Morgunblaðið - 24.08.1966, Page 1
28 síður
Frá jarðskjálftasvæðinu i Tyrklandi:
Biðja um fleiri skóflur
til uppgraftrar
Myndin er frá aðalgötunni í Verto, og sýnir verksumerkin eftir jarðskjálftann.
Istanbul, 23. ágúst — NTB
1 DAG varð enn vart við jarð-
hræringar í Tyrklandi, en
ekki er vitað um tjón af völd-
um þeirra. Flugvélar hlaðnar
lyfjum, fatnaði og öðrum
varningi streyma nú til Tyrk-
lands. Einnig hafa komið
læknar og hjúkrunarlið víðs-
vegar að úr heiminum til að
líkna særðum og sjúkum. Síð-
ustu tölur um mannfall af
völdum jarðhræringanna sl.
þriðjudag eru nú 2404, en bú-
ist er við að sú tala eigi eftir
að hækka mikið. Tyrknesk
yfirvöld hafa sent út beiðni
um fleiri skóflur til að nota
við uppgröft. Enn í dag hafa
heyrzt neyðarköll frá fólki,
Sprenging í
blökkumanna-
kirkju í Texas
Houston, Texas 23. ág. AP-NTB
Ein kona beið bana og 50 manns
slösuðust í gærkvöldi er mikil
sprenging varð í blökkumanna-
kirkju í bænum Plainview í
Texas. 150 manns voru í kirkj-
unni er sprengingin varð, og
eru margir hinna slösuðu taldir
í lífshættu. Ekki er vitað um
orsakir sprengingarinnar, en
slökkviliðsmenn segja að hún
hafi orðið undir kirkjugöifinu.
Sprengingin varð í lok guð-
þjónustunnar er verið var að
syngja lokasálminn. Var hún
mjög öflug og hrundi þak kirkj
unnar yfir söfnuðinn. Björgunar
sveitir komu þegar á vettvang
og tókst fljótlega að ná öllum
undan rústunum.
V-ÞYZKALAND:
Miklar deilur vegna brottvikn-
ingar yfirmanns flughersins
Æðsti yfirmaður hersins biðst lausnar
sem liggur grafið undir rúst-
unum.
í bænum Varto, sem verst varð
úti í jarðskjálftunum er tala lát
inna nú um 2250, en 1312 eru
alvarlega slasaðir.
Hjálp berst nú til Tyrklands
alls staðar að úr heiminum. Flug
vélar lenda stöðugt á Erzurum-
flugvellinum, sem er í 120 km.*’
fjarlægð frá Varto, með lækna,
hjúkrunarlið, lyf og matvæli.
Mikið fjármagn hefur borizt
til hjálparstarfseminnar. M.a.
hafa Páll páfi og U Thant sent
peningagjafir og Saudi Arabía
sendi í dag 10 milljónir ísl króna
til hjálparstarfseminnar.
Brezkar flugvélar hafa flutt
tilbúin hús, sem nota á sem
bráðabirgðasjúkrahús.
Tyrkneski herinn hefur yfir-
umsjón með björgunaraðgerðum
og sér um að útdeila matvælum,
tjöldum og teppum til nauð-
staddra. Enn skortir þó 850 tjöld,
og verða jafnmargar fjölskyld-
ur að sofa undir berum himni,
350 lestir af matvælum þarf dag-
lega til að seðja hungur fólks-
ins.
5?!i ' . ifciiiíiy '' iiiiiiiiii'íi® i : ■ ii'iii
Bonn, 23. ágúst — NTB
VESTUR-ÞÝZKA stjórnar-
andstaðan krafðist þess í gær,
að Kai-Uwe von Hassel, varn-
armálaráðherra V-Þýzka-
lands, segði tafarlaust af sér.
Fyrr um daginn hafði yfir-
manni flughersins, Werner
Panitzki hershöfðingja, verið
vikið úr embætti, en hann
hafði brotið gamla hefð innan
hersins, með því að gagnrýna
stjórnina opinberlega fyrir
aðgerðir hennar vegna hinna
tíðu Starfighter-slysa, en síð-
an 1961 hefur 61 orustuþota af
gerðinni Starfighter hrapað
til jarðar. Sagt er að Panitzki
Skæruliðar sökkva ame-
rísku herflutningaskipi
Helzta siglingarBeiðin til Saigon lokuð
hafi lagt fram lausnarbeiðni
áður en hann átti hið marg-
umrædda viðtal við stjórnar-
andstöðublað.
Æðsti yfirmaður v-þýzka
hersins, Heinz Trettner hers-
höfðingi, baðst í gær lausnar
frá embætti. Var frá þessu
skýrt í v-þýzka varnarmála-
ráðuneytinu seint I gær-
kvöldi. — Ástæðurnar fyrir
lausnarbeiðninni eru að sögn
Trettners þær, að varnar-
málaráðuneytið hafi með ó-
stjórn sinni gefið hermönn-
um í v-þýzka hernum tilefni
til að stofna með sér félags-
samtök til að gæta hagsmuna
sinna.
Formaður hermálanefndar v-
þýzka þingsins sagði í dag, að
Framhald á bls. 19
Roberts enn
leitnð
London 23. ágúst AP.
Brezka lögreglan heldur áfram
hinni umfangsmiklu leit að
Harry Roberts, sem grunaður
Framhald á bls. 10.
Saigon, 23. ágúst — AP-NTB.
MIKILVÆGASTA siglinga-
leiðin frá Saigon til hafs lok-
aðist í dag, er sprengja sprakk
í vélarrúmi bandarísks flutn-
ingaskips og sökkti því í
miðjum skipaskurðinum. —
Skipið var á leið til borgar-
innar hlaðið hergögnum. 45
manna áhöfn var á skipinu og
hiðu 7 skipsmanna bana. Tal-
ið er víst að skæruliðar hafi
komið sprengjunni fyrir.
Skipið, sem heitir „Baton Rouge
Victory“, var 10 þús. lestir að
stærð og var í leiguflutningum
fyrir Bandaríkjaher. Unnið er
dag og nótt við að ná skipinu upp
og þannig opna þessa mikilvægu
siglingarleið að nýju. Miklar
öryggisráðstafanir voru gerðar
í sl. mánuði til þess að hindra
að slíkir atburðir gætu átt sér
stað á siglingarleiðinni, en þrátt
fyrir þessar ráðstafanir hefur
skæruliðum tekizt að lauma
sprengjunni um borð.
Bandarískir landgönguliðar
gengu á land á ströndinni norður
af Vung Tau í gær, til þess að
hrekja hermdarverkamenn Viet
Cong af svæðinu norður af þjóð
veginum milli Saigon og Vung
Tau, en skæruliðar hafa hvað
eftir annað gert árásir á veginn.
Auk Bandaríkjamanna taka
ástralskir og s-vietnamískir her-
menn þátt í aðgerðunum, ásamt
bandarískum sprengjuflugvél-
um.
Bandarískar flugvélar gerðu
í dag loftárásir á stöðvar Viet
Cong nálægt landamærum
Kambodiu, en fregnir höfðu bor
izt um mikinn liðssöfnuð skæru-
liða á svæði þessu. Á mánudag-
inn réðust flugvélarnar á 12 olíu-
birgðastöðvar í N-Vietnam, og
voru 5 þeirra innan við 50 km
frá Hanoi. Þá eyðilögðu banda-
Framhald á bls. 3
Utanríkisráðherrar
Norðurlanda á fundi
Álaborg 23. ágúst NTB.
Utanríkisráðherrar Norður-
landanna fimm komu í dag sam-
an í Álaborg til hins árlega fund
ar síns fyrir Allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna sem hefst í
næsta mánuði. Ræddu ráðherr-
arnir ýmis alþjóðamál, svo sem
efnahagsvandamál, mál S-Afríku
Ródesíumálið, möguleika á upp-
töku Kína í S.Þ. og sjóðina, sem
nota á til baráttunnar gegn kyn-
þáttamisréttinu í S-Afríku. Einn-
ig ræddu ráðherrarnir tillögu
Jens Otto Kragh, forsætisráð-
Framhald á bls. 19