Morgunblaðið - 25.09.1966, Page 23

Morgunblaðið - 25.09.1966, Page 23
Sunnudagut 25 sept. 19W MOkCUNBLAÐIÐ 23 —------------*------------ Sívaxandi gagnrýni á Erhard kanzlara Snjall fjármálamaðux — sem leiðtogi, hikandi og óákveðinn DR. LUDWIG Erhard kanzl- ari Vestur-Þýzkalands á við vaxandi erfiðleika að etja. Úr öllum áttum má sjá merki vaxandi andspyrnu gegn hon- um heimafyrir. Ástæðurnar Uudvvig Erhard. Sætir vaxandi gagnrýni. fyrir þessu eru margvíslegar svo sem ósigur flokks hans, Kristilega demókrataflokksins í fylkiskosningunum í Nordr- hein-Westfalen fyrir skömmu, efnahagsörðugleikar svo sem verðbólga og mikil gagnrýni að undanförnu á einn ráðherr ann í stjórn hans, varnarmála- ráðherrann Kai Uwe von Hassel. Hefur hinn síðast- nefndi verið mjög títt nefndur í fréttum að undanförnu. Að tjaldabaki kynda svo margir andstæðingar Erhards í flokki hans undir andstöðunni gegn honum svo sem Strauss fyrr- verandi varnarmálráðherra og Konrad Adenauer, fyrrv. kanzlari, og það ekki árang- urslaust. Skoðun hins síðar- nefnda virðist vera að festa rætur, að Erhard hafi verið efnahagsmálasnillingur en ekki stjórnmálamaður og því geti hann ekki verið leiðtogi fiokksins. Erhard virðist enn samt svo sterkur í sínu em- bætti ,að ekki verði við hon- um hnikað að svo stöddu. Hins vegar er ljóst, að fyrir dyrum standa að öðru leyti umfangsmiklar breytingar á vestur-þýzku stjórninni. Um það virðast blöð þar í landi að minnsta kosti sammála. Sú gagnrýni, sem Erhard verður einkum fyrir sem kanzl ari er, að hann sé óákveðinn og seinn að taka pólitískar ákvarðanir. Á þetta ekki hvað sízt að hafa komið í ljós eftir kosningarnar til vestur-þýzka sambandsþingsins í fyrra- haust, en þá vann Kristilegi demókrataflokkurinn, CDU og systurflokkur hans í Bayern, Kristilegi sósíalistaflokkurinn CSU mikinn sigur. Aðstaða Erhards þá var því mjög sterk og hann hafði það að miklu leyti á valdi sínu að ákveða strax, hverja hann veldi sem ráðherra í stjórn sína. Stjórnarmyndunin dróst hins vegar á langinn sakir deilna, sem upp risu innan CDU/CSU og milli þeirra og samstarfsflokks þeirra í ríkis stjórninni, Frjálsra demókrata flokksins, FDP. Það var á valdi Erhards að þinda endi á þessa deilu og ráða henni til lykta. Það gerði hann einn- ig, en að því er mörgum þótti, ekki fyrr en of seint og hafði þá beðið talsverðan álits- hnekki. Óákveðni og hik hefur þótt loða við stjórnarathafnir kanzlarans síðan. Er nánasti samstarfsmaður kanzlarans, Kai Uwe van Hassel varnarmálaráðherra. Eru dagar hans í ráðherrastóli senn taldir? Ludger Westrick, ráðherra án ráðuneytis, ekki talinn hafa bætt úr þessum annmarka, heldur fremur aukið á hann. Westrick hefur nú sagt af sér og er það fyrsti fyrirboði þess, sem verða kann. Eins og sakir standa vex þeim kröfum stöðugt ásmegin, þar sem farið er fram á umfangs- miklar breytingar á stjórn- inni og virðast margir fremstu ráðamenn flokks kanzlarans vera þeirrar skoðunar, að þar verði hann að taka ákvarðan- ir mjög bráðlega og fylgja þeim ákveðið eftir, annars kunni álit hans að bíða óbæt- anlegt tjón. í gær átti Erhard að fara til Bandaríkanna til mjög mikil- vægra viðræðna við Johnson forseta, þ.e. 24.—28. septem- ber. Vegna þessa hafa raddir þeirra, sem krefjast breytinga á stjórninni aðeins lækkað síðustu daganna, því að marg- ir fremstu flokksbræðra kanzlarans, svo sem Rainer Barzel, formaður þingflokks- ins hafa lagt ríka áherzlu á að kanzlarinn hafi sem óskipt- astan stuðning heima fyrir, svo að aðstaða hans í við- ræðunum við Johnson forseta bíði ekki hnekki. En strax eftir fáeina daga, er Erhard snýr aftur heim, verð- ur hann að hefjast handa um endurskipulagningu stjórnar sinnar. „Enginn er sá, að ekki geti annar komið í hans stað“, sagði Rainer Barzel fyrir nokkrum dögum í útvarpsvið .tali, þar sem rætt var um vestur-þýzku stjórnina. Og hélt áfram: „Þegar einhver annéu’ kann betur með mál að fara en sá, sem nú hefur það í verkahring sínum, þá mun- um við (þ.e. CDU/CSU) ekki hika við að taka afleiðingun- um af því“. Ekki eru orð Barzels að svo komnu túlkuð þannig, að hann telji Erhard ekki lengur hæfan til þess að gegna kanzlaraembættinu, heldur hitt ,að dagar sumra ráðherranna í stjórn Erhards séu • senn taldir í ráðherra- stóli og þá fyrst og fremst Hassels varnarmálaráðherra, þrátt fyrir allar yfirlýsingar Erhards að undanförnu um, að hann sé ákveðinn í að Hassel verði áfram varnarmálaráð- herra. Ummæli Barzels hljóta einn ig að hljóma sem áminning til Erhards um, að þeir dagar kynnu að koma, að hinn síðar nefndi myndi missa stuðning hans og annarfa stuðnings- manna, ef Erhard bregst ekki nægilega röggsamlega við þeim kröfum, sem nú eru uppi um endurskipulagningu stjórn arinnar, þannig að flokkur- inn megi við una. SöhoSm borðlampar eru stíi iireinir og smekklegir. Danskir borðlampaskermar og vegglampaskermar, falleg og vel uimin vara. Vesturgötu 2, sími 20-300 Laugavegi 10, sími 20-301 OFSAFJÖR I BÚÐINNII kvöld Dátar LEIKA Munið skírteinin. _______ Kennsla hefst fimmtudaginn 6. okt. Innriíun og upplýsingar í síma 32153 kl. 2—6 daglega. BAUETSKOU SIGRIÐHR ÁRMANN SKULAGÖTU 34 4. HÆC olivetti skolariivélar Yfirburða gæði og skrifthæfni OLI- VETTI skólaritvéla skipa þeim í fremsta sæti á heirnsmarkaðinum. Við bjóðum helmingi lengri ábyrgð en aðrir Fullkomin viðgerðarpjónusta á eigin verkstgeði. G. Helgason & Melsteð hf. Rauðarárstíg 1 — sím) 11644.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.