Morgunblaðið - 27.09.1966, Side 28

Morgunblaðið - 27.09.1966, Side 28
28 MORGUNBLAÐID ÞriSjudagur 27. sept. 1966 Hún lagði skammbyssuna hægt á rúmið og kraup síðan niður, T.il þess að ná skónum og sokkun- um af Margaret. Hún losaði pilsið af henni og reyndi að ná henni úr því, en það vildi ekki losna alveg. Hún togaði fastar og líkið tók að síga fram af stólnum. Hún varð skelfd og reyndi að stöðva það, en stóll- inn hallaðist þá fram og lhtiö rann niður á gólfið. Niðri var Jim Hobbson og kallaði til Ben, félaga síns og sagði: — Ég kem strax, Ben. — Hafðu alla þina hentisemi. svaraði félagi hans úr lögreglu- bílnum. Jim leit einkennilega á skraut- bílinn og lokaði dyrunum á eftir sér. Hann kom auga á Dan, fyrir innan diskinn, og gekk til hans. — Það er gestur hjá henni, sagði barþjónninn. — Hvað áttu við með gesti? spurði Jim. — Systir hennar. — Er það hún, sem á þennan Rolls hérna fyrir utan? Dan kinkaði kolli. — Það er meiri systirin! sagði Jim hrifinn. — Aldrei sagði hun mér, að hún ætti ríka systur. — Það er víst sitthvað, sem veizt ekki um hana. Eins og til dæmis það, að hún verður rekin út héðan um manaðamótin. — Ha? — Beamis var hérna í dag. Ef þér viljið skrifa lengur, ódýrar f ) og hetur — þá notið . . . sem hefir heimsmet í sölu kúlupenna Setti henni úrslitakosti vegna vanskila á húsaleigunni. — Nú, svo þannig var það, sagði Jim og kinkaði kolli. — Ég vissi, að eitthvað lá þungt á henni. Veslingurinn, og það á sjálfan afmælisdaginn hennar. Edith var komin í fötin af Margaret og var að troða henni í sinn eigin kjól, þegar barið var á dyr. Hjartað í henni ætlaði að hætta að slá. — Það er bara ég, Edie, sagði Jim. Dauðskelfd, draslaði hún lík- inu upp í ruggustólinn aftur og gekk að dyrunum. — Já, Jim, sagði hún. — Ég skal ekki tefjá þig augna blik. Það var um þetta í kvöld. — Því miður get ég ekki hleypt þér inn, Jim. Ég er svo fáklædd. — Fleygðu þér í eitthvað. Ég þarf endilega að tala við þig. Hún vissi, að nann mundi ekki láta undan. Hún leit yfir her- bergið og í spegilinn og henni hnykkti við, er hún sá ,að hún var í fötum Margret og með hárgreiðslu hennar. Hún þaut út í baðherbergið og tók baðslopp- inn ofan af snaga, að hurðabaki. Hún fór í hann utan yfir kjól- inn og vafði handklæði um hár- ið. Sneri svo aftur að dyrunura og fullvissaði sig um, að ruggu- stóllinn væri ekki innan sjón- máls, þegar dyrnar væru opn- aðar. Hann sást örugglega ekki. Hún hélt sloppnum að háisi sér og opnaði dyrnar ofurlínð - Ég er búinn að ganga frá þessu í kvöld, sagði Jim og ljóm- aði allur. — Charlie Green hefur lofað að taka vaktina mma. núna eftir klukkutíma, svo að við getum farið út og skemmt okkur. — Ég get ekki með nokkru móti farið, Jim, sagði hún. — Systir mín er hér gestkomandi. Jim hnykkti við að heyra rödd ina í henni. — Edie, sagði hann, ég veit um þessa uppsögn, og veit hvað þér líður illa út af henni. Þú þarft að ræða málið rólega. Hvað ef ég liti hérna inn seinna í kvöld? — Nei, Jim, ég get bara alls ekki hitt þig neitt í kvöld. Farðu nú. Hún lokaði dyrunum og hann stóð þarna andartak, móðgaður og ringlaður. Svo gekk hann hægt niður stigann, og var ekki viss um nema rétt væri að snúa við og reyna að koma fyrir hana vitinu. Edith lauk við að fara í sokk- ana af Margaret. Svo stóð hún upp strauk úr pilsinu og stakk fótunum í hælaháu skóna. Þeir voru of litlir og fyrst var hún óstyrk á fótunum. Hún gekk um gólf þangað til hún var farin að venjast skónum, og gat gengið nokkurn veginn eðlilega. Hún athugaði vandlega hár- greiðsluna á Margaret, sem hún var nú búin að breyta í sína eigin greiðslu, tók síðan skamm byssuna af rúminu og stakk henni í höndina á Margaret. Hringurinn! Hún sá stóra, fer- kantaða demantinn á fingri Margaret. Hún dró hann af og setti sinn eigin hring í staðinn, einfalda hringinn með rúbín- inum, sem faðir hennar hafði átt. Hún athugaði demantshringinn og setti hann síðan á löngutöng vinstri handar. Fingurinn henni var ofstór, svo að hring- urinn vildi ekki komast upp fyr- ir annan liðinn. Hún hamaðist og togaði þangað til hringurinn loks komst á fingurinn, en sárt var ur — Munduröu eftir að kaupa skordýraeitur? En nú var það úrið. Hún gekk að snyrtiborðinu og tók úrið fra Jim úr kassanum og horfði á það stundarkorn. Síðan setti hún þaö á úlnliðinn á líkinu. Verkinu var lokið. Hún athugaði sjálfa sig í speglinum. Blekkingin var enn fullkomnari en henni hafði sýnzt hún vera um daginn, þeg- ar hún skoðaði sig í speglinum i loðkápunni heima hjá de Lorca. Hún tók varalitinn úr veski Margaret og bar á sig. Hún kink- aði kolli ánægð og setti svo upp hattinn hennar og sló blæjunni frá andlitinu. Loks setti hún upp hanzkana og gekk síðan út að glugganum og gægðist gegn um gluggatjaldið. — Lögreglubíilinn hans Jims var ennþá þarna fyrir utan! Þá var hann enn niðri 'í veitinga- stofunni og í veginum fyrir henni! Hún flýtti sér að dyrun- um og hlustaði á hávaðann niðri. Hún gat heyrt að hann var að tala við Dan. — Ég ætla að reyna einu sinni enn. Ég held, að hún Edie þurfi mín með. Hún sneri sér við og horfði með skelfingu á lík tvíburasyst- ur sinnar. Fotatak Jims nálgaðist enn. Edith sagði og reyndi að láta það heyrast vel: — Manstu, Maggie, þessa bjánalegu vísu, sem við vorum vanar að syngja, Og svo fór hún að raula vísuna, hálfhikandi — þetta var dægur- lag frá því kring um 19-30. Hún gat heyrt í talstöðinni í lögreglubílnum úti fyrir, og sam stundis stakk félagi Jims höfð- inu inn og kallaði til hans: — Það er verið að kalla á okkur, Jim. — Er alveg að koma, svaraði Jim og samstundis sneri foia- takið hans við niður stigann ait- ur. Royal INSTANT PUDDING pii riuiHO •sr- 4FIAV0RS Unfyir os aldnir njóta þcss að borða köldu Royal búðing'ana. Bragðtegundir: — Sukkulaði. karamellu. vanillu og jarðarberja. BALLETT JAZZBALLETT LEIKF9IVII FRIJARLEIKFJItH Búningar og skór i miklu úrvali. — Allar stærðir. — Simi 13076. ©PIB C0.tM.MlM COSPER hað I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.