Morgunblaðið - 29.09.1966, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 29.09.1966, Qupperneq 24
24 MORGU N BLAOIO Fimmtudagur 29. sept. 1966 Dragtin er úr Hiarfagarni Alla litina, nýjustu prjóna og helztu mynztrin, alls konar prjóna og heklunálar fáið þér í Hringver Austurstræti 4. — Sími 17-900 og til hagræðis fyrir konur í austurhluta borgarinnar bjóðum við nú sama úrval, sömu þjónustu, nægar birgðir í Hringver Búðargerði 10. — Sími 30933._ VÖRUGEYMSLA 1—200 ferm. vörugeymsla óskast til ára- móta. — Sími 12-800. Stúlku með gagnfræðapróf eða lands- próf vantar til aðstoðar á skrifsfofu Vélritunarkunnátta ekki nauðsynleg. Upplýsingar á skrifstofu minni, sími 11000. Hltsimasljóa'i Sumarbúsfoður — Ársíbúð Til sölu er sumarbústaður í næsta nágrenni Reykja- víkur. Búið heíur verið í bústaðnum allt árið. — Upplýsingar í síma 19278. Dömur Ný sending: Stuttir og síðir samkvæmiskjólar, síð pils. Perlusaumaðar samkvæmisblússur. Kvöldtöskur, hanzkar, nælon og skinn. Hjá Báru Austurstræti 11. Gólfkiæilning frá DLW er heimskunn gæðavara. GÓLFDÚKAR GÓLFFLÍSAK GÓLFTEPPI við allra hæfi. Munið merkið er trygging yðar fyrir beitu fáanlegri gólfklæðningu. Deutsche Linoleum Werke AG ATHUGIÐ! Þegar miðað er við útbreiðslu. ei langtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu en öðrum blöð-—'. 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA 3 ko<ma“ sagði Trölla- mamma og fór fram að ljúka upp. Gamli-Trölli brölti inn, kastaði kveðju á heima- fólk og lagði frá sér pokann. „Hér er góðgæti handa kóngsdótturinni að gæða sér á“, sagði hann og rétti fram rottuna. Aftur var barið að dyrum. Dunk, dunk! „Trúað gæti ég, að nú væri Stóri-Trölli á ierö sagði Tröllamamma og staulaðist til dyra. Stóri-Trölli klöngrað- ist inn, og kastaði kveðju á heimafólk og lagði frá sér pokann. „Hérna fær kóngsdótt- irin eitthvað til að nasla í“, sagði hann og rétt.i fram froskinn. Enn var barið að dvr- um. Dunk, dunk, dunk! Ekki bregst mér, að nú sé Litli-Tröili að koma“, sagði Tröllamamma og skálmaði til dyra. Litli-Trölli lufsaðist inn, heilsaði upp á fólk- ið og iagði frá sér pok- ann. „Herramannsmatur handa kóngsdótturinni að rífa í sig“, sagði hann og tók upp snákinn. Kóngsdótturinn neydd- ist til að taka á mó!; gjöfunum og þakka fynr sig. „Bráðum koma álfarnir aftur,“ hugsaði hún. „Álfarnir koma og fara burt með þennan óþverra. Heldur vildi ég svelta í hel en leggja mér slíkt til munns“. Tröllamamma stjáklaði skellihlæjandi til og frá og iðaði í skinninu. J •• '/ ■' „Ég er i svo góðu skapi“, sagði hún, „ég ræð mér ekki fyrir kæti. Hér fer áreiðanlega fram trúlofun í kvöld. Kóngs- dóttirin á að giftast ein- um af sonum mínum. Hún má sjálf velja, hvern hún vill. Líklega langar hana mest til að eiga þá alla, en hún verður nú að láta sér nægja einn“. Og Tröllamamma rak upp reglulegan trölla- hlátur og hló og hló svo að hún varð að halda um magann. Allir trölla- bræðurnir voru að springa af tilblökkun og ánægju, af því að hver unt sig hélt að kóngs- ! dóttirin mundi kjósa sig fyrir eiginmann. „Sjáðu þá bara“, sagði Tröliamamma, „Líttu á syni mína! Fali- egri tröllkarlar eru ekki til á öllu jarðríki. Þeir eru lika eftirmyndin hennar móður sinnar. Þú mátt gjarnan gefa þeim hýrt auga, litla kóngsdóttir!“ Kóngsdóttirin var skelfd og sorgmædd. Enginn gat hjálpað henni og álfarnir sáust ekki. Aðeins stjarnan lýsti inn um gluggann. Tárvotum augum horði kóngsdóttirin á stjörn- una. Ekkert virtist geta orðið henni til bjargar. Hér var hún lokuð inni í fjallinu og gat ekki komizt út. Gegn um gluggann gægðist nú ennþá eitt tröllið og kink aði til hennar kolli. Það var einna líkast stráki- ingi á svipinn, en kóngs- dóttirin var samt viss um, að þarna væri eitt tröll til við>bótar komið. Það kinkaði aftur til hennar kolli og hvarf. „Jæja, hvern viltu þá helzt eiga?“ spurði Tröllamamma. „>ú gerir góð kaup, hvern, sem þú velur. Þeir kunna allir saman galdra og eru duglegir að safna fjár- sjóðum. Og þeir eru all- ir komnir á giftingaald- ur. Litli-Trölli, sem er þeirra yngstur verður 947 ára i næstu viku. Þeir eru því ennþá á bezta aldri og ættu að geta lifað í nokkur þús- und ár. Eiginlega er það ekki nema eitt, sem við tröllin þurfum að óttast“. „Hvað er það mamma?“, spurði Gamii Tröili. „Hefi ég ekki sagt ykkur frá því?“ spurði Tröilamamma. „Þá er víst tími til kominn að vara ykkur við, þið eruð hvort sem er komnir af barnsaldri. Særingaþul- an, sem getur orðið okk- ur tröllunum að bana, og ég vil helzt ekki hugsa um. er til svona: Blásið þið vindar og blásið burtu tröllum úr fjöllum. Eyrnalang út skal reka upp skal Hökulang feykja, Neflang skal niður kasta, nú skulu allir falla tröllkarlar ljótir og leiðir og lævis skessa! „Úhú, ég má ekki til þeirrar þulu hugsa, því- lík skelfing. En þíð þurfið samt ekkert að óttast, litlu tröllakútarn- ir mínir. Það er engin hætta á ferðum þó að einhver óvalinn læsi særingaþuluna". „Hver þarf þá að lesa hana til þess að hún verði hættuleg?" spurði Stóri-Trölli. „Já, það er varla seinna vænna, að þið fáið að vita það“, sagði Tröllamamma. „Þegar karlsson, sem hvorki hræðist tröll eða myrk- ur, ies þuluna, er hætta á ferðum. En ég býst ekki við, að þið hittið nokkurn tíma strák, sem er svo hugaður. Og skyldi það henda, þurfið þið ekki annað en að galdra hann í burtu áður en harin getur opnað munninn'1, „Ég hitti strák í skóg- inum í kvöld“, sagði Gamli-Trölli. „Ég líka“, sagði Stóri- Trölli. „Og hann var ekkert hræddur við tröll“. „Og ekki við myrkur heldur“, sagði Litli- Trölli. „Þið gerið mig skelk- aða“, sagði Trölla- mamma og æddi fram og aftur. „Af hverju beittuð þið ekki göldrum til að losna við hann?“ „Við vorum að flýta okkur“, sögðu tröllkarl- arnir. „Okkur langaði heim að sjá kóngsdóttur- ina“. „Æ, mikil ósköp eru að heyra“, sagði Trölla- mamma, ég held að þetta ríði mér að fullu. En það þýðir ekki annað en að herða sig upp. Varla þurfum við að óttast þennan strák, því að ekki kann hann saeringa- þuluna. Nei, hann kann hana áreiðanlega ekkL Sem betur fer! Mér finnst ég strax vera far- in að hressast aftur“. Tröllamamma tók nú gleði sína á ný, hló há- stöfum og geistist fra.-n og aftur. „Við gleymdum alveg trúlofuninni", sagði hún, ,,er kóngsdóttirin ekki búin að ákveða, hvern hún velur?" Framhald næst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.