Morgunblaðið - 25.09.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.09.1966, Blaðsíða 3
Sunnudagur 25, sept. 1966 MORGUNBIAÐID 3 Sigurður Þórðarson, skrifstofustjóri Ríkisútvarpsins, hætti storfum og kvaddi starfsfólks út- varpsins sl. fimmtudag. Safnaðist starfsfólk útvarpsins saman í anddyrinu til að kveðja sam- starfsmann sinn. Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarpsstjóri, mælti nokkur kveðjuorð og hyllti fólkið Sigurð. En hann lét hylla ríkisútyarpið og kvaddi alia með hand abandi. Myndin er tekin við þetta tækifæri. Fremst standa útvarpsstjóri og Sigurður Þórðarson. Kennaranám- skeiðum lokið — þau yfirgripsmestiu, sem haldin hafa verið — vuru ffolsótt Sr. Jón Auðuns, dómprófastur: í haustskóginum í SEPTEMBER hafa staðið yfir hér í Reykjavík fimm námskeið fyrir kennara og er þeim nú öllum nýlokið. Námskeið þessi voru öll á veg- um fræðslumálastjórnar eða með stuðningi hennar. Allt voru þetta dagnámskeið og sóttu þau um 165 kennarar, auk óreglu- legra þátttakenda, sem voru milli 20 og 30. Kennarar þessir voru víðs veg ar að af landinu, en flestir kenn arar við barna- og gagnfræða- skólastig. Munu þetta vera yfirgrips- mestu kennaranámskeið, sem haldin hafa verið hér á landi til þessa og ánægjulegt til þess að vita, hve vel sótt þau voru. Námskeið þessi voru: 1. Námskeið fyrir dönskukenn ara stóð frá 1,—20. sept. Það sóttu 38 kennarar* Stjórnandi námskeiðsins var Ágúst Sigurðs son, námsstjóri. Kennarar auk námstjórans voru Danirnir Niels Ferlov, menntaskólarektor, Henning Har mer, námstjóri, Sveinn Berg- sveinsson, próf. og Torben Frið- riksson, cand. oecon. 2. Námskeið fyrir söngkenn- SAMKOMUR Kristileg samkoma á bænastaðnum Fálkag. 10 sunnud. 25/9 kl. 4. Bænastund alla virka daga kl. 7 e. m. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn Sunnudag kl. lil.OO og 20.30 samkomur. — Strengjasveit yngri hermanna syngur og spilar kl. 20.30. Allir vel- komnir. Hollenskir kókosd reg lar fyrirliggjandi Tökum mál fyrir skip og bíla GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTAN GrandagarðL Simi 14010 ara stóð frá 1.—9. sept., og sóttu það 32 söng- og tónlistarkennar- ar. Stjórnandi þess var Guðm. Guðbrandsson. Kennarar voru dr. Hermann Regner frá Carl Orff Institut í Salzburg, Sigríður Pálmadóttir, og dr. Róbert A. Ottósson. 3. Námskeið fyrir íslenzku- kennara í gagnfræðaskólum stóð frá 5.—16. sept. Stjórnandi þess var Öskar Halldórsson námsstj. Námskeiðið sóttu 34. kennarar. Aðalviðfangsefni námskeiðsms var íslenzkar bókmenntir og kynning þeirra á gagnfræðaskól um. —. Kennarar auk námsstjór ans, voru: dr. Steingrímur J. í>orsteinsson, próf., Jón Böðvars son, menntaskólakennari og Baldur Ragnarsson. 4. Starfsfræðslu- og félags- fræðinámskeið stóð frá 5.—16. sept. Stjórnandi þess var Stefán Ólafur Jónsson, námsstjóri. — Reglulegir þátttakendur voru 28 en nokkrir sóttu hluta námskeiðs ins. Aðalkennarar auk námstjórans voru frú Margareta Vestin, skrif stofustjóri í Skolöverstyrelsan í Stokkhólmi og Kristinn Björns- son, sálfræðingur, en auk þeirra fluttu erindi og leiðbeindu 17 manns. 5. Stærðfræði- og eðlisfræði- námskeið stóð frá 5.—17. sept. Því stjórnaði Guðmundur Arn- laugsson, rektor. Reglulegir þátt takendur voru 33 og 10—15 ó- reglulegir. — Námskeiðið var bæði fyrir kennara í barna- og gagnfræðaskólum. 1 eðlisfræði kenndu: Páll Theó dórsson, eðlisfræðingur; Stein- grímur Baldursson, prófessor og Örn Helgason, eðlisfræðingur. Stærðfræði kenndu: Guðmund ur Arnlaugsson, rektor og Björn Bjarnason, dósent, og Hörður Lárusson, menntaskólakennari. Fræðslumálastjóri. Washington — NTB. Bandaríska kjarnorkumála- nefndin tilkynnti á föstudag að sprengd hefði verið kjarnorku- sprengja neðanjarðar í Nevada- eyðimörkinnL Sprengjan var lítiL Þjófurinn fékk sérskyrogskipti mynt f FYRRINÓTT var brotizt inn í mjólkurbúðina á Borgarholts- braut 71 í Kópavogi. Þegar komi'ð var að um morguninn sást að það hafði einhver verið á ferð, fengið sér skyr og brauð og haft svo á brott með sér skiptimynt og eitt karlmannsúr. Veiða í Seyðis- fjarðardýpi SÍLDVEIÐISKIPIN voru aðal- lega í Seyðisfjarðardýpi í fyrri- nótt, 30—40 mílur undan landi. Tilkynntu 76 skip um afla eftir sólarhringinn, samtals 6.546 lest- í DAG kl. 4 fer fram á Laugar dalsvellinum úrslitaleikurinn í íslandsmóti 1. deildar. Lið Keflavíkur og Vals, sem bæði höfðu 14 stig, er leikjum móts ins lauk, berjast um titilinn. Leiksins er beðið með mik- illi eftirvæntingu, enda er þetta aðalleikur íslenzkra liða á sumrinu. Öllu fleiri virðast hallast að því að Keflvíkingar séu sigur stranglegri ef dæmt er eftir Isíðustu leikjum liðanna.' En það sem gerir knattspyrnu svo eftirsótta sem raun ber vitni er einmitt það, að í leik getur ÖLL guðspjöll þessa sunnudags greina frá skiptum Jesú við dauð ann. Og minnir þig ekki haustið á hann? Minna þig ekki visnandi laufblöð á þau örlög, sem bíða líkama þíns. Menn hafa einkum farið tvær leiðir til þess að sigrast á óttan- um við dauðann: Leið trúar og leið þekkingar. Menn segja: Nágranni minn telst trúaður maður, en við ást- vina missi ber hann sig sízt betur en ég. Að vissu marki er þessi dómur ósanngjarn. Með rökum verður því ekki neitað, að trúin hefir sætt menn bezt við dauðann og vakið mönnum hetjulund and- spænis honum, jafnvel þegar hann svipti þá vininum, sem sár- ast var að missa. Trúnni á Guð þarf alls ekki að fylgja trú á Maðurinn úr bílveltunni illa haldinn MAÐURINN, sem slasaðist í bílveltunni í Kópavogi í fyrri- nótt, Hannes Arnórsson, var ekki kominn til meðvitundar er blaðið fór í prentun í gær. Hann liggur í Landakotsspítala og er illa haldinn, talið, að um sé að ræða höfuðkúpubrot. Enn rænulaus EINS og skýrt var frá í Mbl. í gær, varð kona, Guðbjörg Hall- dórsdóttir, fyrir bifreið á móts við Suðurlandsbraut 6 í fyrra- kvöld. Hafði konan hlaupið yf- ir götuna, en skyggni var slæmt og konan dökkklædd, svo að bifreiðarstjórinn sá konuna ekki fyrr en um seinan. Hún fót- brotnaði og hlaut höfuðhögg, og var flutt í sjúkrahús. Er Mþl. hafði síðast spurnir af líðan hennar var hún enn rænulaus. allt skeð og ekki hægt að byggja spá um úrslit á fyrri leikjum. Á það ekki sízt við hér þar sem tvö félög eru jöfn að afloknum 10 leikjum við sömu aðila. Þetta er annað árið í röð sem úrslit íslandsmótsins eru ekki útkljáð fyrr en í auka- úrslitaleik. f fyrra börðust KR og Akurnesingar sem frægt varð. Ef staðan verður jöfn að af- loknum 90 mín. í dag er fram- lengt í 2x15 min., en verði enn jafnt þá þarf nýjan leik. annað líf. En sanntrúaður maður á að vera betur á vegi staddur til að taka eigin dauða og vina sinna, en hinn sem ekki á guðs- trú. Svo eru aðrir, sem hlotið hafa sannfæringu um „byggð á bak við heljarstrauma" af reynslu, sem þeir gátu ekki dregið aðra ályktun af en þá, að látinn lifir. Ekki ætti þetta að koma kristnum mönnum ókunnuglega fyrir sjónir. Upprisa Krists var vottunum blátt áfram þekkingar- atriði. Jafnvel lærisveinarnir vildu ekki trúa fyrstu sögunum, sem þeim bárust af upprisufyrir- bærunum. En þeir sannfærðust af staðreyndum, sem sópuðu efa- semdum þeirra burt. Af því sem þeir sáu og heyrðu, gátu þeir ekki dregið aðra ályktun en þá, að látinn væri Kristur lifandi og hefði sannað þeim það sjálfur upprisinn. Saga kynslóðanna segir frá ótal fyrirbærum, sem menn töldu vitnisburði þess, að látinn lifir. Það er undarleg skammsýni að amast við því að menn leiti slíkr- ar vitneskju, sé hún fáanleg. Og undarlegast er, þegar kirkjunnar menn ónotast við slíkri leit. Um rökin, sannanirnar, verða menn seint á einu máli. En það er guðsþakkarvert, að menn spyrja og leita. Þegar haft er í huga, hve stór- vaxandi sá hópur er, sem alls ekki lætur sannfærast af trúboði okkar prestanna og nennir ekki að hlusta á það, hæfir okkur, kirkjunnar mönnum og kirkjunn- ar vinum, betur auðmýkt en hroki. Langflestir Jerúsalembúar neit uðu afdráttarlaust, að upprisu- fyrirbærin ,sem hinir kristnu sögðu frá, væru annað en hégómi og blekking. En vottarnir kváð- ust einfaldlega boða það, sem þeir hefðu heyrt og séð. Það et sennilegt, að á dögum páskafyrir- brigðanna í Jerúsalem hafi menn deilt um hið yfirvenjulega með ákaflega líku móti og menn deila um það enn í dag. Sumir vilja ekki láta sannfærast um ódauðleika og annað líf, og sjá- andi sjá þeir blátt áfram ekkL Aðrir vilja svo ákaft trúa á fram- haldslífið, að þeir gerast barna- lega trúgjarnir á rökin. Bæði þeir sem skýra sálræn fyrirbæri sem vitnisburði um annað líf, og hinir sem skýra þau öðruvísi, styðjast við tilgátur. Þessvegna verður enn sem komið er hver að hafa það, sem honum þykir sennilegast og meta líkurn- ar eins og honum sýnist sennileg- ast. Það sem einn telur rök, hefir annar að engu, eins um þetta efni og flest önnur svið mannlegra viðfangsefna. Til þess að ná fullum sáttum við dauðann er vænlegast að trú og þekking haldist í hendur. Vitneskjan ein um að látinn lifir, brúar ekki nema helminginn af djúpinu. Hinn helminginn verður trúin að brúa, traustið á Guði og því að hann vaki yfir vegferð lífs og liðinna. Trú og þekking héldust í hendur í frumkristn- inni: Reynsluvissan um að látinn lifir, og trúin, traustið á hand- leiðslu Guðs og leiðsögu hins upprisna Drottins. Guðspjöll þessa sunnudags leiða okkur að dánarbeðinum. Ef við eigum örugga vissu um líf að baki dauðans, lærist okkur ,að ganga um dánarherbergið eins og haustskóg. Þótt skrúðlaufið hrynji og björkin verði blaðlaus og ber, horfum við með rósemi á haustskóginn fölna, þvi að við vitum, að annað sumar er fram- undan. Og þegar okkur lærist að líta á dauðann sem .fagurt haust, horfum við með rósemi á hann, því að þá vitum við, að hann er íyrirboði fegurra sumars. Málverkasýningu Eggerts E. Laxdal í félagsheimili Kópavog lýkur í dag. Myndin hér er aX einu málverkanna á sýningunm Kóuavogskirkju. Keflavík - Valur kl. 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.