Morgunblaðið - 20.09.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.09.1966, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 20 sept. 1966 MORGU N BLADIÐ / Ganga á Grænlandsjökul í kvöld Góðaksfurskeppni í Reykjavík REYKJAVÍKURDBILD B.F.Ó. ei'nir til góðaksturs í Reykjavík laugardaginn 24. september n.k. kl. 14. Rásstaður verður við Höfðatún. Keppni verður leyfð á fólks- bílum, 4 til 6 manna og jeppum. Bílarnir þurfa að vera í góðu lagi, bæði hvað snertir öryggis- tæki og útlit. Bílar, sem ertn hafa ekki verið kallaðir til skoð- unar geta keppt, svo og utan- bæjarbílar, og gildir sama um þá. Keppnin er almenningskeppni . og geta því allir, sem ökuleyli hafa, verið við stýrið. Keppnin verður með nýju sniði, svonefndur fjölskyldu- akstur. Er ætlast til þess að allir ökumenn hafi með ser fjölskyldu sína í bílnum. Mega þó ekki vera fleiri eri 4 alls með ökumanni. Hafa má færri allt niður í einn fjölskyldumeðlim, t.d. konu eða eiginmann, syst- kini eða foreldri. Trúlofaður ökumaður má nafa unnusta eða unnustu með sér. Ekki má hafa fjarskyldara en systkini og ekki óskilda manneskju, sem ökumaður útvegar sjálfur. Einn úr fjölskyldunni fær af- henta greinilega, stuttorða leiðar lýsingu og skal hann vera leið- sögumaður ökumanns. Af þeim meðlimum fjölskyldu sem ökuleyfi hafa, má hver aka sem vill, en sá sami verður að aka alla leiðina. Fjölskyldan má hjálpa ökumanni við aksturinn eftir getu, en spurningum verður hann að svara einn. Geti ein- hver keppenda af augljósum ástæðum ekki haft með sér neinn af sínum nánustu, má hann keppa einn. Fær hann þá leiðsögumann í bílinn. Ekki er gert ráð fyrir að fleiri en um 20 bílar keppi, allra mest 25. Skulu þeir mæta á rás- stað um klukkutíma fyrir byrj- un keppni. Skráning til þátt- töku fer fram hjá Ábyrgð h/f til fimmtudagskvölds þ. 22./9. Prufur verða margar og ýmsar nýjungar þeirra á meðal. SUKSHIIUB Úrbætur í ’liús- næðismdlum í febrúarmánuði nk. er áætl- aö að byggingarframkvæmdir hefjist á vegum Framkvæmda- nefndar byggingaráætlunar, en eins og kur.nugt er munu efnalitl ir meðlimir verkalýðsfélaganna eiga kost á að kaupa þær íbúðir með sérstaklega hagkva-mum I kjörum. 80 af hundraði kostnað- | arverðs íbúðanna verður lánað til 33 ára, afborgunarlaust I fyrstu þrjú árin og afgangurinn ; greiddur með jöfnum afborgun- : um 5% á ári fyrstu fjögur árin. Á ráðstefnu, sem Heimdallur, Fé lag ungra Sjáifstæðismanna í Reykjavík efndi til sl. vor um j húsnæðismál var mörkuð sú I stefna félagsins í húsnæðismal- : um, að stefna bæri að því að ; húsbyggjendur ættj kost lána, sem næmu allt að 80 af hundr- aði kostnaðarverðs >búða, frá húsnæðismáiastjórn og lífeyris- sjóðum. 1 viðtali sem skrifstofu stjóri húsnæðismálastofnunar- innar átti við útvarpið fyrir nokkrum dögum lýsti hann þeirri skoðun sinni, að það lánakerfi, | sem taka á upp fyrir efnalitla meðlimi verkalýðsfélaganna ætti að færa út smátt og smátt, þannig að það næði til allra hús öyggjenda. Greinilegt er því að vaxandi skilningur er á nauð- syn þess að gera á næstu árum stórt átak í húsnæðismálum, sem auðveldað getur húsbyggj- endum að komast yfir eigin íbúð ir, en segja má að nær allí ungt fólk Ieggi nú á það mikla á- herzlu þegar á fyrstu hjúskapar árum, enda eðlilegt þar sem leiga á ibúðum er mjög há. urinn sér þeim fyrir vistum á leiðinni inn á jökulinn. Um borð í Ai&ka eru tvær þyrlur. Með Islendingunum fara 6 menn frá varnarliðinu. Flugl jöigunarmennirnir, er nú leggja í erfiða og hættu- lega för inn á Grænlandsjök- ul, eru allir þrautþjálfaðir fjalla- og jöklagarpar. Margir þeirra tóku t.d. þátt í leiðangr inum, sem gerður var út á Eyjafja'ifijökul fyrr í sumar, að ná í hk hriggja bandarískra flugmaivna, sem fórust þar með köamínarflugvél í janúar 1951. Nöfn islenzku leiðangurs- mannanna átta eru: Sigurður S. Waage, Arni Kjártansson, Magnús Þóraiinsson, Magnús Eyjólfsr.on, Gunnar Jóhannes son„ Ólat'ur Nielsen, Stefán Bjarnason og Arni Edwinsson. 8 íslenzkir ílugbjórgunarmenn leita líka bandarískra flugmanna á Krónborgarjökli Markmið, sem stefnt skal að Þetta er 5. góðaksturskeppni BFÖ hér í höfuðstaðnum og sú 9. í röðinni yfir allt landið. Fyrsta keppnin var hér í Reykja- vík í ágúst 1955, er framkvæmda stjóri MA (norska BFÖ) kom hingað til að kenna þessa sér- stæðu aksturskeppni. Bindindisfélag ökumanna hef- ur nú ákveðið að auka mjög þessa starfsemi sína svo að henni geti orðið það gagn fyrir umferðaröryggið, sem til er ætl- ast og reynsla annarra þjóða hefur sýnt að orðið getur svo um muni. Það liggur í augum uppi, að það hlýtur að taka nokkurn tíma að byggja upp svo hagstætt lána kerfi, en hinsvegar ættu allir stjórnmálaflokkar að geta orðið sammála um, að að þessu marki beri að stefna á næstu árum með markvissum aðgerðum. Hér er um að ræða mikið hagsmuna mál hinnar ungu og uppvaxandi kynslóðar í landinu, og það hlýt ur jafnframt að vera hagur þjóð félagsins í heild, að starfsorka þessa unga fólks um nokkurra ára bil fari ekki eingöngu í það, að ráða fram úr erfiðleikum í sambandi við húsbyggingar. Ný byggingartækni Þá er einnig ljóst, að þær bygg ingaraðferðir, sem hér eru nú tíðkaðar, eru löngu úreltar og nauðsyn að skapa grundvöll fyr ir því, að nýjum byggingarað- ferðum verði beitt við húsabygg ingar hér á landi. Til þess þurfa hinsvegar að myndast öfl ug byggingarfélög, öflugri og fjármagnsríkari en þau, sem nú eru til staðar. Ákveðnar aðgerð ir eru nauðsynlegar til þess að mynda grundvöll fyrir slikum byggingai'félögnm og vafalaust geta Alþingi og stjórnarvöld stuðlað að því méð löggjöf, að hér myndist stór og öflug bygg- ingarfélög, sem beiti sér fyrir fjöldaframleiðslu á ibúðum. — 1 þessum efnum er mikilvægt að sú tilraun, sem framkvæmda- nefnd byggingaráætlunar stend- ur fyrir takizt vel. En nauðsyn- leg forsenda allra aðgerða í þess um málum er ' auðvitað sú, að fólk gerir sér fulla grein fyrir þvi, hversu mikið þjóðfélagslegt vandamál hér er um að ræða, og hversu brýn nauðsyn er á því að gera stort átak í þessum efnum. (Frá skrifstofu BFÖ í Reykjavik) A laugardaginn kl. 9 um kvóldið varð harður árekstur tveggja fólksbila á gatnamótunum við Kringlumýrarbraut. Þrennt slas- aðist og var flutt á Slysavarðstofuna, ein kona Þorgerður Steins dóttir, og tveir menn Ingimar Þór Gunnarsson og Jens Kristj- ánsson, en hann var fluttur áfram á Landakot. Bílarnir skemmd ust mikið. Annar sést hér á myndinni. Flngbjörgunarsveitarmenn- irnir átta sem fara áttu á Grænlundsiökul að sækja 12 lík af fcandarískum flugmönn um og farþegum, lögðu af stað úr Reykjavíkurhöfn kl. 5 í morgun. Þeir höfðu tygjað sig til fararinnar í gærkvöldi í skála Flugbjörgunarsveitar innar \ >J Nauthólsvík og héklu af stað með landgöngu pramma bandariska ísbrjóts- ins Atka út i skipið kl. 9 í gærkvöldi, en af ótúskýrðum ástæðum hiðu þeir farar í ís- brjótnum þar tii i morgun. Eins og skýrt var frá í Mbl. sl. laugardag fann breZkur leiðangur á Grænlandsjökli lík 12 marna, sem að öllum líkindura fórust með banda- rískri könnunarflugvél ó Krón borgarjökli, 12. janúar 1962 og geysimJkil ieit var gerð að á sínum tima. Þegar kunnugt varð um fund brezka leiðang- ursins leitaði varnarliðið á Keflavíkurflugvelli til Flug- björgunarsveitarinnar um að- stoð til að ná Jíkunum. Er blaðið hafði tal af farar- stjóra leiðangursins, Sigurði S. Waage í skál Flugbjörgun- arsveitaiinnar í gærkvöldi, kvaðst hann ekki geta um það sagt með vissu hversu lengi þeir áttmennmgar yrðu í för- inni og færi það allt eftir veð- urskilyrðum, en tæplega yrðu þeir, lengur en viku í burtu. Þeir gera rað fyrir að vera komnir til Wiedemannsfjarð- ar í Grænlandi í kvöld, en þaðan ba)da þeir inn á Krón borgarjökul. Er flak banda- rísku fiugvélarirmar um 9 km inni á jökJinum. Þeir íéiagar eru búnir full komnasca klifurútbúnaði, skíð um, sleðum o. f 1., en ísbrjót í Reykjavikurliöfn. Sigurður S. Waage og Capt. Cool leið angursstjóri Bandaríkjamannanna 6, ræðast við. Flugbjörgunarmennirnir fyrir utan skálann við Nauthólsvík. Talið frá v. Stefán Bjarnason, Sigurður S. Waage leiðangursstjóri, Magnús Þórarinsson, Ólafur Nielsen, Árni Kjartansson, Árni Edwinsson, Gunnar Jóhannesson, Magnús Eyjólfsson og Sigurður Þorsteinsson formaður, Flugbjörgunarsveitar tslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.