Morgunblaðið - 17.09.1966, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 17.09.1966, Blaðsíða 31
Laugardagur 17. ?ept. 1968 MORCUNBLADIÐ 31 Ktnverjar leyna uppreisnartnönnum — segir Suharto hershöfðingi í Indonesiu ■ -v.- ! ’ E-^’J . i ■ ' A . i ./ f jf i * I • . 4 y>»<4 / ■ \ ; Ss | . '’sí l .. ..* é'ÆtmtfQr’'!*’ ****■#^ ■■'><■ .V . r1** ***><•>« «>*>«! ' ■'. > i v , ■• ;■» j85*<» w •<■ i. ~'ÍSStf'HV’' V/- A :■' M' __k'-*~ í Jf-$ •s***, /A******®>: ts^? > ■■ i s w oooooo • £<>« • 4,;í. esKss^->2*‘ Flugvélarflakið er um 7 mílur inni á jökiinum á Austur-Grænlandi á 68. gráðu norðlægrar breiddar og 28,30. vestlægrar lengdar. Efsta breiddargráðan er 70. Kynning á snyrtivörum á Hótel Sögu Skemmtun og kynningarsýn- ing verður á Hótel Sögu 18. og 25 þ.m. á vegum Elínar Ingvars dóttur, eiganda Regnbogans. Sýndir verða kjólar frá Guðrúnu skór frá Rímu og snyrtivörur og gjafavörur frá Birgi Arna- syni. Mun Blæösp sjá um hár- greiðslu sýningarkvenna. Gjafir verða gefnar og snyrtivörur verða í happdrætti. Söngmenn úr Karlakór Reykjavíkur syngja og mun 21 árs gamall söngvari koma fram opinberlega í fyrsta sinn. Snyrtivörurnar, sem Elín og stúlkurnar kynna eru aðal- lega frá Innoxa og Flor-i-Mar. Elín Ingvarsdóttir hefur dval- izt í Bandaríkjunum sl. 4 ár, þar sem hún hefur kynnt sér nýjungar í fegrun og snyrtingu. Hún var m.a. á hinum þekkta snyrtiskóla Powers í New York auk þess sem hún hefur lært framkomu hjá Dorothy Carnegy og unnið um skeið hjá Elísabet Arden. — Flugvélaflak Framhald af bls. 32. 12 manns, áhöfn og einhverjir farþegar. Var strax hafin um- fangsmikil leit flugvéla flughers og flota og íslenzku landhelgis- gæzlunnar. Síðast hefði heyrzt til flugvélarinnar, er hún var stödd yfir Grænlandi kl. 7 um morguninn, en hún hafði benzín til kl. 21.56 um kvöldið. Veður og vetrarmyrkur hamlaði mjög leitinni. Eftir viku árangurslausa leit, sem náði yfir 153.000 fer- mílna svæði, var leitinni hætt. I>á höfðu flugvélar frá Græn- landi, Labrador, Azoreyjum og íslandi flogið 413 leitarstundir. Er nú verið að ná sambandi við ættingja áhafnarinnar og far þega í Bandaríkjunum. 16. sept. — NTB. SUHARTO, hershöfðingi í Indó- nesíu, hefur sakað Kínverja uni að leyna ýmsum forsprökkum kommúnistauppreisnarinnar í fyrrahaust. Segir í yfirlýsingu, sem hers- höfðinginn lét birta í dag, að „visst vinveitt" ríki, sem ekki er tilgreint, hafi veitt skjól og leynt ýmsum forystumönnum uppreisn arinnar frá því í fyrra — og sama „vinveitta ríkið“ hafi oftar en einu sinni hvatt þessa sömu menn til stjórnmálaafskipta í — Kafbáfsslysib Framhald af bls. 1 alveg saman og fékk taugaáfall í sjúkrahúsinu í dag. Björgunarskip frá Bretlandi, Hollandi, Bandaríkjunum og V- Þýzkalandi voru á slysstaðnum í dag og var ætlunin ef veður leyfði að reyna að ná kafbátn- um upp þaðan sem hanrl liggur á 60 metra dýpi. Háværar raddir hafa komið fram í dag um að kafbáturinn hafi ekki verið sjófær — en því hefur talsmaður v-þýzku stjórn- arinnar neitað. Hinsvegar er líklegt talið, að rætt verði ýtar- Iega sú staðreynd, að landvarn- arráðuneytinu bárust engar upp- lýsingar um slysið fyrr en tólf klst. eftir að það varð. í NTB frétt frá Bonn segir, að líklegt megi telja, að mál þetta hafi töluverðar stjórnmála legar afleiðingar, og verði enn til að auka á erfiðleika Ludwigs Erhards, kanzlara. I>á muni það reynast afar óþægilegt Kai Uwe von Hassel, landvarnarráðherra, sem mjög hefur átt í vök að verjast vegna Starfighter slys- anna tíðu. Landvarnaráðuneyt- inu bárust ótal fyrirspurnir í dag vegna slyssins og voru þær helztu, hvort báturinn hefði ver- ið sjófær og hvort ekki hefði mátt bregða fyrr við. Einnig hneyksluðust margir á, að svo gamall kafbátur skyldi enn vera í notkun — hann er 22 ára, hafði verið sökkt á stríðsárunum en var náð upp og endurbyggður. Nefnd sú innan flokks kristi- legra demókrata, sem fjallar um landvarnarmál, hefur skorað á landvarnarráðherrann að gefa skýrslu um mál þetta hið snar- asta, svo unnt sé að ræða það til hlítar. Sósíaldemókrtar hugsa sér nú gott til glóðarinnar að herba kröfur sínar um afsögn landvarnaráðherrans og er búizt við hörðum umræðum á sam- bandsþinginu í Bonn næsta mið- vikudag. Karl Wienand sósialdemokrati og varaformaður landvarna- nefndar þingsins, hefur sagt að umfram allt verði að fjalla um það hvort radiosamband hafi rofnað og þá hversvegna —- og hvers vegna svo gamall kafbát- ur skuli enn hafa verið í notk- un. Ljóst er, segir NTB, að slys þetta á eftir að valda Erhard vandræðum. Hann hefur stutt Von Hassel gegn sósialdemokröt- um og reynt eftir megni að koma í veg, fyrir stjórnarbreytingu. Hefur Erhard í mörg horn að líta núna. Fyrir nokkru lagði hann fram frumvarp til laga um ráð- stafanir í efnahagsmálum, sem miða eiga að auknu jafnvægi á því sviði — og var það von hans að það mál yrði afgreitt fljótt. Þá varð það honum óvænt til amsturs, að einn af ráðherrum stjórnarinnar, Ludger Westrick — sem margir hafa talið næst valdamestan í stjórninni _____ bauðst í gær til að segja af sér á þeirri forsendu, að komið hafa fram óskir um, * að yngri maður taki við af honum. West- rick er nú 71 árs. Hefur Erhard beðið hann að halda áfram störfum, a.m.k. fyrst um sinn. Indónesiu, sem andstæð hafi ver- ið hag lands og þjóðar. Útvarp viðkomandi lands hafi birt lyga- þvætting til þess að rýra álit annarra á Indónesíu og sendiráð þess í Djakarta hafi sýnt opin- berlega óvinsamlega og beinlín- is fjandsamlega afstöðu til indó nesískra yfirvalda. Jafnframt seg ir, að stjórn Indónesíu muni alltaf fús að veita þeim borgur- um vernd, sem hlýði lögum lands ins. Kínverskt skip er sagt væntan legt til Belavan á Norður- Súmatra til þess að taka þá kínverska borgara, sem óska að flytjast aftur til Kína. Fyrsta málverka uppboð Sigurðar á haustinu Á miðvikudaginn 21. sept. verð ur fyrsta málverkauppboð Sig- urðar Benediktssonar á haust- inu í Sögu kl. 5. Myndirnar til sýnis á þriðjudag og miðviku- dag eins og venjulega. Yfir 30 málverk verða boðin upp, þar á meðal eftir flesta okkar kunnustu málara. — Sfrákagöngin Framhalö af bls. 32 gatið. Ég fékk að vita að bú- izt hefði verið við, að á að gizka 4-5 metrar væru eftir í gegn samkvæmt mæling- um. En nú voru þeir að enda við að bora tvær prufubol- ur, með borum sem voru 6.40 m. að lengd, en ekkert skeði. Þeir náðu ekki í gegn. Sýni- legt þótti, að ekki mundu þeir komast gegnum gatið eftir næstu sprengingu. Næst átti ég tal við Sigfús Thorar- ensen verkfræðing, sem um- sjón hefur með vinnunni. Hann sagði m.a. að það hefðu orðið þeim vonbrigði, að mæl ingar verkfræðinganna hefðu ekki staðizt algjörlega. Þó gæti verið að ekki munaði nema einum til tveimur metrum að 6.40 m. borinn næði í gegn, eða jafnvel minna. Sýnilegt væri að ekki mundi opnast á næstu klukku stundum. Ég var ákveðinn í því að láta þetta ekki verða algjör- fýluferð og bað Sigfús því leyfis að fá að fara inn 1 göngin til myndatöku er bor un hæfist að nýju. En hann neitaði og því er þessi frétt myndalaus, en ástæðuna kvað Sigfús vera, að aldrei hefði hætulegra verið en einmitt nú inn í göngunum. Bergið væri mjög Isust og fyrirvara laust gæti hrunið úr því á þeim, stað, þar sem verið væri að vinna og Efra-Fall vildi enga ábyrgð taka á utanað- komandi fólki inn í jarð- göngunum. Og þar sem Sig- fús ræður þarna ríkjum en ekki ég, þá snautaði ég í burtu og lét þar við sitja. Aftur í dag (16. sept.) hitti ég Sigfús að máli til að leita frétta og sagði hann mér, að það hefði ekkert gat myndazt og efaðist um, að næsta sprenging mundi opna held- ur. Hann s&gði að þeir, sem eru hinum megin við gatið vestanverðu við það, heyrðu mjög vel til þeirra úr göng- . unum og gætu þeir einfald- lega talast við, svo varla get- ur bilið á milli verið mjög mikið. Sigfús taldi, að jafn- vel yrði sprengt eftir mið- nætti í nótt. Steingrímur. Opið allan sólar- hringinn Hafnarfirði — Núna um helg- ina tekur Bifreiðastöð Hafnar- fjarðar upp þá nýbreytni að hafa opið allan sólarhringinn, en hing- að til hefur einungis verið opið til kl. 2 að nóttu til. — Stöðin fluttist í ný húsakynni — Reykja víkurveg 58 — fyrir nokkrum mánuðum og er allur aðbúnaður með hinum mestu ágætum. Hefur stöðin þar á boðstólum bensín- og olíusölu, auk þess gosdrykki og sælgæti. Á Bifreiðastöð Hafnarfjarðar eru 18 bílar, sumir hverjir með talstöðvar, og margir nýir eða nýlegir. — Fimleikar Framhald af bls. 30 Fátt hefur meira auglýsingar- gildi fyrir íþróttirnar en vel samæfður fimleikaflokkur. Þess vegna verðum við að leggja áherzlu á það að eiga ávallt góð- um sýningarflokkum á að skipa. Það er t.d. varla vansalaust að geta ekki látið ávallt góða fim- leikaflokka sýna á 17. júní-mót- um okkar um land allt. En þetta er því miður ekki hægt nema að róUækar ráðstafanir séu gerðar. Árlega er ÍSÍ boðið að senda fimleikaflokka á stór mót er- lendis, en það er að verða úr sögunni að nokkurt félag óski eftir að senda flokka á slík mót, einfaldlega vegna þess að sýn- ingarflokkar eru ekki til. Þá er einnig mjög æskilegt að geta komið á fót hópsýningum við viss tækifæri. ÍSf hefur marg oft reynt það, en síðan 1944 hefur það ekki tekizt. Úr þessu verður að bæta og þess vegna vonum við að einhugur verði hér um að undirbúa stofnun fimleikasambands. Tshombe svipt- ur þingsæti Kinshasa, 16. sept. NTB. • Þingið í Kongó hefur svipt Moise Tshombe, fyrrverandi for sætisráðherra landsins þingsæti sínu og samþykkt að við taki varamaður hans. Tshombe er nú í útlegð í Ev- rópu. Þá hefur þingið einnig sam þykkt, að þar tæki sæti varamað ur Evaristas Kimba, fyrrum for- sætisráðherra, sem fyrr á þessu ári var dæmdur til dauða og hengdur fyrir að hafa átt þátt í samsæri gegn stjórn landsins. Handritanefnd skipuð Einkaskeyti til Mbl. frá Kaupm.h. 16. sept. • K.B. Andérsen hefur fengið ríkisstjórnina dönsku til að sam þykkja skipun ráðherranefndar, sem undirbúi framkvæmdahlið handritamálsins, eftir að dómur hæstaréttar um afhendingu hand ritanna islenzku fellur um miðj- an nóvember. Nefndina skipa, auk Andersens Axel Nielsen, dómsmálaráðherra, Lars P. Jensen viðskiptamálaráð herra og Per Hækkerup, utan- ríkisráðherra. — Rytgaard. Blaðburiarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Þingholtsstræti Bergstaðas (ræti Aðalstræti Hverfisg. frá 4—62 Tjarnargötu Karlagata Barónssiígur Hringbraut 92—121 Laufásveg 2—57 Hávallagata Lynghagi Nesvegur Freyjugata Háaleitisbraut 14—156 Laugarásveg Víðimelur Vesturgata 2—44 Efstasund Snorrabraut Tahð við afg reiðsluna simi 22480.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.