Morgunblaðið - 06.08.1966, Side 13
LaugarSagur 8. ágúst 1966
MORGUNBLAÐIÐ
13
Erlend tíði ndí 0 Erlend tíði ndi
m
Bylting í IMígeríu
Bylting var gerð í AfríkuríkV
inu Nígeríu í síðustu viku, og
ný herforingjastjórn skipuð þar
á mánudag s.l. Er þetta önnur
byltingin, sem gerð er í landinu
á þessu ári, því í janúar steypti
herinn þáverandi ríkisstjórn og
fól yfirmanni hersins, Aguiyi
Ironsi hershöfðingi, öll völd.
Eftir janúarbyltingu hersins
kom í ljós að forsætisráðherr-
ann fyrrverandi, Abubakar Tof-
ava Balewa, og nánustu fylgis-
menn hans höfðu verið drepnir
í byltingunni. Og síðan bylting-
in var gerð í fyrri viku hefur
ekkert frétzt af Ironsi, fyrrum
forsætisráðherra, en óttazt er að
hann hafi hlotið sömu örlög og
fyrirrennarinn.
í>að hefur víða valdið nokkr-
um ruglingi þegar sagt er að her
inn í Nígeríu hafi staðið að
tveimur byltingum á rúmu hálfu
ári, og í síðara skiptið steypt af
stóli ríkisstjórn, sem nánast var
einræðisstjórn yfirmanns hers-
ins, Ironsis hershöfðingja. En á
þessu eru þó skiljanlegar skýr-
ingar, ef saga Nígeríu er rakin
nokkra áratugi aftur í tímann.
Nígería er nú fjölbýlasta ríki
Afríku, með um 56 milljónir
íbúa. En í rauninni er þetta ekki
eitt, heldur mörg ríki, sem til
skamms tíma voru tiltölulega
sjálfstæð af nýlendum að vera.
Þessi smáríki voru svo sameinuð
árið 1914 í brezku nýlenduna
og verndarsvæðið Nígeríu undir
stjórn brezks landsstjóra.
Margar ólíkar þjóðir búa í
Nígeríu, og koma þar helzt við
sögu þrír þjóðflokkar: Hausa-
þjóðflokkurinn í norðurhéruð-
unum, Ibo-þjóðflokkurinn í suð-
austur héruðunum, og Yoruba-
þjóðflokkurinn í suð-vestur hér-
unum. Af þessum þjóðflokkum
er Hausa fjölmennastur, en Ibo-
arnir hafa til þessa verið áhrifa-
mestir. Mjög eru þessir þjóð-
flokkar óskyldir, því Hausa þjóð-
in er blönduð Aröbum og Ber-
bum að norðan, en Ibo-arnir svo
til hreinir Bantu-negrar.
Strax i síðari heimsstyrjöld-
Inni tóku Bretar að undirbúa
væntanlegt sjálfstæði Nígeríu
með því að veita ibúunum í vax-
andi mæli stjórn innanríkismála.
Hinn 1. október 1960 varð svo
Nígería sjálfstætt ríki, sem að
lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu
gerðist aðildarríki að brezka Sam
veldinu.
Eftir sjálfstæðistökuna var Ni-
geríu skipt í fjögur héruð, sem
hvert um sig hafði sitt eigið þing
og héraðsstjórn, er fór með inn-
anhéraðsmál. En ríkisstjórnin,
sem sat í höfuðborginni Lagos,
fór með sameiginleg mál hér-
aðanna og utanríkismál. í upp-
hafi voru það fulltrúar Hausa-
þjóðflokksins, sem mestu réðu
í ríkisstjórninni, undir forustu
eir Abubakar Balewa forsætis-
ráðherra, sem ættaður var úr
norðurhéruðunum.
Þrátt fyrir innbyrðis deilur
þjóðflokkanna, ríkti 'friður í Ní-
geríu fyrstu árin eftir sjálfstæð-
ið. Lagði ríkisstjórnin á það á-
herzlu að bæta efnahag landsins,
sem var mjög háður erlendri að-
Btoð, og koma á fót nýjum at-
vinnu- og framleiðslufyrirtækj-
um. En þegar á leið mögnuðust
deilur þjóðflokkanna þriggja,
Ibo, Hausa og Yoruba, dýrtíð
jókst í landinu, og spilling tók
að grafa um sig innan ríkis-
stjórnarinnar. Var talið að tals-
verður hluti erlendu efnahags-
aðstoðarinnar lenti í vösum ráð-
herra og stuðningsmanna þeirra,
þótt aldrei hafi Balewa sjálfur
^verið bendlaður við þessa spill-
ingu.
Yakubu Gowon, ofursti.
Þessar innanríkisdeilur leiddu
til þess að herinn, undir forustu
Ibo-ættaðra foringja, gerði bylt-
ingu í janúar s.l. Yfirmaður
hersins var þá Johnson T.D.
Aguiyi Ironsi, hershöfðingi en
hann stóð ekki sjálfur að bylt-
ingunni. Byltingarmönnum tókst
að steypa stjórn Balewa, og var
Balewa drepinn ásamt mörgum
öðrum leiðtogum norðanmanna.
En byltingarforingjunum tókst
ekki að tryggja sér völdin í
landinu, heldur var það Ironsi
hershöfðingi sem nú tók við
stjórninni. Það var þó bót í máli
fyrir byltingarleiðtogana að Ir-
onsi var Iboi, og hafði lengi
verið andvígur þeim völclum,
sem Hausamenn höfðu farið með
í ríkisstjórninni.
Ironsi hét því að berjast gegn
spillingu í landinu. Jafnframt
lýsti hann því yfir að hann
hyggðist afnema völd héraða-
stjórnanna og auka að sama
skapi völd ríkisstjórnarinnar í
Lagos. Og eitt fyrsta verk hans
eftir valdatökuna var að banna
starfsemi allra stjórnmálaflokka
fyrst um sinn, meðan verið væri
að koma á nauðsynlegum breyt-
ingum.
Ekki féll það í góðan jarðveg
hjá Hausa-þjóðflokknum í
norðurhéruðunum þegar Ironsi
reyndi að draga úr völdum hér-
aðsstjórnarinnar. Óttuðust þeir
að Ironsi hyggðist færa öll völd
í hendur Iboa. Og ekki tókst
Ironsi að koma í veg fyrir áfram
haldandi deilur þjóðflokkanna,
né að sameina íbúana í eina
heild. Deilurnar jukust, og mikil
óánægja ríkti í norðurhéruðun-
um.
Þessi óánægja leiddi loks til
þess að herforingjar frá Hausa-
þjóðflokknum gerðu byltingu á
föstudag í fyrri viku. Aðal átök-
in urðu í suð-vesturhluta lands-
ins, í nágrenni höfuðborgarinn-
ar Lagos. Urðu harðir bardagar
um flugvöllinn, sem er 22 kíló-
metra frá Lagos, en einnig var
barizt í borgunum Ibadan, Ikeja
og Abeokuta. Ironsi var staddur
í Ibadan, þegar byltingin var
gerð, og þar var sagt að hann
hefði verið tekinn til fanga. En
síðan hefur ekkert til hans
frétzt, og talið víst að hann hafi
verið tekinn af lífi, ásamt fleiri
Ibo-leiðtogum.
Eftir bardagana á föstudag-
inn virtist stjórnin í Lagos hafa
náð undirtökunum. Og hófust þá
samningaviðræður við fulltrúa
byltingarleiðtoganna. Formaður
samninganefndar ríkisstjómar-
innar var B.A.O. Ogundipe hers
höfðingi, sem var næst valda-
mesti maður hersins á eftir
Ironsi fyrir byltinguna. En aðal-
fulltrúi byltingarmanna var for-
seti herráðsins, Yakubu Gowon
ofursti, sem þó hafði ekki verið
einn af leiðtogum byltingarinn-
ar. Haft er fyrir satt að Gowon
hafi farið fram á það að Ogund-
ipe myndaði nýja rikisstjórn, en
Ogundipe neitað. Niðurstaðan
varð sú að Gowon myndaði sjálf
ur stjórn, og er hún aðallega
skipuð norðanmönnum úr Hausa-
þjóðflokknum.
Eftir að Gowon hafði tekið við
stjórnartaumunum, flutti hann
útvarpsávarp til íbúanna. Hann
kvaðst ekkert vita um örlög Ir-
onsis, og hrósaði fyrirrennara
sínum fyrir tilraunir hans til að
sameina þjóðirnar í Nigeríu. En
hann kvaðst harma það að hug-
myndir Ironsis um sameinaða
Nígeríu ættu sér enga stoð í
veruleikanum. Hét hann Níger-
íubúum því að ástandið í land-
inu yrði tekið til alvarlegrar at-
hugunar, og er búizt við því að
nýja ríkisstjórnin efli að nýju
völd héraðastjórnanna.
Gowon ofursti virðist seztur
í sæti Balewa fyrrum forsætis-
ráðherra, sem myrtur var eftir
janúarbyltinguna. Hann nýtur
stuðnings Hausa-þjóðflokksins,
og hefur tekið upp stefnuskrá
Balewa. Hve lengi Gowon tekst
að halda í stjórnvölinn er erfitt
að segja. Hann hefur heitið því
að koma á borgarastjórn í land-
inu, og má vera að það takist.
En hitt getur einnig gerzt að
óánægja Iboanna með stjórn
norðanmanna leiði til nýrrar
janúarbyltingar.
Sameining
sósíalista
Um síðustu helgi sátu fulltrú-
ar ítalskra jafnaðarmanna og
sósíalistaflokks Pietro Nennis á
ráðstefnu, og lauk þeim viðræð-
um með samkomulagi um að
sameina flokkana og stefnuskrár
þeirra í öflug samtök hægafara
vinstrimanna. Verður samkomu
lag þetta lagt fyrir miðstjórnir
flokkanna í september, og síðan
fyrir ársþing flokkanna í októ-
ber til staðfestingar. Fáist sam-
komulagið staðfest, lýkur þar
með rúmlega átján ára innbyrð-
is deilum ítalskra sósíalista, sem
hafa orðið til þess eins að veita
vatni að myllu kommúnista.
Klofningur varð í ítalska sósíal
istaflokknum árið 1948 þegar
vinstri armur flokksins, undir
forustu Nennis, vildi taka upp
nána samvinnu við kommúnista.
Fylgdi meirihluti flokksmanna
Nenni að málum, en minnihlut-
inn, undir forystu Giuseppe
Saragats, núverandi forseta
Ítalíu, myndaði nýjan flokk só-
síaldemókrata, eða jafnaðar-
manna. Eftir það hefur sósíal-
istaflokkurinn jafnan verið
kenndur við leiðtogann Nenni,
og flokksmenn almennt nefndir
N enni-sósíalistar.
En það er af Nenni að segja
að hann varð fyrir sárum von-
brigðum af samvinnu við komm-
únista. Olli því Stalínismi eftir-
stríðsáranna. En upp úr sauð
þegar sovézki herinn bældi niður
uppreisnartilraunina í Ung-
verjalandi árið 1956. Eftir
það dró úr stuðningi Nenni-sósíal
ista við kommúnista, og lauk
þeim stuðningi að fullu og öllu
árið 1961, þegar flokkurinn á-
kvað að sýna samsteypustjórn
kristilegra demókrata og jafn-
aðarmanna „hlutleysi “og jafn-
vel veita henni beinan stuðning
í ýmsum málum. Gekk svo í
tvö ár, eða þar til eftir kosn-
ingar 1963.
í janúar 1964 var mynduð ný
stjórn á Ítalíu, og gekk þá flokk-
ur Nennis til beinnar samvinnu
við kristilega demókrata og jafn
aðarmenn. Varð Pietro Nenni
skipaður vara forsætisráðherra,
og hefur gengt því embætti síð-
an. Ekki voru allir flokksbræð-
ur Nennis ánægðir með sam-
vinnuslitin við kommúnista, og
fyrir tveimur árum sögðu 30
þingmenn sig úr flokknum og
mynduðu nýjan flokk vinstri
sósíalista, sem hóf náið samstarf
við kommúnista.
Er talið fullvíst að með sam-
einingu sósíalistaflokkanna verði
þeim auðveldara að vinna fylgi
almennings og höggva skörð í
raðir kommúnista, auk þess sem
þeir fá meiri ítök innan sam-
steypustjórnarinnar á Ítalíu.
Á ráðstefnu fulltrúa flokkanna
um síðustu helgi var gengið frá
bráðabirgða stefnuskrá þeirra, ef
til sameiningar kemur. Er þar
lögð áherzla á að flokkurinn
nýi muni styðja allar tilraunir
til að koma á varanlegum friði
í heiminum, draga úr spenn-
unni, og bæta sambúð Austurs
og Vesturs. Sérstaka athygli vek-
ur yfirlýsing um stuðning nýja
flokksins við Atlantshafsbanda-
lagið, en flokkur Nennis barð-
ist áður fyrir úrsögn Ítalíu úr
samtökunum. Nú segir í yfir-
lýsihgunni að nýi flokkurinn
viðurkenni allar skuldbindingar
ftala varðandi NATO, og sjái
fram á að hætta geti stafað af
breytingum á jafnvægi því, sem
nú ríkir í herstyrk þjóðanna.
Pundinu forðað
SAGT er í London að efnahags-
málaráðherra Breta hafi nýlega
boðið lítt þekktum Arabahöfð-
ingja til kvöldverðar, Hér hafi
þó ekki verið um neina ofrausn
að ræða, því höfðingi þessi var
enginn annar en sendiherra Ku-
wait í London. Og í Englands-
banka eru geymdar 300 milljón-
ir sterlingspunda, sem eru hluti
af hagnaði furstans þar af olíu-
vinnslu í landinu. Ef furstinn
móðgaðist við Breta og flytti fé
sitt úr landi, þýddi það gengis-
hrun pundsins. Svo valt er pund
ið í dag.
Ríkisstjórn Verkamannaflokks
ins, undir forsæti Harolds Wil-
sons, hefur um nokkurt skeið
undirbúið . róttækar aðgerðir til
að efia pundið og bæta efna-
hag landsins, og aðgerðir þess-
ar eru nú orðnar almenningi
kunnar. Beinast þær fyrst og
fremst að því að binda kaup-
gjald og verðlag næstu sex mán-^
uðina, en að þeim tíma liðnum
verða hækkanir aðeins heimil-
aðar í ndyðartilfellum þar næstu
sex mánuði. Virka aðgerðirnar
aftur fyrir sig, þannig að ýms'r
starfshópar, sem fengið höfðu
samninga eða loforð um kaup-
hækkanir, verða að bíða hækk-
ananna í allt að því eitt ár.
Áður en aðgerðirnar komu til
framkvæmda hafði stjórn brezku
alþýðusamtakanna, T.U.C. (Trad
es Union Congress) samþykkt að
mæla með kaupbingingu í sex
mánuði með ýmsum skilyrðum.
En þau skilyrði voru ekki tekin
til greina, og kaupbindingin á
að gilda í heilt ár í flestum til-
fellum. Er því talið víst að rík-
isstjórnin verði fyrir hörðum
árásum á ársþingi T.U.C., sem
haldið verður í Blackpool í sept-
ember. Atvinnurekendur hafa
tekið málinu betur, og hafa sam-
tök iðnrekenda, C.B.I., lýst yfir
fullum stuðningi við bindingu
kaupgjalds og verðlags í sex
mánuði, ef það megi verða til
þess að bjarga sterlingspundina
frá hruni.
Talsmenn ríkisstjórnarinnar
segja að með aðgerðum þessum
sé stefnt að tvennu. í fyrsta lagi
að stöðva sí-vaxandi dýrtíð, sem
hefur orsakað 9,6% hækkun á
almennum launagreiðslum á síð-
asta ári, og í öðru lagi eiga að-
gerðirnar að vera verkamönn-
um og atvinnurekendum hvatn-
ing til framleiðsluaukningar. En
á síðara sex mánaða tímabilinu
eru kauphækkanir nærri ein-
göngu heimilar þegar um beina
framleiðsluaukningu er að ræða.
Erfiðast verður fyrir verka-
lýðssamtökin að samþykkja
frestun á kauphækkunum, sem
þegar höfðu verið boðaðar áður
en nýju aðgerðirnar komu til
framkvæmda. Þannig átti t.d.
kaupgjaldsvísitalan að hækka í
Bretlandi hinn 1. september n.k.
en úr þeirri hækkun verður ekki
fyrr en í fyrsta lagi 1. marz
næsta ár. Læknar og tannlæknar
höfðu nýverið samið um kaup-
hækkanir hjá brezka sjúkrasam-
laginu, en þær hækkanir eru úr
sögunni í bili. Og Harold Wilson
hafði heitið starfsmönnum brezku
jámbrautanna kauphækkun í
september, til að koma í veg
fyrir boðað verkfall, en jám-
biautarstarfsmennirnir verða að
bíða eins og aðrir.
En það eru ekki aðeins al-
þýðusamtökin, sem eru andvík
stefnu stjórnarinnar í efnahags-
Framhald af bls. 23
Happdrætti DAS
hlk kr. vinninp'ar í 1 flnkkf • omnn onmn nn^n nn
5. þús kr. vinningar í 4 flokki.: 31466 31673 32100 32442 33187
1067 1702 1888 2173 2546 33789 34099 34128 34904 35215
2710 2832 4396 4669 5171 36061 36194 36301 36531 37309
5203 5266 5280 6185 6711 38730 39231 39669 39801 39872
6741 7892 7925 8197 8412 40359 40562 41015 41047 41091
8656 8697 9069 9246 10021 41133 41327 42499 42649 42652
10157 10535 10692 10714 11190 43226 43413 43629 43971 43978
11370 12381 12468 12674 12737 44246 44267 44502 44535 44538
12913 13023 13596 14271 14419 45294 45372 46944 46970 47090
14481 14896 14972 15018 15061 47477 47 n\ 48885 48963 49038
15638 15705 16141 16789 16927 49886 492« 50260 50442 50909
17011 17065 17659 17953 18134 51228 51298 52007 52359 52664
18286 18347 19413 19452 18468 52939 53068 53135 53142 53898
19555 19803 19878 20503 20514 54350 54815 55400 55546 57128
20826 21027 21087 21112 21949 57444 57722 57744 57856 57893
22484 22420 22643 22654 22848 58010 58334 58380 58388 58522
22968 23228 23244 23640 23704 58545 58766 58775 58852 59075
23769 23827 23830 24242 24887 59825 59973 60216 60463 60885
24925 24990 25098 25955 25915 60985 61210 61669 62231 62723
26772 26844 26996 27070 27220 62815 63045 63069 63132 63377
27362 27725 28713 28768 28897 63449 63921 63968 64003 64129
29044 29465 29586 29834 30382 64524 64890
30430 30551 31165 31229 31417 (Birt án ábyrgðar)