Morgunblaðið - 20.09.1966, Síða 23

Morgunblaðið - 20.09.1966, Síða 23
Þriðjudagur 20 sepl. MORCUNBLAÐIÐ 23 Cuðmundur S. Jónsson vélsetjari — Minning MEÐ brottför GuSmundar Jóns- sonar hefir prentarastéttin misst einn sinn bezta mann og ísafold- arprentsmi'ðja dyggan samstarfs- mann og vin, sem var jafnoki hinna beztu, ef ekki allra manna iærastur hér á landi í letursetn- ingu á vél. Guðmundur S(igurður) Jóns- son fæddist í Reykjavík 17. des. 1897. Foreldrar hans voru Jón söðlasmiður á Patreksfirði Þor- steinsson að Felli í Suðursveit og Sléttaleiti og Ingibjörg Jóns- dóttir bónda að Skyttudal í Lax- árdal í Húnavatnssýslu (síðari kona Stefáns Þorsteinssonar söðlasmiðs á Akureyri). Guðmundur hóf prentnám í Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri seinni hluta árs 1911 og lauk þar námi. „Vann svo þar (segir í íslenzku prentaratali 1530—.1950) til 1919, að hann var nokkra mánuði í ísafold, frá ógúst 1919 til janúar 1920. Fór jþá til Færeyja og vann þar í prentsmiðju, er prentaði „Tinga- krossur“. Þaðan fór hann svo aftur á miðju ári 1921. Frá því og þar til í september 1929 fékkst hann ekkert við prent- störf, en í sept. 1929 hóf hann vinnu í Isafoldarprentsmiðju. Hefir svo unnið þar síðan, og sem vélsetjari frá 1934.“ Guðmundur var einstæðingur í þeim skilningi að hann kvænt- ist ekki, en hann átti litríka hug- arheima, var lesinn vel, pólitísk- ur þegar því var að skipta, oft með glettni á vör, fór lítt á mannamót, en var skemmtilegur í fárra manna hóp og gleðimað- ur ef svo bar undir. Svo mikill kunnáttumaður var Guðmundur á vél sína, setning- arvélina, að gekk göldrum næst. Hann var setztur við vél sína klukkan átta að morgni og vann af atorku átta tíma dagsins, en hirti ekki um eftirvinnu, a.m.k. ekki hin síðari árin. En það sem gerði Guðmund Jónsson ólikan og fremri flestum öðrum mönn- um í prentarastétt, var alveg ótrúleg kunnátta og vand- virkni; þannig að hann gat sett heilar bækur villulitlar og langa kafla, hvort sem var í sögum, æviskrám eða í þurri upptaln- ingu á læknaheitum, villulaust. Merkur borgari lét einu sinni svo um mælt að hann hreinlega gleddist yfir því, þegar hann fyndi villur í því, sem Guð- mundur setti, því að það væri á móti öllum lögmálum lífsins að vera eins fullkominn setjari og Guðmundur var. Mér var Guðmundur Jónsson mjög kær vinur. Guðmundur varð bráðkvaddur eftir stutta legu í Landsspítalanum og lauk þar með nær fjörutíu ára sam- starfi í ísafoldarprentsmiðju. í dag verður dapurlegt að líta á vélina hans, sem hann þekkti gjörla eins og fingurgómana á sér, og sorg er í hjörtum okkar ísafoldarmanna er við segjum. Farðu vel og þökk fyrir vináttu og tryggð. Pétur Ólafsson. Guðrún Guðmunds- dófttir - Minningurorð Fædd: 21. sept. 1892. Dáin: 14. sept. 1966. GUÐRÚN Guðmundsdóttir, sem Leðurfakka í unglingastærðum. Verð kr. 2.338.— Mdg II loGldiK> Laugavegi 31. Höfum fengið nýja sendingu af vetrar- kápum og veftrar- drögftum Tízkuverzlunin uorun Rauðarárstíg 1. sími 15077. nú er ný látin var mörgum Reyk víkingum kunn að minnsta kosti þeim, sem komu á heimili mitt, því hún var hlý og vingjarnleg og vildi hvers manns bón leysa. Hjá mér og fjölskyldu minni hafði hún unnið um 25 ára skeið af mestu prýði og dugnaði, enda svo viljug og ósérplægin að furðu gengdi. Andlát hennar bar brátt að, fékk hún heilablóðfall seinni hluta dags og fékk ekki meðvit und eftir það. Lézt hún þann 14. þ.m. á Borgarsjúkrahúsinu hér í Reykjavík sárt saknað af heim ilisfólkinu og íjölda annarra. Guðrún heitin var fædd að Ósi við Káifsl.amarsvík og voru foreldrar hennai þau hjónin Guð mundur Guðrnundsson og kona hans Guð'.aog Einarsdóttir ætt- uð af Suðurnesjum, en Guð- mundur var Húnvetningur. Var fólk þetta annalað dugnaðarfólk en tímarn:r bá, fyrir aldamót, harðir. Var hún því alin upp í fátækt, svo mikilli að fáa grun ar nú hversu mikið baslið og vandræðin voru á þeim tímum. Snemma fór Guðrún að vinna fyrir sér við margskonar vinnu, eða allt það er gaf eitthvað í aðra hönd. mótekju, heyskap, heyburð og fiskvinnu, þegar um slíkt var að ræða. Eftir tvítugsaldur fluttist hún suður með sjc og stundaði þar allskonar vir.nu, þar til hún kom á heimili mitt fyrir 25 árum. Það er staðhæft að mönnum sé í sjálfsvald sett að snúa ófar- sældinni í fögnuð og lánleysinu í gæfu. Þetta er mikil setning en Framhald á bls 25 TEIKNIVELAR maiiMii TEIKNIVÉLAR MEÐ 0G ÁN PLÖTU, í HANDHÆGUM UM- BÚÐUM. TILVALDAR FYRIR IÐNMEISTARA, TÆKNIFRÆÐ- INGA, IÐNSKÓLANEMENDUR 0G TEIKNARA. Brautarholt 20 sími 15159 Góð kaup í boði Til sölu ýmsir nauðsynjamunir. 7ækifærisverð. Rafha eldavél sem ný, 4 hólf, ljós og klukka. Philips útvarpsgrommophon, 7 lampa. Stálhúsgögn, borð og 4 stólar. Rafmagns-eldunarplata, tveggja hclfa. Standlampi, 3ja ljósa. Ritvél, (notuð ferðavél) Stór spegill, (rammlaus) ,1,75 x J .10 mtr. Þykkt 5—6 m.m. Smíðaverkfæri ýmiskonar, sem ný Stáiheflar, handborvél, o. fl. Upplýsingar í síma 17610, í dag og á morgun, milli kl. 4 og 7.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.