Morgunblaðið - 14.08.1966, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.08.1966, Blaðsíða 19
Sunnudagur 14. ágúst 1966 MORCUNBLAÐIÐ 19 Valdimar Cuð- jónsson VALDIMAR Guðjónsson á Ný- lendugötu 6 er fæddur 14. ágúst 11881. Af kunnugum er hann kall- aður Valdi í Há'bæ. Nýlendugatan liggur að Norð- urstígnum, og iþar var Valdimar fæddur í húsi þar sem nú er 85 ára númer 3 og kallast Volti. Móðir Valdimars hét Jóhanna Jónsdóttir og var ættuð austan úr Holtum. Guðjón faðir hans var Jónsson fæddur í Rvík, í hinu svokallaða Skuggahverfi, en ólst 1 upp hjá Guðmundi Erlendssyni OZONETT er heimilistæki sem á að vera í hverri íbúð. OZONETT eyðir tóbaksreyk og hverskon- ar óþef. OZONETT er D-vítamíngjafi og þess vegna nauðsynlegt ungum sem gömlum. OZONETT vinnur á móti óhollustu, sem stafar frá ýmsum hitunarkerfum. OZONETT er ódýrt í rekstri, 2—6 kr. á rúmmeter á ári. OZONETT má nota sem lækningatæki við asma, til að græða brunasár og fleira. OZONETT er algjörlega hættulaust en bætir andrúrosloftið. OSONET LJÓS OG HITA Garðastræti 2. Varalampar verða til sölu. ATVIIMIMA Viljum ráða ungan og röskan mann til afgreiðslustarfa í verzluninni. Þarf að hafa kunnáttu í enskri tungu og áhuga á vélum. BLOSSI sf. Laugavegi 176 — Sími 37456. IMÝJUIMG! Eldtraustur krossviðuir leysir ótal vandamál — A SJÓ — Á LANDI. Fyrsta sendingin komin til landsins. Tökum á móti pöntunum. Hannes Þorsteinsson heildverzlun — Sími 24455. útvegsbónda í húsinu nr. 18 við Vesturgötu. Það hús var þá kall- að Rimma. Kona Valdimars er Þóra Ól- afsdóttir, bónda á Bakka í Leir- ársveit, mikil myndarkona. Hún varð áttræð 27. júlí síðastliðinn. Hún liggur nú sjúk. Valdimar Guðjónsson var bráð iþroska og afburða duglegur. Hann var með stærri mönnum, bar reisn og karlmennsku í fasi og var með sterkari mönnum. Hann fór 10 ára gamall til sjós og fékk 8 krónur á mánuði. Síð- ar lagði hann gjörva hönd á margt. Hann var mjög fiskinn, og frábær skytta var hann. Tvítugur fór hann til Vestur- heims og dvaldist þar nokkur ár. Á ferðum sínum komst hann í mörg ævintýri og mannraunir. Um (það hefur Sveinn Sæmunds- son blaðamaður skrifað mjög skemmtilega í 45. og 46. tölubalð „Fálkans“ 1965, og heita grein- arnar „I leit að fé og frama“. Þar segir nokkuð frá æskuárunum, atvinnu, sjósókn, sjávarháska og sjóslysum, siglingum til margra landa, fiskiríi á Winnipeg-vatni bæði að sumri og vetri, og af kynningu við Indíána. Hann skaut sér t. d. bjarndýr til matar og önnur villidýr. Sjálfur gerði Valdimar út bát á Winnipeg- vatni; og hann lenti í villum á ísum hins stóra vatns. Eftir að hann kom heim, keypti hann sér bát og stundaði sjómennsku, ýmist á eigin fari eða hjá öðrum. Hann lenti því oft í ýmspm svaðilförum og löng- um sjóferðum. Á ofanrituðu má sjá, að Valdi- mar var afburða duglegur. Hann byggði sér eitt sinn hús, og bar þá á bakinu upp úr fjörunni mestallt af mölinni sem fór í hans part af húsinu. — Á fyrri árum kynntust þeir Valdimar og Guðmundur Jónsson (kenndur við Helgastaði) faðir Kristmanns rithöfundar, og reri Guðmundur með Valdimar. Valdimar talar mjög hlýlega um Guðmund og segir hann hafa verið góðan dreng og skemmtilegan. Guð- mundur var atvinnu-veiðimaður og frábær skytta með 'byssu — og á hið talaða orð. Ungur kynntist ég Valdimar Guðjónssyni, og hefur hann ávallt vikið góðu að mér, og 'bið ég Guð að blessa hann og konu hans. Heilsa Valdimars er nú þannig, að hann hefur rétt fótavist. Ald- ur hans er líka orðinn æði hár. Hann segir, að nú séu samferða- menn sinir annaðhvort horfnir eða að kveðja. Honum liggja falleg orð til allra, iþó að stund- um væru menn ekki sammála; en það er jafnán eins og allt verði mildara og bróðurlegra þegar litið er langt til baka. Vinir Valdimars óska honum og konu hans, að þau megi hafa hug sinn opinn í trú á Jesúm Krist og eilíft líf. Ekkert styrkir hugann og hressir hjartað, og skapar hverju fótmáli öryggi, eins og hin milda trúarbirta. Lárus Salómonsson. EXPRESS - EXPRESS Við bjóðum litla, létta handknúna þvottavél frá Svisslandi. EXPRESS vélin er öll úr ryðfríu stáli, hún er gerð til að standa t.d. á vaskborði, og tekur iy2 kg. af þvotti í einu. Verð kr. 1785.- Sendum í póstkröfu. Búsáhöld Kjörgarði — Laugavegi 59. ÚTSALA ÚTSALA Gerið góð kaup Mik.il verðlækkun * KVENSKÓR KARLMANNASKÓR UNCLINCASKÓR BARNASKÓR ALLAR TECUNDIR Skótízkctn, Snorrabraut 38 Snyrtistofan Hátúni 4a Sími 18955 FÓTSN YRTIN G — H ANDSN YRTIN G ANDLITSBÖÐ — HÚÐHREIN SUN Guðrtín Þ. Vilhjálmsdóttir, snyrtisérfræðingur ITSALA Enn er hægt að gera góð kaup á útsölunni. Kápu- og dómubúðin Laugavegi 46.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.