Morgunblaðið - 14.08.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.08.1966, Blaðsíða 2
f NORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 14. ágús*t 1966 Verðlaim úr siyrktar- sjóði Friðriks úttianda 2BENEDIKT Björnsson, fyrrum Tsóndi á Barkarstöðum í Mið- :firði, hefur nýlgea hlotið verð- laun fyrir skágrækt úr Styrkt- arsjóði Friðriks konungs áttunda íyrir framúrskarandi dugnað og áhuga í skógrækt. Benedikt Björnsson er nú orð- 3nn aldraður maður, um áttrætt, en hefur undanfarin 40 ár sinnt meir um piöntun trjáa en aðrir í hans héraði. Með iðni og þraut seigju og aðstoð góðra manna hefur hann komið upp stórum trjálundi neðarlega við Austur- árgilið suður aí bænum á Bark- arstöðum. Þegar Benedikt hófst handa um trjáplöntun, var ekki um auðugan garð að gresja að því er plöntuval snerti. Varð hann að láta sér nægja fáar og smáar birkiplöntur hin fyrstu ár en Ottawa, 13. ágúst — NTB Lester Pearson, forsætisráð herra Kanada sendi í dag fimm dala ávísun til Harold Wilson forsætisráðherra Breta Var hér um að ræða veð- mál, sem Pearson tapaði. Veð málið stóð um sigur í heims- / meistarakeppninni í knatt- spyrnu. smám saman hefur fjölbreyttnin aukist, og nú eru að vaxa upp ýmsar trjátegundir undir hand- arjaðri Benedikts og fjölskyldu hans. Áður en langt um líður, mun vöxtur hinna ýmsu trjáteg- unda gefn góðar bendingar um, hvað rækta roegi á þessum slóð- um í Miðfirði begar fleiri bænd- ur vilja fara að fordæmi hans. Þetta framtak Benedikts er þeim mun lofsverðara sem Mið- fjörðurinn hefur ekki verið talin álitleg sveit til skógræktar. Er hann því vel að verðlaunun- um kominn. Skógræktarsjóður Friðriks konungs áttunda var stofnaður árið 1908 til minningar um för konungs til íslands árið 1907. Sjóðurinn var upphaflega kr. 10.000,— sem var mikið fé á þeim tímum, en hann hefur gengið saman líkt og aðrir sjóð- ir með verðfalli peninganna. En með því að veita ekki verðlaun nema með nokkurra ára milli- bili, hefur þó tekist að sýna mönnum nokkra viðurkenningu fyrir dugnað í skógrækt. Sjóður- inn er í umsjá Stjórnarráðsins og veitir ráðuneytisstjóri At- vinnumálaráðuneytisins honum íorstöðu. Frá þingi ungtemplara að Jaðri. Ungiemplaraþingi lokið ÞING íslenzkra ungtemplara var sett að Jaðri í fyrrakvöld Til þings voru komnir 40 full- trúar víðs vegar að af landinu, auk margra gesta úr röðum æsku ÍÞfilímfíííITIIÍ MIIRCmiliLAUSINS Island - Wales á morgun Búizt við jöfnum leik ANNAÐ kvöld kiukkan 8 verð- ur landsleikur í knattspyrnu milli íslendinga og Wales-manna leikinn í Laugardal. Þetta verð- ur 42. landsleikur íslands í knattspyrnu og sá fyrsti sem leikinn er gegn Wales — fyrri A-Iandsleikurinn á þessu ári. ★ Bylting Landsliðsnefnd gerði sem kunnugt er heldur betur bylt- ingu í landsliðinu, þar sem hún valdi 8 leikmenn er ekki hafa áður leikið í A-landsliði. En „byltingin“ er þó ekki eins rót- tæk og á pappírnum lítur út fyrir, því bæði er að langt er liðið frá síðasta iandsleik og eins mmwi Dómarinn í leiknum Tage Sörensen. hitt að margir þeirra manna er nú skipa landsliðið hafa skipað ýmis úrvalslið og eru því ekki með öllu reynslulausir í úrvals- leikjum. Hitt er svo annað mál að ísl. knattspyrna hefur ekki verið rishá að undanförnu og ýmsir af þeim sem fyrir fáum mán- uðum voru taldar skærustu „stjörnurr.ar" hafa brugðizt von um knattspyrnuunnenda. Ef til vill er svo til „nýtt“ lið rétta lausnin og verður fróðlegt að sjá hvernig „vormönnum" knatt- spyrnunnar vegnar annað kvöld. •fa Sigurmöguleikar? Lið Wales er hér keppir er aðeins skipað áhugamönnum, en þar í landi er knattspyrn an tvískipt; áhugamennska og atvinnumennska. Lítið er vitað um styrkleika liðsins frá Wales, en ætla má að það sé svipað að styrkleika og áhugamannalið frá öðrum hlutum Bietlandseyja. Þau lið hafa keppt hér og oltið á ýmsu en oftasi hafa þau sigr- að með litlum mun. Af fyrri leikjum má því ætla að ísl. liðið hafi möguleika til sigurs. Landskeppni við A-Þjóðverja í tugþraut SfÐASTI hluti Meistaramóts ts- lands fer fram á Laugardals- vellinum 20. og 21. þessa mánað ar. Verður keppt í tugþraut fimmtarþraut kvenna, 4x800 m boðhlaupi og 10 km hlaupi. Samhljða þessu móti fer einnig fram landskeppni í tugþraut milli íslands og A-Þjóðverja. Koma fjórir a-þýzkir tugþrautar menn hingað til landsins þ. e. brír keppendur og einn farar- stjóri. Bezti tugþrautarmaður þeirra hefur náð um 7300 stig um sá næsti um 7000 og hin þriðji 6400. Keppendur fslands á móti þessu verða Valbjörn Þorláks- son, Kjartan Guðjónsson og ólafur Guðmundsson. Valbjörn j á bezt 7100, Kjartan 6800 og j Ólafur 6400. Tveim þeim fyrstu ' frá hvoru landi eru reiknuð stig í keppninni. * Árni Njálsson er fyrirliði í fyrsta sinn ef liðinu tekst vel upp og bar áttuviljinn er fyrir hendi frá upphafi til loka. Danskur dómari Dómari í leiknum verður Tage Sörensen frá 4rósum. Hann er einn af mörgum alþjóðadómur- um Dana og þykir traustur og góður dómari. Aðstoðarmenn hans í leiknurn verða Magnús V. Pétursson og Carl Bergmann. llægradvöl Lúðrasveit leikur á Laugar- dalsvellinum frá kl. 7.15, svo þeir sem koma snemma hafa góða og skemmtilega tónlist og einnig dagskrá er Samtök íþróttafréttamanna gef út til að stytta sér stundir lýðssamtakanna og bindindis- hreyfingarinnar. Þingið setti formaður ÍUT, séra Ár.elíus Níelsson. Magnús Jóns- son, óperusöngvari, söng. Séra Jón Bjarman, æskulý’ðsfulltrúi þjóðkirkjunnar, flutti ræðu um vandamál æskunnar. Þá flutti þinginu kveðjur og árnaðaróskir stórtemplar Ólafur Þ. Kristjáns- son. Flutt var skýrsla stjórnar og síðan var fulltrúum og gestum boðið til kaffidrykkju. í gærmorgun héldu þingstörf áfram. Ræddar voru tillögur nefnda og kosið í stjórn samtak anna. Séra Árelíus Níelsson báðst eindregið i/ndan endurkjöri og var Einar Hannesson, Reykjavík kjörinn formaður í hans stað. Voru séra Árelíusi þökkuð mikil og góð störf í þágu samtakanna á liðnum 8 árum. A'ðrir í stjórn ÍUT eru Grétar Þorsteinsson, varaformaður, Gunnar Þorláks- son, ritari, Hreggviður Jónsson, gjaldkeri, Alfreð Harðarson, fræðslustjóri, Aðalheiður Jóns- STUTTU MÁLI Moskvu, 13. ágúst. NTB. ANNAR aðalritari ísraelska sendiráðsins í Moskvu hefur verið rekinn úr landi í Sovét- ríkjunum. Sovézk yfirvöld halda því fram, að hann hafi stundað njósnir þar í landL París 13. ágúst — NTB 1 gærkvöldi var framið enn eitt sjálfsmorð í Eiffelturnin um í París. Er það 347. per- sónan, sem þannig styttir sér aldur þ.e. með því að kasta sér til jarðar úr turn- inum. Ýmsar ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að koma í veg fyrir, að fólk geti varpað sér til jarðar úr turninum. dóttir og Ásbjörg Poulsen. For- maður útbreiðsluráðs ÍUT er Sig urður Jörgensson, en formaður fjármálaráðs er Kristinn Vil- hjálmsson og formaður alþjóða- nefndar íslenzkra ungtemplara er Hilda Torfadóttir. Á þinginu var samþykkt starfs áætlun fyrir næsta ár, en þar er gert ráð fyrir ákveðnum mán aðarlegum verkefnum. Þá gerði Einar Hannesson. þingið samþykkt í áfengismálum. Þar er m.a. lýst ánægju með þá þróun, sem átt hefur sér stað í skemmtanahaldi um verzlunar- mannahelgina og sem hófst með bindindismótunum í Húsa- fellsskógi á sínum tíma. — Skorað er á löggæzluna í landinu að stórauka eftirlit með vínveit- ingum og komið verði í veg fyrir að fólk innan 21 árs aldurs sé veitt áfengi. Skorað er á fyrir- menn þjóðarinnar að hætta áfengisveitingum í opinberum veizlum. Um tóbaksmál gerði þingið ályktun, þar sem lýst er áhyggjum vegna aukinna reyk- inga ungs fólks og skorað er á ábyrga aðila að auka fræðslu um skáðsemi sígarettureykinga. Þingið hvetur ríkisstjórnina til að leggja fyrir næsta Alþingi frumvarp til laga um bann við tóbaksauglýsingum og skorað er á alþingismenn að samþykkja slíkt frumvarp. HÆGVXÐRI var um allt land í gærmorgun, víðast hvar sól- skin og hitir.n víðast orðinn 9 til 11 stig. Útlit er fyrir að góðviðrið haldist í dag, að minnst.a kosti um norðan- og austanvert landið. Lægðin við Suður-Græn- land fer heldur vaxandi og þokast norðaustur á bóginn. Eru þvi líkur á, að þurrkur haldist á N- og A-landi fram yfir helgi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.