Morgunblaðið - 20.09.1966, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.09.1966, Blaðsíða 10
10 MORGU N BLAÐIÐ ÞriSjudagur 20. sept. 1966 ÓVÍÐA á fslandi hafa verið aldir upp jafn margir gæðing ar og í Skagafirði, enda er það hérað ekki hvað sízt frægt fyrir hesta o? hestamennsku. Enn sem fyir kunna menn þar að fara með hesta og áhuginn á þessari yodislegu skepnu, ís lenzka hestinum er óvíða meiri en þar. Tíðindamanni Morgunblaðsins þótti það því mikill fengur að fá að spjalla þar norður frá við þekktan hestamann, Þorvald Þorvalds son, kaupmann á Sauðár- króki, en í næsta mánuði held ur hann tvítugsafmæli hans Faxa síns, eins hins bezta gæð ings, sem hefur komið fram í Skagafirði hin síðari ár og er þar mikfu saman jafnað. Segðu mér Þorvaldur, er áhugi á hestum og hesta- mennsku jafn mikill hér í SkagafirSi nú og áður? Já, því get ég svarað hik- laust játandi. Hér í Skaga- honum vmsa hluti. Skapið var það ljúft og eltirgefanlegt, að hann fór fljótlega með mér alls staðar, þar sem búast mætti við því, að kross kæm- ist á annað borð. Ég kenndi honum að fara upp og niður tröppur og síðan inn um allt íbúðarhíisið og það gerir hann enn í dag. Hann hefur borð- að með mér við eldhúsborðið og verið innan búðar, þegar ég hef staðið í búðinni og ver ið að afgreiða. Hann hefur verið aðalreið- hestur minn sl 15 ár og verð ég að segja, að ég hef verið afar ánægður með hann, sem reiðhest. Faxi hefur mætt nokkrum sinnum í góðhesta- keppni hér á Sauðárkróki og hlotið annað sæti en einu einu sinni fyrsta. Tvisvar hef ur hann átt kost á að mæta á landsmóti í góðhestakeppni, en því miður hafði ég ekki tækifæri til þess að sinna þeim. Annars þykir ef til vill ekki hæfa, að ég eigandi Faxa hrósi honum um of. en þér hefur þú dómsorð óvilhallra manna, þeirra H. J Hólmjárns frá Vatnslevsu, Magnúsar Gísla- sonar frá Frostastöðum og Björns Skúlasonar Sauðár- króki. Dóm þennan um Faxa kváðu þeir upp í sambandi Þorvaidur Þorvaldsson kaupmaður á Sauðárkróki á baki gæðingi sínum, Faxa. Mynd þessi var tekin 1957, er Faxi var 11 vetra. hvað að heilsu, ætla ég að lóga honum og grafa hann. Hérna á ég annars ágætt kvæði um Faxa, sem Gísli Ó1 afsson skáld frá Eiríksstöðum afhenti mér 22. nóv. 1960 og sem hann orkti undir nafni eiganda. Það vona ég, að verði minningu Faxa óbrotgjarn minnsvarði. Faxa-óður ort af Gísla Ólafssyni frá Eiríksstöðum 22. nóv. 1960. Ef hugarángur hrellir mig eg hnakkinn tek og legg á þig. Og harmabót ég bezta finn á baki þínu Faxi minn. I hverfc sinn þegat kem ég inn þá kumrar þú við stallinn þinn. Og þó að vanti vit og mál þá veit ég að þú hefir sál. Tryggða vinur enginn er sem öllu betur fagnar mér. Það eykur lífsins yndi og frið að eiga slíkan vin við hlið. I dimmu og björtu á baki þér hin bezta unun veitist mér. Þú hreifir iista hreinan gang með hófuð vafið mér í fáng. Þú leikur jafnan létt við taum þó logi fjör í reiðarglaum. Og sýnir fimleik festu og kjavk til frægðar töngum skorar mark. Á tvítugsafmæli skag- firzks gæðings firði er til mikið af góðum hestum. Sumir hinna beztu eru landsþekktir á meðal hestamanna en aðrir ekki og þá fyrst og fremst vegna þess að eigendur þeirra halda þeim frá hestamótum. Stundum eru það þannig beztu hestarnir, sem fólkið fær aldrei að vita neitt um og tel ég það miður farið. Hér í Kkagafirði er og margt ágætra hestamanna, sem kunna vel að fara með góðan hest. Þetta á jafnt við hér á Sauðárkróki og upp til sveita. Þú hefur átt marga góða hesta um ævina? Ég hef átt nokkra góða hesta og yfirieitt tamið þá sjálfur. Af öllum þéim hest- um, sem ég hef átt, er mér Faxi þó hugljúfastur. Hvað finnst þér Þorvald- ur? Að jafnaði birtist tals- vert af afmælisgreinum í Morg unblaðinu um margan ágætis mann. Hvernig væri að gera undantekningu frá þvi nú og birta afmælisgrein um hann Faxa þinn tvítugan, þennan úrvalsgæðing. Það vær' ef til vill ekki úr vegi. Faxi er fæddur í sept- ember 1946, skagfirzkur í móð urættina, undan bleikskjóttri hryssu frá Egg í Hegranesi af kyni Sigurðar bónda þar, en af því lryni hafa komið marg- ir ágætis hestai hér áður fyrr. Föðurættin ei ókunn, þar sem Faxi mun hafa komið und ir í fjöllururr,. Ég tók hann fyrst á hús á öðrum vetri og byrjaði þá strax að temja hann. Sa ég ejálfur um tamn- ingu hans og kom okkur allt- af vel saman frá upphafi þessa námstíma hans. Urðum við miklir vinir og hefur aldrei borið skugga á vináttu okkur síðan. Tamningin byriaði á því að teyma hann eins og gengur og gerist. Fann ée þá strax, að hægt myndi verða að kenna við góðhestakeppni, sem fór fram 1957 á skeiðvelli hesta- mannafélagsins okkar, Flugu skeiði. Þar segir: „Rétthyggður og léttbyggð- ur, fjölhæfur gæðingur. Með alhliða hreinan gang, áber- andi fagurt tölt og skeið. Fjör hár, lun.dljúfur, óragur og ó- hræddur. Áberandi vel tam- inn og allar hreyfingar léttar og mjúkar“. Hvað dómnefndina snertir, þá álít ég að H J. Hólmjárn þurfi ekki að kynna fyrir hestamönnum iandsins. Hann er áreiðanlega í fremstu röð þeirra, sem kunna að dæma um hross, og ég þori að full- yrða urn Björn Skúlason, að hann 'neíur skilað flestum full gerðum gæðingum í Skaga- firði úr tamningu um árabil. Magnús þekki ég, að hefur á- gætt vit á hrossurn. m Eins og ég nefndi áðan, þá hefur Faxi verið minn aðal reiðhestur sl. 15 ár. Hann hef ur verið hvers manns hug- ljúfi og hegðun hans við ó- kunnuga hefur í engu verið síðri en við mig eiganda hans, nema ?f til vill að ná honum lausum. Þar hefur hann aldrei brugðizt mér. Hvernig er nafnið Faxi til komið? Hann fékk þetta nafn, strax og hann kom með móður sinni ofan úr fjöllunum. Hann var þá með mikið fax, sem var klofið frá eyrum aftur að herðakamhi, er. það var ó- venjulegt af svo ungum hesti og hann var þá. Hafið þið nokkurn tímann orðið fyrir óhöppum eða slys- um saman? Jú, eitt sinn var ég að æfa hann íyrir fjórðungsmót, sem haldið var hér fyrir um 8 ár- um. Þá heitist Faxi á fram- fæti á skeiðspretti. Ég fór fyrst til dýralæknis, sem taldi að um sinaskeiðabólgu væri að ræða, en huldulæknir nokk Faxi lærði ungur að gera sig heimakominn í húsakynnum húsbónda síns. Hér sést hann við búðarborðið í verzlun Þorvaldar á Sauðárkróki. Hér eru þeir félagar í dyrum verzlunarinnar. ur lét mig hins vegar vita, að um eitthvað alvarlegra væri að ræða. Ég mætti ekki brúka hann í eitt ár og yrði að fara várlega með skeiðið fyrst um sinn þar á eftir, þar sem hann myndi hafa tognað hjá mér á skeiðspretti Af þessari á- stæðu hef ég ekki treyst hon- um eins vel til að mæta á mótum og ella. Síðan hefur hann aldrei helzt. Segðu mér Þorvaldur, hef- ur aldrei hvarflað að þér að selja Faxa. Ég þykist viss um, að ýmsir muni hafa haft ágirnd á honum. Nei, það hefur aldrei hvarfl að að mér að selja hann, enda þótt ég hafi marga hesta selt. Fyrst var liann faJaður af mér 5 vetra gamaJJ og mér þá boðn ar tíu þúsund krónur fyrir hann. Þetta var fyrir 15 árum og þessi unphæð því mikið fé þá. Eftir það gat ég einnig oft let hann og kom aldrei verð til greina, því að ég var full komlega mótfallinn þeirri hugmynd að selja Faxa nokkru sinm ekki sízt vegna þess að hann var gjöf frá föð ur mínum. Nú verður Faxi tvitugur í næsta mánuði og er því kom- inn á efri ár Hvað hyggst þú gera við Faxa í framtíð- inni? Ég reikna með því, að hann endist mér í nokkur ár enn og strax og hann bilar eitt- Líkt og ásttney ann ég þér þú aldrei hefir brugðist mér. Með bjartrl von og bros um kinn á bak þér legg ég hnakkinn minn. Fóta snilli þin er þekt sem þjóffin veitir eftirtekt. Náffargjöf sú gladdi mig þess guðs er hefii skapað þig. Á sjöttu ári allra hrós þú áttir sýndu merkin ljós. Mig tældi ei auðsins töfra-vald né tíu þúsund króna gjald. Ánægjan er æðsta hnoss ágirndin er sálarkross. Og einka-vin að selja sinn er synda stairsti bletturinn. Fóstursonur mæti minn mér ei skapast líki þinn. Okkar saman eigum skeið uns að dauðinn skilur leið. Leiktu fagran fóta dans í fangi kæra eigandans. Þó úti veðrið andi svalt þér aldrei vcrður hjá mér kalt. Sú guð sem áður gaf mér þig hann gæti þin um æfistig. Ég legg með þökkum kinn að kinn þér kæri góði Faxi minn. Uudir nafni eiganda. G. Ó. ☆ ☆

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.