Morgunblaðið - 09.10.1966, Qupperneq 26
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 9. olct. 1966
ZÖ
Guðleifur
skipstjóri
Einn hinna þekktari skipstjóra
hér á Suðuresjum, Guðlaugur
ísleifsson, Kirkjuvegi 28 A í
Keflavík, verð’ir sextugur á
morgun, 10. okt.
Guðleifur er fæddur í Neðra-
dal undir Eyjafjöllum, 10. okt.
1906. Voru foreldrar hans ís-
leifur Bergsteinsson og kona
hans Guðný Sigurðardóttir, sem
þar bjuggu og eignuðust 10 börn
Standa Eyfelskar ættir að því
fólki.
Þótt ísleifur faðir Guðleifs
stundaði nær eingöngu landbú-
skap, leitaði sonurinn fljótt á
hafið, eins og afar hans höfðu
gert úti fyrir Landeyjasandi og
við Vestmannaeyjar. því að um
fermingaraldur réðist hann til
sjóróðra til Vestmannaeyja, og
sjóinn hefur hann stundað síð-
an óslitið; unz hann af heilsu-
farsástæðum varð að hætta fyr-
ir rúmu ári siðan. Hann var
orðinn vélstóri innan við tvítugt
og tuttugu og þriggja varð hann
formaður; hefur hann því ver-
ið skipstjórarformaður lengst af
æfinni. Orð fór af Guðleifi fyr-
ir, hversu hann sótti jafnan
sjóinn fast, lét ekki útstynning-
in aftra sér að jafnaði, né hitt
að öðrum þætti lítt fýsilegt að
fara á sjó. Þrátt fyrir það tókst
Guðleif að stýra svo skipi sínu
að óhöpp á mönnum hans urðu
isleifsson
- sextugur
1 engin alla hans sjómannstíð og
er þó í frásögur fært, hversu
, djarft hann tefldi stunduin.
Guðleifur er búinn að fleyta
miklum afla að landi, því að auk
þess að sækja fast, var hann
og allvel aflasæll. Hann er því
tvímælalaust einn þeirra sæ-
garpa íslenzkra, sem rennt hafa
stoðum undir efnahags-
h'fið og með hví stutt að því
að yngra fólkið sem er að
vaxa geti lifað góðu h'fi og bvggt
sér hús í landínu. Plíkum mönn-
rnn sem Guðleifi er bví verðugt
að færa hakkir, þegar afrek ævi
starfsins liggja fyrir.
Kona Guðleifs er Svemhildur
Helgadóttir, ættuð úr Mjóafirði.
Þau eiga sex börn uppkomin,
ísleif, skipstjóra í Njarðvík,
Helga, vélstjóra í Keflavík,
Kristján, slökkviliðsmann í
Keflavík, Ingibjörgu, frú í Kefla
vík, Vilborgu, frú í Njarðvík,
og Heiðrúnu, sem dvalið hefur
með foreldrum sínum fram að
þessu. Öll " eru þessi börn hið
mannvænlegasta fólk.
Sjóferðir Guðleifs hinar mörgu
og oft erfiðu hafa nú sett nokk-
urt mark á manninn, heilsa
hans er ekki lengur það góð, að
hann geti látið eftir sér að tak
ast á við Ægi nú um sinn, en vel
myndi hann kunna því, ef hann
hefði enn getað sótt þann gula
út á miðin, boðið haustveðrun-
um byrginn og komið heill að
landi. Enn er hann bjartur yfir-
litum og brúnin hvöss, svo sem
hæfir þeim lengst er alast upp
undir fjöllunum og horfa út á
hafið.
Á sjómannadaginn í Keflavík
var Guðleifur einn þeirra
þriggja gamalla sjómanna sem
hlaut heiðursmerki sjómanna-
dagsins. Vinir hans, frændur og
kunningjar færa honum bez’u
hamingjuóskir á afmælisdaginn,
ánægðir við hafið að bað skuli
ekki vera búið að hirða hann
fyrir löngu.
Valtýr Guðjónsson.
ATHUGIÐ!
Þegar miðað er við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
^TnGD
Næstkoinandi
þ riðjudagskvöld
verður næsta
bingókvöld Ármanns
í Austurbæiarbíói.
ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR
úr harðplasti: Format innréttingar bjóða upp
á annað hundrað tegundir skópa og litaúr-
val. Allir skópar með baki og borðplata sér-
smíðuð. Eldhúsið fæst með hljóðeinangruð-
um stólvaski og raftækjum af vönduðustu
gerð. - Sendið eða komið með mól af eldhús-
inu og við skipuleggjum eldhúsið samstundis
og gerum yður fast verðtilboð. Ótrúlega hag-
stætt verð. Munið að söluskattur er innifalinn
í tilboðum fró Hús & Skip hf. Njótið hag-
stæðra greiðsluskilmóla og .
lækkið byggingakostnaðinn. ftæki
HÚS & SKIP h f.. LAUGAVEGI 11 • S f MI 2 15 13
AIMDRES auglvsir
Erlend karlmannaföt frá kr. 1.390,- til kr. 1.990,-
Stakir jakkar kr. 975,-
Stakar terylenebuxur frá kr. 575,- til kr. 770,-
Drengja og unglingaföt frá kr. 1 200 - til kr. 1.650,-
Stakir jakkar frá kr. 700,- til kr. 775,-
Stakar tervlenebuxur frá kr. 450 • til kr. 565,-
Föt úr enskum efnum, mjög hagstætt verð.
KLÆÐIST GDYRT
EíælisScápcar
200 L. KÆLISKÁPUK er með 20 I. frystihólf!, sem
er þvert yfir skápinn, segullæsing, sjö mismunandi
kuldastillingar. færanlegar hillur, yfirdekktar með
plasti, grænmetisskúffu og ágæt innrótting.
Kynnið vður kosti og gæ«i DANMAX kælitækj-
anna og hið hagkvæma verð.
Nýkomíð
Skápabrautir, skúffusleðar og hillujárn.
Valvi5ur sf.
Hverfisgötu 108.
Sími 23318.
LJOSAPERUR
simi moo
EGGEOIKMSTJAIUSSON 8 GOJIE