Morgunblaðið - 06.08.1966, Side 15
LaugarcTagur 8. ágúst 1986
MORGU N BLAÐIÐ
15
„Varúö á vepm“ óskar eftir
samstarfi við almenning
I gerð er mjög misjafn, og ljóst,
að vankanja á því sviði má bæta
ef vilji er fyrir hendi.
BLA.ÐINU hefur borizt eftirfar-
andi fréttatilkynning frá samtök
nm þeim, sem kalla sig „Varúð á
vegum“. Er þar í minnzt á marga
þá hluti, sem hefur borið á góma
í umferðarþáttum blaðsins. Þá er
lögð áherzla á í þessarri frétta-
tilkynningu, að ökumenn og aðrir
vegfarendur láti samtökin vita
um vankanta við umferð, svo að
hægt sé að kynna sér staðhætti
og bæta úr eftir megni.
Frétfatilkynning
Landssamtökin um Varúð á
Vegum vilja beina þeirri áskor-*
un til landsmanna, að vera vel
á verði gegn hverskonar hætt-
um, sem mæta þeim á vegum
landsins, jafnt í bæjum sem úti
á vegum.
Þrátt fyrir mikið og gott átak
vegamálastjórnarinnar í að bæla
vegi og merkja hættulega staði,
eru víða iila merktar og ómerkt-
ar hættur.
Bæja og sveitafélög leggja
drjúgt af mörkum til bættra
samgangna og umferðarað-
stæðna, en það vantar oft á tíð-
um, að öryggi sé þar í fyrirrúmi.
•fc Blind horn ómerkt.
Sem dæmi má nefna, að víða
í bæjum og á vegum úti eru
blind horn, ómerkt eða ekki bú-
ið svo að, að gangandi né akandi
hafi aðstöðu til að fara þar um,
án stórhættu.
Víða eru illa- eða ómorkuð
gatnamót, þar sem ökumenn eða
aðrir vegfarendur, geta ekki gert
sér fyliilega Ijóst, hvar þeir eigi
að fara. Víða er alveg vöntun á
gangvegum eða gangstéttum,
gangvegir ekki aðskildir frá ak-
brautinni. Eða þá, að þótt rými
sé fyrir gangandi vegfarendur,
er ógerlegt að notfæra sér það.
Víða eru mjög illa eða ekkert
upplýstar götur og þá sérstak-
lega gatnamót, þar sem lýsingar
er mest þörf, og vænta má helzt,
að gangandi og ríðandi séu á
ferð í vegi fyrir ökutækjum.
Veitið upplýsingar.
Landssamtökin Varúð á veg-
um, hafa að markmiði sínu, að
vinna gegn umferðarslysum.
Samtökin hvetja landsmenn til
að veita aðstoð með upplýsingum
um ástand gatna, vega, lýsingu
og annað, er þeir telja máli skipta
til aukins öryggis í sínu heima-
héraði og annarsstaðar.
Sérstaklega vilja samtökin
vilja beina áskorun þessari til
meðlima samtakanna, langferðar-
bílstjóra og annara, sem margsinn
isis fara um vegi og þekkja vel
aðstæður og geta gert sér glögga
grein fyrir hættunum.
Þeir sem vildu vera samtökun-
um hjálplegir um framangreind-
ar upplýsingar, eru vinsamlega
beðnir að, senda þær bréflega
þar sem viðkomandi ástandi er
lýst og í hverju meginhættan
er fólgin. Gött væri ef lauslegur
uppdráttur og / eða ljósmynd
fylgdi af stöðunum.
Varúð á vegum, Slysavarnahús-
inu Grandagarði, Reykjavík.
Þá væru upplýsingar og við-
töl símleiðis vel þegnar. Simi
samtakanna er: 20360 og 20365.
Þá væri ánægjulegt, að þeir
sem hefðu fram að bera mál, sem
varða umferðaröryggi og varnir
gegn slysum heimsæktu fram-
kvæmdastjóra samtakanna í húsa
kynnum þeirra i Slysavarnarhús-
inu.
F.h. stjórnar Varúðar á
vegum.
Sigurður Ágústsson,
framkv. stj.
Bfindar hæðir.
Víða eru vegir sveigðir fyrir
hæðir og klettanafir svo blind-
Þessl mynd er samsett úr mör gnm slysamyndnm. Takitf myi.d
ina til rækilegrar athugunar, og látið hana verða yður að
kenningu. Tökum höndum sa man og fækkum slysum á landi
okkar. Enginn veit fyrir, hver næst lendir í slysi. Ég eða þú
börn okkar eða aðrir ástvinir. Forðum slysum með bví að
sýna varúð á vegum'
A7
oangbraut
Minnkum slysin!
horn myndast, þótt vegurinn sé
að öðru leyti greiðfær. Slíka
hættu mætti hæglega minnka
með breikkun á veginum, merk-
ingu, eða með því, að aðskilja
brautina með strikum og merkj-
um.
Þakkarverð er sú framkvæmd
vegargerðarmanna með því að
aðskilja akbrautir á blindhæð-
um en ennþá eru mjög víða
hættulegar blindhæðir.
stórkostlegri, ef útafakstur ætti
sér stað, þar sem vegur liggur
í giljum og fjallahlíðum.
Frágangur við vega- og gatna-
Varúð á vegum
er bandalag félagssamtaka til
varnar umferðarslysum og til
eflingar umferðarmenningu á
íslandi.
Án samstarfs og samvinnu
Við almenning, ýmiss félög og
opinbera aðila, geta samtökin
litlu sem engu áorkað.
En
með fullu samstarfi við alla
þá aðila, sem af heilum hug
vilja draga úr hinum ógnvekj-
andi umferðarslysum, geta sam-
tökin orðið þess megnug að
fækka þessum slysum til mik-
illa muna.
Áskorun
Samtökin beina þeim tilmæt-
til allra landsmanna að þeir
komi, hringi eða skrifi og bendi
á það, sem betur má fara I um-
ferðarmálum okkar, og m.a.
hættulega staði á þjóðvegum
landsins og á götum bæjanna,
og m.fl.
íslendingar
Tökum öll höndum saman og
vinnum nú þegar með öllum til-
tækum ráðum, að fækkun um-
ferðarslysa.
Varúð á vegum
Hús Slysavarnafélags íslandb
Grandagarði, Reykjavík.
ár Hættulegar brýr.
Hrörlegar og hættulegar brýr,
eru viða og aðkeyrsla að þeim
er ómerkt. Víða þarf að gera
varnargirðingar á vegbúnir við
brýr og þar sem hætta er á útaf-
akstri, vegna slæmra skilyrða.
Þá eru ekki síður þörf slíkra
ráðstafana, þar sem slysahætta er
Óvarlegur akstur á beygjum, þar sem oft er mikil lausamöl í köntum vegarins, veldur oft al-
varlegum slysum. Þessi bíll hefur lent utan vegarins, og er mikið skemmdur. Varúð á vegum
ætti því að vera kjörorð allra ökumanna.