Morgunblaðið - 20.09.1966, Side 5
Þriðjudagur 20 sept. 19S6
MORCUNBLAÐIÐ
5
Verð á rækja ákveðið
Verb á smáum þorski og ýsu óbreyff
Hnndar aflífaðir
í Kópavogi
UNDANFARIN ár hefur hunda
hald verið bannað í Kópavogi.
Hefir lögreglan séð um að þessu
banni væri framfylgt, eftir því
sem kostur hefir verið á.
Þrátt fyrir bann þetta og eft-
irlit með framkvæmd þess, hafa
fáeinir einstaklingar brotið
þessi ákvæði um lengri eða
skemmri tíma. Hefir lögreglan
stundum sætt nokkru aðkasti
vegna afskipta af þessum mál-
um og krafa um að settum
reglum sé hlýtt, talin ofsókn á
hendur saklausu fólki.
Nú fyrir skömmu gerðist það,
að einn af þessum óleyfilegu
hundum beit framan af fingri
barns úr nærligjandi húsi. Var
sagt frá þessu atviki í dagblöð-
um daginn eftir.
Lögreglan vill að gefnu þessu
tilefni, aðvara bæjarbúa strang-
lega um að hlíta settum reglum
um bann við hundahaldi, sem
alla aðra en ábúendur lögbýla.
gildir undantekningarlaust fyrir
un lögreglan framvegis láta af-
lífa alla þá hunda, sem ekki er
leyfi fyrir, án frekari viðvörun-
ar.
Frá lögreglunni í Kópavogi.
Varsjá, 14. sept. — NTB-AP
♦ REZA Pahlevi, íranskeisari,
er kominn til Póllands og mun
í dag ræða við pólska stjói’nmála-
leiðtoga, að því er segir í frétt
frá Varsjá. Jafnframt hittir hann
að máli Adward Pvhab forseta í
Belweder-höll. Utanríkisráðherra
frans, Abbas Aram, er í för með
kcisaranum.
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins
hefur ákveðið, að lágmarksverð
á rækju rækjuveiðitimabilið, sem
hefst haustið 1966 til loka þess
voruð 1967, skuli vera kr. 8,85
pr. kg. miðað við óskelfletta
rækju og ekki smærri en svo,
að 350 stk. fari í hvért kg.
Þá hefur yfirnefnd Verðlags-
ráðs ákveðið, að lágmarksverð
á smáum þorski og ýsu tíma-
bilið 16. sept. til 31. des. 1966,
skuli vera það sama og gilti
tímabilið 1. janúar til 31. maí
á slægðum fiski og 16. apríl til
31. maí á óslægðum fiski, þ.e.
15% lægra en á stórfiski.
(Frá Verðlagsráði sjóvarútv.)
úr sér gengnum vélum hefur
verið beitt. Oft urðu löng hlé
og tafir við jarðgöngin vegna
tíðra bilana tækjanna.
Eftir á nú að steypa boga
í báða munnana og sennilega
á einum til tveimur stöðum
inni í göngunum. Þá er einn-
ig eftir að útbúa 50 cm. ræsi
sitt hvoru megin við væntan-
lega akbraut inni í göngun-
um.
En við skulum vona, að það
verk, sem eftir er að vinna
við Strákaveg vei'ði ekki síð
ur gifturíkt, en það sem þeg
ar hefuf áunnizt.
Meðfylgjandi myndir sýna
að litlu leyti hvernig starfið
við Strákagöng er og hefur
verið. Eina þeirra tók verk-
stjórinn Karl Samúelsson á
myndavél mína, en óviðkom-
andi var meinað að fara inn
í göngin á þeim tíma.
— Sk.
sc... var svu, ive.r meim gaiu rario inn i einu með naumindum. A myndinni til vinstri sjást verkstjórarnir Karl
Samuelsson og Oluf Nicalsen kom i gegn. Á myndmni til hægri sézt greinilega hamarinn, sem nú er verið að sprengja, en austan við hann er opið
Mynni Sigiufjarðar sézt 'engra til vinstri á myndinni (Ljósm. Sk.).
Hér eru þeir samankomnir, sem voru inni í jarðgöngunum, þegar sprengt var og jafn-
framt eru þetta fyrstu mennirnir, sem fóru í bókstaflegri merkingu gegnum Stráka-
fjall. Sá þriðji t. h., Eggert Ólafsson varð fyrstur til þess. Sigfús Thorarensen og Karl
Samúelsson standa við v. hlið hans á myndinni, sem tekin er Siglufjarðarmegin við
jarðgöngin
I (jecjnum
Sfrákafjall
Hér sjást nokkrir „gatmenn“ skríða aftur inn í göngin.
(Ljósm. Karl Samúelsson.
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
Siglufirði, 17—9.
JÁ, það má nú segja „gatið“
er komið í gegn og menn
hafa skriðið út og inn um
gluggann. En ekki er þar með
sagt, að verkinu sé lokið, því
fer nú fjarri. Mikið verk er
eftir, áður en „gatið” verður
opnað fyrir almenna bifreiða-
umferð. En það verk, sem
þegar er lokið er mikið og
hættulegt, og vel af sér vik-
ið af verkamönnum og verk-
stjórum undir stjórn Sigfús-
ar Thorarensen verkfræðings,
ekki hvað sízt þegar tillit er
tekið til hversu lélegum og