Morgunblaðið - 17.09.1966, Page 32
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Langstærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
212. tbl. — Laugardagur 17. september 1966
Mikil umferð um
Patreksfjaröarflugvöll
MIKIL umferð hefur undan-
farið verið um hinn nýja
flugvöll á Patreksfirði. En
hann var eins og kunnugt er
tekinn í notkun 19. nóvem-
ber 1965. Síðan hafa tæp-
lega 3 þúsund farþegar ferð
azt um flugvöllinn.
Flugfélagið hefur 3 áætlunar-
ferðir í viku til Patreksfjarðar,
og haldið er uppi áætlunarferð-
um með bifreiðum tvisvar í vik r
milli flugvallarins og Bíldudals
og Tálknafjarðar. Að jafnaði
hafa verið notaðar DC 3 flug-
vélar, en stundum hafa hinar
Pilturinn
sem fórst
PILTURINN sem fórst í hinu
sviplega slysi við Korpúlfsstaði
sl. fimmtudag hét Valdimar Við
ar Pétursson til heimilis að
Meistaravöllum 9 hér í borg.
Hann var sonur hjónanna Þór
unnar Matthiasdóttur og Péturs
Valdimarssonar hafnarvarðar
við Reyk javíkurhöfn. Valdimar
sem var 16 ára að aldri var
einkasonur en hjónin eiga yngri
dóttur. Hann var mikill efnis
piltur.
nýju Fokker Friendship fiugvél-
ar haldið uppi ferðum til Pat-
reksfjarðar.
Umboðsmaður F.f. á Patreks-
firði er Sigurður Jónasson. Ó-
hætt er að fullyrða að flugsam-
göngurnar eigi mjög vaxandi vm
sældum að fagna í Vestur Barða
strandarsýslu. Er það mál manna
að samgöngur hafi stórbatnað
við héraðið siðan hinn nýi flug-
völlur var tekinn í notkun.
Daufleg! ó síldar-
miðunum
BRÆ3LA var á síldarmiðunum
15. sept. fram að hádegi í gær,
en þá lægði og bátarnir byrjuðu
að týnast aftur út. Síldarleitin
á Dalatanga tjáði blaðinu í gær-
kvöldi, að nokkrir bátar hefðu
þegar kastað á Breiðafjarðar-
dýpi, en þar hefur fengist góður
afli fyrir nokkrum dögum. Ekki
var síldarleitinni kunnugt um
aflabrögð.
S.l. sólarhring komu tveir bát
ar með síld til Dalatunga: Ár-
sæll Sigurðsson með 25 lestir og
Náttfari með 35 lestir.
1160 laxar úr
Loxó í Kjós
Valdastöðum:
HEILDARVEIÐIN í Laxá í
sumar var alls 1160 laxar,
sem þannig skiptast á 3 veiði-
svæði: 1. veiðisvæði 850 lax-
ar, 2. veiðisvæði 137 laxar og
3. veiðisvæði 173 laxar.
í Bugðu veiddust í sumar
160 laxar.
Þyngsti laxinn, sem veidd-
ist í Laxá vigtaði 19 pund og
veiddi hann Egill Egilsson
Rvík. Næstþyngsti laxinii
var 18 pund, veiðimaður Sig-
urður Samúelsson Rvík. Þetta
mun nokkru meiri veiði en
sl. ár.
Þessi sérkennilega mynd er af svokölluðum Skaufhólskarli,
sem getur að líta vestur á Rauðsandi í Barðastrandarsýslu.
Steinhöfuðið er úr móbergi og er hann meter á hvorn veg að
stærð. Það stendur utan í svokölluðum Skaufhól milli Lamba
vatns og Naustabrekku, sem er eyðibýli vestast á Rauðasandi.
Ljósmyndina tók Sveinn Ólafsson myndskeri, og er kona
hans, Jóna G. Árnadóttir og börn þeirra hjóna, Hólmfríður
Ólafur og Inga með á myndinni.
Fengu
sófosettið ó
Iðnsýningunni
EINS og við var búizt kom
50 þúsundasti gesturinn á Iðn-
sýninguna í gærkvöldi og
hreppti fyrir sófasett frá Dúna I
hf. í Kópavogi. Hinn heppni
var Sigurður Einarsson bíla-
viðgerðarmaður Þingholts-
braut 54 Kópavogi, sem kom
á sýninguna með konu sinni
Fanney Betty Benjamínsdótt-
ur. Þau hjón kváðu vinning-
in koma sér vel, því þau áttu
ekki sófasett fyrir. Söluverð
sófasettsins er áætlað í kring-
um 35. þús. kr.
Dúna h.f. hefur ákveðið að
gefa 60 þúsundasta gestinum
(á Iðnsýninguna tvær spring-
| dýnur, sem framleiddar eru
t með nýrri aðferð.
Flak af flugvél frá Keflavík meö
12 líkum fannst á Grænlandsjökli
ísl. flugbjörgunarsveitarmenn
með ísbrjót til að sækja líkin
BREZKUR jarðfræðileiðang-
ur, sem fór um ísland á leið
sinni frá Austur Grænlandi, til-
kynnti hér að hann hefði fyrir
nokkrum vikum fundið flakið af
ameriskri könnunarflugvél í
nánar tiltekið á 68 gr. n. br. og
austanverðum Krónborgarjökli
28.30 v. 1. Er talið fullvíst að
þarna sé flakið af bandarísku
könnunarflugvélinni af Kefla-
víkurflugvelli, sem týndist með
12 manns í janúarmánuði 1962
og geysiumfangsmikil leit var
gerð á sjó og úr lofti.
Samkvæmt upplýsingum frá
bandarísku upplýsingaþjónust-
unni mun ísbrjóturinn Atka fara
frá íslandi næstkomandi mánu-
dag til að sækja likin úr flug-
vélinni og verða um borð ís-
lenzkar og amerískar björgunar
sveitir. Fara 3 þaulþjálfaðir ís-
lenzkir fjallamenn frá Flug-
björgunarsveitinni með í leið-
angurinn. Um borð í ísbrjótnum
eru tvær þyrlur, sem hægt er
að nota við björgunarstörf á
sjó og landi. En flakið af flug-
vélinni er á mjög erfiðum stað,
um 7 mílur inni á jöklinum í
2300 feta hæð. Úr pæsta firði
eru snarbrattir ísveggir, en ef
á þarf að halda má líklega kom
ast upp eftir skriðjökli í nær-
liggjandi firði. Engin byg'gð er
þarna í nánd. Ekki er vitað hve
langan tíma telur að ná í líkin
Flugvélin, sem týndist er af
Neptune P 2 V gerð og var
í ískönnunarflugi 12. janúar, er
hún týndist. 1 flugvélinni voru
Framhald á bls. 31
Listsyning á vegum IHenn
ingarsamtaka kvenna
Stendur aðeins einn dag
Strákagöngin opnuðust
ekki við lokasprenginguna
IViælingar verkfræðinga stóðust ekki að öllu leyti
Siglufirði, 16. sept.
I GÆRDAG bárust þær
fregnir að búizt væri við, að
sjást mundi gegnum gatið
okkar vestur í Engidal og að
Sauðanesvita við (sennilega)
síðustu stórsprenginguna sem
framkvæmd yrði í jarðgöng-
unum í gegnum Strákafjall-
ið. Ég hafði samband við
Karl Samúelsson, einn verk-
stjórann í göngunum og
spurði frétta. Jú, það stóð
heima, samkvæmt mælingum
verkfræðinganna væru líkur
fyrir því, að op myndaðist
við næstu sprengingu, en
erfitt væri þó, að segja til
um hvenær sú sprenging yrði.
Kannski um eða eftir kvöld-
mat, þó gæti það dregizt
lengur.
Ástæðan væri sú, að berg-
ið væri mjög slæmt, hefði
aldrei verið verra á allri leið
inni og þyrfti því að „skrota“
mjög mikið, en það kalla gat
menn þegar þeir losa niður
laust og hættulegt grjót og
stundum jafnvel heil björg,
sem hefðu getað dottið niður
seinna af sjálfu sér og vald-
ið slysi. Að fengnum þessum
upplýsingum ákvað ég að
heimsækja göngin um kvöld
ið vopnaður þeim vopnum,
sem mér þykir helzt til koma
myndavélum og flashlömp-
um. Þegar út eftir kom kl.
um 20.30 hitti svo á, að starfs
liðið, sem var á vakt að þessu
sinni var að koma út úr göng
unum og mátti sjá vonbrigða
svip á mörgum, en aðrir
bölvuðu. Ég stöðvaði einn og
spurði hálfkvíðinn hvort eitt
hvað hefði komið fyrir. Svar
ið var stutt og laggott. Fyr-
ir? Það má nú segja. Það
verður engin veizla í kvöld
eða á morgun, að minnsta
kosti“. Veizla? Hvað áttu við
sagði ég undrandi, en áttaði
mig. Líklega verður boðið
upp á veitingar að starfinu
loknu, þegar sést gegnum
Framhald á bls. 31
Menningar- og friðarsam-
tök kvenna beita sér nú um
helgina fyrir listsýningu, sem
stendur aðeins einn dag. Er
sýningin haldin í Breiðfirð-
ingabúð og verður opnuð
kl. 2.30 á sunnudag. Sýn-
ingin verður opin til kl. 6
síðdegis.
Samtökin efna til þessarar
listsýningar í fjáröflunar- og
kynningarskyni. Selt verður
kaffi á staðnum til ágóða fyrir
félagið.
Þessir listmálarar taka þátt í
sýningunni:
Sverrir Haraldsson, Hörður
Ágústsson, Kjartan Guðjónsson,
Barbara Árnason, Guðmunda
Andrésdóttir og Eyborg Guð-
mundsdóttir.
Af myndhöggvurum taka
þátt í sýningunni Ólöf Pálsdótt-
ir. Þá sýnir Jóhannes Jóhannes-
son silfurmuni og Sigrún Jóns-
dóttir sýnir batikk.
Frú María Þorsteinsd. skýrði
Mbl. frá því í gær að ef þessi
nýbreytni í starfsemi félagsins
gæfist vel mundi það efna til
fleiri slíkra sýninga.
Viðræður um samstarf
milli Sjálfstæðismanna
og Óháðra ■ Hafnarfirði
SVO sem kunnugt hefir ekki
enn verið mvndaður meirihluti
í bæjarstjórn Hafnarfjarðar frá
síðustu bæjarstjórnarkosning-
um. —
Nú að undanförnu hafa staðið
yfir samningaviðræður á milli
bæjarf ulltrua Sjálf'stæðisflokks-
ins og bæjarfullttúa Félags
óháðra borgara. Mun niðurstöðu
þeirra umræðna að vænta • á
næstu grösum.
Að bæ.iarstjórnrkosningunum
í vor loknum skrifuðu bæjar-
íulltrúar Sjálfstæðisflokksins
fulltrúum Alþýðuflokksins bréf
og óskuðu eftir áframhaldandi
samstarfi uin. stjórn bæjarins.
Því samstarístilboðj hefir Al-
þýðuflokkurinn ekki sinnt.
Enginn meirihluti hefir því
verið í bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar fram tii þessa og framkvæmd-
ir á vegum bæjarins því að
mestu legið i láginni.
Fáist starfshæfur meirihluti
er þess vænta, að úr rætist
og þær margháttuðu framkvæmd
ir, sem undirbúnar höfðu verið
á síðasta kjörtímabili, komist í
gang og önnur þau mál, sem að-
kallandi eru