Morgunblaðið - 17.09.1966, Side 2
2
MORGU NBLAÐIÐ
Laugardagur 17. sept. 1966
Yegurinn fyrir Ólafsfjarðar
múla opnaður á sunnudag
'Verður mikil semgöngubót — Leiðin til Akureyrar
styttist um 149 km.
1 Ólafsfirði, 15. sept.
'VIÐ erum tæplega farnir að átta
•okkur á þeirri stórkostlegu sam
£Öngubót sem hér er orðin eftir
að kominn er hinn prýðilegasti
'vegur fyrir Óiafsfjarðarmúla. I
gær var hcr yfirverkfræðingur
írá Vegagerð ríkisins. Hann til-
kynnti Ásgrimi Hartmannssyni
bæjarstjóra, að Ólafsf jarðar-
múlavegur yrði formlega opnað-
ur á sunnudaginn, án þess þó
að þá færi fram nokkur við-
■höfn af því tilefni.
Það sem ég á við um, að menn
séu tæpíega farnir að átta sig á,
er að fynr tveim dögum fór ég
á bíl til Akureyrar og var að-
eins rúm'.ega eir.a klukkustund
á leiðinni, — sem nú er 63 km
en var áður 212 km. Nú er að-
eins 20 mín. íerð til næsta kaup-
staðar, Dalvíkur. Þess er að
vænta að reglulegir farþega-
flutningar befjist miili Akureyr
ar og Ólaísfjarðar. Hefur Gunn-
ar Jónsson sem er sérleyfishafi
á leiðinni Akureyri — Dalvík
skýrt mér frá því að hann hafi
hug á að ti.ka upp ferðir hingað,
— tvær á dag.
En fleiri en við Ólafsfirðingar
fögnum nú hinum stórkostlega
áfanga í samgöngumálum okkar,
því segja má að með tilkomu
vegarins sé einangrun bæjarins
lokið. Siglfirðingar njóta góðs af
því leiðin milii Sigiufjarðar og
Akureyrar styttist um 60 km.
Nú sem stendur eru starfs-
menn Landssíma íslands að
vinna við múlann, við lagningu
á jarðsímostreng. Gert er ráð
fyrlr að strengurmn nái hingað
í haust, en nú eru ólagðir 5 km.
Verður sjálfvirk símstöð þá
opnuð hér. Hættir þá símstöðin
með sína daglegu þjónustu frá
kl. 8,30 t.il 22 og aðeins 4 tíma
á sunnudógum. Loks er í strengn
um þráður fyrir sérstaka endur-
varpsstöð fyrir Ólafsfjörð, en
hér eru h’ustunarskilyrði mjög
bágborin og hafa verið svo um
langt skeið. — Fréttaritari.
Dómari í Ghana úrskurðar:
Horst Schumann
afhentur V-Þjóðverjum
Nafn þotuflu"-
mannsins gefið
upp
NAFN orrustumannsins, sem
fórst með þotu sinni á Kefla-
víkurflugvelli s.l. fimmtudags-
morgun, hefur nú verið gefið
upp. Flugmaðurinn heitir John
R. Jansen, 27 ára gamall. Hann
lætur eftir sig konu og tvö ung
börn.
Eins og skýrt var frá í Mbl. i
gær varð flugslysið, er 3 orrustu
þotur æfðu fyrir flugdaginn, sem
verður n.k. sunnudag. Þoturnar
eru af gerðinni F-102 Delta
Dagger. Nefnd frá flughernum á
Keflavíkurflugvelli vinnur nú að
rannsókn á tildrögum slyssins.
Accra, Ghana, 16. sept. NTB.
DÓMARI í Accra í Ghana hefur
úrskurðað, að þýzki læknirinn,
dr. Horst Schumann, skuli seld-
ur í hendur v-þýzkum yfirvöld-
um, en hann er sakaður um
stríðsglæpi. Dr. Schumann hefur
starfað sem læknir í Volta-hér-
aði í Ghana árum saman. Hann
var handtekinn í marz sl., með-
an kannað væri, hvort orðið
skyldi við ósk v-þýzku stjómar-
innar um að hann yrði afhentur.
Heima í V-Þýzkalandi bíður
hans ákæra fyrir glæpi, sem
hann á að hafa gerzt sekur um
í Auschwitz fangabúðunum ill-
ræmdu í heimsstyrjöldinni síð-
ari. Dómarinn, H. P. L. Baneer-
9. okt. dagur
Leils heppna
Washington, 16. sept. NTB.
• JOHNSON, Bandaríkja-
forseti kunngjörði í dag, að
9. október skuli framvegis
helgaður minningu Leifa
heppna Eiríkssonar.
I í yfirlýsingu forsetans sagði
að leifur Eiríksson hefði verið
einn af forystumönnum þess
hetjutímabils, er norrænir vík
ingar fóru könnunarferðir víða
jum lönd og verið hefði inn-
blásturslind milljónum banda
rískra þegna af norrænu bergi.
Dáðir hinna fornu norrænu
víkinga væru einnig hluti af
bandarískum menningararfi,
því það hafi verið konur og
menn af norskum sænskum og
dönskum ættum, sem fyrstir
lögðu undir sig hinar banda-
rísku sléttur og hófu þar land
nám.
DJÚPA lægðin við Noreg fjarlægðist landið enn í gær
og var komið veiðiveður á Austurdjúpum í gærmorgun.
Á hafinu suðvestur undan var dumbungur og milt veð-
ur og heldur líkur til, að von væri á því lofti hingað.
man, sem úrskurðaði að hann
skyldi afhentur, kvaðst hafa
fengið sönnur fyrir því, að Schu-
mann hefði tekið af lífi konur,
börn, geðveikt fólk og aðra
fanga, sem ekki hefðu haft neina
pólitíska þýðingu og því taldi
hann rétt, að hann yrði fenginn
V-Þjóðverjum í hendur. Dr.
Schumann hefur lýst því yfir,
að hann muni áfrýja úrskurði
þessum.
Sá viðburður varð skómmu eftir hádegi í gær, að feiti brann
við á pönnu í húsinu að Hávallagötu 53. Gerðist reykur svo magn-
aður, að vegfarendur héldu, að um stórbruna væri að ræða. Slökkvi
liðið var kvatt til staðar og að sjálfsögðu var ljósmyndari blaðs-
ins manna fyrstur á slysstað. Lítið var um slökkviaðgerðir aðrar
en þær, að pannan var fjarlægð af eldavélinni — öllum viðkom-
andi til mikils hugarléttis. Fram skal tekið, að bál varð eigi I
íeitinni, en eitthvaó skenimdi reykurinn frá sér. Lauk þar með
þætti feitisbruna að Hávallagötu í sögu slökkviliðs Reykjavíkur-
borgar.
Sjálfkjörið í þremur
verkalýðsfélögum
EINS og áður hefur verið sagt
frá hér í blaðinu, hefjast full-
trúakosningar til 30. þings Al-
þýðusambands íslands í dag, 17.
sept., og standa til 9. okt., að
þeim degi meðtöldum. ’
Þrjú verkalýðsfélög í Reykja-
vík auglýstu eftir framborðslist-
um til fulltrúakjörs í vikunni, en
aðeins einn listi kom fram í
hverju félagi, — listi stjórnar
og trúnaðarráðs, og varð því
sjálfkjörið í félögunum. Þessi
félög eru Iðja, félag verksmiðju-
fólks í Reykjavík, Félag ísl.
rafvirkja og Félag járniðnar-
manna. Eftirtalið fólk var kosið
frá þessum félögum:
Iðja:
Guðjón Sigurðsson, Ingimund-
ur Erlendsson, Jón Bjöimsson,
Runólfur Pétursson, Klara
Georgsdóttir, Guðmundur Jóns-
son, Ragnheiður Sigurðardóttir,
Rafn Teitsson, Guðmundur Ing-
varsson, Ingólfur Jónsson, María
Sola „Mein
Kampi,, stöðvuð
Kaupmannahöfn, 16. sept. NTB
• Danski útgefandinn Jörgen
Paludan hefur tilkynnt, að tekið
hafi verið fyrir frekari sölu bók-
arinnar „Mein Kampf“ eftir
Hitler, sem nýlega var prentuð
í nýju 5000 eintaka upplagi og
átti að prenta enn á ný. Mikið af
þessu upplagi hefur þó selzt, en
ekki verður af frekari prentun.
Vestur-þýzki sendiherrann í
Kaupmannahöfn hefur tilkynnt
þetta til Bonn og óskað eftir að
yfirvöldum Bayern verði gert við
vart. Þau eiga rétt á öllu, sem
Hitler lét eftir sig, einnig ritverk
um og hafa ekki til þessa veitt
heimild til nýrrar útgáfu á bók
þessari né öðrum nazistískum
ritverkum.
Vilhjálmsdóttir, Bjarni Jakobs-
son, Guðríður Guðmundsdóttir,
Ólafur Pálmason, Guðmundur G.
Guðmundsson, Dagmar Karls-
dóttir, Kristín Hjörvar, Steinn í.
Jóhannesson.
Félag ísl. rafvirkja:
Óskar Hallgrímsson, Magnús
GeirssoJÍ, Sveinn V. Lýðsson,
Kristján Benediktsson, Sigurður
Sigurjónsson.
Félag járniðnaðarmanna.
Guðjón Jónsson, Snorri Jóns-
son, Kristinn Ág. Eiríksson,
Tryggvi Benediktsson, Guð-
mundur Rósenkarsson.
Dregið úr vinnu
í brezka bíla-
iðnaðinum
Birmingham, 16. sept. NTB.
• Um það bil eitt þúsund verka-
menn við bifreiðahlutaverk-
smiðju, sem fyrirtækið British
Motor Corporation — BMC —
rekur í Birmingham, lögðu niður
vinnu í dag í mótmælaskyni við
að fjölda manns hefur verið sagt
upp störfum í brezka bílaiðnað-
inum.
BMC mun frá næstu viku að
telja draga úr framleiðslu sinni
þannig, að dregið verður úr
vinnutíma 30.000 verkamanna
og 5.000 verkamönnum sagt upp
frá 4. nóvember. Ástæðan er efna
hagsráðstafanir Harolds Wilsons,
sem dregið hafa úr eftirspurn
eftir bifreiðum.
í Coventry hefur bílaverk-
smiðjan Standard Triumph frá
og með deginum í dag innleitt
fjögurra <daga vinnuviku fyrir
u.þ.b. 5.000 verkamenn. í Jaguar
bifreiðaverksmiðjunni hefur ver-
ið innleidd fjögurra daga vinnu
33 handteknir
Lusaka, Zambíu, 16. sept. NTB
• Lögreglan í Zambíu hefur
handtekið 33 manns á hinu svo-
kallaða Koparbelti í Zambíu
sökum verkfalls er þar stendur
yfir.
Voru hinir handteknu fluttir
til annarra landshluta. Stjórn
Zambíu hefur lýst því yfir, að
hún muni í engu sýna verkfalls-
mönnum meiri linkind en hún
þegar hefur gert.
— Chou En-lai
Framhald af bls. 1
stjóra í Peking hefði verið vikið
frá endanlega. Hann varð eitt af
fyrstu opinberu fórnarlömbum
menningarbyltingarinnar, og var
í júní s.l. vikið frá sem leiðtoga
flokksins í Peking. Til þessa hafði
ekkert verið sagt um örlög hans
í embætti borgarstjóra.
Enn herma fregnir frá Peking
að Lin Piao, sem nú virðist ann-
ar mestur valdamaður Kína-
veldis, hafi lýst því yfir að
hreinsunin í flokknum og ríkinu
muni halda áfram og ákveðnir
kunnir valdamenn missa stöður
sínar. Lin Piao hafði sagt í ræðu
á fjölmennum útifundi í Peking
í gær, að næst beri að víkja þeim
frá, sem hefðu völd og áhrif og
hefðu leiðzt inn á braut kapi-
talismans. Ekki nefndi hann
nein nöfn.
Chou En-lai forsætisráðherra
var annar aðalræðumaður á
fundinum og lagði alla áherzlu
á nauðsyn þess að auka iðnaðar-
og landbúnaðaframleiðsluna og
hækka markið í vísindum og
tækni.
Allir fimmtán helztu leiðtogar
Kína voru á fundi þessum og
skýrði fréttastofan Nýja-Kína
frá nöfnum þeirra í röð, er sýndi
völd þeirra. Fyrstir voru taldir
þeir Mao Lin Piao og Chou En
lai, þá áróðursleiðtoginn Tao Chu
og yfirmaður menningarbylting-
arnefndar miðstjórnarinnar,
Chen Pa Ta. Lui Shao-Chi, sem
nýlega var talinn annar mesti
valdamaður ríkisins var nú tal-
inn áttundi í röðinni.