Morgunblaðið - 06.08.1966, Síða 23

Morgunblaðið - 06.08.1966, Síða 23
Laugarðagur f. Sgúst 1966 MORGUNBLAÐID 23 við Loftleiðahótelið Skiluðu þýfinu INNBROT eru ekkert nýmaeli hér í Reykjavík, en á hinn bóg- inn er það nýmæli, að þeir sem innbrotin fremji skili þýfinu aft- ur, og gefi sig jafnvel fram. Rannsóknarlögreglunni bárust þó tvö þess konar tilfelli núna í vikunni, í öðru var þýfinu skilað aftur, en í hinu gaf sá er inn- brotið hafði framið sig fram, og skilaði þýfinu jafnframt. Fyrir skömmu var brotizt inn í Axminster, Geisla og Múla- kaffi. Hafði þjófurinn þar með sér m. a. nokkuð af peningum og dýra myndavél. Á miðvikudag sl. gaf sig maður svo fram við rannsóknarlögregluna, k v a ð s t hafa brotizt inn í áðurnefnd fyr- irtæki í ölæði, og vera kominn til þess að skila þýfinu. Fyrir skömmu var og brotizt inn í verzlunina Rímu, og þaðan tekið talsvert af munum. Á mið- vikudaginn seint um kvöld var svo hringt á dyrasíma skrifstofu- stjórans í Rímu, og kvaðst á er talaði vera með pakka til skrifstofustjórans. Er hann kom niður, var engan böglaberann að sjá, en aftur á hióti lá pakkinn á tröppunum. Þegar gáð var að hvað í p>akkanum væri kom í ljós að hann hafði að geyma þýfið úr Rímu. Borgarastjórn lofað í Nígeríu Gowon vill ekki rœða örlög Ironsi Stutiið við bíl- stjéro í Slcipni SAMIÐ VAR sL fimmtudags- kvöld við bifreiðastjórafélagið Sleipni í Reykjavík, en áður hafði verið samið við bifreiða- stjóra innan Dagsbrúnar. Samd- is um 3.5% kauphækkun og 0,25% af dagvinnukaupi í orlofs heimilasjóð félagsmanna. En áð ur höfðu bifreiðastjórar innan Dagsbrúnar fengið sömu kaup- bækkun. — ElcJur i bát Framhald af bls. 24 hvalbak, af ótta við að eldurinn myndi valda sprengingu í olíu- tönkunum. Hafði skipshöfn og blásið út gúmmbjörgunarbát, og þegar við á Maríu Júlíu komum að þeim flaut báturinn við bak- borðssíðu skipsins. Slökkvistarfið gekk allvel og iþegar sýnt þótti að öllu mundi óhætt, og sprengilhættan var liðin hjá fór annar vélstjórinn af Maríu Júlíu, Gúðmundur Magn- ússon, með véldælu um borð í Fiskaklett, og slökkvistarfinu haldið áfram með henni. skipið var tekið í tog og haldið áleiðis til Keflavíkur, en skipin voru þá rétt um 4'/2 sjómilu norðnorðaust ur af Hólmsbergsvita. í þann mund er sýnt þótti að eldinn tók að lægja í vélarúminu bjó stýrimaðurinn þar um borð sig út með reykgrímu frá varð- skipinu, fór niður í vélarúm, og tókst honum a'ð slökkva eldinn, sem var í rafmagnstöflu skipsins. Kl. 9.45 tilkynnti skipstjórinn á Fiskakletti svo í gegnum talstöð- ina þar um borð, sem hann gat nú komizt að, að hann teldi eld- inn að mestu slökktan, og áhöfn hefði fullt vald yfir honum. Klukkan rúmlega 11 fyrir há- degi komum við með Fiskaklett að bryggju í Keflavík, og var slökkviliðið þá reiðubúið á bryggjunni, og lagði síðustu hönd á að slökkva eldinn, sem enn reyndist vera milli þilja bak við rafmagnstöfluna í vélarúminu. Lítilsháttar skemmdir udðu á skipunum er lágu hlið við hlið .úti á sjó, en slys engin. Ekki eru kannaðar skemmdir á Fiska- kletti af völdum eldsins, en talið er að þær séu allmiklar. Skipið hefur að undanförnu verið að humarveiðum, og var ætlunin að stunda þær til 15 .ágúst. — Erlend tiðindi Framhald af bls. 13 málum, heldur einnig fjöldi á- hrifamanna innan Verkamanna- flokksins og jafnvel innan ríkis- stjórnarinnar. Er talið fullvíst að Wilson neyðist til að gera ein- hverjar breytingar á stjóminni á næstunni, og hafa a.m.k. tveir ráðherrar lýst því yfir að þeir hafi í hyggju að biðjast lausnar. En deilur þessar innan flokks- ins munu koma í ljós á ársþingi flokksins í Brighton 3.—7. októ- ber í haust. 1 VERKSMIÐJU Sindra við Borgartún er verið að vinna að stækkun á listaverki Ás- mundar Sveinssonar, mynd- höggvara, „Skýjaklýfnum", eða Gegnum hljóðmúrinn“, eins og hún var nefnd eftir að hafa farið á listsýningu í Danmörku. Það eru Loftleið- ir, sem keypt hafa listaverkið og ætla að setja það upp fyr- ir framan Loftleiðahótelið. Á myndinni hér að ofan er verið að vinna að listaverk- inu. Yfirsmiður er Jón Gunn ar Árnason, sem verið hefur — Gengisfelling Framhald af bls. 1 á afleiðingum gengisfellingar pundsins, komi til hennar. Annar hópurinn telur, að skerðing pundsins muni hafa mjög alvar- legar afleiðingar, en hinn, að af- leiðingar gengisfellingar verði vart aivarlegri en áður. Hinsvegar virðast flestir þeir, sem blaðið byggir frásögn sína á, vera sammála um, að gengisfell- ing kunni að vera fyrir dyrum, hver svo sem ummæii Wilsons séu. Þær ráðstafanir, sem nú sé verið að boða í Bretlandi, stað- festi, í stað þess að vísa á bug, hugmyndir manna um, að sterlingspundið sé í hættu. við nám í Englandi og lært þar stækkanir á listaverkum. Þriðji hluti verksins er nú búinn, en eftir er að þekja listaverkið eirplötum og veg ur eirinn, sem fara mun í listaverkið um það bil 1 tonn. Höggmyndin mun verða um 3,60 m að hæð. Á myndinni er yfirsmiður- inn Jón Gunnar Árnason og Óskar Einarsson, sá er séð hefur um framkvæmd verks — Vietnam Framhald af bls. 1 að heilt herfylki N-Víetnam- manna (Víetcong) hefði nú lagt undir sig þetta svæði. Fréttamaður spurði Rusk að þvi í dag, hver væri á því mun- urinn að senda herlið inn á hlut- lausa svæðið og gera innrás í N- Víetnam. Svar hans við þessari spurningu er ekki gefið í frétt- um, orðrétt, en fréttastofan NTB segir, að það hafi verið á þá leið, að það vísi ekki á bug 'þeim möguleika, að Bandaríkin sendi herlið inn í N-Víetnam, gerist þess þörf, vegna öryggis bandarískra hermanna. Annar fréttamaður spurði Rusk, hvort hann teldi það rétt, sem fram hefði verið haldið, a'ð Bandaríkin hefðu í hyggju að kalla heim stóran hluta herliðs síns í Evrópu. Segir NTB, að svör Rusks við þessari spurningu skjóti ekki fyrir það loku, að slík heimköllun verði fyrirskip- uð. f lok fundar þess, sem Rusk hélt með blaðamönnum í dag, hafnaði hann þeirri fullyrðingu sovézka utanríkisráðuneytisins, að bandarískar flugvélar hefðu ráðizt á sovézk skip við strendur N-Víetnam, nánar tiltekið við hafnarborgina Haip'hong. Sovézka utanríkisráðuneytið afhenti í dag bandaríska sendi- ráðinu í Moskvu mótmælaorð- sendingu, vegna þess, að slíkir atburðir hefðu átt sér stað. — Sendiráðið sendi orðsendinguna aftur, og sagði, að hér væri um a'ð ræða ákæru, vegna glæpsam- legs athæfis, sem haldið væri fram, að Bandaríkin hefðu að- hafzt — en væri ekki sönn — og því væri ekki hægt að veita henni móttöku. Lagos, 4. ágúst — NTB: HERFORINGJASTJÓRNIN í Níg eríu sleppti í dag úr haldi 15 stjórnmálamönnum, sem hneppt ir voru í fange'si á sínum tíma, er Johnson Aqui-Ironsi, herfor- ingi, sem nú var steypt af stóli, gerði byltingu gegn stjórn Níger íu. Jafnframt lýsti hinn nýi vald hafi land«ins. Yakubu Gowon, ofursti, yfir þvi á blaðamanna- mundi, að borgarastjórn yrði kom ið á í Nígeríu eins fljótt og auð ið yrði. Ofurstinn sagði á þessum fyrsta fundi sínum með frétta- mönnum eftir að hafa tekið völd í landinu með byltingu, að bann ið við starfsemi stjórnmálaflokka yrði áfram í gildi, en hann bætti því við, að það yrði bráðlega af numið, og landið myndi þá fá borgaralega stjórn að nýju. Ekki vildi Gowon svara spurn ingum blaðamanna um hvort Hoppdrætti H.S.S.R. Dregið hefur verið í happ- drætti Hjálparsveitar skáta í Reykjavík. Vinningsnúmerin voru: Fjölskyldutjald nr. 3998 Háfjallatjöld nr. 1230, 1417, 1629, 1945 Jöklatjöld nr. 302, 333, 1365, 4330, 6545. Hjálparsveit skáta í Reykja- vík þakkar almenningi góðar undirtektir. Vinningshafar hafi samband við skátabúðina. — Fiaf Framhald af bls. 1 ar eru fullnýtt, framleitt 600.000 bifreiðar á ári. Verksmiðjan verður reist undir umsjá ítalskra sérfræð- inga. Mun hér vera um 'að ræða tilraun sovézkra leiðtoga til að hagnýta sér það, sem bet- ur fer á Vesturlöndum en í tilraunalþjóðfélagi því, sem nú hefur verið rekið þar eystra í hálfa öld, — og ekki hefur getað séð þjóðinni fyrir nægum farkostum. Bonn, 5. ágúst — NTB: LUDWIG Erhard, kanzlari V- Þýzkalands, sagði í dag, föstu dag, að tækist ekki að koma í veg fyrir verðbólgu þá, sem nú ríkir í V-Þýzkalandi, gæti svö farið, að v-þýzka stjórnin yrði að grípa til ráðstafana, svipaðra þeirra, sem brezka stjórnin hyggst nú grípa til. hann vissi nokkuð um örlög Ironsi hershöfðingja. Ironsi var handtekixm af uppreisnarmönn- um sl. föstudag, og óstaðfestar fregnir herma, að þeir hafi ráð- ið hann af dögum. Stúlka slasast ÞAÐ slys varð í gærdag, að starfsstúlka Kassagerðar Reykja víkur fór með hendi í vél og slasaðist allmikið. Var hún flutt í Slysavarðstofuna og þaðan á sjúkrahús. — Héraðsmót Framhald af bls. 11 kísilgúrmálið er hér auðvitað efst á baugi sem stendur. — Og hvernig lízt þér á það? — Ég veit ekki hvað skal segja, get ekki lagt neinn dóm á, hvort það verður til góðs eða ills, úr því verður reynslan ein að skera, úr því sem komið er. Fyrst að byrja’ð var á þessu, verður ekki aftur snúið. — Hver rök finnst þér helzt mæla með og móti kísiliðjunni? — Með henni mælir fyrst og fremst það, að frá þjóðihagslegu sjónarmiði virðist hún æskileg og jafnframt skapar hiún meiri vinnu fyrir sveitina og næsta nágrenni. Á hinn bóginn er hætt an á, að skemmdir verði á nátt- úrulífi Mývatnssveitar, silungi og fugli — og að sérkenni lands- lagsins verði skert meira en ella hefði orði'ð. Ég er hinsvegar ekki svo hræddur við þetta, svo fram arlega, sem allir leggja á eitt með að gæta þess, að ekki verði slys, sem valdf því t.d. að olía fari í vatnið. Leggist allir á eitt uim að fyrirbyggja slys, held ég þetta geti tekizt og orðið til góðs. — Sækir unga fólkið burt héð- an? — Já, nokkuð. — Þáð fólk, sem fætt er eftir stríð, hefur einkum flutzt burt, — sökum þess, m.a., að jarðir hafa allar verið setnar og ræktunarskil- yrði víða lítil. Auk þess er dýrt að koima upp búi. Konurnar rjúka auðvitað allar í burtu — en það er út af fyrir sig ekki svo slæimt, þær giftast burt og við náum í konur í aðra landsfjórð- unga. Að mörgu leyti finnst mér það heppilegt, því þáð er ekki gott, að fólkið giftist of mikið innansveitar og verði of skylt. Hér búa ágætar konur, hvaðan- æva af landinu, — og virðast una sér vel hérna hjá okkur. Við kveðjum þennan unga myndarlega bónda úr Mývatns- sveit með þá hugsun ofarlega í kollinum, að konunum sé hreint ekki vorkunn að una sér þar vel, séu aðrir honum líkir þar í sveit- inni. — M3bj. Maðurinn minn, BJÖRN FRIÐRIKSSON , fyrrverandi tollvötður, andaðist 5. ágúst síðastliðinn. Ólöf María Sigurvaldadóttir. Hjartkær konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, STEINHILDUR SIGURÐ ARDÓTTIR Landakoti, Álftanesi, andaðist í sjúkrahúsi Hvítabandsins 5. ágúst sl. Sæmundur Hallgrímsson, börn, tengdabörn og barnabörn. (Ljósm.: Mbl. Sv. Þorm.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.