjá íslenzkan búning fallega bor- inn og þegar við svo tókum tal saman, reyndist þar komin hin kunna myndarkona Þurfður Gísladóttir í Reynihlíð, kona Pét urs Jónssonar, hreppstjóra. — Þetta er alveg ágæt sam- koma, sagði Þuríður, — ég held ég hafi ekki lengi skemmt mér betur. Það má svo sem segja, að jþessar pólitísku ræður séu ekki beint skemmtiefni, en það er kaldara. En næsta dag var svo komið indælisve'ður og hélzt all- ar þrjár vikurnar, sem við átt- um eftir að ferðast. — Já, það er svo sem víðar ve'ður en á íslandi, — en þetta var ljómandi skemmtileg ferð, segir afmælisbarnið. — Hefur ekki veðrið dregið úr gestakomum hingað austur? — Jú, nú síðustu dagana dá- lítið, segir Þuríður, — en fyrr í sumar var hér allt fullt af ferða fólki og má heita að allt sé upp- pantað á hótelinu út sumarið. j Þuríður Gisladóttlr og Pétur Jónsson, hreppstjóri Reynihlíð. fróðlegt að heyra þær líka, þeg- «r þær eru góðar — þetta var allt reglulega ánægjulegt. Rabb okkar barst fljótt að tíð- inni, — hvernig átti annað að vera í þessari þoku. — Já, veðráttan hefur auðvit- •ð verið heldur rysjótt, sérstak- lega fyrir ferðamennina — og þó ekki eins slæm hér og víða annars staðar, tii dæmis festi aldrei snjó hér á dögunum, eins ©g viða hér í nánd. Og þegar sól- in skín er afar heitt hérna. — Það er nú ekki laust við, að manni þyki þeir að sunnan gefa stundum heldur óglöggar lýsing- ar á veðurfarinu hér nyrðra, sagði Pétur hreppstjóri, sem kom ið hafði til okkar, — til dæmis heyrði ég mann tala suður í síma og segja, að hér væri rok, — þá voru tvö vindstig. Hva'ð s'kyldu þeir segja, ef kæmi hressilegt rok? Það er eins og menn geti ekki notið málið til þess að gera greinarmun á hlutunum. Svo sagði Pétur mér, að kona hans ætti afmæli, væri 71 árs þennan dag — ég skal segja þér, að á sjötugsafmælinu hennar í Xyrra, vorum við stödd í Ósló — vorum þá á ferð um Norðurlönd- in — og þann dag var kaldara þar heldur en hér núna, miklu Hinsvegar voru hópferðir færri nú í vor en undanfarin ár, vegna þess, að vegirnir voru svo slæm- ir. — Og nú er ætlunin að byrja að byggja við hótelið í haust, þegar gestakvöðin minnkar. Ég veit ekki með vissu, hvað það verður stórt, en okkur vantar til dæmis smá veizlusal, fundarsal og ýmislegt fleira, sem heyrir nú tíðinni til. Kröfurnar eru orðnar svo miklar og fara ört vaxandi. — Hvað starfa margir við hótelið í sumar? — Það eru eitthvað um tuttugu manns, þar á meðal fimm barna- börn okkar. Það er ekki ónýtt fyrir þau að geta haft vinnu hér á sumrin, þegar þau eru í skól- um á veturna. Þuríður sagði mér, að þau hjónin hefðu búið í Reynihlíð nær óslitið í 45 ár. Af börnum þeirra fimm eru fjögur á lífi — við misstum elzta son okkar, Gísla, árið 1950, þá 28 ára, en það var hann, sem reisti hótelið og gekkst fyrir því að koma þessu á laggirnar. Þá voru öll hin börnin að læra annað og yngsta dóttir okkar, Helga Val- borg, sem nú er hótelstýra, lauk stúdentsprófi á'ður en hún fór að kynna sér hótelrekstur. Hún og maður hennar, Arnþór Björns- son, og sonur okkar, Snsebjörn Pétursson, og hans kona, standa fyrir hótelinu ásámt okkur. Snæ- björn er nú reyndar alveg far- inn að vinna við Kisiliðjuna. Annar sonur ökkar, Ármann Pét ursson, og tengdasonur, Sverrir Tryggvason, reka félagsbúið í Reynihlíð og hafa þar 700 fjár eða þar um bil. — Reykjahlíð var mikil jörð, segir Pétur, — nú búa og starfa í landi hennar hátt á annað hundrað manns, þar af um helmingur aðkomufólk. En það þýðir ekkert að fara að þylja þetta yfir þér hérna, hélt hann áfram, þegar ég spurði hann nán ar út í undirbúning Kísiliðjunn- ar, , — þú ættir bara áð koma •til okkar og sjá þetta sjálf, þarna er svo margt að gerast. Þóttist ég sjá, að Pétur hefði þarna lög að mæla og kvaddi þessi ágætu hjón að sinni, með von um að sjá þau fljótt aftur. $ Stúlkurnar fara suður á haustin eins og ýsan Frammi á ganginum rakst ég á Vernharð Bjarnason, fram- kvæmdastjóra Fiskiðjusamlags Húsavíkur, og bað hann segja mér einhverjar fréttir af Húsa- vdk. — Þaðan er allt gott að frétta, blessuð vertu, ég held þar verði gott fiskifar, þegar haustar. Það er gömul reynsla, að komi lægð í fiskifarið, en svo lagast það aftur. Þetta gengur svona í bylgj um. Ég hef fylgzt með þessu frá barnæsku og það þýðir ekkert að láta hugfallast, þótt veður hamli veiðum í tíu daga. — Það eru miklar framfarir á Húsavík og mikið byggt. Mig minnir þar séu um 40 íbúðir í smíðum, sem hlítur að teljast allnokkuð í 1900 manna bæ. At- vinnulíf ér, að mínu viti, vax- andi á Húsavík og lítið mark takandi á móðuharðindahjali þeirra, sem alltaf mála fjandann á vegginn. — Við erum áð byggja mikið upp fyrir fiskvinnsluna — og mundum varla gera það, nema af því að við lítum björtum aug- um á framtíðina. Við erum með ýmsar nýjungar, sem ég tel að mikla vinnuhagræðingu, — höf- um fengið nýja kolaflökunarvél og eigum á næstunm von á kola- flokkunarvél, sem flokkar flökin í 13 þyngdarflokka með 28 gramma mun. Er það fyrsta vél þessarar tegundar, sem kemur til landsins. Ég held, að þessar vélar geti orðið vísir að því að vinna gegn tímabundnu atvinnu- leysi, þar sem það er fyrir hendi Vernharður Bjarnason, Húsavik. stúlkurnar eins og ýsuna, þær leita suður á haustin. En ég veit ekki nema það breytist eitthvað með þessum nýju vélum og nýrri tilhögun. ■0 % Konurnar hvarvetna af landinu og una sér vel Árni Halldórsson heitir ungur bóndi og býr í Garði í Mývatnssveit. Ég hitti hann — og stúðlað að fullvinnslu á fiskinum þannig, að unnt verði að auka verðmæti aflans til út- flutnings. — Með flokkunarvélinni get- um við allt að tvöifaldað afköstin og jafnframt unnið að vinnsl- unni næstum allt árið, hvernig sem viðrar. — Við verðum að gera okkur ljóst, að frystilhús og fiskvinnsla verða ekki rekin hér á landi með gó'ðum árangri nema menn séu vakandi fyrir nýjungum og tækni og taki i þjónustu sína vinnuhagræðingu, sem getur sparað vinnukraft. Okkur vant- ar alltaf vinnu'kraft og verðum að gera eitthvað til að bæta úr þeirri þörf.' — Hráefni höfum við, má ég segja, mjög gott á Húsavík — gott og vel með farið, og höfum t.d. á bandarískum markaði feng ið viðurkenningu fyrir það. Við flytjum mest á bandarískan markað, nema kolann á brezkan markað. Bandaríkjamenn gera meiri kröfur til gæða en borga líka betur. — Húsvíkingar eru gott fólk, vinnusamt og lipurt í samstarfi. — Jú, við missum aúðvitað alltaf nokkuð af fólki á haustin, einkum kvenfólkið. Það er með snöggvast að máli, áður en hér- aðsmótið hófst, en þar sem þá gafst ekki tími til viðtals, talað- ist svo til, að við ræddumst vi’ð smástund, þegar dansinn hæfist — „ætli ég geti ekki fundið smá- stund þá“, sagði Árni, — „ég þarf reyndar að vinna hér dálítið í kvöld og fer eftir því, hvað mikið verður að gera“. Það lá við mér brygði í brún, þegar ég sá, að bóndinn ungi í Garði, var, þegar til kom, annar lögregluþjónanna á staðnum. Árni hló, þegar hann sá aulasvip- inn — „ég sagði þér, að ég væri áð vinna", sagði hann spotzkur. „Og hefurðu haft mikið að gera?“ — Nei, nei, svaraði hann, — þetta hefur verið svo ósköp rólegt, bara mikil aðsókn. — Stundar þú oft löggæzlu á samkomum sveitarinnar? — Nei, ég má ekki vera að þessu nema öðru hverju. — Er mikið félagslíf með ungu fólki hér í Mývatnssveit? — Já, já, það er gott svona stundum. Hefur verið þó nokkuð undanfarin ár, en var með minna móti í vetur vegna snjó- þyngsla. Annars eru sjaldnar dansleikir hér í Skjólbrekku en áður fyrr, vegna þess, að félags- heimilunum hefur fjölgað í ná- grenninu og þau skipta þessu nökkuð á milli sín. Svo settumst við niður og Árni sagði mér svolítið frá bú- skap sínum. — Ég bý í félagsbúi við föður minn, Halldór Árnason, en hef byggt nokkuð upp á síðustu sex árum. Árið 1960 byrjaði ég með því að byggja hlöðu yfir 800 hesta af heyi og 1962 byggði ég fjárhús fyrir 320 fjár. Síðan íbúðarhús, sem er rétt ólokið, — við erum nýflutt inn. — Er konan þín héðan úr sveit inni? — Nei, hún er frá Hrútafelli Árni Halldórsson, Garði, Mývatnssveit. undir Austur-Eyjafjöllum og heitir Guðbjörg Eyjólfsdóttir, Vfð kynntumst í Vestmannaeyj- um, eitt sinn, er ég var þar á vertíð. Börnin eru þrjú, 1, 3 og 8 ára. — Við feðgarnir höfum um 290 ær og 5 mjólkandi kýr. Við höf- um haft smávegis mjólkursölu til Húsavíkur, en hún gekk auð- vitað erfiðlega í vetur' vegna snjóa. Jörðinni fylgir líka sil- ungsveiði, sem er nokkur hlúnn- indi, en veiðin hefur nú verið heldur léleg í sumar hjá flest- um, að ég held. — Heyskapur hefur gengið sæmilega. Ég missti reyndar úr heila viku um daginn, — hafði slegið einn dag en varð svo að gangast undir botnlangaskurð. Þetta tafði nokkuð, en nú á ég um 400 hesta slegna og bíð bara eftir þurrki. — Manstu nokkur tíðindi að segja mér úr þinni sveit, Árni? — Nei, það held ég varla, Framihald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.