Morgunblaðið - 24.08.1966, Side 11
Miðvikudagur 24. Sgfist 1966
MORCUNBLAÐIÐ
11
Afgreiðslustulka
óskast í sérverzlun hálfan daginn. Ekki yngri en
25 ára. Tilboð sendist blaðinu fyrir laugardaginn
27. þ.m. merkt: „Sérverzlun — 4872“.
Húseignin
Ingólfsstræii 4 eir til solti
Tilboð, er greini verð og greiðsluskilmála sendist
Framkvæmdabanka íslands, Hverfisgötu 4, fyrir
30. ágúst n.k.
Félag íslenzkra
snyrtisérfræðinga
Fundur að Hótel Sögu fimmtudaginn 25. ágúst kl.
8.30. — Á fundinum mætir frú Delia Collins
frá London.
STJÓRNIN.
Símastúlka
Viljum ráða til starfa 20. september n.k. duglega
stúlku við símavörzlu. Æskilegt, að viðkomandi
hafi einhverja vélritunarkunnáttu. Vinnutimi frá
kl. 8—5 daglega og laugardaga frá kl. 8—12. Nánari
upplýsingar í skrifstofu íélagsins n.k. fimmtudag
og föstudaga milli kl. 9—12 f.h.
Sendisveinn
Röskur piltur óskast til sendisveinastarfa um n.k.
mánaðamót. Nauðsynlegt að viðkomandi hafi
reiðhjól til umráða.
Sláttirfélag Suðurlands
i
Glæsileg íbúð
Til sölu er vönduð 5 herbergja ibúð á 3ju hæð við
Ásgarð. Allt teppalagt. Sér hitaveita. Mjög fagurt
i útsýni. Bílskúrsréttur. Skipti hugsanleg á ca. 100
; ferm. íbúð tilbúinni undir tréverk. Verður einnig
að hafa fagurt útsýni. — Upplýsingar gefur
Austurstreeti 20 . Slrnl 19545
Austurstræti 20 — Sími 19545.
Atvinna óskast strax
Ung stúlka með kunnáttu í tungumálum og skrif-
stofustörfum óskar eftir atvinnu, sem fyrst. Tilboð
merkt: „812 — 4844“ leggist inn á aígreiðslu Morg-
unblaðsins fyrir 27. þ.m.
Ráðsmann vantar
á stúdentagarðana frá 1. okt. n.k Bókhalds- og
enskukunnátta nauðsynleg. Umsóknir sendist
Tómasi H. Sveinssyni Ásvallagötu 20 sem veitir
allar upplýsingar.
UTVARP REYKJAVÍK
ÚTVARPAÐ var, af segulbandi,
frá Skál'holtshátfð í sumar. Guð-
mundur Daníelsson, rithöfundur,
hélt ræðu. Sagði hann að vöxtur
og hnignun staðarins hefði jafn-
an fylgt hag landsins, er það
alveg eðlileg þróun. Rakti hann
sögu Skálholts í stórum dráttum
og mæltist skörulega. — Ég held
að ekki ætti að flytja aðsetur
biskups fslands að Skálholti og
eru til þess margar augljósar á-
stæður. Hitt er annað mál, að
gleðilegt er, að hin mikla og
fagra kirkja hefur nú verið reist
þar og að skóli verður þar von-
andi stofnsettur á kristilegum
grundvelli. — Auk ræ'ðu Guðm.
Daníelssonar las Guðmundur
Ingi Kristjánsson upp nokkur
ágæt kvæði, þar á meðal nýtt
mjög snjallt og fagurt kvæði um
Skálholt.
Þáttur Hólmfríðar Gunnars-
dóttur og Brynju Benediktsdótt-
ur 13. þ. m. fannst mér ekki um-
talsverður. í>ó talaði við þær
skáldkona, en nafn hennar var
svo ógreinilega sagt að ég heyrði
það ekki. Las hún tvö smákvæði,
annað frumorkt, hitt þýtt. Hún er
frá Vestdalseyri við Seyðisfjörð,
sem ruú er komin í eyði.
Leikrit William Bútler Yeats,
Kaðlín Hálfdánardóttir, þýðandi
Þóroddur Gúðmundsson, er ágætt
og prýðilega leikið af þekktum
leikurum. Yeats var afbragðs
skáld, einkum þó ljóðskáld. Ég
man ekki hvort hann fékk Nóbels
verðlaun, enda er það enginn al-
gildur mælikvarði á skáldskap.
En, sem sagt, leikritið var prýði-
legt, þótt stutt væri, tók langt
fram mörgum langlokum af því
tagi.
„Á náttmálum" heitir nýr þátt-
ur er þeir sjá um Hjörtur Páls-
son og Vésteinn Ólafsson. Hjört-
ur er þekktur útvarpsmaður, hef-
ur fagra rödd og flytur mál sitt
afburða vel. — Þeir töluðu fyrst
um Faust-söguna, þ.e. um leitina
að vísdómi í skáldskap og mann-
lífi, t.d. sögu Galdra-Lofts í þjóð-
sögum okkar, skráða af séra
Skúla Gíslasyni á Breiðaibólstað,
þeim mikla ritsnillingi. Mest
gátu þeir um hið fræga skáldrit
Goethes, Faust, sem lengi hefur
verið tali'ð, ásamt beztu leikrit-
um Shakespeares, hátindur skáld
rita heims. Sumum finnst það
veikleikamerki og ókostur á
Faust, að allt fer vel að lokum,
Gretohen fær hjálp frá himni
(Guði) og Faust vinnur gott verk
og bætir með því fyrir syndir
sínar, sögðu þeir. — Kynþátta-
vandræðin í Bandaríkjunum er
mikið vandamál. Þeir Hjörtur
sögðu frá ummælum svertingja
eins, menntamanns um þetta.
Segir hann meðferðina á svert-
ingjum hrottalega, einkum í Suð-
urríkjunum. Ku-Kux-Klan mis-
þyrma þeim, en lögreglan er þó
verst allra í garð negranna. Sagði
hann hryllilegar sögum um með-
ferð hvítra manna á negrum —
og einnig í Norðurríkjunum. —
Maður hefur heyrt þetta allt áð-
ur og veit að hér er mikið vauda-
mál á ferðum, einkum af því að
erlend öfl nota negrana til þess
að grafa undan þjóðskipulaginu í
Bandaríkjunum. GóðÍT og gegnir
menn, sem til þekkja hafa sagt
mér að negrarnir séu tiltölulega
mjög oft miklir gallagripir, latir,
þjófóttir og illir viðureignar. En
sjálfsagt mætti bæta þá með vin-
samlegri a'ðbúð, menntun á jafn-
réttirgrundvelli o. s. frv. Allt jf
lítið hefur verið gert til þess að
mennta og mannfoæta svertingj-
ana, þótt hundrað ár séu síðan
þrælahald var bannað í Banda-
ríkjunum. Margir líta ennþá á þá
sem hálfgerðar skepnur. Þetta er
vissulega svartur blettur á hinni
miklu amerísku þjóð.
Um daginn og veginn 15. þ. m.
talaði Magnús Torfi Ólafsson.
Taldi hann þá U Thant og Abba
Eban merkustu menn er hingað
hafa komið í sumar. Hefðu þeir
foáðir, fyrst og fremst talað um
rétt smáríkia off að áhrif beirra
fari vaxandi. Vaxtarbroddar
framfara eru oft hjá smáþjóðum
engu síður en stóru þjóðunum.
Bókmenntaafrek Gyðinga, Hell-
ena og íslendinga fyrr á öldum
sýna þa'ð. U Thant setur einkum
trgust á smáríkin að efla frið í
heiminum. Taldi ræðumaður að
kalda stríðinu mundi ljúka er
Rússar og Bandaríkjamenn köll-
uðu heri sína heim úr hinum
löndunum í Evrópu. Kvaðst vera
á móti hersetu Bandaríkjamanna
hér á íslandi. Bjóst við að verð-
bólgan kæmist á hættulegt stig í
haust. — Ekki vil ég dæma um
skoðanir ræðumanns en sammála
honum er ég ekki að mörgu leyti.
Ég trúi t.d. ekki öðru en stöðva
megi verðbólguna og að það verði
gert. Gangi ríkisstjórnin á und-
an, svo og alþingi og borgarstjórn
Reykjavíkur í sparnaði þá mun
öll þjóðin koma á eftir að undan-
skildum nokkrum óhófsmönnum
er flytja munu úr landi, öllum
að meinalausu.
Þáttur var í tilefni af hundrað
ára afmæli Höllu skáldkonu
Eyjólfsdóttur á Laugafoóli. Var
það einkar hugðnæn.ur og vel
fluttur þáttur. Baldvin Halldórs-
son gat helztu æviatriða Höllu
og las nokkur kvæði eftir hana
mjög vel og smekklega. Guðrún
Á. Símonar söng lög eftir Kalda-
lóns við kvæði skáldkonunnar
og hefur, að mínum dómi, aldrei
sungið betur. Veit ég að margir
hafa hlustað á þetta me'ð ánægju.
Þórður Örn Sigurðsson,
menntaskólakennari, talaði um
námskeið er hann sótti í sumar
og haldið var i Strassburg. Þetta
var mjög fróðlegt fyrir þá er með
kennslu og kennslumál fara. Var
um að ræða tungumálakennslu,
a'ðallega kennslu í talmáli á tækni
legan hátt. Hefur þetta, að sögn
Þórðar, gefist misjafnlega og
varla eins vel og við var búist.
Ég vil geta þess, að í þessum
þáttum verð ég að fara mjög
fljótt yfir sögu. Vel getur fallið
niður að geta um athyglisverð vg
ágæt erindi, því þa'ð er engum
manni ætlandi að hlusta á allt
sem Ríkisútvarpið hefur að-
bjóða.
Þorsteinn Jónsson.
Sumarkjólar -
verðlœkkun
Seljum meðan birgðir endast.
Strigakjóla á kr. 298 áihir 38$
Zantrelkjóla á kr. 240 áður 340
Delsetkjóla á kr. 240 áður 340
Ennfremur eldri gerðir af DELSET kjól-
um ermalausum.
á kr. 198.-
Takmarkaðar birgðir.
Miklatorgi — Lækjargötu — Akureyri.
Skrifstofustarf
hjá Krabbameinsfél. fslands er laust til umsóknar.
Þeir sem hafa áhuga á starfinu, vinsamlegast sendi
umsóknir sem fyrst, með upplýsingum um
menntun og fyrri störf í skrifstofu íélagsins Suð-
urgötu 22.
Krahbameinsfétag íslands.
Enskunám í
Englandi
Þann 19. sept. hefjast í London op Bournemouth
námskeið í ensku fyrir útlendinga á vegum Scan-
brit. í London er um úrvalsskóla að ræða, kennsla
fyrir hádegi og tvisvar í viku eítir hádegi. Uppi-
hald á heimili og skólagjöld með einni skemmti-
eða kynnisferð vikulega kostar samtals £11.0.0 á
viku. Umsóknir þyrftu að berast sem allra fyrst.
Upplýsingar gefur Sölvi Eysteinsson, sími 14029.