Morgunblaðið - 20.09.1966, Page 30

Morgunblaðið - 20.09.1966, Page 30
w>v/ m u n u u ii o ■■ m u ( (/ Pnöjudagur 20. sept. 1966 Islendingar hðfðu fleiri tækifæri Frakkar unnu 2:0 en DaufBegur Tandsleikur í 7 vind- stigum og haughfaufum velli NÆTURLÖNG úrhellisrigning fyrir leikinn og 7 vindstig af suðvestri settu sín mork í landsleik íslendinga og Frakka i knattspvrnu á sunnudagínn. Miðað við aðstæður má ef til vill segja að liðunum hafi tekizt furðu vel að fóta sig og hemja knöttinn en i heild séð hverfur þessi leikur til sögunnar sem einhver daufasti og lélegasti landsleikur sem Islendingar hafa háð i knattspyrnu — og er þó til daufra ieikja að jafna. Úrslitm urðu að Frakkar sigruðu með 2 mörkum gegn engu. Sigurinn var réttlátur eftir gangi leiks- ins, en ar.nað markið var þó skorað eftir að ólöglega hafði verið starfað að knettinum með hendi. pánahvinur Rokið var slíkt að varla heyrð- ist í' Lúðrasveit Reykjavíkur í efstu bekki stúkunnar fyrir leik roksins við fánana á stöngum stúkunnar. Stóð rokið að mestu þvert á völlinn en íslendingar, sem unnu hiutkestið, kusu þó að leika ívið undan vindi í fyrri hálfleik. Tækifæn til sigurs Hagræðið af vindinum markaði gang leiksins allan tímann. í hálfleik voru það íslendingar sem sóttu og þegar á fyrstu mín- útu stóðu milli 3 og 4 þúsund áhorfendur á öndinni um það hvort knötturinn lægi í franska markinu. Hermann miðherji Gunnarsson komst innfyrir frönsku vörnina — en skot hans fór rétt utan við stöng. er írski dómarinn O’Neill dæmdi óbeina aukaspyrnu á íslendinga inni í vítateig. Sigurður Dagsson sló knöttinn snaggaralega yfir, og hættunni var bægt frá. Eftir því sem minútur fyrri hálfleiks liðu missti íslenzka liðið af sigri í þessum leik. Liðið var svo heppið að vinna hlutkestið og leika með vind- inn í bakið á sínum heima- velli, sem þennan dag var vægast sagt erfiður. En vart sást örla á vilja til að notfæra sér það hagræði. Varla heyrð- ist hvatning frá áhorfendum og ekki var það sjáanlegt að fyrirliði eða annar í liðinu tæki sig fram um að hefja sókn sem með vel skipulagðri sókn og sigurvilja liðsmanna — hefði hann verið til — gat gert út um leikinn. Þvert á Eitt af mörgum misheppnuðum tækifærum íslands. Franski markvörðurinn fékk þarna varið í horn — þótt ótrúlegt sé. Frakkana í síðari hálfleik, hvern- ig þeir notfærðu sér vindgjöfina í bakið. Hver einasti leikmaður hafði allan hug á, hvenær sem færi gafst, að nota aðstæðurnar og nú tók hættan að nálgast ísl. markið. Á 4. mín. komst v. útherjinn Zanchi gegnum ísl. vörnina og átti þrumuskot í þverslá. Þar lék lánið við íslendinga. En þrátt fyrir að ísl. liðið næði ekki að finna hinn sameinandi eldneista hafði liðið þó sigur- möguleikann í hendi sór fram undir miðjan síð. hálfleik. Kári komst innfyrir á 4. mín. — rétt eftir stangarskotið í ísl. markinu. En skot hans geigaði og hæfði ekki. Á 17. mín er gefið fyrir frá vinstri og Kári stendur fyrir opnu marki. Varnarmaður og markvörður hlaupa að honum 'j"< flyMfííyyMOWy//•» •/ / ’ 5 ,»«. )' ' « Eftir þennan árekstur við Kára og franska bakvörðinn varð markvörður Frakka að yfirgefa völlinn — beinbrotinn. Það virðist ekki mikið skipulag á ísl. vörninni á þessari mynd og varla er þetta eftir „kerfinu" — eða hvað? — Myndir Sv. Þorm. Tæpum 10 mínútum síðar sóttu íslenzku framherjarnir fast að franska markinu. Þeirri pressu lauk með því að Ellert Schram átti skot úr góðu færi — en beint í fang markvarðar. Á 20. mínútu komst Hermann enn einn innfyrir frönsku vörn- ina og menn biðu bara eftir að sjá knöttinn í netinu. En franska markverðinum tókst að bægja knettinum frá með bláfingur- gómunum. Tvívegis auk áðurnefndra tæki færa voru íslendingar í góðu færi við franskh markið. Allt kom fyrir ekki og fyrst öll þessi ágætu tækifæri fóru forgörðum meðan ísl. liðið hafði hagræði af vindinum, var einsýnt að ísland færi ekki með sigur af hólmi — spurningin var aðeins hvort Frökkum tækist að skora. Til þess höfðu þeir ekki haft nema eitt tækifæri allan fyrri hálfleikinn. Var það á 24. mín. móti einkenndist allur leikur ísl. liðsins af deyfð og drunga og er liðin gengu til leikhlés var leikurinn enn án marka. Enn tækifæri Það var dálítið annað að sjá um leið og knötturinn kemur. Marki er forðað en markvöröur Frakka liggur óvígur eftir og verður að yfirgefa völlinn. Nokkrum mínútum síðar er Kári enn einn og óvaldaður, eftir frábært spretthlaup, fyrir fram- an franska markið en tekst ekki markspyrnan. Með þessu tæki- færi ísl. liðsins til sigurs — en þau höfðu verið mörg og hefðu (á heimavelli) átt að nægja til sigurs. Mörkin sbm útkljáðu leikinn voru það eina sem markvert gerðist síðari hluta síðari hálf- leiks. Á 27. mín. spyrnir mark- vörður frá marki — notar vind- inn og spyrnir út til hægri út- herja hins þeldökka Marc Kany- an. Slík var ferðin á knettinum að flestum sýndist augljóst að hann lagfærði knöttinn fyrir sér Sænski meistarinn keppir í dag - í Sundhöllinni kl. 8 síðdegis I KVÖLD kl. 8.00 gangast Sund- samband íslands og Sundráð Reykjavíkur fyrir sundmóti með þátttöku bezta sundmanns Norðurlanda, Svíans Ingvais Erikssonar. Ingvar hlaut þrenrj verðlaun á nýafstöðnu Evrópu- meistaramótí og voru beztu tím- ar hans þar: 100 m. skriðsund 54.1 sek. (í boðsundi). 200 m. skriðsund 2.00.0 mín (í boðsundi). Ingvar á Norðurlandametið í 100 m. flugsundi 59.5 sek. á 25 metra braut. (1.00.6 á 50 m. braut) og eru líkur á þvi að hann bæti þetta met hér. Ingvar er á leið til Bandaríkjanna til náms og sundæfinga. Keppnisgreinar á mótinu verða: 100 m. skriðsund karla. 100 m. flugsund karla . 200 m. bringusund karla. 100 m. baksund kvenna. 50 m. bringusund kvenna. 100 m. bringusund drengja. 50 m. skriðsund drengja. 100 m. skriðsund stúlkna. 100 m. fjórsund telpna. 4x50 m. fjórsund kvenna. með höndum. En dómarinn O’Neill sem ætíð lét mikið á ser bera og var hinn argasti og leið- inlegasti sentimetrastrefari var á öðru máli, og dæmdi markið lög- lega skorað. Sem betur fer varð þetta ekki eina mark leiksins og sami maö- ur, Marc Kanyan skoraði gull- fallegt mark 5 mínútum fyrir leikslok. Það mark, skorað af mikilli knattleikni — með na- kvæmu vippi yfir markvörð og leik allt inn í mark — hefði eitt nægt til að réttlæta sigur Frakka í leiknum og var hinn írski dóm- ari sannarlega heppinn að fyrra markið, — sem hann viðurkenndi ranglega — varð ekki eina mark leiksins. Það verður ekki með sanni sagt að nokkur hinna ísl. lands- liðsmanna hafi slegið sig til ridd- ara fyrir þennan landsleik. Margt fór á annan veg en ætlast var til. Miðjumennirnir Ellert og Magn- ús Torfason náðu aldrei tökum á leiknum og framherjarnir voru aldrei sameinaðir í aðgerðum sínum, hik og fálm eyðilagði mark. Reynir t. d. einlék enn einu sinni langt um of og Her- mann tapaði nálega öllum e>n- vígum og var svipur hjá sj n Framhald á bls. ál

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.