Morgunblaðið - 24.08.1966, Síða 28

Morgunblaðið - 24.08.1966, Síða 28
nni>«»wrtBaBMa Heimmgi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Langstærsta og íjölbreyttasta blað landsins ---------T~'1 - ~ ' T'~" I fHHIIBIIIM Kaupin á Akurey endanlega staðfest í gærkveldi fékk bæjarstjórinn á Akranesi endanlegt svar frá norska útgerðarmanninum, Bjar ne Benediktsen, þar sem kaup- in á togaranum Akurey voru staðfest. Verður söluverð togar- ans tæplega tvær milljónir kr. Sem kunnugt er hefur gengið á ýmsu varðandi þessi kaúp. Útgerðarmaðurinn norski kom Hættuleg- ur maður í gærdag'kl.. 19.20 gerðist sá atburður hér í Reykjavík, að ungur maður eða piltur tók tvær sex ára telpur upp í bíl inn til sín, og ók þeim upp að Elliðaárstíflu. Ekki er ljóst hvort hann reyndi að eiga kynmök við þær, en hann sleppti annarri stúlkunni svo til strax, en hinni nokkru síðar. Ekki gátu telpurnar gef ið mikla lýsingu á piltinum en segja að hann hafi verið á litlum ljósum bíl. Þetta er í annað skiptið, sem atburður sem þessi á sér hér stað í borginni á tæpri viku, og því ekki með ólíkindum að ætla að sami maður hafi verið að verki í bæði skiptin. Er því full á- stæða fyrir foreldra að brýna fyrir börnum að þiggja ekki bílferð með ókunnugum mörtnum. hingað til lands fyrir nokkrum vikum til þess að ganga frá samningnum, en þegar gengið hafði verið nær endanlega frá kaupunum, hvarf útgerðarmaður inn skyndilega úr landi án þess að gefa nokkra skýringu. Töldu menn að hann hefði þá hætt við kaupin. Litlu síðar kom svo skeyti frá útgerðarmanninum með tilboði í skipið en í þetta skipti vildi bæjarstjórnin vera örugg og sendi út skeyti og bað um frekari staðfestingu. Er það skeyti það sem bæjarstjóranum barst í gærkveldi. Búist er við að Akurey sigli út til hins nýja heiinalands síns einhvern næstu daga. Eldborg frá Hafnarfirði með fu llfermi undir löndunarkrana á Raufarhöfn. — Sjá bls. 3. Mesta síldveiði sem sögur fara af í fyrrinótt 82 skip tilkynntu um rum 16 þús. tonn - Saltað á nær hverjum stað á Norður- og Austurlandi SÍLDARAFLINN fyrra sólar- hring varð hinn mesti, sem grein- ir frá í sögu íslenzkra síldveiða, en alls tilkynntu 82 skip um afla 11 færeysk síldarskip hafa landað á Hjalteyri - otj 3 voru á leið þangað í gær Síldarverksmiðjan á Hjalteyri hefur nú tekið á móti 5500 tonn- um af síld, eða um 40 þús. mál. Er það nokkuð minna en á sama tíma í fyrra, en þá hafði verk- smiðjan tekið á móti 50-60 þús. málum. Engin síld hafði borizt til verksmiðjunnar frá því um helgi en þá lönduðu fimm færeysk skip á Hjalteyri. Hafa þá samtals 11 skip landað þar í sumar, en í gærkveldi höfðu 3 færeysk skip tilkynnt að auki að þau væru á leið til lands með síld. >á var einnig von á síldarflutn ingaskipi verksmiðjunnar með fullfermi eða 900 tunnur. Er þetta fjórði farmurinn sem skip ið kemur með til Hjalteyrar. Ekið á trippi eða samtals 16.116 lestir. Veður var mjög hagstætt til veiða, og sömuleiðis var .sildin óvenju- spök. Veiðisvæðin voru tvö, ann- að 150 mílur norðaustur af Rauf- arhöfn, en hitt var 11—110 sjó- mílur austsuðaustur af Dala- tanga. Var síldin sem veiddist út af Austfjörðunum yfirleitt nokkru stærri en Raufarhafnar síldin, en á báðum stöðunum var þó um að ræða stórsild. Virtist síldin á báðum stöðunum heldur færast nær landi. Einar Jónsson, fréttaritari Mbl. á Raufarhöfn skýrði svo frá, að bátarnir hefðu byrjað að streyma að landi með aflann strax í gærmorgun og var búizt við að skipin yrðu að koma fram á nótt, en um 12—15 klukku- stunda sigling er frá miðunum að Raufarhöfn. Þá væru síldar- flutningaskipin öll búin að fá fullfermi og væru þau á leið til lands. Einar sagði að síldin væri öll stórsíld, en að mikill hluti hennar myndi fara í bræðslu, þar sem ekkr yrði unnt að salta nema um 6—700 tonn af aflanum, þótt unnið væri á öllum söltunar- stöðvunum. Það vantaði tilfinn- anlega mannafla á Raufarhöfn, þó sérstaklega söltunarstúlkur. Loks kvaðst hann hafa fregnað að bæði salt og tunnur á Raufar- höfn væru senn á þrotum. Á Seyðisfirði var í gær unnið að síldarsöltun á öllum söltunar- stöðvum, en bátamir byrjuðu að streyma þangað að strax um morguninn, og bjóst fréttaritari Mbl. á staðnum að þangað myndu koma milli 15 og 20 skip með áfla. Sömu sögu var að segja á Neskaupstað, þangað voru bát- ar að streyma að fram eftir öllum degi drekkhlaðnir af mjög fallegri stórsíld. Var unnið á síldarsöltun á öllum söltunar- stöðvum. Þar höfðu í fyrradag verið saltaðar 15000 tunnur, en í bræðslu höfðu farið um 35 þús- und tonn, en á sama tíma höfðu verið brædd 23 þúsund tonn. Á Eskifirði voru sex bátar þegar komnir inn í gærdag, og saltað á öllum söltunarstöðvum, en fjórir eða fimm bátar voru væntanlegir til viðbótar með afla. Á Reyðarfirði hafði verið saltað nær stanzlaust í gær sl. tvo sólarhringa. Tveir bátar komu inn með síld í gær og voru það Snæfugl með 140 tonn og Huginn n. 240 tonn, og von var á fleirum með kvöldinu. Frétta- ritarinn á staðnum sagði að síld- in væri mjög falleg stórsíld, og nýtingin á henni 50—60%. í gær var unnið að því á Breiðdalsvík að salta úr Sigurði Jónssyni, sem hafði komið inn um morguninn með 160 tonn, og von var á öðr- um síðar með kvöldinu. Framhald á bls. 19 Lézt af völdum skotsórs Neskaupstað, 23. ágúst. Aðfaranótt laugardagsins sl. kl. 2 var komið að einum skip- verja á v.b. Stapafelli frá Ölafs vík, þar sem hann lá í herbergi skipstjórans með skotsár á höfði. Hér var um að ræða 18 ára pilt sem fyrir stuttu hafði verið ráð- inn á bátinn. Var hann með lífs marki þegar að honum var komið og var hann þegar fluttur í sjúkrahúsið hér, en daginn eftir með flugvél til Reykjavíkur, þar sem hann lézt á mánudagsmorg un í Landakoti. Skipverjar á bátnum höfðu haldið hópinn um kvöldið og farið saman í kvikmyndahús og þar á meðal pilturinn. Þegar þeir voru komnir aftur um borð hafði pilturjnn orð á því að hann vildi fá að vera í friði, og fór inn í klefa skipstjórans. Litlu síðar heyrðu þeir sem voru í brúnni skothvell, og komu að drengnum með skotsár á höfði, eins og fyrr segir. — Ásgeir Eldur í flatkökugerð í gær kom upp eldur í Flat- kökugerðinni á Þinghólsbraut 36 Kópavogi. Slökkviliðið kom þegar á vettvang og tókst fljót- lega að ráða niðurlögum eldsins Til þess að komast að eldinum þurftu brunaverðirnir að rjúfa gat á þak hússins, og urðu því talsverðar skemmdir á húsinu Talið er að kviknað hafi í út frá gastækjum. Réðist á konu 1 gær var ráðist á konu, þar sem hún var við vinnu í kartöflu garði í Aldamótagörðunum við Umferðarmiðstöðina. Var þar ungur maður að verki og reyndi hann að nauðga konunni en tókst ekki. Hrakti hún illmennið á flótta. Konan kærði til lögregl- unnar, sem leitaði mannsins í gær, en hafði ekki tekizt að hafa upp á honum þegar síðast fréttist t>’ Ökumaðurinn hélt leiðar sinnar Stykkishólmi, 23. ágúst. Mánudaginn 22. ágúst sl. fannst tvæ vetra trippi mikið slasað, nær dauða en lífi, rétt við þjóð- veginn nálægt Miklahvolsseli í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Trippinu varð að lóga. Augljóst er að einhvert öku- tæki hefur verið þarna að verki en ökumaðurinn haldið leiðar sinnar, án þess að tilkynna á- reksturinn. Þetta hefur viljað til aðfaranótt mánudagsins á tímabilinu frá því kl. 1—7. Er skorað á þá sem einhverja vitnesku kynnu að hafa um at- burð þennan að tilkynna það til lögreglunnar í Stykkishólmi. "'éttaritari. Gísli Árni með 900 tonri landaði 2 í síldarflutninga- eftir sólarhring Raufarhöfn, 23. ágúst. Það bar til á síldarmiðun- um 150 mílur NA af Raufar- höfn, að Gísli Árni fékk um 900 lestir síldar á einum og sama sólarhringnum. Gerðist þetta á mánudag sl. Miðað við að síldin fari öll í bræðslu er aflaverðmætið rösklega 1,5 millj. kr. Gísli Árni fékk allt þetta magn í fjórum köstum og skip, sem statt var á þessum slóðum. Með afganginn hélt liann til Ólafsfjarðar. Óhætt er að fullyrða, að á þessum eina sólarhring hefur skipstjórinn á Gísla Arna, hinn landskunni aflamaður Eggert Gíslason, slegið öll met í síldveiðum fyrr og síð- ar. — Einar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.