Morgunblaðið - 29.09.1966, Page 1

Morgunblaðið - 29.09.1966, Page 1
32 síður 53. árgangur 222. tbl — Fimmtudagur 29. september 1966 Prentsmiðja Morgunblaðsins Frakkar á Alflsherjarþingi: Bandaríkin verða að stíga fyrsta skrefið — „Tillögum verður að beina til beggja aðila", segir Goldberg A laugardag var sendiráðsrita ra Portúgals rænt úr sendiráði lands síns í Kongó og hann grátt leikinn. Hér sést einn lögreglumanna Kongóstjórnar leiða einn óeirðaseggjanna frá sendiráði Portúgala í Leopoldville, sem svartir nefna Kinshasa. Viðræðum Erhards og Johnsons lokið ! Danaprinsessa f rúlofast 5. okt. Kaupmannah. 28. sept. NTB | FRANSKI greifinn, Henri de i Monpesat, unnusti Margrétar' Danaprinsessu kom til Kaup-t mannahafnar í dag, og tókl ríkisarfinn á móti honum. Varj frá því skýrt í dag, að hjóna-j efnin myndu opinbera trúlof- ( un sina miðvikudaginn 5. okt.' að loknum ríkisráðsfundi. Fjölskylda greifans mun J koma til Kaupmannahafnar j n.k. mánudag, til að hittaí dönsku konungshjónin. Ert búist við að mikill mannfjöldi; muni safnast saman við kon-l ungshöllina til að hylla hjónaf efnin, en Margrét nýtur mik-i illa vinsælda meðal dönskuj þjóðarinnar. Daginn fyrir trúlofuninal mun Jens Otto Krag, forsætisl ráðherra, tilkynna danskal þinginu um ráðahaginn, ogí geta þingmenn þá látið í ljós] álit sitt. Ekki er búist viðj neinum umræðum um málið. ( Vandamálið um kostnaðinn af veru bandarísks hers í Þýzkalandi óleyst, en Erhard kveðst vongóður Washington og Bonn, 28. sept. — NTB — AP. LUDWIG Erhard, kanzlari V- Þýzkalands, hélt í dag heimleið- is frá Washington eftir viðræður við Johnson forseta. Leiðtogarn- ir tveir urðn sammála á fundum sínum um að varnir Vesturlanda bæri að taka til umfangsmikilla umræðna, og að hugsaniegt væri að bandarískt herlið yrði kvatt heim frá V-T>ýzkalandi. Þá urðu þeir Johnson og Erhard sammála um, að æskilegt væri að Bret- land tæki þátt í þessum viðræð- um. að því er segir í sameigin- legri tilkynningu. sem út var gefin í Washington að fundi þeirra loknum. Hugmyndin um slíkt endur- uppgjör Vfina Vesturlanda var fyrst sett fram af Johnson for- seta fyrr í þessum mánuði, eftir að Bretar höfðu lýst því yfir, að þeir hyggöust fækka í her sín- um í V-Þ> zkalandi nema því aðeins, að V-Þjóðverjar tækju þátt í kostnaði við dvöl brezka hersins þar. í tilkynnmgunni, sem út var gefin í Wahington, segir, að þeir Johnson og Erhard hafi ver- ið sammála um, að dregið hafi úr spennunni í Evrópu. Lögð er áherzla á, að enn sé þörf öflugs bandalags, en því er jafnframt fram haldíð að sníða verði slíkt bandalag eftir kröfum tímans. Hinar fyrrnefndu umræður um varnir Vesturlunda munu einnig ná tii þess, hver áhrif Fiamh. á bls. 31 New York, 28. sept. — NTB — AP. COUVE de Murville, utanríkis- ráðherra Frakklands, sagði í! ræðu á Allsherjarþingi SÞ i dag ! að Bandarikin yrðu að taka fyrsta skrefið í átt til friðar í Vietnam. í dag vai Tndónesía tekin aftur í samtök Sameinuðu Þjóðanna. Sukarnó Indónesíuforseti, ákvað að segja land sitt úr SÞ í marz 1965 sökum þess að Malasía hafði verið kjörin í Öryggisráðið. í ræðu sinni á Allsherjarþing- inu í dag sagði utanríkisráð- herra Frakka að þeim mun meira sem vald’ð væri, þeim mun meiri væri ábyrgðin. „Eina von- in um frið í Vietnam er, að hafnar verði viðræður á grund- velli Genfarsáttmálans um Viet- nam frá 1954, og að allt erlent herlið í Vietnam verði kvatt þaðan. Það, sem skiptir máli, er ekki hversvegna aðilarnir tveir berjast, el’.egar hvert er mark- mið þeirra, heldur það, að viet- namska þioðin lifi það af, og framtíð heonar verði tryggð", sagði franski utanríkisráðherr- ann. De Murvil'le minntist í ræðu de Gaulle, Frakklandsforseta, í Pnom Penh, og lagði áherzlu á, að fyrsta nauðsynlega skrefið í átt til friðarsamninga væri að Bandaríkin skuldbyndu sig til Framh. á bls. 31 Ummælum Krags misjafnlega tekið Kaupmannahöfn, 28. sept. NTB Kaupmannahafnarblaðið „Berl- ingske Tidende“ segir í dag, að skilyrði fyrir því, að eitthvað verði úr sameiginlegu átaki Norðurlandanna i markaðsmálum Evrópu sé fylgi ráðamanna Noregs og Svíþjóðar við hug- myndina. Forsætisráðherrar þess ara tveggja landa hafi hins veg- ar aðeins kynnzt henni af skeyt- um, sem borizt hafi um málið frá New York, London og Brussel. Ummæli þessi koma fram í ritstjórnargrein blaðsins, en henni lýkur þannig: „Sá háttui^ sem hafður hefur verið á kynn- ingu þessarar hugmyndar (um markaðsmálin), er lítt til þess fallinn að fá góðar undirtektir í Bretlandi“. Annað Kaupmannahafnarblað, „Information“, segir, að telja verði, að hugmyndir danskra ráðamanna hefðu betur komið fram annars staðaj> en nú í Strassborg. Það virðist helzt vaka fyrir Krag (forsætisráðh. Fiamh. á bls. 31 Reynt að bjarga flaki ,Skageraks# Kaupmannahöfn 28. sept. NTB KVÖLDBERLINGUR skýrir frá því í dag, að liklegt þyki, að til- raun verði gerð til að lyfta upp á yfirborðið flakinu af dönsku ferjunni Skagerak, sem sökk út af Hirtshals fyrr í þessum mán- uöi. Er það hollenzkt björgunar fyrirtæki, sem boðizt hefur til að gera tilraunina. Fyrirtæki þetta bjargaði nýlega skipi, sem sokk- ið hafði í höfninni í Stavanger í Noregi. Aðferðin, sem félagið hyggst nota, er að fylla flakið með ör- smáum plastkúlum, með lofti i, þar til það lyftist upp á yfir- borðið. Uppfinningamaður þess- arar aðferðar er danski verkfræð ingurinn Kárl Kröyer. Blaðið segir ennfremur að lík- lega verði reynt að ná upp flak- inu af danska skipinu Martin S, sem sökk við „Sykurtoppinn“ á Grænlandi, með sömu aðferð. Þá segir að lokum, að hið fræga danska Svitzer-björgunar- félag, hafi hafnað tilboði um að reyna að bjarga Skagerak, þar sem útgerðarfélagið hafi sagt að félagið fengi enga greiðslu, ef tilraunin mistækist. Argentínskir öfgamenn ræna farþegaflugvél — Flugstjórinn neyddur til að lenda ó Falklandseyjum — Mólið allt hið íurðulegasta Buenos Aires, 28. sept. — NTB — AP — FIMM öfgamenn úr röðum argentínskra þjóðernis- sinna tóku í dag herskildi farþegaflugvél af gerðinni DC-4 með 44 manns um borð og neyddu flugmenn- ina til þess að lenda á Falklandseyjum í Atlants- hafi. Falklandseyjar lúta brezkri stjórn, en Argen- tína hefur löngum gert til- kall til eyjanna. Þjó'ðernissinnarnir, sem nefna sig „kondórana", fram- kvæmdu flugvélarrán þetta sem lið í „táknrænni innrás“. Á argentínskum kortum heita Falklandseyjar Malvinas-eyj- ar. — Samkvæmt fréttum, sem borizt hafa til Buenos Aires tókst lending flugvélarinnar vel. Etfir lendingu sendu fimmmenningarnir út tilkynn ingu þar sem segir að innrás- in hafi heppnazt vel, og stað- fest hefðu verið yfirráð Arg- entínu yfir eyjunum. Talið er, að „innrásin" hafi átt sér stað í samfoandi við heimsókn Philips prins, her- toga af Edintoorg, til Argen- tínu, en þar mun hann koma fram sem fulltmi Elísabetar drottningar við hátíðahöld vegna 150 ára afmæiis sjálf- stæðis Argentínu. Falklandseyjamálið var síð- ast til umræðu með utanríkis- ráðherrum Bretlands og Arg- entínu fyrir nokkrum mánuð- um. íbúar Falklandseyja eru nær allir af brezkum upp- runa. Aðalatvinnuvegur eyjar skeggja er sauðfjárrækt. Stop ular skipaferðir eru milli höf- uðstaðar eyjanna, Port Stan- ley, og Montevideo í Uruguay, en engar fastar ferðir eru til Argentínu. Ekkert er vitað hversu far- þegum flugvélarinnar, sem Framh. á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.