Morgunblaðið - 09.10.1966, Síða 19
Sunnuctagur 3 okt. 1966
MORCU N BLAÐIÐ
. Winston er bezt
ems og af vinsældum sézt
Lang-inest seldu
filter sígarettur Ameríku
Ávallt nýjar og ferskar frá U.S.A.
Revnið Winston strax í dag
w
£k*ra á SÞ aj
eiio esperonto
SAMEINUÐU þjóðunum barst í
íær áskorun frá Alamenna esp-
erantosambandinu, þar sem skor-
að er á þær að efla esperanto
sem alþjóðamál.
Tæplega fjögur þúsund félaga-
samtök standa að þessari áskor-
un, svo og 900 einstaklingar.
Meðal íslendinga, sem ritað hafa
undir áskorunina eru: dr. Bjarni
Benediktsson, forsætisráðherra,
Magnús Jónsson, fjármálaráð-
herra, dr. Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra, Emil Jóns-
son, utanríkisráðherra og borgar-
stjórinn í Beykjavík, Geir Hall-
grímsson. Þá hefur og sendiherra
íslands í Kaupmannahöfn, Gunn-
ar Thoroddsen, ritað undir áskor-
unina.
M e ð a 1 félagasamtaka, sem
styðja málið er Alþýðusamband
íslands.
með DIXAN, þvottaduftið
fyrir allar tegundir þvottavéla:
því DIXAN er lágfreyðandi
og sérstaklega framleitt tyrir
þvottavélina yðar.
Með DIXAN táið bér alltaf
bezran árangur!
Havana 6. okt. NTB.
Tugþúsundir manna urðu að
yfirgefa heimili sín á norðvestur
strönd Kúbu í dag þar sem búizt
var við að fellibylurinn „Ine/,“
mundi fara þar yfir með ofsa
miklum.
Hafði vindhraði fellibylsins
aukizt verulega — en á föstudag
og laugardag í síðustu viku hafði
hann þegar valdið tjóni á kaffi
og sykurekrum á austurluuta
og miðhluta Kúbu. í Havana
hrundu mörg hús, og vitað er
að a.m.k. þrír menn hafa iátið
lífið í óveðrinu.
Samkvæmt upplýsingum veð-
urstofunnar kúbönsku í kvöld
stefnir „Inez“ á héraðið Pinar
del Rio, mikilvægasta landbún-
aðarhérað landsins.
Gætn mynd-
irnni skorið
úr...?
Washington, 6. okt. NTB.
• 1 síðasta hefti bandaríska
vikuritsins „U. S. News &
World Report". segir, að öld-
ungadeildaþingmaðurinn Ro-
bert Kennedy hafi tekið í
sína vörzlu allar röntgen-
myndir og ljósmyndir af líki
bróður síns Johns F. Kenne-
dys — og neit'að að sýna þær
öðrum en læknum Bethesda-
sjúkrahússins og yfirmönn-
um bandarísku leynilögregl-
unnar.
Blaðið segir, að Kennedy
—■ sem var dómsmálaráð-
herra, er forsetinn var myrt-
ur — hafi ekki látið Warren
nefndinni, er rannsakaði
morð hans, í té myndir þess-
ar.
Þeir aðilar, sem gagnrýnt
hafi niðurstöður nefndarinnar
í máli þessu, hafi fyrst og
fremst byggt þá gagnrýni á
mismunandi skýrslum um
skotsárin á líki forsetans. Tel-
ur blaðið, að Ijósmyndir og
röntgenmyndir þessar gæt.u
skorið úr um það, hvort
gagnrýnin á Warrenskýrsluna
á við rök að styðjast.
Blaðið segir, að Robert
Kennedy hafi sent myndirnar
til lækna Bethesda-sjúkra-
hússins og þar hafi þær verið
geymdar þar til undir árslok
1964. Síðan hafi þær verið
fengnar í hendur bandarísku
leynilögreglunni og þaðan
hafi þær borizt til einkaritara
hins látna forseta, Evelyn
Lincoln. Myndir þessar eru
nú í þjóðskjalasafni banda-
ríska ríkisins en enginn faér
aðgang að þeim nema með
leyfi Kennedy-fjölskyldunn-
ar.
,uiiez“ veldur
tjáni á Kúbu