Morgunblaðið - 09.10.1966, Side 4

Morgunblaðið - 09.10.1966, Side 4
4 MORGUNBLADIÐ Sunnudagur 9. okt. 1966 BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 SEN DU M IVIAGNUSAR skipholt»21 símar21190 eftir lokun simi 40381 Hverfisgötu 103. Daggjald 300 og 3 kr. ekinn km. Benzín innifalið. Sími eftir lokun 31100. m——BÍLALEIGAN Falur m RAUÐARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022 300 kr. daggjald Kr. 2,50 á ekinn km. LITLA bílaleigon Ingólfsstræti 11. Sólarhringsgjald kr. 300,00 Kr. 2,50 ekinn kílómeter. Benzín innifalið í leigugjaldi Bifreiðaleigan Vegferð Sími 23900. Sólarhringsgjald kr. 300,00. Kr. 3,00 pr. km. BÍLALEIGAM VAKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35135. B O S C H Háspennukefli JLi 6 volt. 12 volt. Brœðurnir Ormsson L.ágmula 9- — Sinu 3SÖ20 • GENGUR EKKI HEILL TIL SKÓGAR Velvakanda hafa borizt allmörg bréf vegna skrifa í Þjóðviljanum um hersýninguna sem fram fór á Keflavíkurflug- velli fyrir skemmstu. í einu þeirra segir svo: „Kseri Velvakandi. Ég er einn þeirra, sem fóru til Keflavíkurflugvallar til þess að sjá flugsýninguna. Veðrið hefði getað verið betra, en samt held ég að þaer þús- undir, sem þarna voru saman komnar, hafi haft ánægju af þessari kynnisferð. Það er ekki á hverjum degi að við fáum tækifæri til þess að skoða Völl- inn. Nokkrum dögum síðar sá ég í Þjóðviljanum, að ég og aðrir Reykvíkingar hefðu farið suður eftir í þeirri von, að við yrðum áhorfendur að dauðaslysi — svipuðu því, sem átti sér stað nokkru fyrir sýninguna, er ungur þotuflugmaður beið bana. Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti, að sjúklegur hugsunar- háttur birtist á síðum Þjóð- viljans. Austri virðist ekki ganga heill til skógar nú frem- ur en fyrri daginn. — Fjölskyldumaður.“ • EFTIRVÆNTINGIN Til upplýsingar og fræðslu þeim fjölmörgu, sem sjaldan eða aldrei sjá Þjóðviljann, er rétt að birta hér kafla þann úr Austra-greininni, sem bréf- ritari víkur að: „Og þegar menn óku inn um hliðið hrislaðist eftirvænting- in milli skinns og hörunds, það fórst ungur bandarískur flug- maður fyrir nokkrum dögum, þegar hann var að æfa sig undir sýninguna. Hann breytt- ist í rauðan blett á flugbraut- inni, hver vissi nema það kæmi aftur fyrir í dag?“ Austri, maðurinn, sem þetta skrifar, heitir Magnús og er Kjartansson, ritstjóri Þjóð- viljans. • HVER ER HANN? Kona í Austurbænum skrifar m.a.: „Ég sá ekki betur, þegar ég var að rýna í Þjóðviljann í gær, en þessi Austri segði, að Reykvíkingar hefðu farið suður í Keflavík vegna þess að þeir vonuðust að það yrði þar slys. Guð fyrigefi manninum. En hver er þessi Austri eigin- lega?“ Svarið var komið áður, Magnús Kjartansson. Kon- unni til enn frekari upplýsing- ar má geta þess, að sami mað- ur sækist eftir völdum á ís- landi og dreymir um þann dag, er hann og andlegir bræður hans hafa örlög ís- lendinga í hendi sér. • HUGARFARIÐ Þá skrifar A. J.: „Velvakandi. Þú hefur yæntanlega lesið hugleiðingar Austra Þjóðvilj- ans um flugsýninguna á Kefla- víkurflugvelli — þar sem hann sagði, að eftirvæntingin hefði „hríslast milli skinns og hörunds" á okkur, körlum og konum, sem fóru að sjá flug- sýninguna. Og eftirvæntingin stafaði af því, að við óskuðum þess, að þarna yrði dauðaslys, sem skemmtilegt yrði að sjá. Þessar hugleiðingar Austra bera hugarfarinu ljóst vitni. Við, þetta venjulega fólk, hugsum ekki svona hvað þá að við mundum leyfa okkur að tala svona eða skrifa. En kommúnistaleiðtogarnir þekkja ef til vill af eigin reynd þá til- finningu, þegar eftirvæntingin „hríslast milli skinns og hör- unds“ vegna blóðsúthellinga. Stalín gamli drap ekki nema 9 milljónir manna, þegar hann var upp á sitt bezta, og Þjóð- viljinn var þá mjög ánægður með árangurinn. Okkar kæru landar við Þjóðviljann hefðu sennilega orðið enn ánægðari, ef sá gamli hefði myrt eina milljón til viðbótar. Menn, sem skrifa á þá lund, sem fyrr var getið, hljóta að hafa tileinkað sér þennan hugsunarhátt. Aðeins þeir, sem vanir eru að fagna dauðsfalli, þegar svo ber undir, láta sér detta £ hug að bera það á þús- undir Reykvíkinga, að þeir hafi farið fullir tilhlökkunar til Keflavíkurflugvallar, vonandi að einhver færi sér þar að voða. Ég ásamt miklum meirihluta fslendinga, er þeirrar skoðun- ar, að framlag okkar til varna á íslandi geti vart verið minna en það er: Hrjóstrug heiði á Reykjanesskaga. Hvenær höf- um við þurft að fórna vegna varna landsins? — 1 rauninni hefðu þessar þúsundir, sem fóru til að sjá flugsýninguna, átt að gera eitthvað til þess að sýna ekkju og börnum hins látna flugmanns samúð sína. Kommúnistar gera örvænt- ingarfullar tilraunir til þess að reyna að spilla sambúð okkar við varnarliðið. En þeir hafa ekki haft erindi sem erfiði. Sambúðin hefur verið framúr- skarandi góð. Yfirleitt hafa þessir erlendu menn verið stök prúðmenni og lítið hefur farið fyrir þeim. Það er kominn tími til að einhver láti í ljós ánægju sína og þakklæti fyrir góða og slysalitla samvinnu fslendinga við vararliðið. Við, sem ekki óskum eftir sovét-ís- landi vonum að varnarliðið dvelji hér jafnlengi og hætta stafar af kommúnistaófreskj- unni. — Þeim veittist ekki erfiðar að brytja okkur niður en þetta vesalings fólk, sem reynir að flýja yfir Múrinn. Væri ekki tilvalið fyrir menn eins og Austra að fá sér upp- lyftingu í sumarleyfinu og standa á vakt við Múrinn? Eftirvæntingin og tilhlökkun- in mundi áreiðanlega „hrísl- ast milli skinns og hörunds" á honum. — A. J.“ • „GÆFULAUS" „Velvakandi sæll. Fyrirgefðu gömlum karli að hann ónáðar þig með kroti sínu. En maður veit bara aldrei hvenær hægt er að trúa blöðunum og hvenær ekki. Mér þykir alltaf bezt að trúa öllu og ætla engum að fara með ósannindi, en þetta er erfitt. Þið blaðamennirnir vandið ykkur ekki nóg og fullyrðing stendur gegn full- yrðingu. Það kemur oft fyrir. Og ekki eykur þessi Austri í Þjóðviljanum traust okkar á sétt ykkar. Alltaf sé ég Þjóð- viljann þótt ég sé aldrei rukk- aður fyrir hann. Og yfirleitt les ég það, sem Austri skrifar, þótt ekki sé munnsöfnuðurinn fagur eða til þess fallinn að auka traust okkar lesenda á heiðarleika blaðsins. En þó keyrði um þverbak, þegar þessi blaðamaður var með dylgjur um að fólk vildi sjá menn far- ast á flugvellinum. Ég þekki fólk, sem fór að að sjá sýning- una. Reyndar hún dóttir mín og maðurinn hennar. Ég sýndi þeim það, sem Austri skrifaði. Gæfulaus er hann. Svona skrifa lánlausir, bitrir út í allt og alla. Enginn eykur sér fylgi með því að flíka ótugt sinni og vesaldómi. Það þýðir ekki að reyna að telja okkur lesendum trú að við séum skepnur einar, þýðir jafnvel ekki að reyna það á prenti. Þú mátt segja Austra það frá mér. — Karl.“ Fleiri bréf hafa borizt um samff efni, en þetta látum við nægja í bili. • TÍZKUSÝNING SJÓN- VARPSINS „Kæri Velvakandi. Óvenju rætin og miður geð- felld frásögn birtist í blaði yðar laugardaginn 8. okt. um tízkusýningarþáttinn í sjón- varpinu síðastliðið föstudags- kvöld. Minnir frásögnin öll og stílinn fullkomlega á það sem nefnt hefur verið æsi- eða sorpblaðastíll, þar sem reynt er að sjá eitthvað neitkvætt, andstyggilegt eða Ijótt í hlut- unum. Það er Morgunblaðinu til hróss hversu góða frétta- þjónustu og fréttastíl það hef- ur tileinkað sér, en bersýnilegt er að meðal fréttaritara þess er í dag maður, sem þar á ekki heima. Umrædd frásögn er aulc þess að vera rætin byggð á frámunalegu þekkingar og skilningsleysi á því sem hér er að fara fram. Það er mikið átak fyrir 180.000 sálir norður við heimskautsbaug að færast það í fang að ætla að halda uppi sjónvarpsdagskrá, enda hafa vandkvæðin nú þegar komið fram. íslenzkt þjóðlíf er það lítið og fábrotið í eðli sínu að vitað er fyrirfram að uppistaðan í sjónvarpsefninu nú um nokkurn aldur verður að vera aðkeypt efni. En leggja verður áherzlu á að reyna að hafa sem mest af þvi innlent. Ef að það sjónarmið Morgunblaðsfréttaritarans á að ráða, að taka verði gjald af öllum þeim, sem fram koma f sjónvarpinu, af því að ef til vill hafi þeir eitthvað óbeint gagn af því, að koma þar fram, væri eins gott fyrir sjónvarpið að loka strax. Má hér aðeins minna á, að í Bandaríkjunum og víðar verða stjórnmála- menn að borga stórar fjárhæð- ir fyrir tíma í sjónvarpi og blöðum fyrir að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Og mætti því spyrja, hvað forsæt- isráðherrann, Bjarni Bene- diktsson, eða Sjálfstæðisflokk- urinn hefði borgað fyrir við- talsþáttinn um daginn. NeL það væri nær að því fólki sem hefur lagt á sig mikla vinnu og fyrirhöfn ásamt sérþekkingu til þess að gera svona tízku- sýningu mögulega í sjónvarp- inu væri þakkað fyrir sinn skerf í stað þess að verða fyrir glósuaðkasti í fréttadálkum Morgunblaðsins. Ef umræddur blaðamaður ætlar að halda fréttamennsku sinni áfram væri gott að hann kynnti sér, hvað fellst í hugtakinu skyn- samleg heilbrigð gagnrýni, ef honum finnst svona mikil þörf á því að láta sitt persónulega ljós og mat skína í frásögnum sínum". Velvakanda þykir rétt að birta þetta bréf, þótt bréfritari, eins og svo margir aðrir, óski þess að nafn hans sé ekki birt. Ekki vil ég leggja dóm á efni bréfsins, en auðvitað bera ein- stakir blaðamenn ekki ábyrgð á fréttum blaðsins, heldur rit- stjórar. Saumastúlkur Stúlkur, helzt vanar karlmannafrakka- saumi óskast. — Ákvæðisvinna. Mjög góð vinnuskilyrði. Verksmiðjan Elgur h.f. Grensásvegi 12 (uppi). KENNSLA OG TILSOGN I latínu, þýzku, ensku, hollenzku og frönsku SVEINNN PÁLSSON, Sími 19925. .I'' L k

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.