Morgunblaðið - 25.09.1966, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 25.09.1966, Qupperneq 11
Sunnudagiir 25. sept. 1968 MORGUNBLAÐIÐ 11 * Enry Lorenz Söltuninni er nú um það bil að ljúka, og við hittum næst að máli Sigríði Kenráðsdóttur frá Siglufirði, sem er elzt síldar- stúlknanna á planinu, en gefur þeim yngri ekkert eftir hvað af köst snert.ir. eftir því sem strák arnir á planinu segja okkur. Hún er ef til vill ekki jafn handfljót orðin, en heldur sín- um hraða og stanzar aldrei til að rétta úr bakinu og fá sér reyk, eins og svo margar. Sig- ríður segist engann tíma hafa til að tala við okkui, hún þurfi að ná sér í síðustu tunnuna. Okkur tekst þó að fá að vita, að hún hefur saltað tæpar 200 tunnur yfir sumarið og hefur fullan hug á að tvöfalda þá tölu áður en söltun lýkur. Við þrjóskumt við og spyrj- um hvort ekki sé önnur öldin nú en á Siglufirði í gamla daga. — Jú, segir Sigriður og það kemur glampi í augu hennar. „Öldin var önnur þá. Það vant- ar fjör í fólkið hér. Á Siglufirði í gamla daga fengum við okkur snúning á millj báta, til þess að halda á okkur hita meðan kass arnir voru fylltir“. Að svo mæltu fer hún að leggja niður af fullum krafti og við áræðum ekki að trufla hana lengur. Verkstjórinn á planinu heitir Reynir Gunnarsson og er inn- fæddur Reyðfirðingur. Hann segir okkur, að frá því að sölt- un hófst um morguninn, hafi verið saltað í um 720 tunnur, en með því er heildarsöltunin yfir sumarið orðin um 8200 tunnur. — Hvemig gengur söltun fyr ir sig? — Þegar fcátarnir koma að landi, byrja þeir þegar í stað að landa síldinni á vörubíla sem síðan aka henni hingað á planið og losa í tvo kassa, sem tengdir eru við flokkunarvél- arnar með faeriböndum. Síldin berst síðan eftir færiböndun- um í vélarnar, sem flokka úr síldarnar sem ná réttri stærð og bera þær ’á annað færiband, en úrgangurinn fellur niður í þró, þar sem hann er geymdur unz honum er ekið í bræðsluna. — Síldina, sem fer í kassana skera stúlkurnar fyrst, en salta hana siðan niður í tunnu. Tunnunni er ekið til h'iðar á planinu, þar sem hún er látin st.anda í nokk urn tíma, sem er breytilegur eftir því um hvaða verkun er að ræða. Siðan er lagað ofan á tunnurnar, bær slegnar til og ekið út í stæður, þar sem þær eru pæklaðar, eftir því sem þörf krefur. Þegar svo að því kemur að flytja á síldina út, kemur yfirtökumaður, sem met ur síldina og rannsakar gæði hennar. Að mati hans loknu er síldin loks tilbúin til útflutn- ings. — Hvað starfa margir hjá ykkur núna? — Allt starfslið okkar nú tel ur um 6ö manns, þar af 40 síldarstúlkur. Auk þess koma hér nokkrir smástrákar, sem eru í snúningum hjá okkur og er oft drjúgur vinnukraftur í þeim. — Nú er allt útlit fyrir að söltun faii að ljúka, hvað tek- ur þá við hjá ykkur? — Það verður nóg að starfa fram eftir hausti við að pækla síldina og koma henni í skip til útflutnings Þegar því lýkur, hefst undirbúningur fyrir næstu veriíð. Söltuninni lauk um kl. 17,00 og bátatnir, Huginn II VE, Bergur VE, og Engey RE héldu þegar út á miðin til þess að geta glímt við síldina um nótt- ina. Söltunai-fólkið klæddi sig úr síldargallanum til að geta brugðið sér iieim og hresst sig á kaffisopa áður en byrjað yrði að laga ofan á og pækla. Er við komum aftur niður á plan var mannskapurinn önn- um kafin á nýian 'leik. Stúlk- urnar lögðu ofan á, en þrír ungir og knálegir piltar slógu tunnurnar til. felldu þær og óku þeim á voldugri dráttarvél út í stæðurnar Þeir sögðust heita Friðjón Vigfússon, Jóhann Hafstein og Borgþór Guðjóns- son. Aðspurðir létu þeir lítið yfir erfiðinu í þessari törn. Síld in veiddist eingöngu á nóttinni og löndun úr bátunum væri yfir leitt lokið fyrir kvöldmat, og eftir það væri ekki unnið leng- ur en til 10 um kvöldið. Aftur á móti væri ræst út kl. 4 á á morgnana, en menn væru orðuir úthvíldir eftir 6 tíma svefn. Þeir höfðu aldrei verið í síld áður að Friðjóni undanteknum, sem þeir Jóhann og Borgþór sögðu að væri fædd ur og uppalinn Siglfirðingur og vanur að veltast í grútnum. — Friðjón hló að þessum ummæl um og sagðist lítið gefa fyrir græningja, sem þyrftu að þvo sér um hendurnar eftir hverja síld sem þeir snertu. Urðu hin- ir heldur hvumsa við þessum ummælum, en Friðjón sneri sér hlægjandi við og hélt áfram að slá til. - Við lögðum því næst leið okk ar niður að uppfyllingarsvæð- inu, þar sem síldartunnurnar stóðu í mörgum skipulögðum stæðum. í einni stæðunni hitt- um við fyrir fjórar litlar telpur sem voru önnum kafnar við að slá tappanna úr tunnunum og hella á þær pækli. Þær sögðu okkur að það væri miklu skemmtilegra að salta, en full orðna fólkið segði að það væri ekki alltaí hægt að gera það sem manni finnst skemmtileg- ast og svo fengju þær líka tíma kaup. í næstu stæðu við hittum við þau Erlu Jóhannsdóttir og Pál Jensson. Páll velti léttilega 100 kg. tunnunum yfir, en Erla sló úr þeim t.ippann og pæklaðL Erla er Reykjavíkurstúlka og er nú í íyrsta skipti í síld. Hún segist hafa farið í síld, af því að hana hafi iangað til að upp- lifa hið maigumtalaða síldar- ævintýri, og það hafi verið miklu skemmtilegra en hún bjóst við. Páll er fæddur og uppalinn á Reyðarfiröi, stúdent frá M. R. sl. vor, gítarleikari í Ómum, vinsælustu hljómsveitinni á Austfjörðum, en hefur nú á- kveðið að leggja hljóðfæraleik alveg á hilluna og hefja nám í verkfræði í haust. — Hvers vegna valdir þú verkfræðina7 — Vegna þess að ég hef mik inn áhuga á aðalgreinum henn- ar, stærðfræði og eðlisfræði og yfirleitt öllu er viðvíkur verk- fræði. Við kveðjum nú þetta ágæta fólk, sem hefur á einni dag- stund skapað pjóðinni brúttóút flutningsverðmæti að upphæð 750 þúsund krónur. Dálaglegur skildingur það. Telpurnar heita Erna Arnþórsdóttir, Adda Sigríður Arnþórs- dóttir, Ásta Guðný Einþórsdóttir og Kristín Þórarinsdóttir. — Þeim finiist skemmtilegast að salta. arstúlknanna. ihj Skrifstofustarf Óskum að ráða stúlku til starfa við spjaldskrár- vinnu og almenn skrifstofustörf. Upplýsingar í sknfstofu vorri, daglega. Fálkinn hf. Laugavegi 24. — Sími 1-86-70.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.