Morgunblaðið - 17.09.1966, Page 22

Morgunblaðið - 17.09.1966, Page 22
22 MORGUNBLAOID ' f,augardagi>r 17. sept. 1966 ■a*r' Lausar stöður hjá íslenzka Álfélaginu hf. Arkitekt, Teiknari við arkitektastörf, Teiknari við verkfræðistörf, Mælingamaður Eftirlitsmaður við byggingaframkvæmdir Umsóknir, ásamt símanúmeri, sendist undirrituðum fyrir 25. september nk. og fá umsækjendur nánari skriflegar upplýs- ingar um störfin hjá okkur. Fyrirspurnum ekki svarað í síma. málflutningsskrifstofa Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar, Guðmundar Péturssonar, Aðalstæti 6, III. hæð. t, Eiginkona mín RAGNHEIÐUR G. ÞORVALDSHÓTTIR andaðist 15. þessa mánaðar. Jónas Bjarnason, Seljavegi 5 R. Elsku sonur okkar og bróðir, VALDIMAR VIÐAR PÉTURSSON lézt af slysförum þann 15. september sl. Þórunn Matthíasdóttir, Pétur Valdimarsson, Ragnheiður Kirstín Pétursdóttir. Eiginmaður minn og faðir, BENEDIKT BENEDIKTSSON fiskmatsmaður, Ásgarði 1, Neskaupstað, að morgni 15. september. Helga Hiniiksdóttir, Inga Benediktsdóttir, Útförn eiginmanns míns og föður okkar, PÁLS óskars GUÐJÓNSSONAR Freyjugötu 26, sem andaðist 11. þ. m. fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 19. þ. m. kl. 13,30. Helga Guðmundsdóttir og börn Faðir okkar og tengdaíaðir, EINAR TÓMASSON fyrrverandi kolakaupmaður, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni inánudaginn 19. september kl. 3 e.h. Börn og tengdabörn. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför móður okkar, tengda- móður og systur, GUÐRÚNAR GÍSLADÓTTUR Magdalena Oddsdóttir, Margrét Oddsdóttir, Gísli Oddsson, Lára Sæmundsdóttir, Þorbjörg Gísladóttir. Þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát og út- för systur okkar GUÐRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR frá Hlíð. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna. Jófríður Magnúsdóttir, Fanney Magnúsdóttir. Þóra Þorleifsdóttir Grönfeldt — Minning f DAG verður borin til grafar að Borg á Mýrum, frú Þóra Þórleifsdóttir Grönfeldt. Hún var fædd að Presthólum í Núpa- sveit 26. maí 1880. Foreldrar hennar voru madd- ama Sesselja Þórðardóttir og séra Þórleifur Jónsson, er var vígður til Presthóla 1878, en þjónaði síðar Skinnastað frá 1881 til dauðadags 1911. Börn þeirra, séra Þórleifs og madd- ömu Sesselju voru 3, Þóra fædd eins og áður segir 1880 að Prest hólum, Svafa, fyrrum skólastjóri á Akranesi, fædd 1886 að Skinna stað og Jón, síðast bóndi í Lax- holti, fæddur 1894 að Skinna- stað. Faðir maddömu Sesselju var séra Þórður, síðast prestur að Mosfelli í Mosfellssveit, hann var Árnason, bróður Jóns Árnasonar, þjóðsagnaritara. Faðir séra Þórleifs var Jón bóndi og hreppsstjóri í Arnar- bæli á Fellsströnd, Oddsson. Oddur bjó að Kjallaksstöðum, hann var sonur Guðbrands, er bjó að Þingvöllum í Helgafells- sveit. Faðir Guðbrands á Þing- völlum var Oddur Arngrímsson, Tómassonar. Oddur var ættaður af Norðurlandi, líklega úr Skaga firði og jafnan í ritum nefndur Oddur Arngrímsson að norðan. Kona Odds Arngrímssonar var Margrét, dóttir Guðbrands sæ- garps að Þingvöllum í Helga- fellssveit, Guðbrandur á Þing- völlum Oddsson og Margrétar átti Ingibjörgu Gunnlaugsdóttur, prests að Helgafelli, Snorrason- ar, Jónssonar, Magnússonar. Jón Magnússon var bróðir Árna Magnússonar handritasafnara. Kona Odds á Kjallaksstöðum var Þuríður, dóttir Orms Sig- urðssonar frá Langey, en við hann er kennd hin mjög svo fjölmenna Ormsætt. Móðir séra Þórleifs var Kristín Kristjáns- dóttir, Ólafssonar frá Túngarði á Fellsströnd. Þóra ólst upp hjá foreldrum sínum að Skinnastað, við ágætar aðstæður. Alltaf var gestkvæmt þar, enda voru presthjónin góð- gerðarsöm og vinsæl og því fýsilegt fyrir hvern og einn að að koma þangað. Séra Þórleifur var mjög þekktur á sinni tíð, fróðleiksmaður mikill, sérstak- lega á íslenzkt mál, bjó m.a. margar íslendingasögur undir prentun. Mér er það mjög í minni frá því ég var lítill drengur í ná- grenni séra Þórleifs, hversu mikla virðingu menn báru fyr- ir lærdómi hans. Sagt var að hann kynni 12 tungumál og svo bættist það við að hann hafði kennt sjálfum krónprinsinum. Var jafnan auðheyrt að fólki fannst mikið til um þetta. Má i sem fæstum orðum segja, að presthjónin á Skinnastað voru elskuð og virt af sóknarbörnum sínum. Um aldamótin fór mikil vakn- ing um allt ísland. Þá stigu menn á stokk og strengu heit, með þeim einlæga ásetningi að hefja þjóðina upp úr þeirri deyfð og drunga, er áður hafði ríkt. Þetta kom m.a. fram í því, að félagslíf blómgaðist mjög í flest- um sveitum, unga fólkið kom saman til skrafs og ráðagerða. Þetta fór ékki fram hjá Axar- firði. Þar var á æskuárum Þóru orðið fjölbreytt félagslíf. Unga fólkið kom saman þegar tæki- færi var til, ræddi áhugamál sín, skemmti sér og söng. Á Skinnastað var orgel og kom fólkið yfirleitt saman þ£ir. Þóra lék vel á orgel og hafði ágæta söngrödd og mun þessi starf- semi hafa verið mjög þeim systrum, henni og Svöfu að þakka. Þegar Þóra var rúmlega tvítug fór hún í kvennaskóla á Akur- eyri, en skóli sá hafði áður verið að Laugalandi. Laust fyrir aldamótin, snéri stjórn Búnaðarfélags íslands sér til Landbúnaðarfélagsins danska, í því skyni að fá hingað mann Hjartans þakkir .til vina minna fjær og nær fyrir heimsóknir, skeyti og góðar gjafir á 60 áva afmæli mínu Guð blessi ykkur öll. Bjarni Guðmvndsson, Kleppsvegi 140. Þakka hjartanlega frændum og vinum gjafir, skeyti og ógleymanlegar ánægjustundir á sjötugs aímæli mínu. — Guð blessi ykkur öll. Ágúst Sigfússon. Landagötu 16, Vestmannaeyjum. Þökkum hjartanlega samúð og vinsemd, sem okkur var sýnd við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og örnmu, H ALLDÓRU BF.NEDIKTSDÓTTUR Björn Bjarnason, Erla Geirsdóttir, Halldór Bjarnason, Guðrún Jónsdóttir, Benedikt Bjarnason, Hildur Einarsdóttir, Eiríkur Bjarnason, Erla Pálsdóttir, Birgir Bjarnason, Karítas Jónsdóttir, og sonabörn. til þess að veita forstöðu skóla, þar sem kennd væri vinnsla mjólkur. Kom þá hingað danskur mjólkurfræðingur, Hans Grön- feldt að nafni, er þá hafði ný- lokið prófi frá Ladelunds Mejerihöjskole. Var síðan undinn bráður bugur að skólastofnun og fékk hann inni í kjallara skólahússins að Hvanneyri. Síð- an var byggt þar hús yfir skól- ann, en það brann 1903, og var þá skólinn fluttur að Hvítár- völlum, þar sem hann starfaði allt fram til ársins 1918. Alls munu hafa útskrifast úr skóla þessum 192 rjómabússtýrur. Því get ég um þennan skóla, að þar og í sambandi við hann var aðalstarfsvettvangur Þóru. Þar var hún á sínum bezta starfs aldri og þar kom atorka hennar ekki hvað sízt að liði. Þóra var sjálf ein af fyrstu nemendum skólans, en þar kynntist hún auðvitað skólastjóranum og giftist honúm 6. september 1902. Þau eignuðust einn son, Þórleif verzlunarstjóra í Borgarnesi, kona hans er Erla Daníelsdóttir. Kjördóttir þeirra er Anna Grön- feldt, sem einnig er búsett I Borgarnesi. Aúk þess ólu þau upp 3 börn, Sigurstein, stöðvari stjóra í Borgarnesi, Þórðarson, Ingvarssonar, en Ingvar var móðurbróðir Þóru; Guðbrandínu Tómasdóttur, og Þóri Jónsson fiðluleikara bæði búsett 1 Reykjavík, Þórir og Þóra voru bræðrabörn. Auk þess voru fleiri og færri börn í dvöl hjá þeim hjónum á hverju sumri. Varla þarf að geta þess, að mörg þessara bariiá, sem nú eru full- tíða minnast þeirra hjóna, sem sinna annarra foreldra. Eftir að Þóra var komin að Hvítárvöllum tók hún þegar að sinna félagsmálum þar I sveitinni. Hún starfaði mikið i kvenfélaginu og þar sem annars staðar munaði miklu er hún lagði hönd að verki. Hún var jafnan mjög áhugasöm og í for- ustuliði, þar sem unnið var að velferðarmálum. Ekki sízt lét hún sér annt um að fræða hús- freyjur í sveitum og má í því sambandi nefna, að árið 1906 gaf hún út matreiðslubók, sem einkum var ætluð sveitakonum. Bók þessi náði miklum vinsæld- um um allt land. Skólinn að Hvítárvöllum var lagður niður 1918, en árið 1908 höfðu þau hjón keypt Beigalda í Borgarfirði. Þar stunduðu þau búskap og dvöldust þar á sumr- um, en voru við skólann á vetr- um. Eftir að skólinn hætti, sett- ust þau alveg að á Beigalda og stofnaði Grönfeldt þar ásamt fleirum, fyrstu mjólkurniður- suðuverksmiðju á íslandi, er starfaði þar frá 1919-1925. Árið 1929 hættu þau búskap, flytja 1 Borgarnes, þar sem þau stund- uðu verzlun og greiðasölu um tíma. Grönfeldt andaðist 1. júnl 1945, og getur varla ágætari mann en hann var. Síðustu ár sín, bjó Þóra i Borgarnesi, alltaf út af fyrir sig, en þó í skjóli barna sinna og tengdadóttur. Mega þau nú gleðjast í sorg sinni, er þau minnast þess að hafa alltaf sýnt mömmu sinni ástúð og um- hyggju. Frú Þóra var glæsileg kona. fríð sýnum og ágætum gáfum gædd. Hún átti í ríkum mæli hið rólega Ijúfa viðmót, sem er ein- kenni hins góða manns, sem vill öllum vel og vill hvarvetna láta aðeins gott af sér leiða. Glað- lyndi hennar, góðlyndi og glettni gerði það að verkum að öllum leið vel í návist hennar. Betri eðliskosti er vart hægt að eiga. Það er gott að leggjast til hvíldar að loknum löngum og góðum starfsdegi. Blessuð sé minning hennar. Björn Jónsson Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.